Vísir - 07.05.1981, Blaðsíða 17

Vísir - 07.05.1981, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 7. mai 1981 17 VÍSIR Fimmtudagur 7. mai 1981 VÍSIR Fylgst meO heimsókn Brúðubílsins á gæsluvöll Heilmikið brambolt og tilfæringar þurfti til að billinn kæmist inn á völlinn. ,Komdu sæl Didda’ fiðrildin___ fyrir utan gluggann”. Aumingja Sigga hrekkjusvfn, komin með gulrót á hausinn, gætu þeir verið aö hugsa þessir. Þetta var ofsa skemmtilegt. ,,Ég hef oft og mörgum sinnum horft á brúðubilinn. Mér finnst Pétur páfagaukur langskemmtilegastur. Veistu hvað hann gerir þegar hann fer yfir götu, þá litur hann fyrst til hægri og vinstri og svo upp I loftiö til að passa sig á flugvélunum” sagði þessi snaggaralegi strákur, Garðar Ingvar. „Fljúga hvitu.... Texti: Jóhanna Birgisdóttir „Þarna koma þau, sjáðu þarna” „Ég vona að Pétur páfagaukur sé með, mér finnst hann langskemmtilegastur ’ ’. „Nei, hann er ábyggi- lega ennþá á Spáni greyið”: Eftirvænting og gieðin leyndi sér ekki i tali barnanna á gæslu- vellinum við Rauðalæk i gær- morgun, þvi von var á Brúðubiln- um i heimsókn. Nú er að hefjast fimmta starfsárið hjá bilnum og þær stöllur Sigriður Hannes- dóttir og Helga Steffensen, sem hannar brúðurnar, heimsækja alla leikvelli borgarinnar viku- lega, með stutta og skemmtilega dagskrá við hæfi barnanna. Að þessu sinni var flutt 20 min- útna samfellt leikrit um brúðu- strákinn Grim, sem býr i litlu þorpi uppi i sveit. Sigriður sagði þetta vera fyrstu tilraunina með samfellda dagskrá fyrir krakk- ana og hefði hún gefist vel. „Is- lenskir krakkar eru svo góðir áheyrendur”, skaut Helga inn i. „Komið þið sæl, krakkar”, sagði Sigriður eða Didda eins og krakkarnir þekkja hana best. „Hvað ætlið þið ekki að heilsa? Má ég heyra”. „Komdu sæl, komdu sæl, komdu sæl”, kvað þá við úr öllum áttum. „Eigum við ekki að byrja á þvi að taka lagið. Nú skuluð þið syngja svo hátt að heyrist alla leið á gæsluvöllinn niður á Gullteig”, sagði hún. Síðan söng hver sem betur gat „Afi minn og amma min” ásamt fleiru i þeim dúr og ábyggilega hafa krakkarnir á Gullteignum heyrt óminn. „Nei Pétur er ekki með núna. Hann er sennilega sestur að á Spáni, þar er svo gott að vera þegar maður er svona gamall og hrumur eins og hann”, svaraði Didda spurningum barnanna. „En hér kemur hann Grimur”. Grimur var ósköp sætur brúðu- strákur með gleraugu, en var svo litill að hann þurfti að prila upp i stiga til að sjá krakkana. Svo kynnti hann þau fyrir vinunum sinum. baðvoru t.d. sólin, tunglð, blómin á túninu og svo söngvar- inn, sem spilaði á gitar og fékk krakkana til að syngja „Ef væri ég söngvari”. En svo kom hún Sigga hrekkju- svin og hún var svo óþekk að það fór að vaxa gulrót upp úr höfðinu á henni. Það fannst Siggu auðvit- að leiðinlegt, en þegar krakkarnir Stjórnendurnir Sigrlður Hannesdóttir og Helga Steffensen, ásamt skörulegum bflstjóranum Rósu Valtýsdóttur. lofuðu að vera vinir hennar, ákvað hún að hætta nú bara öllum nrekkjalátum. „Já, það er eins gott fyrir þig annars kem ég og lúskra á þér”, kallaði ein litil' hnáta fram i. Já það vantaði ekki viðbrögðin hjá þeim litlu, enda liflega að þessu staðið og auðséð og heyrt að hér voru á ferðinni konur, sem vissu hvernig átti að ná til þeirra. — JB „Sjáið þið skýið krakkar? Nú er rigning og þá vakna blómin til að drekka. Vlyndir: omil Þór Sigurðsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.