Morgunblaðið - 02.03.2004, Page 22

Morgunblaðið - 02.03.2004, Page 22
LANDIÐ 22 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Stykkishólmur | Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur starfað í Stykkishólmi frá 2001 og hefur nefndin aðsetur í flugstöðinni. Starfsmenn nefndar- innar eru tveir. Um helgina komu nemar úr Stýrimannaskólanum í heimsókn til að kynna sér starfsemi sjóslysanefndar. Þeir Jón A. Ingólfs- son og Guðmundur Lárusson tóku á móti gestunum og fræddu þá um til- gang og starf nefndarinnar. Rannsóknarnefnd sjóslysa starfar samkvæmt lögum frá Alþingi árið 2000. Nefndin er óháður rannsak- andi slysa sem verða á sjó og ber að rannsaka þau og koma með tillögur til útbóta, ef þörf krefur. Til sjóslysanefndar ber að til- kynna öll slys, en stundum vill verða misbrestur þar á. Starfsmenn sjó- slysanefndar voru ánægðir með að fá verðandi skipsstjórnarmenn í heim- sókn. Þar gafst tækifæri að ræða nauðsyn góðs samstarfs því sjómenn eru þolendur sjóslysa og ef hægt er að fækka slysum til sjós er tilgangn- um náð. Sjómannsstörfum fylgir oft hætta og því eru öryggismálin mik- ilvæg. Rannsóknarnefnd sjóslysa leitar ekki að sökudólgum, heldur ástæðum slysanna til að koma í veg fyrir að þau endurtaki sig. Starf hennar er þáttur í forvörnum. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Skipsstjórnarnemar og starfsmenn rannsóknarnefndar sjóslysa tóku á móti skipsstjórnarnemum. Sjóslysanefnd fær heim- sókn skipsstjórnarnema Borgarnes | Æfingar standa nú yf- ir af fullum þunga á leikritinu Gúmmí Tarsan í félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi. Það eru nem- endur í unglingadeild Grunnskól- ans sem æfa, en leikstjóri er söng- konan Margrét Eir Hjartardóttir, sem áður hefur unnið að uppsetn- ingu árshátíða og söngleikja hjá mörgum félagsmiðstöðvum. Leik- ritið Gúmmí Tarsan er árhátíð- arsýning nemendafélagsins og verður frumsýnt 25. mars nk. Um 30–40 krakkar taka þátt í sýningunni, þar af eru a.m.k. 20 sem leika á sviðinu. Margrét Eir sagði æfingar ganga vel og að það væri frábært að vinna með krökk- unum. ,,Nú er verið að leggja sen- urnar og róðurinn að þyngjast. Það þýðir að framundan er mikil vinna og ég gef ekkert eftir og er hörð við krakkana.“ Margrét kemur tvisvar í viku til þess að leikstýra en hún er búin að ráða Eddu Bergsveinsdóttur, nemanda í 10. bekk, sem aðstoðarleikstjóra til að stýra æfingum þar fyrir ut- an. Verið að leggja senurnar Morgunblaðið/Guðrún Vala Hvammstangi | Samtök sveitarfé- laga á Norðurlandi vestra – SSNV auglýstu fyrir skömmu eftir um- sóknum um náms- og rannsókn- arstyrk að upphæð allt að kr. 600.000. Styrkurinn er ætlaður til að vinna að rannsóknarverkefni til lokaprófs í framhaldsnámi MA, MS, MBA eða sambærilegrar eða hærri gráðu. Rannsóknarverkefnið skal tengjast Norðurlandi vestra og skal hafa atvinnulegan og/eða fræðilegan tilgang fyrir Norðurlandi vestra. Mat á um- sóknum verður unnið í samvinnu við Háskóla Íslands og mun byggja á nokkrum skilgreindum þáttum. Að sögn Bjarna Þórs Einars- sonar, framkvæmdastjóra SSNV er tilgangurinn með styrkveitingu að efla rannsóknir á Norðurlandi vestra til uppbyggingar atvinnu- lífs. Umsókn um styrk skal senda ásamt ítarlegri verkefnislýsingu og verkáætlun til SSNV, fyrir 15. mars nk. Vilja efla rannsóknir Fljót | Aðalfundur Félags kúa- bænda í Skagafirði var haldinn í þessari viku. Á fundinn mætti Þór- ólfur Sveinsson, formaður Lands- samtaka kúabænda, og Egill Sig- urðsson, stjórnarmaður í LK, sem ásamt Þórólfi átti sæti í svokallaðri mjólkurnefnd sem skilaði skýrslu um stöðumat og stefnumótun í mjólkurframleiðslu á dögunum. Skýrslan er nokkurs konar vega- nesti fyrir ríkið og kúabændur sem nú eru að hefja samningaviðræður um nýjan mjólkursamning. Stærðarmörk sett á bú Á fundinum gerði Þórólfur grein fyrir helstu niðurstöðum nefndar- innar. Þær eru að halda stuðningi ríkisins varðandi greinina í sem lík- ustu formi og er í núgildandi samn- ingi. Í skýrslunni er sagt að hugs- anlega þurfi að setja stærðarmörk á bú hvað framleiðslu varðar til að forðast of mikla samþjöppun í greininni og með því móti væri jafn- framt verið að koma til móts við kröfur um sjúkdómavarnir, dýra- velferð og heilnæmi afurðanna og þar með styrkja ímynd og stöðu framleiðslunnar í samkeppni við er- lendar búvörur. Talsverðar umræð- ur urðu um þessar tillögur á aðal- fundinum. Á fundinum voru afhentar viður- kenningar til nokkurra bænda fyrir góðan árangur varðandi framleiðslu á síðasta árið. Þannig fengu eig- endur þriggja afurðahæstu kúnna reiknað í verðefnum, þ.e. mjólkur- fitu og mjólkurpróteini verðlauna- gripi til eignar. Þeir voru Þorsteinn Axelsson á Skúfsstöðum fyrir kúna Lóló 24, Ásdís Pétursdóttir og Sverrir Magnússon í Efra-Ási fyrir Hvítkollu 235 og Árni Sigurðsson og Ragnheiður Jónsdóttir Marbæli fyrir Golu 199 sem varð í þriðja sæti. Sævar Einarsson og Unnur Sæv- arsdóttir á Hamri fengu viðurkenn- ingu sem er farandgripur fyrir að eiga þyngsta nautið í Skagafirði sem kom í afurðastöð á árinu en fallið vó 449 kíló. Þá fengu mæðginin Margrét Ingvarsdóttir og Jón Arnljótsson á Ytri-Mælifellsá sérstaka viður- kenningu fyrir að viðhalda gömlum vinnuaðferðum því búið á Ytri- Mælifellsá mun það síðasta í land- inu þar sem stunduð er veruleg mjólkursala en kýrnar eingöngu handmjólkaðar. Þess má geta að búið á Tungu- hálsi II stóð efst í Skagafirði varð- andi nyt eftir hverja kú. Þar mjólk- uðu kýrnar að meðaltali 6.643 kíló hver á árinu 2003. Þórarinnn Leifs- son, bóndi í Keldudal, var endur- kjörinn formaður Félags kúabænda í Skagafirði á fundinum. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Fulltrúar framleiðenda sem fengu viðurkenningar: Í aftari röð f.v. eru Sævar Einarsson, Þorsteinn Axelsson, Margrét Ingvarsdóttir og Árni Sig- urðsson. Fremri röð formennirnir Þórarinn Leifsson og Þórólfur Sveins- son. Fulltrúa Efra-Ásbúsins vantar á myndina. Kúabændur margverðlaunaðir á aðalfundi Hólar | Stjórn Atvinnuþróun- arfélags Norðurlands vestra veitti Hólaskóla, háskólanum á Hólum hvatningarverðlaun ársins 2003. Afhending verðlaunanna fór fram á Hólum hinn 27. febrúar. Félagið veitir verðlaunin árlega til fyr- irtækja eða stofnana sem skarað hafa fram úr í starfsemi sinni. Guðmundur Skarphéðinsson fylgdi verðlaununum úr hlaði og sagði meðal annars að Háskólinn á Hólum þætti sérlega vel að verð- launum kominn og óskað starfsfólki áframhaldandi velgengni í upp- byggingu skólans. Skúli Skúlason veitti verðlaun- unum viðtöku fyrir hönd Hólaskóla. Hann ræddi um mikilvægi þessara verðlauna fyrir starfið á Hólum og sagði þetta undirstrika þann sam- félagslega samhug sem þarf til að efla háskólakennslu og rannsóknir á landsbyggðinni og minna okkur á þá staðreynd að framtíð atvinnu- og menningarlífs hérlendis byggðist á menntun, þekkingu og fag- mennsku. Hann sagði þetta sér- staklega hvetjandi fyrir skólann í ljósi þess að greinar hans hefðu byggst upp í nánu samstarfi við at- vinnulífið. Ekki væri þetta síður stuðningur við áætlanir um eflingu skólans, en til stæði að lengja nám- ið, fjölga nemendum og efla rann- sóknir enn frekar. Með því væri mætt mikilli og vaxandi þörf fyrir kennslu og rannsóknir skólans. Verðlaunagripurinn er listaverk eftir Erlend Magnússon listamann, ásamt verðlaunaskjali. Stjórn Atvinnuþróunarfélags Norðurlands vestra Háskólinn á Hólum verðlaunaður Ljósmynd/Sólrún Harðardóttir Skúli Skúlason, rektor á Hólum, og Guðmundur Skarphéðinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.