Morgunblaðið - 02.03.2004, Síða 34
MINNINGAR
34 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Júlíus Júlíussonfæddist í Hafn-
arfirði 18. janúar
1927. Hann lést á
Sjúkrahúsi Siglu-
fjarðar 23. febrúar
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Júlíus Sigurðsson. f.
5.7. 1880, d. 29.9.
1911, og Theodóra
Níelsdóttir, f. 23.8.
1891, d. 12.1. 1944.
Júlíus átti níu hálf-
systkini sem öll eru
látin. Samfeðra hálf-
systkini voru: Lára
Aðalheiður, Lára Aðalheiður Elín,
Ásta, Elín Elísabet, Sigríður,
Hulda, Leó og Stefán Ágúst. Sam-
mæðra var Elísabet Halldórsdótt-
ir. Tvær alsystur Júlíusar eru;
Anna Hulda Júlíusdóttir, f. 1925,
Ásta Júlía, Sara og Vigdís. 3)
Hörður, f. 21.7. 1958, kvæntur
Sigurlaugu J. Hauksdóttur, f. 2.5.
1958, börn þeirra eru Hugborg
Inga og Brynjar. Barnabarnabörn
Júlíusar eru 12.
Júlíus var uppalinn í Ólafsfirði
og á Siglufirði þar sem hann bjó
lengst af. Júlíus lauk námi frá
Samvinnuskólanum í Reykjavík.
Hann stundaði ýmis störf en
lengst af var hann grunnskóla-
kennari og kenndi við barna- og
grunnskóla Siglufjarðar til ársins
1995 er hann lét af störfum vegna
aldurs. Júlíus var virkur þátttak-
andi í félagslífi Siglfirðinga, hann
starfaði mikið að æskulýðsmálum
og gegndi trúnaðarstörfum í hin-
um ýmsu félögum s.s. Leikfélagi
Siglufjarðar, Norræna félaginu á
Siglufirði og Félagi hjartasjúkl-
inga á Norðurlandi vestra. Hann
sat í sóknarnefnd Siglufjarðar-
kirkju um árabil og einnig var
hann safnaðarfulltrúi.
Útför Júlíusar fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
og Svanfríður Júl-
íusdótir, f. 1933.
Hinn 14.2. 1948
kvæntist Júlíus Svövu
Þórdísi Baldvinsdótt-
ur, f. 19.3. 1929. For-
eldar hennar voru
Baldvin Þorsteinsson,
f. 7.10. 1879, d. 30.9.
1950, og Oddný Þóra
Þorsteinsdóttir, f.
11.10. 1899, d. 6.7.
1980. Börn Júlíusar
og Svövu eru: 1)
Baldvin Júlíus, f. 2.3.
1947, kvæntur Mar-
gréti Sveinbergsdótt-
ur, f. 4.12. 1945, þau eiga þrjú
börn; Svövu Þórdísi, Oddnýju
Þóru og Baldvin Júlíus. 2) Theo-
dór, f. 21.8. 1949, kvæntur Guð-
rúnu Stefánsdóttur, f. 25.11. 1949,
dætur þeirra eru; Hrafnhildur,
Minningar um tengdaföður minn
Júlíus Júlíusson ná til ársins 1965, er
ég fluttist til Siglufjarðar sem ung
kona trúlofuð Baldvini elsta syni
Júlíusar og Svövu. Ég kynntist Júl-
íusi sem rólegheitamanni, heima-
kærum lífsförunauti Svövu, sem var
tryggur fjölskyldu sinni. Það var þó
oft stutt í leikarann og húmoristann,
en í flestum tilfellum var grínið á
hans eigin kostnað.
Þar sem við Baldvin bjuggum er-
lendis um áraraðir var Júlíus meðal
okkar sterkustu líflína sem tengdi
okkur og börnin okkar við fjölskyld-
una og heimalandið. Þau voru ekki
ófá bréfin og pakkarnir sem hann
sendi með dagblöðum, leikhúsbækl-
ingum, úrklipptum leikdómum,
myndum af fjölskyldunni og lífinu á
Sigló. Júlíus var afbragðs ljósmynd-
ari, lætur hann eftir sig mikið og
gott ljósmyndasafn.
Milli þess sem við komum heim
voru Júlíus og Svava dugleg að
koma í heimsókn til okkar. Þegar við
lítum til baka og skoðum myndirnar
sem Júlíus tók yfir árin sjáum við
hvað þessar samverustundir voru
mikilvægar. Þau voru viðstödd skírn
Baldvins sonars okkar, útskrift Odd-
nýjar, giftingu Svövu yngri og svo
má lengi telja. Júlíus dvaldi hjá okk-
ur um tíma í veikindum Baldvins,
tímabil sem hann var okkur ómet-
anleg stoð og stytta. Mér eru minn-
isstæðar stundir þegar hann sat í
litlu barnasundlauginni og lét litla
sonarson sinn sprauta á sig ísköldu
vatni með garðslöngunni.
Við ferðuðumst með tengdafor-
eldrum mínum um þvert og endilagt
Kanada. Röktum slóðir merkra
Vestur-Íslendinga, svo sem Steph-
ans G. Stephanssonar og Árna Sig-
urðssonar listmálara, sem var föð-
urbróðir Júlíusar. Síðast þegar þau
komu til okkar var Júlíus orðinn
veikur og var farinn að láta mikið á
sjá. Hann hafði þó gott af ferðinni og
hresstist mikið, kom okkur t.d. á
óvart í boði hjá vinafólki með því að
hefja hrífandi ljóðalestur, öllum til
mikillar ánægju. Júlíusi var margt
til lista lagt, bókhneigður og fróður,
eins var hann snyrtimenni, lagði
mikinn metnað við klæðaburð, enda
glæsimenni í alla staði.
Fyrir tæpum tveimur árum flutt-
um við Baldvin alkomin heim, gátum
því fylgst með síðustu stundum Júl-
íusar í þessu lífi. Heilsunni fór hrak-
andi, en hann átti þó góðar stundir
inn á milli. Má þá nefna ferð til
Hveragerðis, sem þau hjónin fóru
með kórfélögum eldri borgara Siglu-
fjarðar. Þegar kórinn söng mátti
Júlíus til með að koma með eitt lítið
auka „bom“ í enda eins lagsins.
Þessu sagði hann sjálfur frá og hafði
gaman af. Atvik þetta sýnir að hann
missti aldrei húmorinn, þó að í flest-
um tilfellum ætti hann erfitt með að
tjá sig vegna minnisleysis.
Elsku Svava, þú ert búin að vera
ótrúlega dugleg. Ég veit við stönd-
um saman sem fjölskylda, þér til
styrktar í þessum mikla missi.
Blessuð sé minning hans.
Margrét.
Þá er komið að því að kveðja afi
minn. Ég á ennþá frekar erfitt með
að trúa því að þú sért í raun og veru
farinn, en ég veit að núna ertu kom-
inn á stað þar sem þú þarft ekki að
hafa áhyggjur af neinu og þér líður
vel. Þar fylgist þú með og passar
upp á mig.
Þegar ég hugsa til baka um tím-
ana þegar þið amma áttuð heima á
Fossveginum rétt hjá okkur líður
mér vel. Á nánast hverjum einasta
degi alla mína skólagöngu kom ég til
ykkar og þú hjálpaðir mér að læra.
Amma gaf okkur að borða og þú
barðist við að kenna mér allt sem ég
átti að læra, það skipti engu máli
hvort það var danska, enska eða
stærðfræði. Það var þér að þakka að
mér gekk alltaf vel í skólanum. Þú
hafðir trú á mér og það var nóg fyrir
mig. Ég veit að ég var ekki alltaf
duglegur, en það var magnað hvað
þú náðir að láta mig sitja kyrran,
svolítið sem ekki mörgum tókst á
þessum árum.
Ég mun sakna þín mikið afi minn,
en um leið er ég rosalega þakklátur
fyrir þann tíma sem þú gafst mér og
varst á meðal okkar. Það var frá-
bært að læra af þér og ég mun
byggja á því um ókomna tíð.
Guð geymi ömmu og varðveiti í
sorginni, ég veit að söknuðurinn er
mikill.
Þinn,
Brynjar.
Það er erfitt að vera svona langt í
burtu á svona stundum. Ég minnist
afa frá Halifax með sorg í hjarta og
vildi óska að ég gæti komið heim í
faðm fjölskyldunnar. Ég hef saknað
afa og ömmu yfir árin og mun alla
tíð vera þakklát fyrir allar þær
stundir sem ég átti með þeim sem
barn á Siglufirði. Á Laugaveginum
átti ég mitt annað heimili á sumrin.
Það var oft farið í berjamó, göngu-
túra, bíltúra og alltaf voru teknar
myndir. Flestar voru þær af mér og
þótti mér mikil upplifun að hjálpa
afa að framkalla myndirnar.
Á sextánda ári var ég hjá þeim
einn vetur. Það var erfitt fyrir
ömmu og afa að eiga við stelpu á
þessum aldri. Afi var sjaldan reiður
við mig, þó ég hefði átt það sann-
arlega skilið. Hann átti það frekar til
að setjast hjá mér yfir kvöldkaffinu
og tala um barnæsku sína og for-
eldrana sem hann missti sem ungur
drengur.
Afi og amma hafa verið dugleg að
koma í heimsókn til okkar í Kanada.
Mér þykir vænt um tengslin sem
börnin mín náðu að hafa við afa og
ömmu, þrátt fyrir að Salný, Daníel
Ari og Jakob Örn töluðu ekki ís-
lensku. Afi talaði góða ensku og gat
túlkað á milli þeirra og ömmu. Við
vissum það ekki þá, en árið 1998
kom afi til okkar í síðasta skipti þeg-
ar þau komu í tilefni brúðkaups okk-
ar Marks. Þetta eru dýrmætar
minningar sem eru skreyttar ljós-
myndum afa.
Ég er þakklát fyrir samverstund-
irnar með afa síðastliðinn desember.
Hann var þá mjög hress og vildi
margt segja og sýna mér. Þegar ég
fékk að vita að afi væri látinn, var ég
alls ekki viðbúin og í huganum er ég
með fjölskyldunni á þessum sorg-
arstundum.
Elsku amma, ég ber hluta af þinni
sorg í barmi mér, og pabbi minn, þú
veist að ég stend þér við hlið.
Hjá afa fann ég alltaf hlýja hönd
og væra rödd.
Blessuð sé minning hans.
Svava.
Menn halda stundum skammt á leikinn
liðið,
er lífið dregur tjaldið fyrir sviðið
og skilur milli skars og kveiks.
En stór og fögur stjörnuaugu skína,
er stormsins svanir hvíla vængi sína
til hærra flugs, til fegra leiks.
(Davíð Stefánsson.)
Júlíus Júlíusson, eða Júlli Júll
eins og hann var ávallt kallaður, lést
á Sjúkrahúsi Siglufjarðar mánudag-
inn 23. febr. sl. 77 ára að aldri. Með
Júlíusi er genginn einn af bestu son-
um Siglufjarðar.
Ég kynntist Júlíusi snemma en
hann og fjölskylda hans áttu heima á
„neðri hæðinni“ á Laugarvegi 25,
æskuheimili mínu á Siglufirði, og
synir hans og Svövu voru á líkum
aldri og yngra settið af okkur systk-
inunum á efri hæðinni. Samgangur
var því mikill á milli hæðanna. Júlíus
var á þessum árum sístarfandi að fé-
lagsmálum og var m.a. afburðaleik-
ari á fjölunum hjá Leikfélagi Siglu-
fjarðar, t.d. í Fjalla-Eyvindi og Bör
Börssyni, og driffjöður í fjölmörgum
öðrum leikritum ýmist sem aðalleik-
ari eða leikstjóri. Ég hygg að Júlíus,
búandi norður á Siglufirði, hafi lítið
gefið eftir hvað varðar samanburð
við bestu og þekktustu leikara þjóð-
arinnar á þessum árum.
Júlíus var í mörg ár forstöðumað-
ur Æskulýðsheimilisins á Siglufirði,
var afburðavinsæll og lagði sig allan
fram við það starf. Þegar ég, aðeins
17 ára gamall, tók við því starfi og
fór að kynna mér starfsemi fyrri ára
tók ég strax eftir því hversu mikið
og fjölbreytt starf hafði verið á
starfsárum Júlíusar þar. Hann má
örugglega kalla brautryðjanda í
rekstri æskulýðs- og félagsheimila á
Íslandi og eiga margir Siglfirðingar
góðar minningar frá þessum árum,
1964–1967. Gott var fyrir mig, ung-
an og reynslulítinn manninn, að geta
komið við í Tómstundabúðinni sem
Júlíus rak og rætt við hann um
starfsemi heimilisins og fá hvatn-
ingu frá honum, og hugmyndir. Ég
held reyndar að rekstur Æskulýðs-
heimilisins hafi ávallt notið braut-
ryðjendastarfs Júlíusar og andi hans
svifið yfir vötnunum hjá öllum þeim
forsvarsmönnum sem á eftir honum
komu.
Júlíus var góður ljósmyndari og
flinkur í öllum verkum tengdum
ljósmyndun, svo sem framköllun, og
var ötull við að kenna þeim sem
yngri voru allan galdurinn í því sam-
bandi. Ljósmyndaáhugi hjá ungu
fólki á Siglufirði var örugglega ein-
stakur og sífellt í gangi ljósmynd-
anámskeið og menn lærðu listina að
taka myndir, framkalla filmur og
búa til eigin myndir. Ljósmyndasýn-
ingar Æskulýðsheimilisins báru
þessa glöggt merki. Síðar þegar Júl-
íus hafði sett fyrrnefnda Tóm-
stundabúð á laggirnar var sú versl-
un í fremstu röð hvað úrval
ljósmyndavara varðaði og gaf þeim
bestu í höfuðborginni ekkert eftir.
Júlíus sat um árabil í sóknarnefnd
Siglufjarðarkirkju enda kirkjuræk-
inn maður og alltaf var notalegt að
sjá hann á sama stað í kirkjunni okk-
ar hvort heldur var um jól, við ferm-
ingar eða aðrar athafnir.
Júlíus var einnig virkur í norrænu
samstarfi, og var formaður Nor-
ræna félagsins á Siglufirði í nokkur
ár og alltaf hrókur alls fagnaðar og
skipuleggjandi í sambandi við nor-
ræn vinabæjamót, en Siglufjörður
er hlekkur í einni af fyrstu vina-
bæjakeðjum sem stofnaðar voru á
Íslandi með samstarfi vinabæja á
Norðurlöndum.
Af þessari stuttu upptalningu má
sjá að Júlíus var mikill félagsmála-
maður og drifkraftur hans vakti at-
hygli og aðdáun margra enda hreif
hann ávallt fólk með sér.
Lífskraftur hans smitaði svo
sannarlega út frá sér og það eru ein-
mitt svona menn sem lítil bæjarfélög
þurfa á að halda.
Síðast en ekki síst ætla ég að
minnast á störf Júlíusar sem kenn-
ara en hann starfaði við kennslu til
ársins 1995. Leikni Júlíusar, sam-
starfshæfileikar hans, áhugi og
reynsla frá störfum við Æskulýðs-
heimilið nutu sín vel í því starfi hans.
Siglfirðingar eiga honum margt að
þakka.
Ég vil svo að lokum þakka Júlíusi
fyrir hans frábæra starf að æsku-
lýðs- og íþróttamálum á Siglufirði og
í öllum þeim störfum sem hann
gegndi, bæði launuðum og ólaunuð-
um.
Eilífð var öllum sköpuð
áður en til voru jarðnesk spor.
Síðasta guðagjöfin
er gleðinnar ljósa vor.
(Davíð Stefánsson.)
Fyrir hönd okkar á efri hæðinni á
Laugarvegi 25 vil ég senda Svövu og
fjölskyldunni allri samúðarkveðjur.
Við eigum öll góðar minningar um
Júlíus Júlíusson. Hafi hann þökk
fyrir allt og allt.
Kristján L. Möller.
Ekki ósjaldan hef ég rifjað það
upp í ræðu og riti er ég kom í fyrsta
sinn til Siglufjarðar. Siglufjarðar-
prestakall hafði verið auglýst laust
til umsóknar. Leiðin lá því norður í
Þormóðs ramma fagra fjörð, Siglu-
fjörð. Fjörðurinn baðaður í sól tók á
móti okkur hjónum opnum örmum.
Hvílík haustfegurð. Friður ríkti yfir
firðinum góða.
Þar á stað, í nyrsta kaupstað
landsins sem um svo margt á sér-
staka sögu, einstaka sögu, tók á móti
okkur sóknarnefnd Siglufjarðar-
prestakalls.
Nefndin leiddi okkur hjónin í hina
fögru kirkju sem var vígð árið 1932.
Sóknarnefndina skipaði hópur
sem hægt er segja að hafi geislað af
strax við fyrstu kynni, hópur sem í
voru einstaklingar sem höfðu mikil
JÚLÍUS
JÚLÍUSSON
Einstakir legsteinar
Sérhannaðar englastyttur
úti og inni
Verið velkomin
Legsteinar og englastyttur
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
Engl a s te ina r
Elskuleg móðir, amma og langamma,
ELÍN DAVÍÐSDÓTTIR,
Dalbraut 18,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti laugardaginn
28. febrúar.
Guðjón H. Guðbjörnsson, Maj-Brit Kolbrún Hafsteinsdóttir,
Hilmar Guðbjörnsson Sveinbjörg Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
SVANHVÍT ÁGÚSTA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, sunnu-
daginn 29. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Gunnar Kr. Guðmundsson, Kristín Lúðvíksdóttir,
Guðmundur I. Guðmundsson, Elísabet Jónsdóttir,
Páll A. Guðmundsson, Lynn Guðmundsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar,
GUÐNÝ K.Á. VIGFÚSDÓTTIR,
hjúkrunardeild
Hrafnistu í Reykjavík
lést aðfaranótt sunnudagsins 29. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Börn hinnar látnu.