Vísir - 07.05.1981, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 7. mai 1981
23
VISIR
„Svona eiga afmæli að vera”, sagði Sveinn
Einarsson, þjóðleikhtisstjóri við afmælisbarnið.
Jónas ræðir við forseta tslands, Vigdisi
Finnbogadóttur, sent var meðal gesta.
Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, og Guðmundur
Danielsson rithöfundur takast i hendur.
Afmælisboð Jónasar
Mikið fjölmenni samfagnaði hinum þjóðkunna út-
varpsmanni/ Jónasi Jónassyni/ er hann fyllti fimmta
tuginn á sunnudaginn var. Afmælisbarnið lék á als oddi
og tók gestum sínum tveim höndum og þeir voru ekki
síður kátir, fluttu heillaóskir sínar með ávörpum í
bundnu málisem óbundnuog með söng og hljómlist.
Ekki dettur okkur í hug að fara að rif ja upp æviferil
Jónasar, en hann hefur ekki verið við eina f jölina felld-
ur, gert ótel jandi útvarpsþætti, skrifað leikrit fyrir út-
varp og svið, skemmtiþætti, samið bækur og lög, sungið
inn á plötur og þannig mætti lengi tel ja. Maðurinn er ef ni
í heila bók, en við höldum okkur við afmælisfagnaðinn.
Þar kom forseti Islands, VigdFs Finnbogadóttir, út-
varpsmenn ieikarar frá Iðnó og Þjóðleikhúsinu og fleiri
listamenn, skáld, málarar og rithöfundar ásamt öllum
hinum úr þeim stóra vina- og kunningjahópi Jónasar
Jónassonar. Eiginkona hans, Sigrún Sigurðardóttir, og
dætur reiddu fram gómsætar krásir sem gestir gæddu
sér á og drukku súkkulaði og kaffi undir Ijúfum heilla-
óskum í tali og tónum. Ljósmyndari Vísis, Emil Þór
Sigurðsson, mundaði vélina í Oddfellowhúsinu á sunnu-
daginn og hér eru nokkrar svipmyndir frá deginum.
Vildís og faðir hennar, Kristmann Guðmundsson rithöfundur koma i
samkvæmið.
Eggcrt G. Þorsteinsson, Hilmar Helgason, Pálmi Gunnarsson og
Haukur Morthens ræðast við.
Rerglind Björk Jónasdóttir. Sigrún Sigurðardóttir og Sigurlaug Mar-
grét Jónasdóttir taka á móti Jóni Júliussyni i viðskiptaráðuneytinu.
Sigurlaug Margrét, móöir Jónasar, er komin á niræðisaldur og var hin
kátasta i spjalli við Magnús Torfason hæstaréttardómara.
Arni Tryggvason, leikari,
ávarpar Jónas.
Gestir raða krásum á diska.
Texti: S æ -
mundur Guð-