Morgunblaðið - 02.03.2004, Side 49
Tískan á Óskarnum
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2004 49
Vortónleikar Fóstbræðra
Einsöngur: Elín Ósk Óskarsdóttir
Stefán Helgi Stefánsson
Smári Sigurðsson
Píanó: Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Stjórnandi: Árni Harðarson
Á efnisskrá er fjöldi laga eftir íslenska og erlenda höfunda, m.a. verður fyrri
hluti tónleikanna tileinkaður Jóni Ásgeirssyni tónskáldi í tilefni af 75 ára
afmæli hans. Einnig verða sungin norræn lög m.a. eftir Edvard Grieg og
Hugo Alfvén. Að lokum verða fluttir þættir úr Ödupusi Rex eftir Igor
Stravinsky. Missið ekki af þessari frábæru söngskemmtun.
Miðasala við innganginn. Miðaverð 1500 kr.
Þriðjudag 2. mars kl.20 í Langholtskirkju
Miðvikudag 3. mars kl.20 í Langholtskirkju
Fimmtudag 4. mars kl.20 í Hafnarborg
Laugardag 6. mars kl.16 í Langholtskirkju
ásamt Elínu Ósk Óskarsdóttur sópran
KarlakórinnFóstbræður
AÐ þessu sinni réðu ljósir kjólar ríkjum á rauða dregl-
inum á Óskarsverðlaunahátíðinni. Hinn hefðbundni
svarti litur sem stjörnurnar klæddust á hátíðum eftir
hryðjuverkaárásirnar, til að vera ekki óviðeigandi á þess-
um síðustu og verstu tímum, hefur nú vikið fyrir hlut-
lausum litum. Tískutímarit á borð við Vogue hafa einmitt
spáð fölbleikum og fleiri hlutlausum litum velgengni í vor.
Charlize Theron og Naomi Watts voru báðar í ljósum síð-
kjólum skreyttum glitsteinum. Theron var í kjól frá Gucci en
Naomi frá Versace.
Julia Roberts var sérstaklega glæsileg í hátískukjól
(„haute couture“) frá Giorgio Armani, sem var gerður sér-
staklega fyrir hana. Nicole Kidman tók sig vel út að vanda.
Hún var eins og Roberts í hátískukjól nema hennar var frá
Chanel og við kjólinn bar hún græna demanta frá Bulgari.
Renée Zellweger var í hvítum kjól frá Carolinu Herrera
en kjólinn var í anda gamla skólans í Hollywood. Angelina
Jolie var líka í hvítu, kjóllinn hennar var frá hönnuðinum
Marc Bouwer og við hann var hún með milljónavirði af
demöntum frá H. Stern.
Alltaf skera sig einhverjir úr og má hér nefna Scarlett Johansen, Umu Thurman
og Samönthu Morton. Johansen kærði sig kollótta um þessa ljósu tísku enda er
hún ekki mikið fyrir að fela sig. Hún var í sterkgrænum kjól frá Albertu Ferretti
með eldrauðar varir við. Thurman og Morton voru í ljósa stílnum en kjólarnir
þeirra voru öðruvísi að því leyti að þeir voru efnismeiri og meira áberandi.
Morton var í hátískukjól frá Givenchy, sem er úr fyrstu hátískusýningu tísku-
hússins frá árinu 1951. Thurman var hins vegar í kjól frá Christian Lacroix,
með bláan borða um mittið.
Scarlett Johansson í Alberta Ferretti.
Nicole Kidman í Chanel.
Angelina Jolie
í Marc Bouwer.
Uma Thurman í
Christian Lacroix.
Ljóst yfirbragð
Charlize
Theron í
Gucci.
Renée Zellweger í
Carolina Herrera.
Samantha Morton
í Givenchy.
AP
Julia
Roberts í
Giorgio
Armani.
Naomi Watts
í Versace.
ingarun@mbl.is
GAMANMYNDIN Glötuð þýðing
(Lost in Translation) sópaði að sér
verðlaunum á Independent Spirit
Awards-kvikmyndahátíðinni í Los
Angeles í Bandaríkjunum en þar
eru verðlaunaðar myndir í flokki
þeirra sem ekki
eru fjármagnaðar
í hinu hefðbundna
kerfi stóru kvik-
myndaveranna í
Hollywood.
Þrátt fyrir að
margur kunni að
álíta Spirit-
hátíðina vettvang
kvikmynda sem
lítið fer fyrir
rændu nokkrar af
tekjuhæstu myndum síðasta árs
senunni í Los Angeles. Þá var fullt
af þekktum andlitum úr heimi kvik-
myndanna, s.s. Sir Ian McKellen,
Naomi Watts, Jennifer Aniston og
Sean Penn meðal gesta.
Sofia Coppola hlaut þrenn verð-
laun fyrir mynd sína Glötuð þýðing,
m.a. sem besti leikstjóri og besta
handrit.
Bill Murray, sem leikur aðalkarl-
hlutverkið í sömu mynd, hlaut verð-
laun og Charlize Theron fyrir hlut-
verk sitt sem fjöldamorðinginn
Aileen Wuornos í myndinni
Ófreskja (Monster).
Hátíð litlu myndanna
Sofia Coppola
Coppola
sigursæl