Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 02.03.2004, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 47 KR-INGUM barst í gær tilboð frá norska úrvalsdeildarliðinu Stabæk í Veigar Pál Gunnarsson en eins og fram hefur komið hefur Veigar gert munnlegt samkomulag við Stabæk um að gera við félagið þriggja ára samning. En þar sem hann skrifaði undir nýjan samning við KR í upp- hafi ársins þá vilja KR-ingar ekki láta Veigar fara til Stabæk án greiðslu en málið er nokkuð snúið fyrir báða aðila þar sem hann gerði ekki svokallaðan KSÍ-samning. „Við erum rétt farnir að kynna okkur tilboðið frá Stabæk en ég reikna með því að við sendum þeim gagntilboð,“ sagði Kristinn Kjærne- sted, stjórnarmaður í KR-Sport. KR með tilboð frá Stabæk  AUÐUR Jóna Guðmundsdóttir, fimleikakona úr Gróttu, var á meðal keppenda á bikarmótinu á laugar- dag. Það þykir með tíðindum sæta þar sem hún hryggbrotnaði við æf- ingar á tvíslá á sama móti fyrir ári.  DAVÍÐ Logi Gunnarsson, knatt- spyrnumaður úr Haukum, gekk til liðs við Þrótt í Reykjavík um helgina. Davíð Logi lék 11 leiki með Haukum í 1. deildinni í fyrra.  HANS Fróði Hansen, annar fær- eysku landsliðsmannanna í knatt- spyrnu sem Fram fékk frá B68, er kominn með keppnisleyfi með Safa- mýrarfélaginu. Félagi hans, Fróði Benjamínsen, fékk leyfið fyrir nokkru.  ARNAR Sigurðsson, fremsti tenn- isleikari Íslands, var í aðalhlutverki hjá háskólaliði sínu, Pacific Tiges, sem vann Loyola Marymount, 6:1, á sunnudaginn. Arnar vann sannfær- andi sigur á andstæðingi sínum í ein- liðaleik, 6:2 og 6:3, og með félaga sín- um, Lennart Maack frá Þýskalandi, vann hann í tvíliðaleiknum, 8:2. Arn- ar hefur verið nær ósigrandi í há- skólakeppninni í vetur og er með mjög gott vinningshlutfall.  DANY Ortiz, landsliðsmarkvörður Guatemala í knattspyrnu, lést í fyrrinótt á sjúkrahúsi í heimalandi sínu, í kjölfarið á atviki í deildaleik með liði sínu. Ortiz kastaði sér á eftir boltanum, fyrir fæturnar á mót- herja, sem reyndi að skjóta að marki í leið en en sparkaði í bringspalirnar á Ortiz. Hann lá óvígur eftir og nokkrum tímum síðar var tilkynnt að hann hefði látist á sjúkrahúsinu af völdum höggsins.  SUNDAY Oliseh, félagi Þórðar Guðjónssonar hjá Bochum, var í gær leystur undan samningi við fé- lagið. Uppsögnin kemur í framhaldi af því að hann réðst á samherja sinn, Vahid Hashemian, í leik við Hansa Rostock um helgina og aftur í leiks- lok með þeim afleiðingum að Hash- emian nefbrotnaði. Oliseh var í láni frá Borussia Dortmund.  HEIÐAR Helguson, landsliðsmað- ur í knattspyrnu, er laus úr þriggja leikja banni en verður væntanlega að sætta sig við að sitja á varamanna- bekk Watford þegar lið hans mætir Bradford í ensku 1. deildinni í kvöld.  WATFORD vann alla þrjá leikina sem liðið lék án Heiðars, og fékk ekki á sig mark. „Það er frábært að fá Heiðar aftur en það er ekki þar með sagt að hann fari beint í liðið. Hann er okkar besti sóknarmaður en í fjarveru hans hefur okkur gengið allt í haginn,“ sagði Ray Lewington, knattspyrnustjóri Watford, í gær.  JÓN Þorgrímur Stefánsson, knattspyrnumaður úr FH, gekkst undir aðgerð á hné fyrir helgina og verður frá keppni næstu vikurnar. FÓLK RÚNAR Alexandersson, fim- leikamaður úr Gerplu, verður á faraldsfæti á næstunni en mikil mótatörn er framundan hjá hon- um á erlendum vettvangi. Um næstu helgi verður hann á meðal keppenda á heimsbikarmóti í Þýskalandi og helgina þar á eftir í Frakklandi en það er einnig í heimsbikarnum. Síðar í vetur verður Norðurlandamót og Evr- ópumeistaramótið fer fram í apr- íl. Rúnar sagðist í samtalið við Morgunblaðið ætla að leggja höf- uðáherslu á bogahestinn og tví- slána, en markmiðið hjá honum er að komast í úrslit á þessum áhöld- um. Hann kveðst bjartsýnn varð- andi árangur sinn á bogahesti en árangur á tvíslánni er meira spurningarmerki að hans sögn. „Fyrir Ólympíuleikana í Aþenu í sumar ætla ég svo að breyta æf- ingum mínum á tvíslánni og von- ast til þess að það skili mér betri árangri á leikunum. Ég hef sett mér markmið fyrir Ólympíu- leikana, að komast í úrslit á boga- hesti, en þar mun ég eingöngu keppa á þessum tveimur áhöld- um,“ sagði Rúnar. Rúnar verður á ferð og flugi ATHYGLI vakti á bikarmóti Fimleikasambandins um helgina að Ármann sendi ekki kvennasveit og ekki heldur Bjarkirnar, en þessi félög hafa jafnan verið með lið í fimleikamótum. Að sögn Önnu Möller, framkvæmdastjóra Fimleika- sambandins, eru margar ástæður fyrir því að þessi tvö félög voru ekki með lið að þessu sinni og sagði hún það oft koma fyrir að milli- bilsástand skapaðist hjá fé- lögunum á toppnum, en að- eins þeir bestu keppa á bikarmótinu. Ein sterkasta fimleikastúlka Ármanns er í Bandaríkjunum sem skipti- nemi, einhverjar stúlkur hafa skipt um félag og því hefur skapast þetta millibils- ástand hjá þeim. Vantaði fleiri sveitir Í liðakeppninni voru tvö félög íhvorum flokki, Grótta og Gerpla í kvennaflokki og Gerpla og Ármann í karlaflokki. Athygli vakti að Ármenning- ar skyldu ekki vera með lið í kvenna- flokki að þessu sinni. Hjá kvenfólkinu náði Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu bestum ár- angri með 32,195 stig samanlagt og skaut þar með Íslandsmeistaranum, Sif Pálsdóttur, Gróttu, aftur fyrir sig. Bestum árangri náði Inga í stökki eða 8,425. Í yngri flokki kvenna sigraði Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu með 30,975 stig. Í yngri flokki karla sigraði Bjarki Ásgeirsson, Ármanni, með 40,62 stig en í eldri flokki sigraði Rúnar Alexandersson, Gerplu, með 50,17 og kom það sennilega engum á óvart. Rúnar sagðist í samtali við Morg- unblaðið ekki vera sáttur við árang- ur sinn á mótinu ef frá eru taldar æf- ingar á bogahesti sem lengi hefur verið hans sterkasta grein. Rúnar fór úr lið á fingri í desember og var frá æfingum um nokkurt skeið. Hann vildi þó ekki kenna meiðslum um gengi sitt á mótinu og sagði þau ekki hafa angrað sig. „Þetta hefur auðvitað haft áhrif á æfingaferlið síð- astliðna tvo mánuði en þetta háði mér ekki í dag og ég hef ekki áhyggj- ur af þessum meiðslum varðandi framhaldið,“ sagði Rúnar, en þetta er stórt ár hjá honum þar sem hann verður bæði á meðal keppenda á Evrópumeistaramótinu og Ólympíu- leikunum. Gerpla og Grótta bik- armeistarar GERPLA og Grótta urðu á laug- ardag bikarmeistarar í frjálsum æfingum karla og kvenna í fim- leikum. Mótið fór fram í íþrótta- húsi Bjarkar í Hafnarfirði og er liðakeppni en einnig fór fram einstaklingskeppni samhliða á svokölluðu Þorramóti. Kristján Jónsson skrifar Morgunblaðið/Eggert Viktor Kristmannsson í æfingum í hringjum. Á myndinni uppi í horni eru bikarmeistaraliðin – Gerpla: Rúnar, Viktor, Róbert Kristmannsson, Sigurður Hrafn Pétursson, Ingvar Jochums- son og Ólafur Gunnarsson. Kvennalið Gróttu – Sif Pálsdóttir, Auður Jóna Guðmundsdóttir, Hera Jóhannesdóttir, Harpa Snædís Hauksdóttir, Fanney Hauksdóttir og Björk Óðinsdóttir. Morgunblaðið/Eggert Rúnar Alexandersson var sigursæll á bikarmótinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.