Tíminn - 05.12.1969, Page 13
FÖSTUDAGUR 5. desember 1969.
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
Æsispennandi landsleik íslands og Noregs í Messehallen í Osló í gærkvoldi lauk með jafntefli, 17:17,
eftir að ísland haði haft yfir í hálfleik 10:8
Bjarni Jónsson sést hér í faeri viS norska markið í leik gegn Norðmönnum
fyrr í haust.
Menzkir handknattJIeifesmenn
reyndust ekki neinir eftirbátar
NorSmamia í landsleiknum, sem
háður var í Messehallen í Osló
í gærkvöldi, en bonum lauk meS
jafntefli, 17:17, eftir æsispenn-
andi baráttu, að sögn Jóns Ásgeirs
sonar, fararstjóra liðsins. Tveggja
marka forskot, sem ísland hafði í
háffleik, 10:8, missti liðið niður í
síðari hálfleik, en leikurinn var
allan tímann mjög jafn, en þrí-
vegis náðu Norðmenn forustu. Og
þegar ein minúta var til lciksloka
stóðu leikar 17:16 Norðmönnum
í vil, og virtist, sem Norðmenn
hefðu sigurinn í hendi sér, þvi
að þeir Iéku með knöttinn. En þá
bjargaði Bjarni Jónsson málunum
við. Hann skauzt inn í sendingu
norsku leikmannanna og „stal“
boltanum fyrir framan nefið á
þeim, brunaði upp völlinn og
skoraði jöfnunannark ísiands, 17:
17.
& fsrael sigraði Ástralíu 1:0 í
undankeppni HM í knattspyrnu í
gærkvöldi. Leikurinn fór fram í
Tel Avív. Liðin mætast aftur þann
14. þ.m. í Sydney. Sigurvegarinn
úr þessari keppni kemst í loka
keppnina í Mexícó á næsta ári.
•fc Tékkóslóvakía vann sér rétt
til þátttöku í 16 liða keppninni í
HM með 4:2 sigri yfir Ungverja
landi í aukaleik um efsta sætið
í riðlinum.
Leikurinn fór fram í Marseille
í Frakklandi. Voru Tékkar betri
aðilinn Oig sigurinn sanngjarn.
„Það var mjög taugastrekkjandi
að vera íslendingur sfðustu mín
útuna“, sagði Jón Ásgeirsson, þeg
ar við ræddum við hinn eftir leik
inn. „Noromenn höfðu taekifœri
til að skora sigurmark — og þeir
önuðu ekki að neinu. Á síðustu
sekúndu leiksins reið skotið af
og hafnaði í marki íslenzka liðs
ins, en á meðan knötturinn stefndi
í markið, rann leiktíminn út og
var 18. mark Norðmanna þvf ó-
gilt, okkur íslendingunum til mik-
ils léttis. Úrslit leiksins urðu jafn
tefli, 17:17, og voru það nokkuð
sanngjörn úrslit að mínu áliti, því
að leikurinn var allan tímann mjög
jafn.“
Reyndu að taka Geir úr umferð.
„Ingólfur Óskarsson, fyrirliði,
opnaði leikinn, þegar hann á 3.
mínútu skoraði fyrsta markið, 1:0.
Og á 5. mínútu skorar Ingólfur
annað mark, 2:0. Þá fyrst tóku
Norðmenn við sér og Per Graver-
sen skoraði mark fyrir Noreg og
litlu síðar jöfnuðu þeir.
Geir Hallsteinsson var í gæzlu
fyrstu 10—15 mfnútur leiksins.
Setfcu Norðmenn mann til höfuðs
honum og skoraði Geir ekkert
mark á því tímabili, nema tvö
af línu. Norðmenn gáfust upp á
þessari leikaðferð, eftir rúmar 10
mínútur.
Tveir ísl. leikmenn reknir út af.
Það var ekki fyrr en á 14. mín-
útu, að Norðmönnum tókst að
komast yfir í fyrsta skipti í leikn
um, 5:4, en ísl. liðinu tókst fljót
lega að jafna aftur. Hélzt leikur
inn mjög jafn fram að hálfleik,
þrátt fyrir, að tveimur íslenzkum
leikmönnum hefði verið vísað út-
af með stuttu millibili, fyrst
Bjarna og síðan Einari Magnús-
syni, rétt á eftir. í eina og hálfa
mínútu léku því 4 ísl. útispilarar
á móti 6 norskum. En þeir létu
það ekki á sig fá. Og síðustu mín
úturnar fyrir hlé lék liðið prýðis
vel og tryggði sér tveggja marka
forskot, 10:8. Skoraði Sigurður 9.
markið af línu eftir sendingu Við
ars, en 10. markið skoraði Geir
með glæsilegu langskoti."
Línuspilið brást.
Og Jón Ásgeirsson heldur frá-
sögn sinni áfram: „Yfirleitt var
ég ánægður með leik íslenzka liðs
ins, nema hvað nota hefði mátt
línuna meira. f síðari hálfleik léku
Norðmenn rnjög framarlega —
stundum tvöfalda vörn — og ísl.
línumennirnir voru mjög hreyfan
legir, en fengu lítið af sendingum.
Síðari hálfleikurinn var mjög
jafn — og æsispennandi — og
þegar Bjarni „stal“ boltanum rétt
fyrir leikslok og skoraði, náði
spennan hámarki.
Þorsteinn varði vel
Það er erfitt að gera upp á
milli einstakra leikmanna liðsins.
Þorseinn Björnsson varði mjög
vel, sérstaklega í fyrri hálileik.
Jón Hjaltalín tók góðan sprett í
síðari hálfleik og skoraði þá tvö
mörk í röð. Yfirleitt var leikur
liðsins ógnandi og fátt um
„dauða punkta“ eins og gerðist oft
Lleikjunum í Reykjavík. Mörk-
in skoruðu: Geir 5 (2 víti, missti
auk þess 1), Jón Hja'ltalín 3, Ing
ólfur, Sigurður E., Einar og
Bjarni 2 hver og Ólafur 1.
Norska liðið betra en þegar það
lék í Reykjavík.
Norska liðið lék mun betur en
það gerði í Reykjavík fyrr í
haust. Leikflétturnar, sem liðið
reyndi með misjöfnum árangri í
Framhald á bls. 14
Heimilt ai greiða leikmönnum
Vetrarundur i
MÚMlNDAL
ÆVINTÝRI MÚMlNAlíANNA
TOVE 1ANSSON
jíSTf----------•<*---
I
BOKAUTGAFAN
ÖRN & ÖRLYGUR HF.
Alf—Reykjavík.
Íþróttasíðan sneri sér til Axels
Einarssonar, formanns HSÍ, út af
ummælum, sem höfð voru eftir
honum í Mbl. í gær þess efnis, að
það bryti í bága við áhugamanna-
reglur ÍSÍ að styrkja leikmenn
með fjárframlögum.
„Þetta er ekki rétt haft eftir
mér í Mbl, og stafar af misskiln-
ingi. í áhugamannareglum ÍSÍ eru
einmitt ákvæði um það, að heim-
ilt sé að greiða leikmönnum lands-
liðs, sem taka þátt í HM, Norður-
landamóti og Evrópumeistaramóti.
vinnutap, sem svarar til Dagsbrún-
arkaups á hverjum tíma, og er þá
miðað við 8 tíma vinnudag og 48
stunda vinnuviku.
Persónulega er ég mjög ánægð
ur með þá söfnun, sem nú er haf
in, en vil ekki, að áhugamanna-
lögin séu brotin, þó að ég st ekki
sáttur við þau að öllu leyti. Eg átti
um árabil sæti í nefnd þeirri, sem
endurskoðaði áhugamannareglurii
ar og lagði þá til að þær yfðu ean
rýmri, þ, e., að greiða mætti sann-
anlegt vinnutap, en því miður
fékk sú tiliaga ekki hljómgrunn."
í framhaldi af því, sem Axel
sagði, má geta þess, að samtals
verða ísl. leikmennirnir um 3 vik-
ur frá vinnu vegna HM-keppninn-
innar, þ. e. 7 daga vegna ferðar-
innar til Austurríkis og 14 daga
vegna ferðarinnar til Frakklands.
Mun því láta nærri, að heimilt sé
að greiða hvérjum leikmanni 10
—11 þúsund krónur, án þess, a®
áhugamannareglur ÍSÍ séu brotn-
ar.
Söfnunarnefnd stofnuð
Stofnuo nefur verið sérstök
nefnd á vegum íþróttafrétta-
manna vegna TM-söfnunarinn-
ar. í hcnni eiga ;æti Atli Stein
arsson, Mbl„ Alfreð Þorsteins
son, Tímanum. f gurdór Sigur
dórsson. .»jólvilj„ Jón Birgir
Pétursson, Vísi og Þorkell Jóns
son, gjaldkeri Timans
Tilgangur með söfnuninni er:
1. ‘’afn'1 ,'é til styrktar leik-
mönnum ísl. landsliðsins, sem
taka þátt í HM. ’>ó innan
ramma áhugamannareglna ÍSÍ.
2. Safnist meira fé, verður
það notað til þess að undirbúa
landsliðið, sem bezt. fvrir
keppnina.
3. Nefndin mun í samráði við
HSÍ sjá um greiðslur til leik-
manna.
Sérstakir listar munu liggja
frammi á afgreiðslum blaðanaa
eftir hádegi í da." sem einstakl
ingar og fyrirtæki geta notað í
sambandi við söfnunina.
Síðan HM-söfnunin hófst,
hafa okkur borizt mörg bréf frá
velunnurum handknattleiks-
manna okkar. Það er ékki hægt
að birta nema hluta þeirra, en
hér á eftir fer eitt þeirra:
„Ég vil eindregið taka þátt •
í að aðstoða haudknattleiks-
miennma okkar í því, að þeir
komist til Frakklands í febrúar
lok til HM-keppninnar. Þessir
mienn hafa sýnt það, að þeir;
eru sá íþrótitaflokkur fslenzk-1
ur, sem mest hefur lagt á sig <
við æfingar — enda uppsker- ■
am í samræimi við þá alúð og>
þann tíma, sem þessir menn
hafa fómað fyrir íþróttina og;
þar méð heiður íslands á
íþróttasivifúniu.
Nú segja einhverjar úreltar
áhugamannareglur að við höf-
um ekki leyfi til aS styrkja
þessa menn opinberlega eða á
neinn hátt. Við skulum — á.
meðan þessar hjákátlegiu regl-
ur eru enn í gildi — haida ofck
ur við þær. En við skulum,
einnig hafa það í huga, að stór ,
þjóðimar fara í kringum þess-
ar reglur — sennilega hver ein <
asta þeirra — á einn eða ann- ’
an háibt.
Það hefur komið fram, að
ferðin til Fralkklands kostar ’
hvern mann stórfé — sem1
þessir ágætu íþrðttamenn
verða að mestu leyti að talkia
af heimiiispeningunumv — en,
þeir eru kannske ekki svo mikl
ir fyrir.
Við slkuium sem sé efeki
styrkja þessa stráfea með því
að afhenda þeim seðlana í
hendur. Hins vegar held ég,
endilega að þeir fþróttaforingj
ar, sem eiga að sjó um að þess
ar áhugamamnareglur séu
haidnar — geti ekfci haft neitt
við það að athuga — þótt við
söfnum í vegl’egian og stóran
sjóð og sendum eiginfconum
oíckar ágætu íþrótitamanna — ’
handfenattleifcsmanna — í jlóHa- ,
gjöf.
Ef einhver fþróttaforspiralkfc,
inn hefur eitthvað við þetta að
aithuga, þá heid ég, að honum
verði efcki lengi vært í sínu
veglega saeti. Hann má þá
reilkna með að „fjúfca“ neest i
þegar fcosið verður um starf
hans — hvar sem homn stendur
í baráttunni.
Sem sagt — verum samtaka
um að gera allt tii þess að
handknattleifcsmennirnir okkar
komist áhygjulausir á HM og
látum frúrnar — þeirra sem
giftir eru — annars foreldra —
lifa' hér heima á meðan á-
hyggjuiausu lífi — og látum
börnin strákanna fá engu síður
veglegar jólagjafir i ár — þótt
pabbi þurfi að skreppa til
Frakklands eftir áramótin til
að láta hina stóru garpa fá að
vita, að hér uppi á fslandi er
til handknattleikslið, sem getur
sett strik í reikninginn — og
ekkert hægt að fullyrða um
hver sigurvegari verður í þeim
leik. — B.“
Svar:
Eins og kemur fram annars
staðar á síðunni, munu orð
formanns HSÍ hafa verið mis-
túlkuð.