Vísir - 07.05.1981, Blaðsíða 13

Vísir - 07.05.1981, Blaðsíða 13
13 Fimmtud'agur 7. mai 1981 KóDavogur: Bæjarráði varö ömött Bæjarráð Kópavogs gerði sér ferð á þriðjudaginn um iðnaðar- hverfin austast i bænum, þar sem heitir Smiðjuvegur og Skemmu- vegur, og komst að eftirfarandi niðurstöðu, sem bókuð var strax á eftir: „Bæjarráði ofbýður umgengnin i hverfinu og gerir þá kröfu til húseigenda að umgengni verði komið i lag. Bæjarráð felur heil- brigðisfulltrúa og byggingafull- trúa að fylgja þvi fast eftir að svo verði.” A sama fundi bæjarráðs var hins vegar ákveðið að bjóða út malbikun á C-legg Smiðjuvegar og M- og K- leggjum Skemmuveg- ar, og með malbikun þar verða albr helstu leggimir i hverfinu, auk gatnanna sjálfra, með ný teppi. HERB Sjömaður drukknar Ungur sjómaður drukknaði er hann tók út af bátnum Emmu GK * 46 siödegis á þriöjudag. Bátsverjar á Emmu voru að leggja net út af Selvogi um klukk- an 17 á þriöjudag. Steig þá maö- urinn i lykkju og fór út með net- inu. Er hann náðist um borð aftur var hann látinn. Árni Magnússon AR 8 fór til móts við Emmu og var læknir um borð. Gerðar voru lifgunartil- raunir, en þær báru ekki árangur. Emma GK er tólf tonna bátur. —ATA Herra Sigurbjörn Einarsson biskup Biskupskjör ier fram í sumar: Nú hefur verið lögð fram kjör- skrá fyrir biskupskjörið, sem væntanlega fer fram i júlí. Allir prestar landsins eru i kjöri sem kunnugt er, þó aðal- lega hafi þrir menn verið nefnd- ir i þvi sambandi, en þeir eru séra Ólafur Skúlason, séra Pét- ur Sigurgeirsson, vigslubiskup og séra Arngrimur Jónsson. Liklegt þykir að tvennar kosn- ingar muni fara fram, þar sem ósennilegt er að nokkur einn fái sr. Pétur Sigurgeirsson sr. Arngrlmur Jónsson sr. ólafur Skúlason LEIKMENN RAÐA NÚ FIMMTA HLUTA ATKVÆDA hreinan meirihluta i fyrstu at- rennu. Samkvæmt nýjum lögum um biskupskjör, sem samþykkt vorufyrstá kirkjuþingi og siðan á Alþingi hafa nú mun fleiri kosningarétt en áður. Auk sókn- arpresta, fá allir guðfræðingar sem eru i fullu starfi hjá kirkj- unni, að kjósa og ennfremur hefur 1 leikmaður úr hverju prófastsdæmi ásamt þeim sem sitja á kirkjuþingi og i kirkju- ráði, kosningarétt. Munu leik- menn nú ráða um 20% atkvæða. Gunnlaugur P. Kristinsson frá Akureyri, er kjörmaður fyrir Eyjafjarðarprófastsdæmi. Hann sagði i samtali við Visi að kosningamálin væru ekki komin á það stig, að neinn þrýstingur hefði komið fram ennþá um hvern skyldi kjósa. Þó taldi hann flesta á sinu svæði sam- mála um hvern velja ætti. Gunnlaugur Jónsson frá isa- firði tók i sama streng, en taldi liklegt að umræður hlytu að skapast meðal þeirra sem kosn- ingarétt hafa. ,,En fyrst og fremst verður það min ákvörð- un sem kjörmanns, hvern ég kýs”, sagði hann. Aðrir þeir kjörmenn, sem rætt var við, voru sammála þvi að persónplegt mat hvers og eins yrði það sem réði, en ekki þrýst- ingur frá söfnuðunum i pró- fastsdæminu. jb Framkvæmdlr öryrkjabandaiaglð 20 ára: hafnar við nýja tengiálmu öryrkjabandalag Islands varð 20 ára hinn 5. mai siðast liðinn. Sex öryrkjafélög stóðu að stofnun bandalagsins en siðan hafa fjögur félög bæst i hópinn. 1 bandalaginu eru: Blindrafélag Islands, Blindravinafélag íslands, S.Í.B.S., Sjálfsbjörg, Styrktar- félag lamaðra og fatlaðra og Styrktarfélag vangefinna, Geð- verndarfélagið, Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra, heyrnarhjálp og Giktarfélagið. öryrkjabandalagið hefur komið fram fyrir hönd öryrkja gagnvart opinberum aðilum, það rekur vinnumiðlun og upplýsingaskrif- stofu fyrir öryrkja ásamt ýmsum öðrum sameiginlegum málum sem félagið lætur sig varða. öryrkjabandalagið hóf stórtækar byggingaframkvæmdir árið 1966 og á hússjóður bandalagsins 209 ibúðir i' þremur háhýsum við Há- tUn i Reykjavik og 41 ibUð i Fann- borg 1 i Kópavogi. Allar ibúðirnar eru leigðar öryrkjum og öldruð- um . ö ryrkjavinnustof a hefur ver- ið starfrækt undanfarin ár þar sem ýmis umferðarbúnaður er framleiddur. NU eru hafnar framkvæmdir við tengiálmu i Hátúni, þar sem 8300 fermetra húsnæði mun risa. —AS Teg: 29292 Litur: blátt leöur Stærðir: 36—11 Verð kr. 290,- 'eg: 503 .itir: grátt og hvitt leður tærðir: 36—41. erð kr.: 225,- Teg: 515 Litir: hvltt og blátt leður Stærðir: 36—41 Verð kr.: 225.- Teg: 771 Litir: hvitt og drapp leður Stæi-ðir: 36—41 Verð kr.: 150.- Teg: 790 Litir: hvltt og blátt leður Stærðir: 36—41 Verðkr.: 299,- Teg: 4161 Litir: ljósblátt, blátt og svart rúskinn Stærðir: 36—11 Verð kr.: 195.50 Teg: 15503 Litur: blátt leöur með gráum röndum Stærðir: 36—41 Verðkr.: 393,- Teg: 26026 Litur: millibrúnt leður Stærðir: 36—41 Verð kr.: 444.90 POSTSENDUM Laugavegi 96 — Viö hliöina á Stjörnubíói — Sími 23795 Kvenskór sumarskór Kvenskór

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.