Morgunblaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.03.2004, Blaðsíða 26
UMRÆÐAN 26 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í SKÝRSLU nefndar um efnahags- leg völd kvenna sem kynnt var nýlega kemur fram að vinna þurfi markvisst gegn kynbundnu námsvali í skólum m.a. til að auka áhuga kvenna á tækninámi. Í því samhengi langar mig að segja lauslega frá reynslu okkar við Háskólann í Reykjavík því þrátt fyrir að konur séu rúm 60% nema í háskólum og sér- skólum þá hefur þeim fækkað umtalsvert undanfarin ár í tölv- unarfræði. Sem dæmi má taka að hlutfall kvenna í umsóknum um nám í tölv- unarfræði við Háskól- ann í Reykjavík (HR) var 31% árið 2000 en var vorið 2003 komið niður í 12%. Þessi þró- un er áhyggjuefni fyrir uppbyggingu upplýs- ingatækninnar í land- inu því æskilegt er að bæði kynin komi að þróun og eflingu grein- arinnar. Þróunin hefur verið svipuð í öðrum löndum í kringum okk- ur og hafa háskólar gripið til ýmissa ráða til að reyna að höfða betur til kvenna, t.d. með því að breyta innihaldi tölvunámsins og tengja það við greinar í hug- og fé- lagsvísindum. Í rannsóknum erlendis hefur komið fram að meginástæður fyrir fækkun kvenna í faginu séu m.a. skortur á áhuga og hvatningu um-hverfisins, at- riði er tengjast tengslum vinnu og einkalífs, viðhorf karla og kvenna til kvenna í faginu og skortur á sjálfs- öryggi og fyrirmyndum. Rannsóknir hafa leitt í ljós að konur velja tölv- unarfræðinám í litlum mæli, meðal annars vegna skorts á sjálfstrausti, fyrirmyndum og hvatningu kennara og foreldra. Konur hafa minni aðgang að tölvum á yngri árum og eru oft nei- kvæðari gagnvart tölvum en karlar, þær hafa einnig oft minni tölv- ureynslu en þeir þegar þær hefja há- skólanám. Til að skoða þetta ástand nánar hér á landi var unnin könnun á vegum HR með styrk úr Nýsköpunarsjóði náms- manna sumarið 2003 og vann Kolbrún Fanngeirsdóttir, nemandi HR, við hana en leiðbeinendur voru und- irrituð ásamt Hrafni Loftssyni, lektor við HR. Notuð var rafræn gagnasöfn- un með spurningalista á vefsíðu sem 539 (62%) aðspurðra nemenda HR svöruðu og einnig voru tekin viðtöl við nokkra nemendur. Margt athygl- isvert kom fram í þessari rannsókn en hér verða aðeins nefnd nokkur atriði (skýrslu um rannsóknina má finna á (www.ru.is/asrun/Efni/Skyrslakon- ur.pdf). Það sem fyrst vakti athygli var að karlar í tölvunarfræði sögðust hafa fengið aðgang að tölvum í skóla 1,2 ári fyrr að meðaltali en konur og heima 2,8 árum fyrr að meðaltali. Að konur fái seinna aðgang að tölvum á heimili sínu en karlar hefur því miður komið fram áður í rannsóknum en að þær fái einnig seinni aðgang í skólum kom á óvart. Hér þarf að huga að hvernig ástandið er í dag í grunn- skólum landsins en með aukinni tölvueign skóla má kannski ætla að einhver breyting hafi orðið á. Varð- andi tölvuaðgang á heimilum þá þarf hugsanlega að kynna fyrir ungum stúlkum notkunarmöguleika sem höfða til þeirra en einnig gæti verið þörf á að kynna fyrir foreldrum nýj- ungar sem geta hvatt til tölvunotk- unar stúlkna. Einnig þarf að leggja aukna áherslu á gerð hugbúnaðar sem vekur áhuga stúlkna en sem bet- ur fer hefur ástandið aðeins lagast undanfarið þar sem meira er til af samskiptahugbúnaði og hlutverka- leikjum en áður, s.s. MSN og SIMS- leikir, sem virðast höfða frekar til þeirra. Ef við skoðum aðeins betur könn- unina í HR og hvernig þátttakendur notuðu tölvur þegar þeir voru í framhaldsskóla þá kem- ur í ljós að einungis 4% kvenna segjast hafa skoðað vélbúnað á með- an 32% karla sögðust hafa gert það og ein- göngu 25% kvenna sögð- ust hafa forritað í fram- haldsskólum en 54% karla. Þetta segir okkur að konur sem koma í nám í tölvunarfræði í HR hafa mun minni reynslu af tölvunotkun, sem tengist sérstaklega fræðigreininni en karlar áður en þær koma í skól- ann. Hér þarf hugs- anlega að skoða betur það nám sem er í boði í framhaldsskólum, inni- hald tölvuáfanga, skipu- lag þeirra og námsefni. Spurningin er hvort hægt er að breyta efn- istökum og vekja þannig áhuga stúlkna á tölv- unarfræði? Í rannsókn- inni var spurt um hvers vegna við- komandi valdi tölvunarfræði í háskólanámi og svaraði 49% kvenna að þær hefði langað að prófa en ein- ungis 21% karla. Þetta styður þá skoðun að konur hafi ekki næga þekk- ingu á námi og störfum tölvunarfræð- inga áður en þær velja námið og þær vita ekki nógu mikið um námið sem þær eru að velja sér. Svörun við þessari könnun gefur til kynna að aðgengi kynjanna að tölvum sé mismunandi þar sem karlar fá að- gang að tölvum mun fyrr heima og einnig í skóla. Hugsanlega er hér komið atriði sem hefur mótandi áhrif á áhuga kvenna til tölvunarfræði en eitt af þeim atriðum sem nefnt er til úrbóta í rannsókn á vegum Stanford háskólans í Bandaríkjunum (http:// www-cse.stanford.edu/classes/cs201/ Projects/women-faculty/index.html) er að reyna ætti að kynna konum sem fyrst tölvur og tölvunarfræði á skemmtilega hátt til að auka áhuga þeirra. Námsval í tölvunarfræði er greini- lega kynbundið og eykst kynjahlut- fallið konum í óhag frekar en hitt og er nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að snúa þróuninni við. Ungt fólk þarf að kynnast sem flestum fræði- og starfsgreinum í grunn- og framhalds- skólum til að geta valið sér nám og störf við hæfi. Það virðist vera nauð- synlegt að kynna tölvunarfræði sér- staklega fyrir ungum konum svo þær geti tekið ákvörðun byggða á þekk- ingu þegar þær velja hvort þær vilji verða tölvunarfræðingar eða ekki. Tölvunarfræðingar eiga kost á mjög fjölbreytilegum störfum sem ættu að henta jafnt konum og körlum. Hér má nefna störf við alla þætti hug- búnaðargerðar, s.s. greiningu, hönn- un, forritun og prófanir eða önnur störf eins og stjórnun, ráðgjöf, rann- sóknir og kennslu. Að lokum vil ég nefna að til að koma til móts við fjölbreyttan nem- endahóp þá býður Háskólinn í Reykjavík upp á tölvunarfræðinám í hefðbundnu staðarnámi, í há- skólanámi með vinnu (HMV) og fjar- námi en nánari upplýsingar er að finna á www.ru.is þar sem hægt er að sækja um nám við skólann. Hvar eru konurnar í tölvunarfræðinni? Ásrún Matthíasdóttir skrifar um konur og tölvunarfræði Ásrún Matthíasdóttir ’…þrátt fyrir aðkonur séu rúm 60% nema í há- skólum og sér- skólum þá hefur þeim fækkað umtalsvert und- anfarin ár í tölv- unarfræði.‘ Höfundur er lektor og verkefnisstjóri fjarnáms og háskólanáms með vinnu við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. SAMSTAÐA er meðal Íslendinga um að standa undir jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Það á einnig við um hjúkrunarþjón- ustu fyrir aldraða. Í a.m.k. tvo ára- tugi hafa forsvarsmenn öldr- unarþjónustunnar á Íslandi bent heilbrigðisyfirvöldum, alþingi og sveitarfélögum á að eðlilegast sé að þjónusta fólk, sem býr við heilsu- brest, sem lengst á eigin heimili, og í því skyni byggja upp stuðningskerfi sem styður við það. Það hef- ur í för með sér meiri lífsgæði fyrir ein- staklinginn og hag- kvæmni fyrir sam- félagið. Þegar heilsubrestur er orðinn það mikill að sólar- hringshjúkrunar er þörf, komi úrræði hjúkrunarheimila til sem eðlilegasti og hag- kvæmasti kosturinn. Þessi hugmyndafræði náði inn í lög um málefni aldraðra. Fjárframlög ríkisins til uppbygg- ingar og rekstrar heimahjúkrunar og hjúkrunarheimila hefur hins veg- ar ekki verið nægjanleg til þess að tryggja framkvæmd laganna og á það sérstaklega við um höfuðborg- arsvæðið og Akureyri. Nú er staðan þannig að almenna heimaþjónustan sem öldruðum býðst hefur lítið þróast og komumst við ekki nálægt því þjónustustigi sem nágrannaþjóðir okkar treysta sér til að sinna í heimahúsi. Heimahjúkrun heilsugæslunnar sinnir fyrst og fremst verkmiðaðri hjúkrun og heimilishjálp sveitarfélaganna virðist frekar dragast saman en hitt. Tog- streita er milli heimaþjónustu veittr- ar af ríkinu annars vegar og sveitar- félaga hins vegar og er tilhneiging í þá átt að hvorir um sig reyna að koma verkefnum á hina, sjálfsagt vegna fjárskorts. Það sem gerir öldr- uðum, sem búa við mikinn heilsu- brest, kleift að búa heima er fyrst og fremst öflugur stuðningur fjöl- skyldu. Fjöldi einstaklinga, sem þurfa sólarhringshjúkrun, vistast á Landspítala – háskólasjúkrahúsi á hverjum tíma og er fjöldi þeirra skv. stjórnunarupplýsingum spítalans á annað hundrað síðastliðin þrjú ár, langflestir 67 ára og eldri. janúar 2004 janúar 2003 janúar 2002 Samtals bið eftir 158 159 118 varanlegri vistun Að verða heimilisfastur á sjúkra- húsi mánuðum saman getur haft veruleg áhrif á lífsgæði fólks. Það er þjóðhagslega óhagkvæmt því fólk er að fá þjónustu á allt of háu þjón- ustustigi. Meðferð og endurhæfing við þeim kvillum sem ákvörðuðu á sínum tíma að inn- lagnar væri þörf er lok- ið og fólk verður ,,fyrir í kerfinu“. Dæmi eru um að einstaklingar hafi búið yfir 40 ár á sjúkra- deildum spítalans, og enginn getað tekið á. Það eru líklegast verstu dæmin, nóg er að með- allegutíminn sé ennþá talinn í mánuðum hjá þessum hópi, sem þýðir í raun að enn eru einstaklingar sem búa á spítalanum í nokkur ár. Við hvert nýtt hjúkrunarheimili sem hefur verið opnað á síðustu ár- um hefur Landspítali – háskóla- sjúkrahús lokað sínum hjúkr- unardeildum. Þar má nefna Hvítaband, Heilsuverndarstöð og Hafnarbúðir. Öldrunardeildir B- álmu í Fossvogi og Hátúns voru sam- einaðar að mestu á Landakoti og smám saman breytt úr 7 daga deild- um í 5 daga deildir. Hjúkrunardeild á Vífilstöðum var lokað og biðdeildinni 32A var lokað þegar Sóltún var opn- að 2002. Hjúkrunardeild K-1 á Landakoti var lokað þegar lungna- deildin flutti frá Vífilstöðum og lítil líknardeild var opnuð á L-5 á Landa- koti. Biðdeildin B-5 var lokað þegar Hrafnistu var falið að annast hjúkr- unarrýmin á Vífilstöðum sem voru opnuð í janúar 2004. Eldri hjúkrunarheimili, bæði Grund og Hrafnista í Reykjavík hafa staðið í endurbótum á húsnæði og fækkað fjölbýlisstofum, en fjölgað sérbýlum á síðustu árum í takt við nútímakröfur. Af þessum sökum hefur nánast engin raunaukning orðið á hjúkr- unarrýmum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðin ár. Það skýrir af hverju fækkar ekki á biðlistum eftir hjúkr- unarrýmum, en samkvæmt nýjustu upplýsingum vistunarmats eru 330 einstaklingar að bíða eftir hjúkr- unarrými, og tæplega helmingur þeirra bíður þá á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi þrátt fyrir nýlega opnun á Vífilstöðum og Eir. Raunaukning á hjúkrunarrýmum um 350 er bráðnauðsynleg á stór- Reykjavíkursvæðinu strax 2004– 2006. Uppbyggingu þarf því að hraða enn frekar en áætlað er. Aðgengið mun ekki batna eins hratt og áætlað var en í heilbrigðisáætlun ríkisins er gert ráð fyrir að fólk í mjög brýnni þörf þurfi einungis að bíða innan við 3 mánuði eftir hjúkrunarými. Þörf er fyrir 100 hjúkrunarrými á ári á stór- Reykjavíkursvæðinu fram til 2014 til að mæta öldruðum í mjög brýnni þörf . Ef legudagur á 100 íbúa hjúkr- unarheimili kostar 16.000 krónur, en legudagur á sjúkradeild spítala 24.000 krónur, þá er hagræðing rík- isins 292.000.000 á ári. Ef legudagur sjúkrahússins er 29.000 krónur, þá er hagræðing ríksins 474.500.000 á ári. Röskleg uppbygging á heimaþjón- ustu og hjúkrunarheimilum myndi skila umtalsverðri hagræðingu fyrir skattborgara þessa lands sem og heilbrigðisþjónustuna þó ekki séu nefnd aukin lífsgæði einstaklinganna og aðstandenda þeirra sem í hlut eiga. Það er brýnt hagsmunamál al- mennings að þessi augljósa stað- reynd nái eyrum stjórnmálamanna sem fara með valdið sem þarf til að grípa til aðgerða, enda ríkið eini kaupandi þjónustunnar fyrir hönd þjóðarinnar. Aðgengi að hjúkrunar- þjónustu fyrir aldraða Anna Birna Jensdóttir skrifar um hjúkrun aldraðra ’Röskleg uppbygging áheimaþjónustu og hjúkrunarheimilum myndi skila umtals- verðri hagræðingu…‘ Anna Birna Jensdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Öldungs hf. og hjúkrunarforstjóri í Sóltúni. Í ÞANN rétt tæpa áratug sem ég hef barist við geðsjúkdóm minn hef ég komist að ýmsum niðurstöðum um sjálfan mig og sjúkdóminn. Hér og nú ætla ég eingöngu að minnast á eina fullyrð- ing sem stenst full- komlega hvað mig varðar: Óvirkur sjúk- lingur nær ekki bata. Þegar ég veiktist fyrst átti batinn að koma til mín en ekki öfugt. Læknarnir áttu að finna lyf sem löguðu allt á svipstundu og sálfræðingar áttu að vinna í tilfinningalífinu fyrir mig. En hægt og bítandi fór ég að taka meiri ábyrgð á bata mínum. Þessi þróun til sjálfseflingar náði hámarki sumarið 2003 þegar fé- lagasamtökin Hugarafl voru stofnuð í grasagarðinum í Laugardal. Öll er- um við fólk með geðsjúkdóm en í góðu bataferli og mörg fyrrverandi meðlimir í Notendahópi Geðhjálpar sem hafði lagt upp laupana nokkrum mánuðum fyrr og vorum staðráðin í að halda áfram að vinna frekar að notendaáhrifum innan geðheilbrigð- isgeirans. Við vinnum ásamt góðu fagfólki á jafningjagrundvelli með það að markmiði að koma sjón- armiðum notenda á framfæri og hafa þann- ig áhrif á þjónustu geð- heilbrigðiskerfisins. Hugmyndaflug okkar virðist ótæmandi og í dag eru verkefni okkar og hugðarefni eins mörg og þau eru fjöl- breytt. Sem dæmi má nefna þau verkefni sem ég persónulega hef tekið þátt í: Fræðsla sem ég og fleiri höfum veitt iðjuþjálfanemum í Háskólanum á Akur- eyri og læknanemum á Landspít- alanum, þýðing á greinum sem fjalla um leiðir sem einstaklingurinn get- ur nýtt sér til bata og undirbúnings- vinna fyrir svokallað tenglakerfi þar sem fólk með reynslu tekur að sér einstaklinga sem eru t.d. að leggjast inn á geðdeild í fyrsta sinn og veitir þeim stuðning og ráðgjöf. Fjöldinn allur af verkefnum er þar fyrir utan og má nálgast frekari upplýsingar um starfið á nýrri heimasíðu Hugar- afls, www.hugarafl.is. Að taka þátt í starfi Hugarafls og deila reynslu sinni með fólki sem er að taka fyrstu skrefin á erfiðri braut hefur reynst mér ómetanlegt vega- nesti til að ná að lifa með sjúkdómn- um. Nú hef ég tögl og hagldir á bataferlinu og hef kvatt óvirknina. Tilgangur þessa greinarstúfs er að vekja athygli á opnum kynning- arfundi á vegum Hugarafls á Kaffi Reykjavík hinn 6. mars nk., frá kl. 13:00–17:00, þar sem allir sem áhuga hafa á málefninu eru hjart- anlega velkomnir. Ætlunin er að hafa þar eina allsherjar þankahríð (brainstorm) og safna í hugmynda- banka til frekari þróunar á starfi okkar. Óvirkur sjúklingur nær ekki bata Jón Ari Arason skrifar um félagasamtökin Hugarafl ’Nú hef ég tögl oghagldir á bataferlinu og hef kvatt óvirknina.‘ Jón Ari Arason Höfundur greindist með þunglyndi, kvíðaröskun og félagsfælni. Hann er meðlimur í hópstarfi Hugarafls.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.