Vísir - 02.05.1981, Page 23
23
Laugardagur 2. mal 1981.
VÍSIR
maðurinn telpunni í fang hans.
Daniel missti riffilinn þegar
hann greip telpuna en þegar
hann hafði rétt konu sinni hana
og þrifið upp riffilinn voru ræn-
ingjarnir á bak og burt.
Daniel þaut út úr húsinu og sá
hvita Mercedes bifreið bruna i
átttilþorpsins. Þegar bifreiðina
bar i ljósin á þorpstorginu
studdi Daniel sig við girðinguna
og hleypti tveimur skotum af á
eftir henni. Ekki virtust skotin
hafa nein merkjanleg áhrif á för
árásarmannanna.
A meðan höfðu konurnar i
f jölskyldunni tekið saman hönd-
um um að hjúkra Babette og
ganga þannig til verks að engin
hætta væri á smiti eða þvi aö
hún yrði barnshafandi af völd-
um nauögarans.
Eugene hafði hringt til lög-
regluyfirvalda i Avesnes-sur-
Helpe og eftir tuttugu minútur
komu bæði lögreglubill og
sjúkrabill. Alfreð var kominn
aftur til meðvitundar, og virtist
ekki hafaorðið meint af. Aföllin
sem f jölskyldan hafði orðið fyrir
voru þvi nauðgun Babette og
peningatapið. Eugene sagði
fólkinu að það skyldi gleðjast
yfir því að allir skyldu hafa
haidið lífi, peningana gætu þau
alltaf bætt sér upp aftur og
nauögunar Babette yrði hefnt
grimmilega.
Lögregl uforinginn sem
stjórnaði rannsókninni spurði
nú fólkið i þaula um atburöina
og að lcácum hvort nokkur heföi
borið kennsl á einhvern ræn-
ingjanna. Þegar þau svöruðu
þvi neitandi létti honum þvi
hann óttaðist að sigaunarnir
kynnu að grípa til eigin ráða.
Hann sagði þeim jafnframt að
maðurinn sem Daniel hefði
skotiö hefði látist á leiöinni i
sjúkrahúsið og að i fórum hans
heföi ekkert það verið sem hefði
getað gefið neinar upplýsingar
hver hann væri. Ljósmynd af
honum yrði dreift til allra lög-
reglustöðva f Frakklandi og það
myndi fljótlega verða haft upp á
hinum árásarmönnunum.
Hefndin
Það kom aldrei til þess að
myndinni yrði dreift. Að morgni
næsta dags var verslunarmaður
á leið til vinnu sinnar i stór-
verslun í Laon, þegar hann tók
eftir því að á bilastæðinu fyrir
framan verslunina stóð hvitur
Mercedes Benz og i honum sat
maöur. Hann ætlaði að ganga úr
skugga um hverra erinda
maðurinn væri þar og gekk upp
að bilnum. Hann leit inn i bilinn
og sá þá að maðurinn hallaðist
fram á stýrið og var allur blóöi
drifinn.
Verslunarmaðurinn hringdi
strax til lögreglunnar, og þegar
hún kom á vettvang kom i ljós
að grunur verslunarmannsins
haföi verið réttur. Maðurinn
haföi verið myrtur. Hann hafði
verið skotinn með rif fli af stuttu
færi einu sinni i kviðinn og siðan
tvisvar i höfuðið. 1 bilnum voru
skilrfki mannsins. Hann hét
JoseGranja og var sigauni. Þaö
kom i Ijós að hann bjo i hjólhýsi
ásamtfélaga sinum, smáglæpa-
manni að nafni Raymond
Bisset. Lögreglan hélt nú til
hjólhýsisins til þess að yfir-
heyra Bisset, en þegar þangað
kom brá þeim heldur en ekki i
brún.
Fyrir utan hjólhýsið lá Bisset
dauður, við hlið hans lá riffill en
sjálfur leithann út eins og hann
hefði orðiö fyrir stórskotaliðs-
árás. Hann haffá verið skotinn i
tætlur.
Við leit i hjólhýsinu fann lög-
reglan peningakassa Spengler-
fjölskyldunnar og hafði ekkert
verið hreyft við innihaldinu.
Lögregluforinginn hélt nú með
peningana til Grand Béart. Þar
tók Eugene ættarhöfðinginn á
móti honum. Honum var sagt
frá því sem gerst hafði og að
lögreglan teldi vist að Granja og
Bisset hefðu verið árásarmenn-
imir ásamt þriðja manninum
sem lögreglan vissi nú að var
Edouard Haerter, smáglæpa-
Þaö var litiö eftir af Raymond Bisset þegar sigaunarnir voru búnir
aö gera upp sakirnar viö hann.
maður.Eugene þakkaði guði að
þorpararnir heföu hlotið makleg
málgjöld, en lögregluforinginn
bentihonum á að lögreglan vissi
aö Granjafjölskyldan og fleiri
sigaunafjölskyldur hefðu mætt i
brúðkaupsveislu hjá Spengler-
fjölskyldunni og að Jose Granja
hefði verið þar meö. Það myndi
aldrei hafa hvarflað að nokkr-
um manni að Spenglerf jölskyld-
an væri auðug en þaö vissu aftur
á móti hinar sigaunafjölskyld-
urnar. Þvi teldi hann vist að
Josehefðifengið vinisina Bisset
og Haerter i lið meö sér i ráns-
ferðina. Jose hefði haldið Isa-
bellu en Bisset heföi verið sá
sem nauðgaði Babette.
Lögregluforinginn bætti siðan
við að ef til vill væri hann ekki
að segja Eugene neinar fréttir
það heföi hvarflað að sér að ef
til villhefði einhver borið kennsl
á Jose Granja og sigaunarnir
siðan tekiö lögin i sinar hendur.
Eugene sagðist vel geta skilið
að lögreglan hefði sinar grun-
semdir og gæti jafnvel tekið
undir þaö að ef einhver hefði
borið kennsl á Granja þá hefði
þetta getað gerst. En það gæti
hann vottað og allir i fjölskyld-
unni að út fyrir búðirnar hefði
enginn farið siðan þessir
hörmulegu atburðir hefðu átt
sér stað.
Auk þess vissi lögregluforing-
inn jafn vel og hann aö blóð-
hefnd væri aöeins hluti af gömlu
þjóðsögunni um sigaunana.
Daniel Spengler fékk vægan
skilorðsbundinn dóm fyrir
drápið á Haerter og það hvarfl-
aði ekki aö neinum að reyna að
ákæra einhvern af Spenglerfjöl-
skyldunni fyrir hin drápin tvö.
Og aldrei var minnst einu orði
á blóðhefnd.
Daniel Spengler tókst aö fella einn árásarmannanna, en varö aö
biöa átekta um hriö áöur en tókst aö fella hina.
*
Utvegum saunaklefa
Stuttur afgreiðslutimi.
Ýmsar stœrðir og möguleikar.
biftstál s.f.
HAMARSHÖIOA I . SIMI J1S00
Biðjið um
mgndabœkling
Reiknistofa bankanna
óskar að ráða starfsmenn:
1. Kerfisfræðing/forritara
2. Kerfisforritara
Æskilegt er, að umsækjendur hafi há-
skólamenntun á tölvu-, viðskipta- eða
stærðfræðisviði eða hafi viðtæka starfs-
reynslu.
Umsóknarfrestur er til 15. mai 1981.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu Reiknistofu bankanna á
Digranesvegi 5, Kópavogi.
ENNTASKÓUI
ISLANDS PójlhólF 10340-130 Reykjovik 1
■ Handmenntaskóli (slands býður uppá kennslu í
I teiknun og málun í bréfaskólaformi. Þú færð
| send verkefni frá okkur og lausnir þínar verða I
leiðréttar og sendar þér aftur. í þremur önnum I
I færð þú send um 50 verkefni til úrlausnar.
| Innritun f skólann fer fram fyrstu viku hvers
mánaðar utan júlíog ágúst. —Þeir sem enn hafa '
I ekki beðið um kynningarrit skólans, geta fyllt út I
| nafn og heimilisfang hér að neðan og sent j
l skólanum eða hringt í síma 28033 milli kl. 14 og
Hér er tækifærid sem þú hefur beðið eftir til |
| þess að læra teiknun og málun á auðveldan og
. skemmtilegan hátt. I
Ég óska eftir að fá sent kynningarrit HMI
I mér að kostnaðarlausu
| Nafn.....................................
I Heimilisfang................................. i