Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 21
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 21
SÍMI 530 1500
37.995kr.
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
www.heimsferdir.is
Mallorca
Heimsfer›ir bjó›a flri›ja ári› í rö› beint flug til Mallorca í sumar
og stórlækka ver›i› til flessa vinsælasta áfangasta›ar Spánar.
Mallorca hefur veri› ókr‡nd drottning fer›amanna undanfarin 40
ár enda getur enginn áfangasta›ur státa› af jafn heillandi umhverfi
og fjölbreyttri náttúrufegur›. A› auki eru strendurnar gullfallegar
og a›sta›a fyrir fer›amenn frábær. Á Mallorca er au›velt a› lifa
lífinu og njóta fless a› vera í
fríi. Á eyjunni eru heillandi
bæir sem hafa hver sinn
sérstæ›a karakter og yfir-
brag› og flví flreytist ma›ur
aldrei á a› flakka um og
kynnast n‡jum sjónarhorn-
um á eyjunni fögru.
Við stórlækkum
verð á
Mallorcaferðum
37.995 kr.
M.v. hjón me› 2 börn 2-11 ára,
23. júní, Playamar, vikufer›
me› sköttum og 8.000 kr.
afslætti. Netver›
39.995 kr.
M.v hjón me› 2 börn, 2-11 ára,
23. júní, í 2 vikur, Valentin
Park, Paguera, me› 8.000 kr.
afslætti. Netver›
47.090 kr.
M.v. 2 í íbúð, Playamar,
vikuferð, 26. maí, með
8.000 kr. afslætti. Netverð
Fegursta eyjan
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
IY
D
D
A
•
N
M
1
1
4
5
5
/s
ia
.is
Fyrstu 300 sætin
8.000 kr.
afsláttur fyrir manninn
32.000 kr. afsláttur fyrir fjölskylduna.
Gildir í stjörnubrottfarir.
Bókaðu fyrir 15. mars og tryggðu þér
lægsta verðið á Íslandi.
Valentin Club
Norður-Hérað | Stofnað hefur verið
félag landeigenda við Jökulsá á Dal.
Er tilgangur þess að gæta hagsmuna
og réttar félagsmanna vegna áhrifa
Kárahnjúkavirkjunar og tengdra
framkvæmda á jarðir, vatnsréttindi
og önnur réttindi félagsmanna. Fé-
lagið á að gæta hagsmuna fé-
lagsmanna almennt, en einnig með
beinum hætti og þá eftir sérstöku
umboði, t.a.m. við undirbúning og
gerð samninga og annarra ákvarð-
ana sem skuldbinda eiga fé-
lagsmenn.
Undirbúningsnefnd hefur starfað
að stofnun félagsins frá því á haust-
dögum, en þá upphófst umræða um
fallbætur til handa landeigendum
vegna Kárahnjúkavirkjunar. Vatns-
rennsli Jökulsár á Dal verður fært í
Lagarfljót og hyggst Landsvirkjun
greiða bætur vegna vatnsréttinda til
þeirra landeigenda sem eiga aðliggj-
andi jarðir að Jökulsá á Dal, Jökulsá
í Fljótsdal og Lagarfljóti. Ekki ligg-
ur fyrir hvernig bætur verða reikn-
aðar, líklega þó eftir falli og vatns-
rennsli pr. metra og geta einstakir
eigendur jarða valið hvort þeir fara
með mál sín í samningsbundinn
gerðardóm, eða eignarnámsleið sem
Landsvirkjun hefur heimild fyrir í
lögum.
Heildarupphæð fallbóta er talin
nema hundruðum milljónum króna.
Kanna þarf atkvæðavægi
Um eða yfir sjötíu jarðir og land-
spildur liggja að Jökulsá á Dal og eru
margir eigendur að sumum þeirra.
Þó nokkuð af umræddu landsvæði er
ríkis- og kirkjujarðir. Það eru því um
sjötíu jarðir sem koma til með að
hafa atkvæðisrétt í landeigendafé-
laginu, en eitt af verkefnum nýrrar
stjórnar er að komast til botns í því
hvernig haga skal atkvæðavægi fé-
lagsmanna. Vegna fallbóta er ekki
ólíklegt að atkvæðavægi verði á pr.
metra vatnsréttinda, en í öðrum mál-
um gæti vægi skipst á mismunandi
hátt.
„Við þurfum að ná betri lendingu í
atkvæðavæginu og svo þurfa menn
að snúa sér að viðsemjandanum
(Landsvirkjun, innsk. blm.) sem
fyrst, þannig að hægt sé að fara að
undirbúa einhverja samninga,“ sagði
Jónas Guðmundsson, nýkjörinn
stjórnarmaður félagsins í samtali við
Morgunblaðið. „Innan þessa félags
verður væntanlega rætt um og feng-
ið á því lögfræðiálit hvort farin verð-
ur gerðardóms- eða eignarnámsleið,
eða jafnvel hvort tveggja. Félagið
ákveður þó ekkert um slíkt, heldur
er það hvers og eins landeiganda að
ákveða hvað hann vill gera. En ég
býst við að menn skoði samningaleið-
ina fyrst, það byrjar enginn á því að
ákveða að fara í eignarnám fyrr en
menn sjá að þeir eru ekki sáttir við
það sem mögulegt er að semja um.
Ég á því von á að okkur verði falið
að skoða samningsstöðuna og svo
verði þetta lagt fyrir félaga þegar
eitthvað haldbært liggur fyrir.“
Stjórn landeigendafélagsins skipa
þeir Jónas Guðmundsson, Guðgeir
Ragnarsson, Benedikt Ólason, Sig-
urður Jónsson og Vilhjálmur Snæ-
dal. Stjórnin á eftir að skipta með sér
verkum.
Eigendur jarða við Jökulsá á Dal stofna landeigenda-
félag til hagsmunagæslu gagnvart Landsvirkjun
Fallbætur gætu skipt
hundruðum milljóna
Morgunblaðið/RAX
Innan fárra ára verður vart um vatnsrennsli að ræða í Jökulsá á Dal: Hún
er kölluð Jökla í daglegu tali og er lengst og mest vatnsfalla á Austurlandi,
150 km löng frá upptökum til ósa.
Seyðisfjörður | Þessi myndarlegi og rjóði töskukrabbi
kom upp með trollinu á Gullveri NS12 á Seyðisfirði um
daginn. Daníel Vest, stýrimaður á Gullverinu, tók
krabbann til handargagns og sagðist aldrei nokkurn
tímann hafa séð svo stóran krabba fyrr. Fylgir ekki
sögunni hvort hann skipaði kokksa að setja hann á
pönnuna eða ákvað að geyma þann rjóða sem minja-
grip.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Töskukrabbi í trollinu