Vísir - 02.07.1981, Blaðsíða 6

Vísir - 02.07.1981, Blaðsíða 6
6 VÍSIR Fimmtudagur 2. júli 1981 á bóiakaf Skoraöl „Hat-trick” tyrir Ketlvikinga sem unnu 4:1 ettir framlengdan leik Óheppnin eltir Benidikt Óheppnin eltir Benedikt Guð- mundsson, miðvörðinn sterka frá Kópavogi. Fyrir tveimur árum æfði Benedikt með Lokeren i Belgiu og sleit hann þá liðbönd á fæti. Benedikt ernú i Sviþjóð, þar sem hann æfði með 3. deildarliði þar. Hann varð fyrir þvi óhappi á æfingu á dögunum, að liðband siitnaði. —SOS • HANNES LEIFSSON. Hannes lll Sand- gerðls Hannes Leifsson, hand- knattleikskappi úr Fram, hefur ákveðið að yfirgefa her- búðir 1. deildarliðssins næsta vetur og gerast þjálfari og leikmaður hjá 3. deildarliði Reynis frá Sandgerði. Hannes er ekki með öllu ókunnugur 3. deildinni. Hann var með Tý i Vestmannaeyjum fyrir þrem árum og kom þeim þá m.a. upp i 2. deild... —klp— Dönsku strák- arnir töpuðu lyrir KR-ingum Danska unglingaliðiö Asnæs Boldklub lék i gærkvöldi fyrsta leik sinn i íslandsferð- inni og mætti þá 2. flokki KR. Danir máttu þola tap i þeim leik 2:1 og voru þeir allt annað en ánægöir meö þaö. Liðið mun dvelja hér á landi fram til 15. júli og leika þá nokkra leiki við jafnaldra sina á Suður- og Noröurlandi.. —klp— Július Ingólfsson lék aðalhlut- verkiö hjá Skagamönnum, þegar þeir slógu Valsmenn út úr bikar- keppninni á Akranesi — unnu 2:0. Július — nýi miðherjinn hjá Skagamönnum, sem er marka- gráðugur með afbrigðum, skoraði bæöi mörk þeirra og hefur hann skorað 4 mörk á siöustu tveimur leikjum Skagamanna. Július skoraöi fyrra markiðá li min., eftir aö Guðjón Þóröarson haföi tekiö aukaspyrnu og sent knöttinn fyrir mark Valsmanna, sem á óskiljanlegan hátt náöu ekki að spyrna knettinum frá marki. Knötturinn barst til Kristjáns Olgeirssonar og Július- ar Ingólfssonar, sem voru á auð- um sjó og þakkaði Július fyrir sig, meö þvi aö senda knöttinn örugg- lega i netið. Valsmenn sofnuðu aftur á verð- inum, þegar Július skoraði annað markið — 2:0. Skagamenn áttu þá langa sendingu fram völlinn, þar sem tveir Valsmenn gátu náö knettinum — þeir ætluöu greini- lega að láta Sigurð Haraldsson, markvörð koma út úí markinu. Siguröur hikaði og þá skaust Július fram og náöi knettinum og vippaöi honum laglega yfir Sig- urö. Það var sannkallaöur bikar- spenningur hjá leikmönnum liö- anna og einkenndist leikurinn af þvi. Skagamenn voru friskari — voru meira með knöttinn, án þess þó að skapa sér góð marktæki- færi. Július Ingo'lfsson er mjög frisk- ur og einnig Siguröur Lárusson, sem var besti maður vallarins. Þá er hinn 19 ára miövörður Skagamanna — Björn H. Björns- son i stöðugri framför, og geröi hann marga góða hluti. Sævar Jónsson var besti leik- maður Vals, og þá áttu þeir Þor- steinn Sigurösson og Njáll Eiös- son góða spretti. Mikla athygli vakti leikur Sigurðar Haraldsson- ar, markvaröar Valsmanna — hann sýndi mörg ævintýraleg út- hlaup og leikaraskap, sem hæfir ekki markvörðum. —HB/—SOS • EIRIKUR ÞORSTEINSSON. • Benedikt Guðmundsson. — Þetta var stórkostlegt! Ég er i sjöunda himni, enda ekki á hverjum degi, sem maður skorar „þrennu”, sagði nýliðinn hjá Keflvikingum, Garðar Magnús- son, eftir að hann var búinn að skora þrjú mörk fyrir Keflvik- inga, sem lögðu Vikinga að velli 4:1 i Keflavik —eftir framlengd- an leik, en staðan var jöfn 1:1 eftir venjulegan leiktíma. — Við fengum sannkallaöan óskabyr i upphafi leiks en eftir að Vikingar voru búnir að jafna, varð leikurinn mikill baráttuleik- ur, þvi að þá þurftum við að skora annað mark, til að tryggja okkur sigur. Okkur tókst það heldur bet- ur — þetta er stórkostlegt, sagði Magnús sem hefur aðeins leikið þrjá leiki með Keflvikingum. Magnús skoraði fyrsta mark Keflvikinga eftir aðeins 73 sek. og siðan náöi Ómar Torfason að jafna fyrir Vikinga á 40 min. og var staðan 1:1 eftir venjulegan leiktima. Keflvikingar mættu eins og grenjandi ljón i framlenginguna og gáfu þeir Vikningum ekkert eftir. Magnúsþrumaöi knettinum i netið hjá Vikingum á 100 min., eftir glæsilega fyrirgjöf frá Stein- ari Jóhannssyni. Aðeins tveimur min. siðar skallaði óli Þór Magnússon knöttinn i netið hjá Vikingum og i seinni hluta fram- lengingarinnar gulltryggði Magnús sigur Keflvikinga meö sannkölluöum þrumufleyg. Keflvikingar léku mjög vel i leiknum — allir leikmenn liösins böröust hetjulega og geröu þeir Magnús, Steinar Jóhannsson og Skúli Rósantsson varnarmönnum Vikings oft lifiö leitt. Diðrik ólafsson, markvöröur, var besti maður Vikings. —SOS • ÓLI ÞÓR MAGNUSSON... einn af hinum baráttuglöðu Keflvfk- ingum. (Visismynd Friðþjófur) Maonus skaul • GISLI TORFASON. JÚLÍUS HETJfl SKAGAMANNA - skoraðí bæði mörk delrra (2:0) gegn valsmönnum Bain á funfl Framara Gísll Kom - sá | og slnfaBl • Gisli Torfason kom, sá og sigraði, þegar Keflvikingar lögðu Vikinga að velli. Þessi fyrrum sterki landsliösmaður lék að nýju með Keflvikingum og sýndi Gisli, að hann hefur engu gleymt. Gisli stjórnaði vörn Keflvikinga eins og hers- - höfðingi og er greinilegt að hann I er fullkomlega búinn að jafna I sig eftir meðslin i hné, sem hafa _ hrjáð hann undanfarin ár. —SOS ® Rafn Rafnsson, miðvallarspil- ari úr Fram í knattspyrnu, sem hefur verið i Svíþjóð að undan- förnu, þar sem hann hefur æft með Gautaborgarliðinu Hacken, er kominn heim til að fá Framara til aö samþykkja félagaskipti sin úr Fram i Hacken, sem er nú i efsta sæti i suðurdeild 2. deildar- keppninnar i Sviþjóð. —SOS Wíkinaa Eiríkur melddlsl llla á hálsl Eirikur Þorsteinsson, fyrrum leikmaður með Vikingi, sem leikur með GrimsSs i Svi- þjóð, varðfyrir þvi óhappi að meiðast á hálsi i fyrsta leik sinum með GrimsSs á dögunum. Eirikur fékk olbogaskot frá markverði and- stæðinganna i hálsinn, þannig að bein og brjósk brotnuðu. Þess má geta að Grimsás hefur gengið illa að undanförnu — er i neðsta sæti i suðurdeild 2. deildarkeppninnar. —SOS Erlendur III liðs við KR Erlendur Daviðsson, hand- knattleiksmaðurinn snaggaralegi úr Fram, hefur gengið til liðs viö KR-inga. Erlendur var einn af lykil- mönnum Fram-liðsins s.l. keppnistimabil. KR-ingar eru nú byrjaðir aö æfa á fullum krafti undir stjórn Jöhanns Inga Gunnars- sonar. Þeir hafa fengið tvo nýja leikmenn að undanförnu — þá Erlend og Gunnar Gisla- son frá KA og þá hefur ólafur Lárusson, sem lék með Tý sl. vetur, gengið aftur til liðs við sina gömlu félaga. —SOS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.