Morgunblaðið - 02.03.2004, Síða 46

Morgunblaðið - 02.03.2004, Síða 46
ÍÞRÓTTIR 46 ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ GUÐJÓN Þórðarson, knattspyrnustjóri Barnsley, var ekki sérlega ánægður með Is- aiah Rankin, leikmann úr sínum röðum, sem skoraði fyrir Grimsby gegn Barnsley í ensku 2. deildinni á laugardaginn. Guðjón lánaði Rankin til Grimsby fyrir skömmu og pilt- urinn skoraði eitt marka Grimsby sem vann stórsigur, 6:1, í leik liðanna á laugardaginn. Rankin fagnaði markinu með því að hæðast að stuðningsmönnum og leikmönnum Barnsl- ey, við litla hrifningu Guðjóns. „Framkoma hans var ekki ásættanleg og ég mun taka á því máli þegar lánssamningi hans við Grimsby lýkur. Þetta sýnir fyrst og fremst hvert hans hugarfar er,“ sagði Guðjón á vef Barnsley. Peter Ridsdale, stjórnarformaður Barnsl- ey, hvatti í gær stuðningsmenn félagsins til að fylkja sér á bakvið Guðjón og liðið. „Þetta eru ein slæm úrslit á sama tíma og við þurf- um að glíma við mikil forföll vegna meiðsla. Nú er ekki rétti tíminn til að leita að blóra- böggli, nú þurfa allir að veita knatt- spyrnustjóranum og liðinu stuðning,“ sagði Ridsdale. Guðjón óhress með lánsmanninn Guðjón Þórðarson MARK Schulte, bandaríski knattspyrnumaðurinn sem hef- ur verið til reynslu hjá ÍBV undanfarna daga, hélt til síns heima í gær með tilboð frá Eyjamönnum upp á vasann. Schulte dvaldi hjá þeim í sex daga og lék með þeim æf- ingaleik gegn Val á laugardaginn. Hann skoraði þá eitt mark í sigri ÍBV, 3:1, og þótti leika mjög vel. Schulte er hávaxinn og kraftmikill varnarmaður sem hefur leikið undanfarin ár með Minnesota Thunder í bandarísku A-deildinni, efstu deildinni fyrir neðan MLS-úrvalsdeild- ina þar í landi. „Okkur leist mjög vel á Schulte, hann er í mjög góðri æfingu, leit vel út í alla staði og myndi örugglega styrka okkar lið nokkuð. Hann er með tilboð frá okkur og við bíð- um eftir útkomunni úr því,“ sagði Magnús Gylfason, þjálf- ari ÍBV, við Morgunblaðið í gær. Schulte lék sem hægri bakvörður í leiknum við Val en hann er örvfættur og getur leikið allar stöður í vörninni. Hann er 26 ára og hefur alla tíð spilað í Bandaríkjunum og var um skeið í röðum MLS-liðsins Tampa Bay Mutiny en fékk ekki samning þar. Schulte með tilboð frá Eyjamönnum ALLNOKKRAR líkur eru fyrir því að handknattleiksmaðurinn Mark- ús Máni Michalesson Maute, úr Val, gangi til liðs við þýska handknattleiks- liðið HSG Düss- eldorf. Markús var við æfingar hjá félaginu í síðustu viku og um liðna helgi og voru þjálfari og fram- kvæmdastjóri félagsins jákvæðir í garð Mark- úsar og lýstu yfir áhuga á að ræða við hann frekar með samning í huga. Markús sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann vænti þess að það kæmist á hreint fyrir miðjan þennan mánuð hvort hann gengi til liðs við Düsseldorf í sum- ar. Düsseldorf er í efsta sæti suð- urhluta 2. deildar og flest bendir til þess að það leiki í 1. deild á næstu leiktíð. Leist vel á liðið „Félagið þarf að skila inn skýrslu um fjárhag sinn til þýska handknattleikssambandsins á næstunni og fjárhagsáætlun fyrir næstu leiktíð til þess að fá keppn- isleyfi. Þegar það liggur fyrir reikna ég með að eitthvað gerist í mínum málum,“ sagði Markús Máni sem leist vel á sig í Düssel- dorf, sagði þjálfarann vera góðan og leikmannahópinn fínan. Einn íslenskur handknattleiks- maður er þegar í herbúðum Düss- eldorf, það er Alexander Peterson, fyrrverandi leikmaður Gróttu/KR. Peterson hefur leikið mjög vel með liðinu á leiktíðinni og skoraði 9 mörk fyrir félagið um nýliðna helgi. Líkur á því að Markús fari til Düsseldorf  TARIBO West, hinn kunni knatt- spyrnumaður frá Nígeríu, er hættur að leika með Partizan Belgrad í Serbíu-Svartfjallalandi. Samningur hans átti að renna út í sumar en hann fékk sig leystan undan honum. West lék með Partizan í fjórtán mánuði og varð meistari með liðinu, auk þess sem það komst í riðlakeppni Meist- aradeildar Evrópu.  ROBERTO Carlos, brasilíski bak- vörðurinn í liði Real Madrid, var í gær úrskurðaður í tveggja leikja bann í Evrópukeppni af aganefnd Knatt- spyrnusambands Evrópu. Carlos sló til Martin Demichelis, leikmanns Bayern München, eftir að sá síðar- nefndi hafði brotið á honum í leik lið- anna í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Dómarinn sá ekki hvað gerðist en það blasti við sjónvarpsáhorfend- um.  VANALEGA eru leikmenn settir í þriggja leikja bann fyrir þessar sakir en Carlos var talið það til málsbóta að hann brást snöggt við eftir að brotið var á honum. Carlos leikur ekki með Real Madrid þegar liðin mætast aftur í Madríd í næstu viku, og komist spænska liðið áfram, missir hann jafnframt af fyrri leik þess í undan- úrslitum keppninnar.  ÍSLENSKA karlalandsliðið í borð- tennis bar sigurorð af Kosovo, 3:0, í 1, umferðinni á heimsmeistaramótinu sem hófst í Qatar í gær. Guðmundur E. Stephensen, Markús Árnason og Matthías Stephensen höfðu allir bet- ur gegn andstæðingum sínum. Í dag mæta Íslendingar liði Möltu. Kvenna- liðinu gekk eins vel en það tapaði fyrir Sri Lanka, 3:0  BJÖRN Margeirsson, úr FH, kom fyrstur í mark í 1.500 m hlaupi á Opna danska meistaramótinu innanhúss á sunnudaginn. Hann hljóp á 3.54,97 mín., sem er um sjö sekúndum frá hans besta. Sigurbjörn Árni Arn- grímsson, UMSS, hafnaði í þriðja sæti á 3.56,77.  SUNNA Gestsdóttir, UMSS, vann langstökkið á Opna danska meistara- mótinu, stökk 5,71 og var um 60 sentí- metrum frá sínu besta.  SIGURBJÖRG Ólafsdóttir, Breiðabliki, varð í 3. sæti í langstökki, stökk 5,64 metra en gerði sér lítið fyr- ir og vann 60 m hlaupið á 7,62 sek.  SIGURKARL Gústafsson, UMSB, setti Íslandsmet í 19–20 ára flokki í 400 m hlaupi innanhúss á Opna danska mótinu þegar hann kom í mark á 49,87 sek.  ÞÁ bætti Þóra Bjartmarz, meyja- metið í stangarstökki þegar hún lyfti sér yfir 3,40 m. bætti hún eigið met um 5 cm. Þóra er í Breiðabliki en býr um þessar mundir í Malmö þar sem hún æfir undir stjórn Stanislavs Szczyrba, fyrrverandi þjálfara Völu Flosadóttur. FÓLK Leikurinn fór hratt af stað og varmikið af hraðaupphlaupum á upphafskafla hans. Keflvíkingar beittu pressuvörn og náðu Þórsarar að leysa hana mjög vel. Samt var á kafla í fyrri hálfleik mikið óðagot á Þórsurum og Keflvíkingar riðu á vaðið með tíu þriggja stiga körfum í fyrri hálfleik. Leikurinn var mjög jafn nær allan fyrsta leikhluta, leikhlé var þá tekið hjá Keflavík og Hjörtur Harðarson reið á vaðið með því að skora þrjár þriggja stiga körf- ur ásamt einni körfu frá Sverri Sverrissyni og breytti það stöðunni úr 17:18 í 28:18. Sannkölluð þriggja stiga sýning var hjá Keflvíkingum í fyrri hálfleik og skoruðu þeir 10 þriggja stiga körfur úr 16 tilraunum og gengu til leikhlés með þægilega 21 stigs forystu, 63:42. Í seinni hálfleik byrjuðu Þórsarar betur og með skynsamlegum leik náðu þeir að saxa hægt og bítandi á forskot heimamanna í Keflavík. Þórsarar leituðu á þeim kafla mikið inn í teig Keflvíkinga þar sem Leon Brisport skoraði mikið á þeim kafla, en Derrick Allen, leikmaður Kefla- víkur, sem hafði gætt hans þurfti að yfirgefa völlinn þar sem hann hafði snúið sig á ökkla. Keflvíkingar tóku þá leikhlé og fóru betur yfir sín mál, og náðu fljótt aftur 18 stiga forystu, 87:69. Þórsarar voru samt ekki á því að gefast upp og minnkuðu muninn aftur niður í 9 stig en nær komust þeir ekki. Leikmenn Þórs sýndu skemmtilega takta og ekki var að sjá að þetta lið ætti heima í fyrstu deild á næsta ári. Það er ekki á hverjum degi sem lið mætir á parketið í Keflavík og skorar meira en 100 stig gegn Kefla- vík. Það gerðist síðast 16. apríl 2002. „Þetta var nóg til að vinna en þetta var ekki góð vörn hjá okkur. Það var gaman að sjá að þriggja stiga skotin voru farin að rata rétta leið aftur en það hefur gengið brösuglega hjá okk- ur í undanförnum leikjum,“ sagði Guðjón Skúlason, annar þjálfara Keflavíkur. „Það var mjög erfitt að næla í sigur hér í Keflavík, það er mikil hefð og þetta er hörkugott lið með margar góðar skyttur. Ég var ánægður með að við gáfumst aldrei upp og þó svo við lentum undir með 20 stigum náð- um við alltaf að koma til baka. Það sem fór með okkur hér í kvöld var að við misstum þá alltof langt frá okkur og það fór alltof mikil orka í að koma til baka. Það er leiðinlegt að vita til þess að við séum að falla í fyrstu deild, en að mínu mati höfum við leik- ið skemmtilegan körfubolta og þeir leikir sem við höfum tapað voru oft á tíðum mjög tæpir og með smáheppni hefðum við getað náð að landa sigri í þeim leikjum,“ sagði Robert Hodg- son, þjálfari Þórs við Morgunblaðið eftir leikinn. Þór fylgir Blikum niður KEFLVÍKINGAR sigruðu lið Þórs frá Þorlákshöfn auðveldlega, 117:102, í lokaleik næstsíðustu umferðar úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í Keflavík í gærkvöldi. Ósigurinn gerði það að verk- um að Þórsarar eru fallnir úr úrvalsdeildinni og fylgja Blikum niður í 1. deildina en Keflvíkingar tryggðu sér þriðja sætið í deildinni. Davíð Páll Viðarsson skrifar Ólafur Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleik, leikmaður Ciudad Real á Spáni og síðast en ekki síst íþróttamaður ársins hér á landi 2002 og 2003, er einn þeirra tíu hand- knattleiksmanna sem koma til álita þegar Alþjóðahandknattleiks- sambandið, IHF, útnefnir hand- knattleiksmann ársins 2003 í vor í samvinnu við tímaritið World Hand- ball Magazine og sportvöruframleið- andann Adidas. Á síðasta ári varð Frakkinn Bertrand Gille, hjá HSV Hamborg fyrir valinu en hann kem- ur ekki til greina að þessu sinni. Valið stendur á milli eftirtalinna tíu handknattleiksmanna, Ivano Bal- ic, Króatíu, Alberto Entrerrios Ro- driguez, Spáni, Peter Gentzel, Sví- þjóð, Eril Gull, Argentínu, Laszla Nagy, Ungverjalandi, Patrick Cazal, Frakklandi, Christian Schwarzer, Þýskalandi, Ólafur Stefánsson, Bruno Souza, Brasilíu og Hussein Zaky, Egyptlandi. Hægt er að taka þátt í kjörinu með því að senda tölvupóst á ihf.- office@ihf.info raða upp lista með nöfnum þriggja handknattleiks- manna. Ólafur í hópi þeirra bestu KÖRFUKNATTLEIKUR Keflavík – Þór Þ. 117:102 Keflavík, úrvalsdeildin í körfuknattleik, Intersportdeildin, mánud. 1. mars 2004. Gangur leiksins: 4:4, 8:10, 22:18, 34:21, 45:27, 54:36, 63:42, 77:69, 90:76, 96:85, 104:94, 110:94, 117:96, 117:102. Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 24, Nick Bradford 18, Hjörtur Harðarson 17, Sverrir Sverrisson 13, Halldór Halldórs- son 12, Magnús Gunnarsson 11, Derrick Allen 8, Gunnar Stefánsson 6, Davíð Þór Jónsson 4, Jón Hafsteinsson 2. Fráköst: 8 í sókn – 22 í vörn. Stig Þórs: Robert D. Hodgson 26, Leon Brisport 26, Nate Brown 25, Grétar Er- lendsson 10, Finnur Andrésson 8, Svein- björn Þórðarson 5. Fráköst: 8 í sókn, 27 í vörn. Villur: Keflavík 22, Þór 17. Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Erling- ur S. Erlingsson. Áttu ágætan leik. Áhorfendur: Um 100. Staðan: Snæfell 21 18 3 1794:1672 36 Grindavík 21 17 4 1900:1781 34 Keflavík 21 15 6 2082:1852 30 Njarðvík 21 13 8 1928:1789 26 Tindastóll 21 12 9 1942:1842 24 Haukar 21 12 9 1673:1658 24 KR 21 10 11 1901:1849 20 Hamar 21 10 11 1759:1804 20 ÍR 21 6 15 1803:1900 12 KFÍ 21 5 16 1898:2175 10 Breiðablik 21 4 17 1714:1857 8 Þór Þorl. 21 4 17 1761:1976 8  Breiðablik og Þór eru fallin í 1. deild. 1. deild kvenna ÍS – Keflavík ........................................ 61:77 Stig ÍS: Casie Lowman 26, Hafdís Helga- dóttir 11, Alda Leif Jónsdóttir 10, Svandís Sigurðardóttir 6, Lovísa Guðmundsdóttir 5, Stella Kristjánsdóttir 3. Stig Keflavíkur: Anna M. Sveinsdóttir 21, Birna Valgarðsdóttir 18, Erla Þorsteins- dóttir 13, Marín Karlsdóttir 11, Erla Reynisdóttir 4, Rannveig Randversd. 4, María Erlingsdóttir 4, Svava Stefánsdóttir 2. Staðan: Keflavík 19 16 3 1547:1168 32 ÍS 19 12 7 1258:1119 24 KR 18 10 8 1200:1149 20 Grindavík 19 9 10 1245:1211 18 Njarðvík 18 7 11 1068:1239 14 ÍR 19 2 17 1042:1474 4 NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Toronto – Boston ..................................82:91 Milwaukee – Miami...........................108:104 Houston – Seattle .................................80:97 LA Clippers – Detroit .......................88:100 New Jersey – LA Lakers...................83:100 Philadelphia – Minnesota.....................81:74 Sacramento – Phoenix........................108:94 Denver – New York............................107:96 KNATTSPYRNA Norðurlandsmótið Hvöt – Tindastóll ..................................... 1:3 Staðan: KA 6 5 1 0 24:4 16 Völsungur 6 3 2 1 24:9 11 Þór 7 3 2 2 24:14 11 Tindastóll 7 3 2 2 12:18 11 Leiftur/Dalvík 5 2 2 1 15:9 8 KS 6 2 0 4 7:13 6 Höttur 7 1 1 5 7:31 4 Hvöt 6 0 2 4 6:20 2 BLAK 1. deild karla: ÍS – Stjarnan .............................................3:0 HK – Þróttur R.........................................3:2 1. deild kvenna: HK – Þróttur R.........................................3:1 ÚRSLIT Markús Máni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.