Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Lukku Láki – Hefnarinn
© DARGAUD
Grettir
Grettir
Smáfólk
EKKI SVO SLÆMT FYRIR MANN SEM
HVORKI KANN AÐ LESA NÉ SKRIFA!
EITUR-
NAÐRA!!
JÆJA SVO
ÞÚ SEGIR ÞAÐ!?
JÆJA, ÉG SKAL HJÁLPA ÞÉR! EN ÞÚ
VERÐUR AÐ GERA HLUTINA LÍKA
SJÁLFUR! FYRSTA VERKEFNI:
ÞÚ VERÐUR AÐ FÁ MEIRA SJÁLFS-
TRAUST! HEYRIRÐU? ÞAÐ ERU
SLAGSMÁL Á KRÁNNI! KOMDU MEÐ
BROTAMANNINN TIL MÍN!
PAFF!
KLOPS!
JÁ JÁ!
BERTI? ERTU NÚ BYRJAÐUR
AÐ SLÁST EINU SINNI ENN?
JÁ!
HEFNARINN ZOTTO
HANDTEKUR ÞIG Í LAGANNA
NAFNI!
ÚT! Á
EFTIR
ÞER!
PAFF!
HANN VILL ÞAÐ EKKI!
INN AFTUR!
KÆRI BERTI, VERTU NÚ SVO VÆNN OG KOMDU
MEÐ MÉR!... EKKI ÞAÐ? JÆJA ÞÁ. ÞÚ ÞARFT EKKI
AÐ SLÁ... ÉG ÞEKKI LEIÐINA...!
SEM ÉG HEITI BERTI
ÞÁ ERTU HEPPINN
AÐ ÉG TAPAÐI
FANGELSINU Í
PÓKER! ANNARS
MYNDI ÉG TAKA ÞIG
FASTAN FYRIR AÐ TRUFLA
LAGANNA VÖRÐ Í HANS
LÖGLEGU SKEMMTUN...
HEFURÐU HEYRT DRAUGALEGA
HLJÓÐIÐ SEM HEFUR HEYRST Í HÚSINU
AÐ UNDANFÖRNU?
GETUM VIÐ RÆTT ÞETTA
EFTIR KVÖLDMAT?
Í HREINSKILNI SAGT ÞÁ FINNST MÉR
KETTIR BARA SKEMMTILEGIR
EN ÞAÐ ÞARF AÐ HALDA
UPPI HEFÐINNI
ÞETTA ER
RITGERÐ UM
VILLIDÝR
VESTURSINS
FYRIR
SKÓLANN
“ÞAÐ ERU MÖRG VILLIDÝR Í
VESTRINU... ÞAU SEM
AÐ BÚA UPP Í FJÖLLUM
KALLST FJALLALJÓN...”
“OG ÞAR SEM ERU FJÖLL
ERU AUÐVITAÐ GIL...
VILLIDÝRIN SEM BÚA Í
GILJUNUM ERU NEFND...”
“...GILJALJÓN”?
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SÍMINN býður nýjan samkeppnis-
aðila, Margmiðlun, velkominn á
markað en í vikunni sem leið hóf
Margmiðlun að bjóða talsímaþjón-
ustu. Með tilkomu Margmiðlunar er
fjarskiptamarkaðurinn á Íslandi orð-
inn líflegri og munum við í kjölfarið
efla okkur og styrkja til þess að
verða fyrsta val viðskiptavinarins
enda getum við státað af því að geta
boðið alla þjónustu á sama stað.
Margmiðlun veitir símaþjónustu
með svokölluðu föstu forvali. Símtöl-
in fara þá í gegnum kerfi annarra
fjarskiptafyrirtækja, m.a. kerfi Sím-
ans. Fast forval er möguleiki sem
áskrifendum talsímaþjónustu stend-
ur til boða og gefur þeim kost á að
flytja ákveðnar tegundir símtala yfir
til annars fjarskiptafyrirtækis. Við-
skiptavinir sem eru með fast forval
til Margmiðlunar eru einnig við-
skiptavinir Símans. Afnotagjald
heimasíma er áfram greitt hjá Sím-
anum ásamt afnotagjaldi fyrir sér-
þjónustu, t.d. númerabirtingu, tal-
hólf og læsingar. Símtöl í 3ja og 4ra
stafa símanúmer og 900 númer eru
áfram hjá Símanum ásamt sérþjón-
ustu á borð við símtalspöntun og
vakningu. Með því að fara í fast for-
val til Margmiðlunar fær viðskipta-
vinurinn tvo reikninga, annan frá
Símanum fyrir afnotagjaldi, sérþjón-
ustu og þeirri umferð sem ekki til-
heyrir föstu forvali og hinn frá
Margmiðlun fyrir umferð innan-
lands og til útlanda.
Ódýrara með sparnaðarleiðum
Fram kom í Fréttablaðinu föstu-
daginn 27. febrúar að verðskrá
Margmiðlunar fyrir símaþjónustu sé
aðeins lægri en hjá Símanum en rétt
er að benda á að þar með er ekki öll
sagan sögð. Verðmunurinn er mjög
lítill og Símanum í hag þegar verð er
borið saman við sparnaðarleiðir Sím-
ans. Með sparnaðarleiðinni Vinir &
vandamenn veitir Síminn 15% afslátt
í þau þrjú númer sem oftast er
hringt í, 10% afslátt af þremur far-
símanúmerum sem oftast er hringt í
ásamt 10% afslætti af þremur núm-
erum í útlöndum. Með þessu verður
ódýrara að vera hjá Símanum en þá
er mínútuverð á dagtaxta 1,49 kr. í
heimilissímann svo dæmi séu tekin á
móti 1,57 kr. hjá Margmiðlun. Notk-
unarmynstur viðskiptavina er eðli-
lega misjafnt, en um 75% af allri um-
ferð úr heimilissíma innanlands ná
til þeirra númera sem veittur er af-
sláttur af. Hlutfallið er enn hærra
hvað varðar símtöl til útlanda. Ná-
lægt 35 þúsund einstaklingar sem
eru í viðskiptum við Símann hafa átt-
að sig á þessu og skráð sig í sparnað-
arleiðir hjá Símanum.
Síminn býður tvær gerðir útlanda-
símtala. Annars vegar geta við-
skiptavinir hringt til útlanda með
hefðbundnu forvalsnúmeri, 00, þar
sem gæði símtala eru tryggð eða val-
ið ódýrari símtöl til útlanda með 1100
þjónustu Símans. Með henni lækkar
reikningur viðskiptavina Símans enn
frekar. Mínútuverð á símtölum til út-
landa með Margmiðlun er frá 19,60
krónum. Til samanburðar býður
Síminn mínútuverð frá 16,90 krónum
ef hringt er með 1100 þjónustu Sím-
ans. Að teknu tilliti til Vina & vanda-
manna kostar mínútan til útlanda
með 00 frá 17,91 krónu.
Læsingar
Læsingar sem viðskiptavinir Sím-
ans hafa skráð hjá Símanum virka
ekki fyrir símtöl sem fara um kerfi
nýja þjónustuveitandans í föstu for-
vali. Sækja þarf sérstaklega um læs-
ingar hjá nýja fyrirtækinu. Læsing-
ar hjá Símanum falla samt sem áður
ekki niður. Ástæðan fyrir því er sú
að áfram er hægt að hringja um kerfi
Símans, með því að velja forvals-
númerið 1001 á undan símanúm-
erinu.
Kostirnir við það að eiga viðskipti
við Símann eru ótvíræðir. Síminn er
eina fyrirtækið á fjarskiptamarkaði
sem hefur á boðstólum alla vöru og
þjónustu á sviði fjarskipta. Hjá Sím-
anum er allt á sama stað og ætlar
Síminn að vera áfram í fararbroddi
við að veita viðskiptavinum góða
þjónustu. Það sýnir fjöldi þeirra við-
skiptavina sem koma aftur í viðskipti
við Símann í hverri viku.
Það er einfalt að gerast viðskipta-
vinur Símans. Það eina sem þarf að
gera er að hafa samband við þjón-
ustuver Símans í síma 800 7000 eða
verslanir Símans um allt land.
EVA MAGNÚSDÓTTIR,
upplýsingafulltrúi Símans.
Síminn býður allt
á sama stað
Frá Evu Magnúsdóttur:
SÚ prýðilega hugmynd hefur komið
upp að lýsa Gullfoss í skammdeg-
inu. Kösturum yrði komið fyrir í
felum í gljúfrinu sunnan eða vestan
við fossinn og ljósgeislum beint að
honum. Með réttri lýsingu mætti
gera fossinn enn kynngimagnaðri
en hann er nú í myrkrinu. Ein-
hverjir „náttúruverndarsinnar“
hafa sett sig á móti þessu og spurt:
því ekki að lýsa þá hin og þessi fyr-
irbrigði í náttúrunni eins og t.d.
gjárnar við Þingvöll? Og það væri
einmitt ljómandi hugmynd. Enginn
segir neitt þótt drasli eins og verð-
lausri mynt sé fleygt ofan í Nikulás-
argjá í þjóðgarðinum við Þingvöll.
En miklu betra væri að hreinsa
ruslið burt og setja ljóskastara
kunnáttusamlega niðri í vatninu
bæði í Nikulásar- og Flosagjá. Yrði
þetta ljósmengun? Þá er bara að
ganga 600 skref frá og njóta enn
betur stjarna og norðurljósa á heið-
skíru kvöldi. Og hvað er svo sem
ekki manngert við Gullfoss og Þing-
völl? En áður en „náttúruverndar-
sinnar“ færu á taugum mætti ýta á
hnapp og slökkva ljósið.
GUNNLAUGUR EIÐSSON,
leiðsögumaður.
Gullfoss og vatns-
gjárnar við Þingvöll
Frá Gunnlaugi Eiðssyni: