Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 12

Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ KAUPHÖLL Íslands hefur sett hlutabréf Pharmaco á athugunar- lista til að vekja sérstaka athygli fjárfesta á því að hún telji „verulega hættu á að ójafnræði hafi eða geti skapast meðal fjárfesta í tengslum við viðræður Pharmaco við þriðja að- ila um kaup á fyrirtæki“. Þetta kom fram í tilkynningu Kauphallarinnar fyrir opnun markaðar í gærmorgun og þar er vísað til þess að á föstudag- inn lokaði Kauphöllin fyrir viðskipti með bréf Pharmaco og að Pharmaco birti fréttatilkynningu eftir lokun markaðar um að viðræður um kaup á fyrirtæki væru á frumstigi. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir að farið hafi verið vandlega yfir atburða- rásina í viðskiptunum og yfir frétta- tilkynninguna frá Pharmaco á föstu- daginn. Kauphöllinni sýnist að eins og atburðarásin hafi verið og vegna þess hvernig tilkynningin sé orðuð, þá sé ástæða til að færa fyrirtækið á athugunarlista og þar með að vekja athygli fjárfesta á því að óvissa ríki vegna upplýsinga sem virðist vera verðmótandi en almennir fjárfestar hafi ekki aðgang að. Af þessari ástæðu sé fyrirtækið merkt með þessum hætti. Þórður segir Kauphöllina hafa haft þrjá kosti í stöðunni, í fyrsta lagi að aðhafast ekkert frekar, í öðru lagi að setja fyrirtækið á athugunarlista og í þriðja lagi að opna ekki aftur fyrir viðskiptin. Farið hafi verið yfir málið með fyrirtækinu áður en markaðurinn hafi verið opnaður um morguninn og síðan hafi verið tekin ákvörðun um að eins og í málinu lá hafi verið eðlilegt að fjárfestar fengju þessa viðvörun. Þórður segir að Kauphöllin hafi hvatt Pharmaco til að gefa frekari upplýsingar um þær viðræður sem standi yfir, en fyrirtækið telji að sú upplýsingagjöf gæti stefnt viðræð- unum í hættu. Ekkert hægt að fullyrða um innherjasvik Þórður er spurður að því, í ljósi þess að tilkynningin er með mjög ákveðnu orðalagi, hvort skilja megi hana á þann veg að sterkur grunur leiki á því að um innherjasvik hafi verið að ræða í viðskiptum með bréf Pharmaco. Hann segir ekki hægt að fullyrða að farið hafi fram innherja- svik, en einhver orðrómur hljóti að hafa orðið þess valdandi að verðið hafi hreyfst um heil tíu prósent án þess að nokkuð hafi komið fram um fyrirtækið. Þórður segist með þessu ekki vera að sakfella fyrirtækið, því upplýs- ingaleki geti gerst með ýmsum hætti. Hafa þurfi samband við ýmsa aðila vegna slíkra viðræðna og upp- lýsingalekinn geti átt sér ýmsar skýringar. Þórður segir að það sé Fjármálaeftirlitsins að taka afstöðu til þess hvort eða hvernig þetta teng- ist innherjaupplýsingum. Öll við- skipti liggi nákvæmlega fyrir, bæði verð og hverjir standi að viðskipt- unum, en skýr verkaskipting sé milli Kauphallarinnar og Fjármálaeftir- litsins um að Fjármálaeftirlitið taki næstu skref í svona málum. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að Fjár- málaeftirlitið hafi tekið þetta mál til skoðunar eins og gert sé við aðstæð- ur sem þessar. Hann segir mjög al- gengt að Fjármálaeftirlitið skoði mál af þessu tagi. Engin áhrif á erlenda skráningu Halldór Kristmannsson, forstöðu- maður innri og ytri samskipta Pharmaco, segir að fulltrúar Pharmaco hafi fundað með Kaup- höllinni í gærmorgun. Samkomulag hafi orðið um að eðlilegt sé að á með- an Pharmaco geti ekki gefið nánari upplýsingar um þær viðræður sem fyrirtækið eigi í verði það á athug- unarlista. Hann segir að viðræðurn- ar sem nú standi yfir um kaup á er- lendu fyrirtæki séu á frumstigi og því ekki tímabært að upplýsa nánar um þær þar sem óljóst sé hvort samningar muni nást. Halldór bætir við að birting frekari upplýsinga að svo stöddu gæti haft skaðleg áhrif á gang viðræðnanna. Spurður að því hvort ákvörðun um að setja fyrirtækið á athugunarlista hafi verið tekin vegna þess að nýjar upplýsingar hafi komið fram um helgina segir Halldór að svo sé ekki. Þetta hafi einungis verið talið eðli- legt framhald af því að lokað var fyr- ir viðskiptin á föstudaginn og að ekki sé hægt að gefa út frekari upplýs- ingar. Það að fyrirtækið sé á athug- unarlista sé ekki merki um að neitt neikvætt hafi átt sér stað, heldur að- eins merking til að vekja athygli fjárfesta á að líklegt sé að frétta sé að vænta sem geti haft áhrif á verð bréfanna. Þegar Halldór er inntur eftir því hvort hann telji að þetta muni hafa áhrif á fyrirhugaða skráningu fé- lagsins í erlenda kauphöll segist hann telja að þetta muni ekki hafa nein áhrif á það ferli. Pharmaco telji sig hafa staðið rétt að málum og haldið eins vel utan um þau og kost- ur sé. Gagnrýna ákvörðun Kauphallarinnar Greiningardeildir bankanna fjöll- uðu um málið í fréttabréfum sínum í gær. Í Vegvísi Landsbanka Íslands segir að erfitt sé að sjá að nýbirt frétt Pharmaco sé í andstöðu við yf- irlýst markmið félagsins. Því vakni upp sú spurning hvort þörf sé á að félagið sé sett á athugunarlista. „Ef Kauphöllin hefur grun um að inn- herjaupplýsingar séu á kreiki telur greiningardeild nauðsynlegt að Kauphöllin upplýsi málið strax, en láti ekki þar við sitja. Reynist grun- semdir Kauphallarinnar ekki réttar er eðlilegt að hreinsa félagið sem allra fyrst. Að setja félag á athug- unarlista getur ekki talist viðunandi lausn nema til mjög skamms tíma,“ segir í Vegvísi. Greiningardeild Íslandsbanka tekur í sama streng. Í Morgunkorni segir að á meðan yfirlýst markmið félagsins sé að vaxa um að meðaltali 15–20% á ári með ytri vexti geti sú staðreynd ein og sér að viðræður séu á frumstigi um kaup á öðru fyrirtæki ekki hafa komið markaðinum í opna skjöldu. Sé það hins vegar svo að hækk- unina á Pharmaco megi rekja til orð- róms um slíkar viðræður „telur Greining ÍSB viðbrögð markaðarins hafi einkennst af fljótfærni. Ljóst er að mikil spenna er á íslenskum hlutabréfamarkaði,“ segir í Morgun- korni. Í Hálffimm fréttum KB banka segir að ekki komi á óvart að Pharmaco skuli vera sett á athug- unarlista eftir föstudaginn. „Hins vegar kemur á óvart að Pharmaco skuli vera eina félagið sem sett er á athugunarlista eftir föstudaginn, en furðulegar tilviljanir virtust á föstu- daginn oft vera að verki í samspili verðhækkana og fréttaflutnings í Kauphöllinni.“ Vísast þar til viðskipta með hluta- bréf í Straumi, Íslandsbanka, Tryggingamiðstöðinni og Eimskip sem gagnrýnd voru í Hálffimm frétt- um sl. föstudag. Þar sagði m.a. að hlutabréf Straums hefðu hækkað um 7,98% að því er virtist einungis vegna afkomuviðvörunar sem ekki hefði átt að koma markaðsaðilum á óvart. Ennfremur hafi Íslandsbanki hækkað um 2,6%. Eftir lokun mark- aða hafi svo verið greint frá því að Íslandsbanki hefði selt allan hlut sinn í Straumi. Þá sagði að hlutabréf í Tryggingamiðstöðinni hefðu hækk- að um 7,98% í litlum viðskiptum en eftir lokun markaða hefði verið til- kynnt um kaup TM á 12% hlut í Straumi. Greiningardeild KB banka þykir því undarlegt, sem fyrr segir, að Pharmaco hafi eitt verið sett á at- hugunarlista á föstudag. Kauphöll Íslands setur Pharmaco á athugunarlista Veruleg hætta á ójafn- ræði meðal fjárfesta Fyrirtækið hvatt til að gefa frekari upplýsingar um viðræður HLUTABRÉF Pharmaco lækkuðu um 6,6% í viðskiptum gærdagsins og lokagengi var 45. Úrvals- vísitalan lækkaði um 2,1% í gær. Frá áramótum hefur gengi Pharmaco hækkað um 7,4%, en Úr- valsvísitalan hefur hækkað um 21,8% á sama tímabili. Pharmaco var hástökkvari ársins 2003 þegar hlutabréf í félaginu hækkuðu um 183% á sama tíma og Úrvalsvísitalan hækkaði um 56%. 6,6% lækkun á gengi Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.