Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 20
SUÐURNES
20 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Keflavík | Hátt í 200 manns sótti
sameiginlega tónleika tónlistar-
skólanna fjögurra á Suðurnesjum
síðastliðinn laugardag, á degi tón-
listarskólanna. Tónleikarnir voru
haldnir í Kirkjulundi, safn-
aðarheimili Keflavíkurkirkju.
Að sögn Haralds Árna Haralds-
sonar, skólastjóra Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar, tókust tónleikarn-
ir vel. Í fyrri hlutanum komu nem-
endur úr skólunum fjórum fram
með ýmis tónlistaratriði. Eftir hlé
komu söngnemarnir saman og
sungu við undirleik hljómsveitar
lög úr þekktum söngleikjum.
Haraldur segir að tónleikarnir
hafi orðið nokkuð langir, staðið í
um tvo tíma, en athygli gestanna
hefði haldist vel vegna þess hvað
dagskráin var fjölbreytt.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Sungið saman: Alls komu um 60 nemendur fram á sameiginlegum tónleikum allra tónlistarskólanna á Suðurnesjum.
200 gestir á sameigin-
legum tónleikum
Reykjanesbær | Fjölskyldu- og fé-
lagsþjónusta Reykjanesbæjar er að
setja af stað nokkur verkefni til að
fylgja eftir samþykkt bæjarstjórn-
ar á fjölskyldustefnu Reykjanes-
bæjar. Meðal annars verður fjöl-
skylduvænu fyrirtæki og stofnun
veitt viðurkenning, reynt að stuðla
að jafnrétti á heimilum og berjast
gegn heimilisofbeldi.
Í fjölskyldustefnu Reykjanes-
bæjar er lýst markmiðum og sam-
þættingu einstakra málaflokka og
leiðum að settum markmiðum.
Fjölskyldu- og félagsþjónustu
Reykjanesbæjar var falið það verk-
efni að fylgja stefnumörkuninni eft-
ir, meðal annars að fylgjast með að
aðrar stofnanir bæjarins fari eftir
henni í starfi sínu. Er það meðal
annars gert með því að kalla árlega
eftir skriflegum upplýsingum frá
öllum sviðum og stofnunum bæj-
arins um hvernig stefnan hafi verið
notuð við skipulag starfseminnar.
Hjördís Árnadóttir félagsmála-
stjóri tekur sem dæmi um verkefni
sem samþykkt stefnunnar hafi leitt
af sér að fjölskyldu- og félagsþjón-
ustan sé að skipuleggja fjölskyldu-
dag fyrir sig og samstarfsfólk sitt
úr öðrum deildum á skrifstofum
Reykjanesbæjar í Kjarna.
Árleg viðurkenning
Í vor verður óskað eftir tilnefn-
ingum um fyrirtæki sem þyki skara
fram úr varðandi jákvætt viðmót til
fjölskyldunnar og hafi sett sér fjöl-
skylduvæna stefnu. Ætlunin er að
verðlauna á hverju ári eitt fyrirtæki
á almennum markaði og eina stofn-
un bæjarfélagsins enda er kveðið á
um það í stefnunni að Reykjanes-
bær ætli sem vinnuveitandi að sýna
gott fordæmi á þessu sviði. Útnefn-
ingin á að fara fram í tengslum við
menningar- og fjölskylduhátíðina
Ljósanótt.
Í stefnunni er lögð áhersla á að
efla jafnrétti innan fjölskyldna,
meðal annars við heimilishald, upp-
eldi barna og jafnræði meðal ein-
staklinga. Á að gera það með opinni
umræðu og hvatningu. Hjördís seg-
ir að verið sé að vinna sérstaklega
að þessu atriði. Einnig sé verið að
undirbúa umræðu og fræðslu um
afleiðingar heimilisofbeldis hvers
konar, þar á meðal kynferðisofbeld-
is.
Unnið að innleið-
ingu fjölskyldu-
stefnu bæjarins
Reykjanesbær | Nú
er það svart – afrískir
sálmar í Ameríku, er
yfirskrift hádegistón-
leika sem haldnir
verða í dag klukkan
12.15 í Listasafni
Reykjanesbæjar í
Duushúsum í Kefla-
vík. Davíð Ólafsson
syngur negrasálma.
Tónlistarfélag
Reykjanesbæjar
stendur fyrir tónleikunum í sam-
vinnu við Íslensku óperuna. Til-
gangurinn er að færa Íslensku óp-
eruna nær fólki á landsbyggðinni,
að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu og er fagnað sem góðri
viðbót við framboð tónlistar-
viðburða á starfssvæði Tónlistar-
félags Reykjanes-
bæjar.
Davíð Ólafsson er
bassasöngvari hjá Ís-
lensku óperunni.
Negrasálmar verða
fyrirferðarmiklir á
efnisskránni. Flytj-
endur ásamt Davíð
eru Daníel Bjarnason
píanóleikari og
þriggja manna hljóm-
sveit sem skipuð er
þeim Grími Helgasyni á klarinett,
Gyðu Valtýsdóttur á selló og Ingrid
Karlsdóttur á fiðlu. Útsetningarnar
eru efir Daníel Bjarnason.
Tónleikarnir hefjast klukkan
12.15 í dag og standa yfir í um hálfa
klukkustund. Aðgöngumiðar eru
seldir við innganginn.
Nú er það svart
Hávaði og hraðakstur | Ýmis mál
komu til kasta lögreglunnar í Kefla-
vík um helgina, að því er fram kem-
ur á vef embættisins.
Nefnt er að á sunnudag hafi lög-
reglan þurft að hafa afskipti af síð-
búnum og háværum gleðskap í
heimahúsi í Keflavík sem eðlilega
truflaði svefnró fólks í nærliggjandi
íbúðum. Einnig er tiltekinn glæfra-
legur hraðakstur pilts á átjánda ald-
ursári. Hann mældist á 149 kíló-
metra hraða á Reykjanesbraut þar
sem leyfilegur hámarkshraði er 90
kílómetrar á klukkustund.
Ættfræði | Félagar í Ættfræði-
félaginu hittast á Bókasafni
Reykjanesbæjar í kvöld, þriðjudag,
klukkan 20. Allt áhugafólk um ætt-
fræði er velkomið, segir í frétta-
tilkynningu frá Bókasafninu. Nán-
ari upplýsingar veitir Einar
Ingimundarson.
Reykjanesbær | Fjölskyldu- og fé-
lagsþjónusta Reykjanesbæjar hef-
ur tekið á móti tólf hælisleitendum
á þeim mánuði sem liðinn er frá
því bærinn tók yfir þjónustu við
flóttamenn samkvæmt samningi
við Útlendingastofnun.
Hjördís Árnadóttir félagsmála-
stjóri segir að starfið hafi gengið
vel, það sem af er, jafnt samstarfið
við lögreglu, þjónustuaðila og fólk-
ið sjálft.
Flest hefur fólkið gefið sig fram
við lögregluna í Reykjavík og þarf
því að fara þangað til skýrslutöku
og til að vinna í umsóknum sínum
um hæli sem pólitískir flóttamenn.
Á meðan unnið er í þeirra málum
gistir fólkið á gistiheimilum í
Reykjanesbæ. Tveir eru raunar
farnir aftur af landinu þannig að
tíu hælisleitendur eru nú í umsjá
Reykjanesbæjar.
Kominn
í fótbolta
„Þetta er töluverð viðbót við
annars menningarlega fjölbreytt
samfélag hér,“ segir Hjördís.
Fólkið kemur frá ýmsum og stund-
um framandi löndum en hún segir
að tungumálaerfiðleikar hafi yfir-
leitt ekki komið í veg fyrir eðlileg
samskipti við þessa einstaklinga.
Reynt er að hjálpa fólkinu eins og
unnt er. Hjördís tekur sem dæmi
að einn hælisleitandinn sé áhuga-
maður um knattspyrnu og hann sé
nú kominn í hóp sem æfir í
Reykjaneshöllinni.
Tólf hælisleit-
endur á mánuði