Morgunblaðið - 02.03.2004, Page 45
DEILDARBIKARINN Í STYKKISHÓLMI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 45
KÖRFUKNATTLEIKUR á sér
langa sögu í Stykkishólmi og
þaðan hafa komið margir
þekktir körfuknattleiksmenn
og konur á undanförnum ár-
um. Eyþór Lárentsínusson er
einn af þeim sem hafa fylgst
vel með liðinu á undanförnum
árum, enda lék hann sjálfur á
yngri árum en nú er það sonur
hans, Bárður, sem stýrir Snæ-
fellsskútunni sem þjálfari liðs-
ins.
Eyþór segir að um fátt ann-
að en körfuknattleik sé rætt í
bæjarfélaginu þessa dagana.
„Það er af sem áður var er
ég var að gutla í þessu sjálfur í
kringum 1960, þá æfðum við
þrisvar í viku í gamla í íþrótta-
húsinu og lékum einn til tvo
leiki á ári gegn Skallagrími úr
Borgarnesi. Það var allt og
sumt. Sigurður Helgason,
íþróttakennari úr Borgarnesi,
er sá sem kom okkur á bragðið
og það má segja að hann sé
faðir körfuboltans í Stykk-
ishólmi,“ segir Eyþór og telur
að sonurinn sé á réttri leið með
liðið.
„Við ræðum af og til um
körfubolta en ég skipti mér
ekkert af hans störfum, enda
er hann fullfær um að gera
það. Hann hefur minn stuðn-
ing og ég hef hvatt hann til
þess að halda áfram sem þjálf-
ari. Enda er það ekki auðvelt
starf.“
Eyþór starfar sem húsa-
smiður og telur hann að án
körfuknattleiksliðsins væri
bæjarbragurinn annar. „Gengi
liðsins hefur breytt geysilega
miklu fyrir Stykkishólm. Það
má segja að allir bæjarbúar
hafi skoðun á liðinu, fólk sem
hefur aldrei áður haft áhuga á
körfuknattleik hefur verið að
mæta á leiki og nú vilja allir
taka þátt í fjörinu.“
Eyþór bætir því við að flest
hafi gengið upp í vetur hjá lið-
inu, rétt hugarfar leikmanna
hafi hjálpað til en hann hafi
ekki leyft sér að dreyma um að
Deildarmeistaratitill yrði eign
„Hólmara“ í lok febrúar. „Við
bjuggumst ekki við þessum ár-
angri og markið er sett hátt
þegar úrslitakeppnin hefst en
ég hef enn ekki leyft mér að
dreyma um að við fögnum Ís-
landsmeistaratitlinum í apríl.
Úrslitakeppnin verður miklu
erfiðari en deildarkeppnin, en
við gerum allt sem við getum
til geta fagnað á ný í apríl,“
sagði Eyþór.
Eyþór hefur taugar til
Snæfells enda er sonur
hans þjálfari liðsins.
„Markið
er sett
hátt“
EFTIR að leik Snæfells og Hauka
sl. sunnudag lauk afhenti Ólafur
Rafnsson, formaður Körfuknatt-
leikssambands Íslands, leik-
mönnum Snæfells verðlaun fyrir
deildarmeistaratitilinn við mikinn
fögnuð stuðningsmanna liðsins.
Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri
í Stykkishólmi, hélt einnig stutta
ræðu þar sem að hann kallaði til
Gissur Tryggvason, formann
körfuknattleiksdeildarinnar, og
afhenti honum 500.000 kr. ávísun
frá bænum í tilefni þess að liðið
hafði tryggt sér deildarmeist-
aratitilinn árið 2004.
Sagði Óli Jón í ræðu sinni að lík-
lega yrði Gissur ekki í erfiðleikum
með að finna leiðir til þess að nota
féð þar sem rekstur deildarinnar
væri að venju kostnaðarsamur.
Snæfell fékk hálfa milljón
Það er ekki langt síðan við náðumekki upp í dómarakostnað með
seldum aðgangseyri, og borguðum
alltaf með okkur. Í vetur hefur þetta
verið eins og í draumi, mikið af fólki
og meðbyrinn er til staðar,“ segir
Gissur.
Mikil umræða hefur verið á spjall-
síðum sem tengjast körfuknattleik
þess efnis að Snæfell hafi fundið leið-
ir til þess að greiða leikmönnum liðs-
ins laun framhjá launaþakinu sem
sett var á laggirnar sl. vor.
Gissur dregur djúpt andann er
hann er inntur eftir því hvort félagið
sé að brjóta þær reglur sem settar
voru. „Það er sérstök ástæða fyrir
því að menn hafa verið að skjóta á
okkur í þessu sambandi. Við erum
með Hlyn Bæringsson í okkar röðum
og sl. sumar fékk hann fyrirspurnir
frá öðrum liðum þar sem honum var
boðið allt að 130 þúsund kr. á mánuði
fyrir að spila með þeim. Hann valdi
það frekar að vera áfram hjá okkur,
en við erum ekki að greiða honum
neitt í líkingu við það sem honum var
boðið. Þar af leiðir hafa þau lið sem
vildu fá Hlyn í sínar raðir lagt saman
tvo og tvo og fengið út fimm. Ég get
alveg sagt það opinberlega að Hlyn-
ur fékk 50 þúsund kr. á mánuði frá
okkur fyrir áramót en er við fengum
Edmund Dotson til liðs við okkur um
áramótin ákváð hann ásamt fleiri
leikmönnum liðsins að gefa eftir sín
laun til þess að við gætum haft Dot-
son áfram, ásamt þeim Corey Dick-
erson og Dondrell Whitmore. Það
eru því allir að vinna að sama marki
og þessar sögur um að við séum að
svindla á launaþakinu eiga bara ekki
rétt á sér,“ segir Gissur.
Spurður um hvort hann hafi látið
sig dreyma um efsta sætið er keppni
á Íslandsmótinu hófst sl. haust sagði
formaðurinn að svo hafi ekki verið.
„Nei, ég hafði aldrei látið mér
detta þetta í hug. Vissulega ætluðum
við að vera eitt af fjórum efstu, enda
var það markmiðið eftir að okkur
hafði mistekist að komast í úrslita-
keppnina í fyrra þar sem við end-
uðum í níunda sæti með 16 stig.
Það er því engin pressa á okkur,
þjálfaranum eða leikmönnum. Við
erum komnir miklu lengra en við
höfðum búist við. Núna tekur við
annað mót og við teljum að þar séum
við til alls líklegir og ætlum að
skemmta okkur í úrslitakeppninni,“
sagði Gissur.
Gissur Tryggvason, formaður
körfuknattleiksdeildar Snæfells
Erum undir
launa-
þakinu
GISSUR Tryggvason, formaður körfuknattleiksdeildar Snæfells, gat
vart leynt ánægju sinni eftir að liðið hafði tryggt sér efsta sætið í
Intersport-deildinni árið 2004 sl. sunnudag. Gissur hefur verið for-
maður deildarinnar undanfarin 5 ár og man tímana tvenna í rekstri
deildarinnar. Það eina sem skyggði á gleði formannsins er sú um-
ræða að félagið sé að greiða leikmönnum liðsins of mikið í laun
miðað við launaþakið sem setta var á laggirnar sl. sumar.
Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, kom færandi
hendi og færði Gissuri Tryggvasyni, formanni körfuknattleiks-
deildar Snæfells, hálfa millj. kr. í styrk vegna árangurs liðsins.
Við mætum alltaf á heimaleiki, áslaginu hálf sjö, alveg sama
hvernig hefur gengið og við reynum
einnig að fara á útileikina,“ segir
Ólöf en hún ber forláta rauða og
hvíta húfu í litum heimaliðsins og er
einnig með fána félagsins í hönd þeg-
ar Morgunblaðið tók þau tali fyrir
leik liðsins gegn Haukum sl. sunnu-
dag.
Klemens, sem er fæddur í Fær-
eyjum, segir að árangur liðsins hafi
komið mörgum á óvart en þau telja
að margir samverkandi þættir séu
þess valdandi að liðið hafi náð góðum
árangri það sem af er vetrar. „Þjálf-
arinn kann sitt fag, (Bárður Eyþórs-
son), hann er góður. Íslensku strák-
arnir í liðinu koma víða að en við
segjum að þeir séu strákarnir okkar.
Þeir koma úr Borgarnesi, Grundar-
firði og af Vesturlandi. Þeir hafa gert
góða hluti í vetur ásamt heimamönn-
um,“ segir Klemens og Ólöf er á því
að bandarísku leikmennirnir þrír séu
happafengur ársins. „Þeir eru ljúfir
þessir drengir, í litlu samfélagi eins
og hjá okkur þekkja allir alla, og
bandarísku strákarnir hafa komið
verulega á óvart að því leyti að þeir
falla svo vel inn í bæjarlífið þrátt fyr-
ir að þeir séu flestir frá stórborgum í
Bandaríkjunum. Í raun og veru eru
þetta „fermingardrengir“ miðað við
marga aðra sem hafa verið hér í
gegnum tíðina. Þeir hafa gert frá-
bæra hluti í vetur og liðinu hefur far-
ið mikið fram,“ segir Ólöf en hún
bætir því við að á leikjum liðsins leyfi
hún sér að sleppa fram af sér beisl-
inu. „Ég öskra og hvet liðið áfram frá
fyrstu mínútu í Snæfellsbolnum mín-
um og með húfuna góðu. Við erum
stuðningsmenn liðsins ekki satt?“
segir Ólöf og þau telja að liðið geti
náð alla leið að þessu sinni.
„Ég hef trú á því að Snæfellsliðið
geti farið alla leið. Í vetur hefur liðið
unnið öll bestu lið landsins og ég sé
ekki að það eigi að breytast í úrslita-
keppninni,“ segir Klemens.
Það vekur athygli að á milli þeirra
hjóna situr ávallt Bjarni Lárents-
ínusson en hann er föðurbróðir þjálf-
ar liðsins. „Okkur gengur vel þegar
við sitjum í þessari röð þetta er okk-
ar hjátrú,“ segir Ólöf.
Hvergi dregið af! Ólöf Ólafsdóttir, Bjarni Lárentsínusson og
Klemens Svenning Antoniussen hafa hvatt körfuknattleikslið
Snæfells í gegnum súrt og sætt á undanförnum árum.
„Við erum
stuðningsmenn“
HJÓNIN Ólöf Ólafsdóttir og Klemens Svenning Antoniussen hafa
fylgt körfuknattleiksliði Snæfells í heimabæ sínum í gegnum súrt
og sætt á undanförnum og „Olla Klemm“ er þekkt fyrir að láta vel í
sér heyra á áhorfendapöllunum í Hólminum.