Morgunblaðið - 02.03.2004, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 15
100% ilmefnalaust
• Moisture on-line 7 ml.
• Facial soap mild.
• Firming body smoother 40 ml.
• Eye defining duo vintage wine.
• High impact maskari.
• Long Last varalitur blushing nude.
• Aromatics elixir 7 ml.
*Á meðan birgðir endast.
Ráðgjafi frá CLINIQUE verður í
Lyf & heilsu kl. 12-17
Í dag ................................... Lyf & heilsu Melhaga
Á morgun ............................ Lyf & heilsu Kringlunni
Föstudag ............................. Lyf & heilsu Mjódd
Laugardag ........................... Lyf & heilsu Austurveri
Miðvikudaginn 10. mars ...... Lyf & heilsu Austurstræti
Kaupauki 7 hlutir!
ef þú kaupir 2 hluti eða
fleiri í Clinique
er þessi gjöf til þín*
1.498
Áttu eitthvað til að
gera árshátíðar-
kjólinn þægilegri?
QUICK SLIM
Góð leið til megrunar
án þess að nokkur viti.
Áður: 1.998 kr.
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l 9
.3
. 2
00
4
BIODRAIN
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
S
ÍA
·
2
5
6
2
1
Náttúruleg úthreinsun.
Dregur úr appelsínuhúð,
bólgum og yfirvigt.
Áður: 3.480 kr. – 180 stk.
Áður: 2.088 kr. – 90 stk.
1.468
BIO-FEM ACTIGEL
Hraðvirkt og árangursríkt við óþægindum
í kynfærum kvenna! Eitthvað sem allar
konur hafa beðið eftir.
Áður: 1.835 kr.
2.590
180 stk.
1.566
90 stk.
ÞÝZKIR jafnaðarmenn sleiktu sárin
í gær eftir að flokkur þeirra, SPD,
galt afhroð í kosningum til héraðs-
þings Hamborgar á sunnudag. Ósig-
urinn vakti umræðu um það hvort
umdeildar ráð-
stafanir ríkis-
stjórnar jafnaðar-
manna og græn-
ingja, sem ætlaðar
eru til að hleypa
nýju lífi í efna-
hagslíf Þýzka-
lands, gangi of
nærri almennum
kjósendum. Hann
boðar heldur ekki
gott fyrir SPD, þar sem á árinu fer
fram fjöldi héraðs- og sveitarstjórna-
kosninga.
Gerhard Schröder kanzlari hét því
á blaðamannafundi í Berlín að halda
umbótaáformum ríkisstjórnarinnar
til streitu, þrátt fyrir óvinsældir
þeirra. Sagði kanzlarinn hrakfarirn-
ar í Hamborg sársaukafullar fyrir
flokkinn, en þær myndu ekki hrekja
stjórnina af þeirri braut umbóta á
velferðarkerfinu og á reglum vinnu-
markaðarins sem hún sé staðráðin í
að fylgja.
Lakasta útkoma SPD
frá stríðslokum
Það sem kom upp úr kjörkössun-
um reyndist vera mesti kosninga-
ósigur sem SPD hefur orðið fyrir í
Hamborg frá því lýðræði var endur-
reist í Þýzkalandi eftir lok síðari
heimsstyrjaldar. Flokkurinn stjórn-
aði Hamborg, sem er eitt 16 sam-
bandslanda Þýzkalands, um áratuga
skeið með hreinum meirihluta, en nú
hrundi fylgið niður í 30,5%. Kristileg-
ir demókratar (CDU) nutu vinsælda
Ole von Beust, sem varð borgarstjóri
í kjölfar síðustu kosninga haustið
2001, og juku fylgi sitt úr 26,2% í
47,2%, en það dugar þeim til að ná
hreinum meirihluta á borgarþinginu.
Hægripopúlíski flokkurinn sem
CDU myndaði stjórn með eftir síð-
ustu kosningar og kenndur var við
stofnanda hans, fyrrverandi dómar-
ann Ronald Schill, svo gott sem
þurrkaðist út í kosningunum nú og
fékk engan mann kjörinn á borgar-
þingið. Hneykslismál urðu til þess að
Schill hrökklaðist úr borgarstjórn-
inni í haust sem leið og kosningar
voru boðaðar áður en fjögurra ára
kjörtímabilinu lauk.
Græningjar juku lítillega við fylgi
sitt, en ekki nóg til að þeir og SPD
gætu myndað meirihluta saman.
„Þetta er fyrsta áþreifanlega
áminningin sem samsteypustjórnin í
Berlín fær um vanhæfni sína,“ sagði
Edmund Stoiber, forsætisráðherra
Bæjaralands, er hann tjáði sig um
Hamborgarúrslitin í gær. Stoiber var
kanzlaraefni kristilegu flokkanna í
Sambandsþingskosningunum haust-
ið 2002, en þær unnu jafnaðarmenn
og græningjar naumlega.
„Sigur okkar [í Hamborg] grund-
vallaðist á stefnu ríkisstjórnarinnar í
Berlín,“ sagði Laurenz Meyer, fram-
kvæmdastjóri CDU. „Þetta er góð
byrjun á árinu.“
Efnahagsumbótaáætlun ríkis-
stjórnarinnar, sem ber yfirskriftina
Dagskrá 2010, fær góða dóma hjá
hagfræðingum en felur hins vegar í
sér ráðstafanir sem koma illa við hinn
þýzka meðaljón.
Sótt að umbóta-
áformum Schröders
Hamborg, Berlín. AFP, AP.
Reuters
Ole van Beust, borgarstjóri Hamborgar, og Angela Merkel, leiðtogi Kristi-
lega demókrataflokksins, er þau fögnuðu kosningasigrinum.
Gerhard Schröder