Tíminn - 05.12.1969, Blaðsíða 10
10
10
framast gat, en hún fann, að hver
taug var þanin til hins jHrasta.
Þegar hún reis á fætur, ýtti Alan
stól sínum líka frá borðinu og
stóð upp. í sama bili tók hann
eftir því, að Rossland reis á fætur
hinum -megin í salnum. Stúlkan
fór fyrst út um dyrnar, þá Ross-
land fáeinum skrefum á eftir
henni og Alan þar á cftir með
Tucker á hælum sér. Honum
fannst þetta allt saman ofurlítið
kátbroslegt, og það vottaði fyrir
brosvipru við munnvik hans.
Þegar Mary Standish kom að
flosklæddum stiganum, sem lá
upp á háþiljurnar, nam hún allt
í 'cinu staðar og sneri sér hvat-
lega að Rossiand. Hún -hvessti aug
un andartak á hann, en sneri sér
síðan að Alan og sagði rólega og
blátt áfram.
— Við erum bráðum komin til
Skagway, herra Holt. Viljið þér
ekki vera svo góður að ganga
með mér hérna um þilfarið og
scgja mér eitthvað um staðinn?
Umboðsmaður Grahams hafði
stanzað við stigann og var nú að
reyna að kveikja sér í vindlingi.
Áður en Alan gæti svarað, hafði
stúlkan stungið hendinni undir
handlcgg hans. Hann sá, að roð-
inn, sem snöggvast hafði hlaupið
fram í kinnar hcr.nar, var nú að
dofna. Hún var róleg og faldd eld-
inn v-andlega undir ísbrynju. Al-
an sá, að Rossland starði á þau
með hálfopinn munninn. Þetta
vakti ævintýraþrána í Alan, og
hann brosti bjart og glaðlega, en
sagði ekki orð. Stúlkan hló lágt,
og þrýsti arm hans ofurlítið. Þau
gengu fram hjá Rossland, og Al-
an fann ofurlitinn titring fara um
sig, þcgar hann sá, hvernig stúlk-
an leit á hann.
Er þau komu upp á þilfarið,
hallaði hún höfðinu ofurlítið að
honum og hvíslaði: — Þér eruð
dásamlegur. Þakka yður kærlega
fyrir, herra Holt.
Honum fannst hin blíðlegu orð
hennar og mjúklegt handtakið um
arm sinn vera eins og köld vatns-
gusa, sem er skvett framan í
hann. Rossland gat ekki séð þau
lengur,' nema hann hefði veitt
þeim eftirför. Alan fannst hann
standa uppi eins og heimskingi,
en sú hugsun vakti honum enga
reiði. Honum fannst þetta allt sam
an svo kátbroslega undarlegt, og
Mary Standish heyrði, að hann hló
ofurlítið í barminn, um leið og
þau gengu út á þiljaimar.
Tak hennar varð ósjálfrátt fast-
ara um handlegg hans.
— Það er annað en gaman,
sagði hún. — Það er hryllilegt að
vera höfuðsetin af þvílíkum
manni.
Hann vissi, að hún sagði þetta
til þess að girða fyrir þá spurn-
ingu, sem hún bjóst við, að hann
mundi bera fram. Hann þóttist
viss um, að þetta væri allt sam-
an uppspuni til þess að breiða yf-
ir hið sanna samband hennar og
Rosslands, og hann gerði sér í hug
arlund, hvernig henni mundi
bregða við, ef hann dengdi því
á hana, að hann hefði séð þau
saman í gærkvöldi. Hann leit
rannsakandi í augu hennar, en
hún mætti augnaráði hans rólega
og óttalaust. Hún brosti jafnvel
til hans, og hann hugsaði með
sér, að þessi augu væru fallegustu
TÍMINN
lygaraaugu, sem hann hafði nokk-
urn tímann séð.
Hún virtist nú alveg vera bú-
in að gleyma atburðinum vi'ð* stiga
fótinn áðan. Augu hennar voru
mild og skær, þegar hún renndi
þeim fram eftir skipinu. Beint
fram undan lá sundið inn til
Skagway eins og iangur ljósrauð-
ur borði, en á báðar hliðar risu
há og tignarleg fjöll með skógi
vöxnum hlíðun, en snævi þakta
toppa. Stundum virtist manni skip
ið standa kyrrt, en fjöllin líða
áfram í lignarlegti ró, eins og cin
hver hulin vættur væri að hnika
þeim til. Alan ætlaði að segja eitt
hvað, en þegar hann leit í and-
lit stúlkunnar, hætti hann við það.
Munnur hennar var hálfopinn, og
hún starði út í bláinn, eins og ein-
hver óvænt og mikilfengleg mynd
birtist þar sjónum hennar, og
gerði hana agndofa.
Svo sagði hún lágt og hvíslandi
eins og hún væri að tala við sjálfa
sig, en vissi ekki af Alan nærri
sér: — Ég hef séð þennan stað
áður. En það er langt síðan.
Kannski fyrir hundrað árum, eða
þúsund árum. En ég hef áreiðan-
lega komið hér áður. Ég hef átt
heima undir þessum fjöllum og
gengið um þessa árbakka.
Hún hrökk ofurlítið við, eins
og hún myndi nú allt í einu eft-
ir Alan. Hún leit á hann, og hann
varð vandræðalegur á svipinn.
Undarlegur og fagur ljómi geisl-
aði úr augum hennar.
— Ég verð að fara í land hér,
sagði hún. — Ég veit ekki hvers
vegna, en ég kemst bráðum að
því. Fyrirgefið-----
Hún tók þéttar um arm hans
og 'sneri við. Hann 'horfði stöðugt
■‘i
framan í hana og sá attt í e*mi,
að augu hennar myrkvuðust.
Hann leit í sömu átt og hú-n og
sá Rossland standa nokkur skref
frá þeim.
Á næsta augnabliki horfði Mary
Standish aftur út yfir hafið, og
hönd hennar hvíldi nú aftur í oln-
bogabót Alans. — Hefur yður
aldrei langað til að drepa mann,
’herra Holt? spurði hún með ofur-
lítið fátkenndum hlátri.
— Jú, svaraði hann óvænt. —
Og einhvern tíma, ef tækifæri
býðst, ætla ég að drepa einn
mann — manninn, sem myrti föð-
ur minn.
Það fór hrollur um hana. — Var
faðir yðar — — myrtur?
— Já, sannarlega. Það var samt
ekki gert með rýting eða byssu,
ungfrú Standish. Peningar voru
vopnið, sem notað var. Það var
John Graham, sem átti það vopn
og beitti því, og ef nokkurt rétt-
læti er til í heiminum, hlýtur
tækifærið að koma, og þá drep
ég hann. Og nú skal ég, ef þér
viljið lofa mér J:að, krefjast skýr-
ingar Rosslands á framferði sínu.
— Nei, hrópaði hún og greip
fast um handlegg hans. Svo dró
hún höndina hægt að sér. — Þér
þurfið ekki að krefjast neinna
skýringa af honum. sagði hún.
— Ef þér gerðuð það, munduð
þét hata mig æ síðan. Segið mér
heldur eitthvað um Skagway, það
verður skemmtilegra umræðuefni.
VI. KAFLI.
Það var ekki fyrr en Nome var
aftur á leið frá landi út í hið
opna Kyrrahaf, og fjöllin voru tek
in að sökkva í sæ að Alan gerði
sér fulla grein fyrir því, sem gerzt
hafði þennan dag. í margar
klukkustundir hafði hann verið
sem í öðrum heimi. Hann hafði
farið með Mary Standish í land í
Skagway, og þau höfðu gengið þar
saman í tvær klukkustundir. Hún
hafði spurt hann og hlustað á svör
hans á þann hátt, sem enginn
hafði hlustað á hann eða spurt
hann fyrr. Haon hafði sýnt henni
SOSVCTIAGUR 5. desembcr 1969.
Skagway. Ha.nn hafði bent henn
á staðinn uppi í fjallshlíðinni, sem
gerði Skagway að borg á einum
degi, og að stórborg á einni viku
Hann sagði henni frá riinum gömlr
ævintýraríku dögurr>, bega; lífið
og dauðinn urðu samferðr ur
jörðina. Hann sagði hanni frá
Soapy Smith og útlagaflokki hans
og þau stóðu hlið við hlið við
gröf hans, þegar fyrstu kvöld
skuggarnir féllu á þau.
Og hún hafði líka spurt hanr
um líf hans sjálfs. Og.hann hafð
svarað henni. Hann undraðist það
nú, hve hann hafði trúað henni
fyrir miklu. Stúlkan, sem geng-
ið hafði við hlið hans, var ósjálf-
rátt orðinn trúnaðarvinur hans.
Honum hafði fundizt sem hjarta
hennar slægi örara, er hann lýsti
'heimkynnum sínum undir hlíðum
Endicott-fjallanna. hjörðunum
sinum og fólkinu sínu. Hann hafði
sagt henni, að þar væri nýr heim-
ur að skapast, og bjarminn í aug-
um hennar og hljómurinn i rödd-
inni hafði haft þau áhrif á hann,
að hann sagði henni meira og
meira og gleymdi því alveg, að
Rossland beið við landgöngu-
brúna til þess að hafa gát á því,
hvenær þau kæmu um borð aft-
ur. Hann hafði lýst fyrir henni
skýjaborgum sínum og framlíðar-
fyrirætlunnm, og hún hafði hjálp-
að honum til að byggja nýjar
skýjaiborgir. Hann sagði henni frá
þeirri breytingu, sem smátt og
smátt væri að komast á í Aiaska,
fjallvegunum, sem verið væri að
byggja ásomt gististöðum og bif-
reiðastöðvum, hinum vaxandi borg
um, sem risu upp á sléttunum,
þar sem áður stóðu aðeins tjöld
og torfkofar. En þegar hann
hafði lýst þessu öllu saman, lýst
þvá, hvernig hinir frumstæðu lifn-
aðarbættir vikju smátt og smátt
fyrir menningunni, sá hann dökk-
uni skugga bregða sems nöggvast
fyrir í augum hennar.
Og nú stóðu þau aftur á þilfar-
inu á Nome og horfðu á hvíta
fjalltoppana, sem smátt og srnátt
óskýrðust vegna fjarlægðar og
er föstudagur 5. desember
— Sabina
Tungl í hásuðri kl. 9.44
Árdcgisháflæði í Rvík kl. 2.58
HEILvSUGÆZJA
HITAVEITUBILANtR tilkynnlst
sims 15359
BILANASlMI Ratmagnsveltu Reyk|a
vikut i skrifstofutlma er 18222
Nætur og helgldagavarzla 18230
Skolphrelnsun allan sólarhrlnglnn
SvaraS • slma 81617 og 33744
SLÖKKVILIÐIÐ og slúkrabifrelSlr —
Siml 11100
SJÚKRABIFREIÐ > HafnarflrBI
slma 51336
SLYSAVARÐSTOFAN i Borgarspital
anum er opln allan sólarhrlnglnn
Aðelns móttaka slasaðra Slm'
81212.
NÆTURVARZLAN i Stórholtl er op
In fré mánudegi tll föstudagi
lcl. 21 6 lcvöldln tll kl. 9 é morgn
ana Laugardaga og helgtdaga tré
kl. 16 á dagtnn tp kl. 10 é morgn
ano
KVÖLD og helgldagavarzla leekna
hetst hvern virkan dag kl. 17 og
stendur tll kl. 8 aB morgnl, utn
helgar frá kl. 13 á laugardögum
I rveySartilfellum (ef ekki næst til
helmHislæknls) er teklB á mótl
vitjanabeiSnum á skrifstofu lækna
félaganna I sima 11510 frá kl.
8—17 alla virka daga, nema laug
ardaga.
LÆKNAVAKT I HAFNARFIRÐI og
GarSahreppl. Upplýslngar I lög-
regluvarSstofunnl, siml 50131 og
slökkvlstöSinni, sfml 51100.
KÓPAVOGSAPÓTEK oplS vlrka daga
frá kl. 9—19, laugard. frá kl. 9—14
helga daga frá kl. 13—13.
BLÓÐBANKINN tekur á mótl blóS
gjöfum daglega kl. 2—4.
Næbur- og helgidagavörzlu apó-
teka vikuna 29.11. — 5. 12 1969,
Borgar-Apótek og Reykjavikur-
Apótek.
Næturvörzlu í KeflaVik. 5. des.
annast Arnbjörn Ólafsson.
SIGLINGAR
Skipaútgerð ríkisins: Herjólfur
fór frá Vestmannaeyjum í gær til
Hornafjarðar og Ðjúpavogs.
Herðubreið fer frá Rvík kl. 20.00
í kvöld austur um land i hring-
ferð. Baldur fór frá Isafirði síð-
degir í gær á leið til Stykkishólms
Árvakur fór .frá Hornafirði síð-
degis i gær til Vestmannaeyja og
Rvíkur.
ELUGÁÆTLANIR
Flugfélag fslands h.f. Millilanda
i'lug: G'Ullfaxi fór til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 09:00 í
morgun. Vélin er væntanleg aft-
ur til Keflavíkur kl. 18:40 í kvöld.
Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir) til Húsavíknr,
Vestmannaeyja, ísafjarðar, Hopna-
fjarðar, Norðfjarðar og Egilsstaða
Á rnorgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 fcrðir) til Vcst-
mannaeyja, ísafjarðar, Patreks-
fjarðar, Egilsstaða og Sauðár-
króks.
Loftleiðir h.f.: Vilhjálmur
Stefánsson er væntanilegur frá NY
kl. 1000. Fer til L/uxemborgar
kl. 1100 Er væntanlegur til baka
frá Luxemborg kl. 0145. Fer til
NY kl. 0245.
FÉLAGSLÍP
ÍR-ingar. Skíðafólk.
Dvalið verður í skála félagsins við
Kolviðarhól um helgina. Lagt
verður af stað frá Umferðamið-
stöðinni M. 2 e. h. á laugardag.
Veitingar verða seldar í skálanum.
Frá Gu'ðspekifélaginu.
Stúkan Mörk sér um fund í kvöld
kl. 9, í húsi félagsins Ingólfstræti
'22. Sigvaldi Hjálmarsson flytur
erindi: Spámaður í Bláfjöllum.
Allir velkomnir.
Bazar í Liugási
Laugardaginn 6. þ. m. kl. 2, verð-
ur ýmiss handavinna barnanna í
Lingási seld á dagheimilinu að
Safamýri 5. Styrktarfélag vangef-
inna.
Austfirðingafélagið i Reykjavík
heldur spila og skemmtikvöld í
Miðbæ við Háaleitisbraut föstu-
daginn 5. des. kl. 8,30. Stiórnin.
Kvenfélag Óháða safnaðarins.
Bazar félagsins er n. k. sunnudag
7. des. Góðfúslega komið bazar-
munum i Kirkjubæ, laugardag kl.
4—7 og sunnudag kl. 10—12.
Kvenfélag Kópavogs
heldur Aðventuskemmtun fyrir
börn n. k. sunnudag, 7. des. kl.
3 e. h i félagsheimilinu efri sal
Miðar afhentir kl 4—6 laugardag
og við innganginn.
Borgfirðingafélagið
mynnir á spilakvöld 6. des. áð
Skipholti 70, M. 8,30. Taki'ð með
ykkur gesti.
ORÐSENDING
Fjórtán jólalög
nefnist sönglagahefti sem nýlega
er komið út hjá Ríkisútgáfu náms-
bóka. I því eru, eins og nafnið
ben-dir til, 14 jólalög, flest vel
þekkt, Lögin eru í tvíraddaðri út-
setning'U og fylgir texti hverju
lagi. Heftið er einkum ætlað ung-
um nemendum í blokkf'lautuleik
eða söng. Raddsetningin er miðuð
viið tónsvið sópran-blokkflautunn-
ar, þar sem hún er nær eingöngu
notuð við flautuikennslu.
Hannes Ftosason, tónlislarkenn-
ari hefur raddsett lögin og annazt
nótnaskrift. Litbrá hf. prentaði.
Frá Mæðrastyrksnefnd.
Munið jólasöfnun mæðrastyrks-
nefndnr að Njálsgötu 3. Skrif-
stófan er opin alla daga frá M.
10— kl. 6.
Gleðjið gamla, sjúka og börn.
J ólasöf nun mæðrastyrksmef ndar.
Njálsgötu 3.
Frímerkjamarkaður
Innlend og erlend frímerki (loka-
sala á árinu) næstkomandi laugar
dag 6. og 13. þ. m. kl. 2—4, á
skrifstofu Geö’verndarfélags Is-
lands, Veltusundi 3. Styrkið geð-
verndarmálin.
Lárétt: 1 Dökka 5 Svik 7 950 9
Ganga 11 Lofttegund 13 Iðngrein
14 Réttur til landsnytja 16 Tveir
eins 17 Aflaga 19 Tregar.
Krossgáta
Nr. 443
Lóðrétt: 1 Land 2 Hasar í
Glöð 4 Einstigi 6 Saumur í
Virðing 10 Detta 12 Forn
aldarland 15 Ávana lí
Skáld.
Ráðning á-gátu nr. 442.
Lárétt: 1 Slanga 5 Lea 7
Es. 9 Isma 11 Snú 13 Tau
14 Sælu 16 RR 17 Frei*
19 Baglar.
Lóðrétt: 1 Skessa 2 A1 3
Nei 4 Gast 6 Maurar 8
Snæ 10 Marra 12 Úlfa 15
Urg 18 El.