Morgunblaðið - 02.03.2004, Síða 17
www.opera.is midasala@opera.is 511 4200
Brúðkaup Fígarós eftir Mozart hefur verið sýnt oftar en nokkur önnur
ópera, en sjaldan hafa leynimakkið og erótíkin blómstrað eins og í
þessari uppfærslu Íslensku óperunnar. Í aðalhlutverkum er einvalalið
söngvara: Bergþór Pálsson, Auður Gunnarsdóttir, Hulda Björk Garðars-
dóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Sesselja Kristjánsdóttir.
Láttu þig ekki vanta í þessa bráðskemmtilegu veislu!
2. sýning fimmtudag 4. mars kl. 20 - Stefnumót við söngvara eftir sýningu
3. sýning laugardag 6. mars kl. 19
4. sýning sunnudag 14. mars kl. 19
Aðeins fáar sýningar
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Fyrirhugað er aðhalda íbúaþing íSúðavík 14. mars
nk. Auglýst hefur verið
eftir fyrirspurnum frá
íbúum Súðavíkurhrepps
um málefni þau er snúa að
sveitarfélaginu, en hægt
er senda inn fyrirspurnir
með tölvupósti eða koma
þeim á skrifstofu Súða-
víkurhrepps fyrir 10.
mars nk., að því er fram
kemur á vef hreppsins.
Innsendum fyrir-
spurnum verður síðan
svarað eins og kostur er á
íbúaþinginu 14. mars nk. Í
auglýsingu um fyrirhugað
íbúaþing kemur fram að
íbúaþingið er öflugur
vettvangur til að fá fram
hugmyndir og skoðanir
íbúa á málefnum er
snerta umgjörð og rekst-
ur sveitarfélagsins og er
jafnframt vettvangur fyr-
ir sveitarstjórn til að
miðla upplýsingum til
íbúa.
Íbúaþing
Regnbogabörn hafa, í samstarfi við Hagkaup,boðið skólum landsins úlpur að gjöf sem á erletrað skólavinur. Grunnskólinn í Hveragerði
var einn þeirra skóla sem þáðu þessa gjöf.
Eins og sjá má á myndinni nýtist gjöfin vel og
sýnir að þeir stóru eru góðir vinir þeirra smærri á
leikvellinum, einnig þegar horft er á strákana í fót-
bolta.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Skólavinir í Hveragerði
Einar Kolbeinssonheyrði fregnar afþví að hafin væri
leit að þjóð sem ekki hefði
hlerað símann hjá Kofi
Annan. Það vakti smá-
þanka:
Fráleitt virðast fylgja tíma,
fornar rekja slóðirnar,
nota ennþá „sveitasíma“,
Sameinuðu þjóðirnar.
Greint var frá því í DV að
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra hefði sagt
að í stríði stjórnmálanna
skiptu góðar hægðir
meiru en miklar gáfur.
Sólskríkjan syngur:
Forskot mikið Framsókn gefur
formaður sem er til vara:
Góðar hægðir Guðni hefur,
gáfurnar hann nær að spara.
Hleranir og hægðir
pebl@mbl.is
Laxamýri | Litla kvæðið um
litlu hjónin vakti mikla hrifn-
ingu fjölmargra gesta í félags-
heimilinu í Ýdölum fyrir
skömmu, þegar nemendur
fyrsta og annars bekkjar
Hafralækjarskóla í Aðaldal
sungu og léku á sviðinu í til-
heyrandi búningum og að sjálf-
sögðu með leikmynd sem hæfði
tilefninu.
Afar og ömmur, foreldrar,
systkini og fleiri gestir fylltu
sal félagsheimilisins, en á þess-
ari árlegu góugleði var boðið
upp á þorramat auk margra
annrra skemmtiatriða og fjöl-
breyttrar tónlistar.
Ungu leikendunum tókst vel
að túlka persónurnar, að mati
viðstaddra. Á myndinni má sjá
þau Rúnar Berg Árnason og
Þórunni Sigríði Bjarnadóttur
sem hlutu ásamt bekkjarsystk-
inum sínum mikið klapp gest-
anna í þakklætisskyni að sýn-
ingu lokinni.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Litla Gunna og litli Jón
Leikið
MINNA einelti er í grunnskólanum á
Blönduósi en áður. Helgi Arnarson, skóla-
stjóri Grunn-
skólans á
Blönduósi,
kynnti, á fundi
fræðslunefndar
Blönduóssbæj-
ar, viðhorfs-
könnun sem
gerð var á
meðal nem-
enda skólans.
Þar kemur
m.a. fram að
53% nemenda
líður næstum
alltaf vel í
skólanum, 44%
líður frekar oft
vel, 3% líður
sjaldan vel og 1% líður næstum aldrei vel
í skólanum, segir á fréttavefnum Húna-
horninu.
Um 92% nemenda skólans verða sjald-
an eða aldrei fyrir stríðni í skólanum og
þegar spurt er hvort einelti tíðkist í skól-
anum svöruðu 80% sjaldan eða aldrei og
eru það betri niðurstöður en í fyrra. Þá
telja tæplega 98% nemenda að það séu
góð samskipti milli nemenda í skólanum.
Fram kom í máli Helga að í heild sé við-
horfskönnunin betri nú en í fyrra og þró-
unin jákvæð, einelti hefur minnkað og
ljóst er að skólinn sé á réttri leið.
Einelti hefur
minnkað í
skólanum
Viðhorfskönnun á Blönduósi
SKÓGRÆKT ríkisins á Hallormsstað hef-
ur auglýst eftir tilboðum í grisjun á 3,7
hektara lerkiskógi á Fljótsdalshéraði og er
þetta í fyrsta sinn sem grisjun skógar er
boðin út hér á landi.
Að sögn Skúla Björnssonar, aðstoðar-
skógarvarðar á Hallormsstað, er útboðs-
frestur til 5. mars nk. og er stefnt að því að
verkinu verði lokið fyrir 15. apríl. Lerkið
sem til fellur verðu að mestu nýtt í staura
og kurl. Gera má ráð fyrir að grisjun á 2–
300 hekturum verði boðin út á ári á Héraði
innan tíu ára, að sögn Skúla.
Grisjun boðin
út í fyrsta sinn
á Íslandi
♦♦♦
Flestir fara í sumarbústað upp í Borg-
arfjörð eða austur fyrir fjall. Fáum hefur
dottið í hug að skreppa í bústað á Suð-
urnesin. En tímarnir breytast og mennirnir
með. Þegar Sandgerðisbær skipulagði sum-
arhúsahverfi í landi Þóroddsstaða fyrir fá-
einum árum heyrðust svartsýnisraddir sem
töldu þetta vonlaust svæði. En annað er
komið á daginn. Allar lóðir í Nátthaga eru
gengnar út. Þegar eru komin upp sjö hús og
verið að vinna við fleiri. Fjögur sumarhús
eru leigð út. Gestir geta gert sér margt til
dundurs, stutt er í fjöru og fjölbreytt fugla-
líf og svo er auðvitað hægt að fara í golf á
Kirkjubólsvelli sem er í göngufæri.
Tuttugu og sex einstaklingar í Sandgerði
eru án vinnu og er það tuttugu og sex of
mikið. Sú umræða sem nú er um framtíð
varnarliðsins kemur illa við Sandgerðinga
því margir bæjarbúar vinna á Keflavík-
urflugvelli, bæði hjá varnarliðinu og verk-
tökum. Brýnt er að stjórnvöld eyði þeirri
óvissu sem þetta skapar í atvinnumálum
svæðisins og grípi til sértækra aðgerða í
tíma, gerist þess þörf, eins og bæjarstjórn
Sandgerðisbæjar hefur ályktað um.
Miklar framkvæmdir eru í Sandgerði um
þessar mundir. Fjöldi húsa í byggingu.
Hæst ber þó framkvæmdir við Miðnestorg
en þar er hafin uppbygging miðbæj-
arkjarna sem í verður bókasafn, bæj-
arskrifstofur, íbúðir þjónusta. Mun nýja
húsið setja mikinn svip á bæjarfélagið.
Efling ferðaþjónustunnar er áhugamál
margra Suðurnesjamanna. Fólki finnst
nauðsynlegt að blása til sóknar og koma
Reykjanesskaganum á kortið. Ýmislegt er
þegar verið að gera. Unnið er að gerð
göngukorta þar sem nýjustu tækni er beitt
í kortagerð. Miðstöð símenntunar á Suð-
urnesjum og Leiðsögumannaskólinn standa
fyrir staðbundnu leiðsögumannanámi. Það
sækja tuttugu manns og er mikill hugur í
fólki. Þegar hópurinn útskrifast ættu gestir
okkar, þeir sem þess óska, að geta fengið
góða leiðsögn um Suðurnesin. Flestir er-
lendir ferðamenn sem til landsins koma
fara tvisvar í gegnum þetta svæði, en
stoppa yfirleitt lítið lítið. Ekki skortir
áhugaverða staði til að sýna. Tækifærin eru
því fyrir hendi og þau þarf að nýta betur.
Úr
bæjarlífinu
SANDGERÐI
EFTIR REYNI SVEINSSON
FRÉTTARITARA
Skúmurinn kominn
SKÚMURINN er kominn.
Björn Arnarson á Höfn sá
tvo skúma við Jökulsá á
Breiðamerkursamdi síð-
astliðinn laugardag, að því
er fram kemur á sam-
félagsvef Hornafjarðar. Í
fyrra sá Hálfdán Björns-
son á Kvískerjum fyrsta
skúminn 16. febrúar en
það var óvenju snemmt.