Vísir - 07.05.1981, Side 32

Vísir - 07.05.1981, Side 32
síminner 86611 Veðurspá ■ dagsíns S Um 600 km suður af Horna'- e firði er 998 mb lægð, sem þok- I astaustsuðaustur og grynnist, ■ en 1030 mb hæð, yfir Græn- ■ landi. Enn verður kalt i veðri. | Suðurland og Faxaflói; Norð-' ■ austan kaldi eða stinnings- & kaldi viða léttskyjað. Breiðafjörður; norðaustan “ stinningskaldi og siðar kaldi, | skýjað, en úrkomulaust. Vestfirðir, Strandir og | Norðurland vestra: norðaust- * an kaldi, él. Norðurland eystra og Austur- " land að Glettingí: norðaustan 1 kaldi, eða stinningskaldi, snjókoma og siðar él. Austfirðir: norðan eða norð- _ austan kaldi, él, einkum norð- | an til. Suðausturland: norðan eða | norðaustan káldi, viða létt- ■ skýjað. veörið hér og har Klukkan sex: Akureyri snjóél 4-1, Iielsinki þokumóða 4, Kaupmannahöfn léttskýjað 8, ósió skýjað 5, Reykjavik léttskýjað -=-1, Stokkhóimur þokumóða 7, Klukkan átján: Aþena hálfskýjað 15, Beriin léttskýjað 14, Chicago létt- skýjað9, Frankfurt léttskýjað 17, Feneyjarrigning 12, Nuuk alskýjað 1, London rigning 11, Las Palmas alskýjað 19, Luxemburg skýjað 14, Mallorka léttskýjað 19, New York alskýjað 19, Parfs létt- skýjað 17, Róm heiðskirt 17, Malaga alskýjað 20, Vfn létt- skýjað 12, Winnipeg léttskýj- að 14. Lokl segir Fyrst var það verðstöðvun. Sfðan var sett hert veröstöðv- un um áramótin. Ætli þessi sfðasta sé þá ekki forhert verðstöðvun? VERK SEL SIGI t dag eða á morgun mun reiknaö með þvf aö Björgun hf. selji Eyjabátinn Sigurbáruna, sem fyrirtækið náði af strandstað eystra á dögunum. Björgun hf. aflaði tilboða i viðgerö og bauð siðan skipið til sölu. Að þvf er Vis- ir kemst næst, bárust aöeins tvö tilboð f bátinn. óstaðfest er, að 10 SOLUHAGNAÐUR 6 MILLJðHIR? milljóna króna tilboö sé nú á samningaborðinu. Það eru einnig óstaðfestar fregnir að tilboð i viögerö nemi 2.3 milljónum króna og að Björg- un hf. hafi keypt skipið á 750 þús- und krónur af Tryggingamiðstöö- inni hf. Séu þessar tölur eitthvað nærri lagi og með hliðsjón af björgunar- kostnaði, virðist söluhagnaður geta orðið nálægt 6 milljónum króna. Söluhagnaðurinn skiptist siðan milli Björgunar hf. og Tryggingamiðstöðvarinnar hf., eftir samningi þar um. Gunnar Felixson fulltrúi hjá Tryggingamiðstöðinni hf. sagði, að samið hefði verið um grunn-söluverö til Björgunar hf. og að tryggingafélagið fengi siðan hluta af söluverði bátsins, ef björgun tækist. Kristinn Guðbrandsson, for- stjóri Björgunar hf., sagði þær tölur sem hér hafa verið nefndar, ekki réttar, en vildi engar upp- lýsingar gefa að svo stöddu. HERB SAMDI ÞRÖSTUR t MORGUN? Myndin er frá upphafi samningafundar rfkisins og rikisfóstra, sem hófst klukkan 9 f morgun, Þröstur ólafsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra að heilsa fóstrunum. Miklar lfkur voru taldar á samkomulagi. t Garðabæ situr hins vegar allt viðsama. (Vfsismynd: GVA.) verölagsráð og verðlagsstjóri afgreiddu 37 hækkunarheiðnir í gær SETUR RÍKISSTJðRNIN HÆKKANIRNAR I SALT? - MIKIL VÍSITÖLUSPENNA MILLI RÍKISSTJÖRNARINNAR UG ASÍ t gær afgreiddi Verðlagsráð allar fyrirliggjandi beiðnir um hækkanir á vörum og þjónustu, sem fyrir lágu, I trássi við vilja rikisstjórnarinnar, sem ætlaðist til þess að málin yrðu geymd a.m.k . fram yfir helgi. Hefði hún þá losnað undan þvi að taka afstöðu til þeirra fyrir útreikning vfsitölunnar nú. Þessi mál lágu þvi þvert á móti öll á borðum við- skiptaráöherra og ríkisstjórnar- innar á fundi hennar I morgun. Það voru 12 mál afgreidd af ráðinu sjálfu, þar af eitt með hækkun undir 8% en öll hin með meiri hækkunum og allt upp i 20%. M.a. má nefna sement og saltfisk með 18%. 25 mál voru falin verðlagsstjóra til afgreiðslu i gær, allt svonefnd iðnaöarmál skv. 5-15% reglu. Fyrir fundinum lágu ekki upp- lýsingar um þau mörk, sem gilda eiga um meðaltalshækkanir, en i máli ráöherra og þ.á m. forsætis- ráðherra á aðalfundi Vinnuveit- endasambandsins hefur komið fram, að mörkin séu likleg um 8%. Viðskiptaráðherra á að taka afstöðu til afgreiðslu Verðlags- ráðs og verðlagsstjóra á hækkun- um undir mörkunum, en rikis- stjórnin öll til hinna meiri hækk- ana. Áburðarverð hefur ekki komið til afgreiðslu, en það mun liklega verða til meðferðar i Gjaldskrár- nefnd i dag. Hækkun bilatrygg- ingaiðgjalda er enn til umsagnar hjá Tryggingaeftirlitinu. Nú er það hin sttfrpólitiska spurning, hvort rikisstjórnin af- greiðir afgreiðslur Verðlagsráðs fyrir helgi eða ekki. Það er ekki sist ASÍ-men, sem biða spenntir. Deílan um ný- lisladelldlna: Mállð er I blðstððu „1 gær var haldinn allsherjar- fundur kennara og nemenda, þar sem ég mætti og þar varð sam- komulag um bráðabirgðalausn”, sagði Einar Hákonarson, skóla- stjóri Myndlista- og handiðaskól- ans, þegar hann var inntur eftir gangi máia varðandi nýlistadeild- ina. „Það má segja, að málið sé i biðstöðu. Sú ákvörðun min stend- ur, að deildinni skuli lokað innan tveggja ára, og að þeir 2 til 4 nem- endur, sem nú sækja um inn- göngu, gera það þá á sina á- byrgð”, sagði Einar. ,,Um framhaldið fer siðan eftir afstöðu ráðuneytisins og fram- kvæmd þeirra laga, sem um skól- ann gilda.” Enn vllla l getraunaseöll Eins og margir lesendur blaðs- ins hafa tekiö eftir, varð slæm prentvilla i getraunaseölinum i gær i spurningunni um útfærslu landhelginnar i 200 milur. Af þeim þremur möguleikum, sem gefnir voru upp á réttu svari, var enginn réttur. Við veröum þvi að birta seðilinn aftur I dag og jafnframt að biðja fólk aö nota ekki seöilinn frá þvi i gær né heldur seöilinn, sem birt- ist sl. mánudag. Við birtingu hans urðu einnig mistök eins og skýrt hefur verið frá. Sjá bls. 31. verðlagsstjóri mætir ekki á iðnrekendafundinn Getur ekkl skýrt máiini Hádegisfundur Félags Islenskra iönrekenda, sem átti að vera I dag, fellur niður þar sem ræðumaðurinn, Georg ólafsson verölagsstjóri, mætir ekki. Verðlagsstjóri sendi formanni Fll, Davið Sch. Thorsteinssyni, þau skilaboö i gærkvöld, aö hann gæti ekki mætt á þennan marg- auglýsta fund,þar sem stefnumót- un I verölagsmálum væri óljós. HERB

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.