Vísir - 07.10.1981, Page 15
Miövikudagur 7. október 1981
VlSIR
15
Menn fæöast ekki mikilmenni,
heldur vaxa þeir sig mikla,
verða miklir af verkum sinum,
segir einhverstaöar. Eftirmæl-
in, sem Anwar Sadat Egypta-
landsforsetihlýtur — i viðmiðun
við umsagnir fyrstu árin, sem
hann var arftaki Nassers — eru
skýrt dæmi þar um.
Þegar fréttin flaug um heim-
inn, að nii væri Sadat fallinn
fyrir morðingja hendi, luku
þjoðarleiðtogar viöa um heim
upp einum munni um, aö ,nú
væri vandfyllt skarð fyrir
skildi”... „heimurinn hefur
misst mikinn stjórnskörung, og
mannkyniöhefur missthetju”...
og engum blandaðist hugur um,
að dimmtský hefðidregið fyrir
friðarsólu i austurlöndum nær
• og þá um leið gert heimsfriðinn
ótryggari.
En þegar athyglin beindist að
varaforseta Nassers við skyndi-
legt fráfall hans 1970, var
Anwar Sadat kallaður ,,mið-
lungsmaður”, seinn i hugsun og
seinn til akvarðana, enda litla
eftirtekt vakið fram til þessa.
Hannrakþóafsérslyðruoðrið
um meðalmennskuna og sein-
lætið, þegar hann i nóvember
1977 tók sér á hendur friðarferð-
ina til Jerúsalem, sem var inn-
gangur og upphaf friöar-
samninga Egyptalands og ísra-
els. Opnuðust þá augu
umheimsins fyrirþeim fádæma
kjarki, sem Sadat bjö yfir,
þegar hann i fullkominni óþökk
við sina fyrri bandamenn,
Araba, og múhammeðstrii-
bræður, sneri við blaðinu og tók
upp samneyti við erkif jendurna,
Gyðingana. Þar lagöi hann ekki
aðeins sinn stjórnmálaferil i
hættu, heldur einnig lif sitt, eins
og núerkomiðá daginn. Enginn
brigslaði Sadat um seinlæti i á-
kvöröunum eftir þá fór, eða
aðra feröir, sem hann siðar fór i
samningaleit til Camp David.
„Friðarboðberi”... „friðar-
hetja” eru þær nafngiftir, sem
Sadat eru nú valdar, enda ekki
ótitt að menn séu i eftirmælum
um nýlátna menn mildari i
dómum og örlátari i góðar eink-
unnir. Gleymdar eru nú aðrar
kveðjur, sem Sadat voru ekki
vandaðar, þegar hann upp úr
„brauðuppþotunum” og öörum
erfiðleikum i efnahags-
þrengingum Egypta, sem hann
tók i arf eftir forvera sinn,
Nasser, atti þjóð sinni út i styr-
jöld við Israel. í þann tima vildu
margir leggja það Sadat út á
sam a veginn, eins og gripið væri
til loddarabragðs til þess að
beina athygli óánægðra þegna
fra bágum kjörum og óstjórn
heima fyrir að sameiginlegum
óvini og hættu lengra fjær.
Velgengni Egypta á fyrstu
dögum Yom Kippur-striðsins
hóf Sadat upp i' hetjusæti, sem
hefur siðan naumast haggast
undir honum. Að minnsta kosti
naumast i augum landa hans,
þótt margir fyrri samherjar
hans úr þvi striði, hafi lagt á
hann hatur siðan fyrir
samningaumleitanirnar við
Israela og hafi kallað hann æ
siðan svikara.
Það var því ekki á vængjum
friðardúfunnar, sem Sadat hóf
hina egypsku þjóð upp úr eymd
og niðurlægingu fyrri ósigra
hennar fyrir Israelum. Þó voru
friðarsamningarnir við Israel
beinar afleiðingar þess striðs og
það var fyrir þá einmitt, sem
Sadat deildi sflian friðarverð-
launum Nóbels með Begin for-
stjómarinnar i tran, sem varð
svo aftur mikill aflvaki
byltingarinnar þar, er nú hefur
búið irönsku þjóöinni enn
dapurlegri örlög og sistbetritil-
vist en á stjornarárum keisar-
ans.
Sú óvissa, sem fráfall Sadats
leiðir af sér fyrir friðinn í hans
heimshluta, var undirrótin aö á-
hyggjunum, sem menn höfðu af
þvi, hvernig framtlðarhorfur
væru i þeim málum, ef Sadat
nyti ekki við. Nágrannar
Egypta, tsraelsmenn, höfðu
áður haft orð á þeirri hættu, og
einn og einn framámanna
þeirra unniö sér þaö til ákúru að
vara Sadat við þvi, að of mikiö
væri i'húfi til þess að hann gæti
veitt sér munað umburöar-
lyndis við þau ofstækisöfl. —
Viðbrögð Sadats voru harkaleg i
viðmiðun viðþæraðstæður, sem
vesturlandamaðurinn þekkir.
En þau voru vettlingatök og
nánast silkihanskar i viðmiðun
við það, sem öðrum valdhöfum
þar austur frá þykir nauðsyn
undir slikum kringumstæðum.
Vist er, að þær varúðarráö-
stafanir, sem Sadat geröi,
verkuðu öfugt. Þær þjöppuðu
hinum sundurleitu andstöðu-
hópum saman gegn honum.
Hvort þær voru bejniinis valdar
að dauöa hans, eða hvort tilræö-
ið var fyrir löngu skipulagt og
þá kannski i herbúðum óvina
hans erlendis, eins og Henry
Kissinger hefur látið i veðri
vaka, liggur ekki ljóst fyrir enn.
Hitter ljóst, að Sadat skóp sér
af verkum sinum eigin örlög.
Þeir, sem hann þekktu, sögðu
um hann, að hann hefði alla tið
verið sér meðvitaöur um, aö ör-
lög hans og Egyptalands væru
samantvinnuð. Þeir minnast i
þvisambandi atviks frá þvi að
Sadat var fjórtán ára unglingur
og féll i áveituskurð nærri
fæðingarþorpi sinu Mit Abu el
Kom. Að drukknun kominn var
honum bjargað og eftir á var
hann spurður, hver hefði verið
hans siðasta hugsun, þegar
hann sökk á kaf. Hann svaraði:
„Ef ég drukkna, þá hefur
Egyptaland misst Anwar
Sadat.”
Og að þvi rak 48 árum siöar.
sætisráðherra Israels. Og æ
siðan hefur verið litið á Sadat
sem aöalkrossfara friðarins i
þeim heimshluta, sem heitið
getur, að sé aðaleldstæði ó-
friðarbálsins, þar sem glæður
hafa aldreináð að kulna til fulls.
Og i hinum arabiska heimi,
þar sem furstinn eða keisarinn
ereinvaldur og stýrir sinni þjóð
harðstjórnarhendi við hin
ströngu og oft svo grimmilegu
lög Kóransins — nemaþarsem
honum enn einstrengislegri og
harðhentari byltingarforingi
hefur komist til valda — þótti
Sadatog stjórn hans bera meiri
keim þess lýðræðis, sem er hin-
um gamalgrónu lýðveldum i
vesturheimi fremur að skapi.
Enda mátti um Sadat segja, að
hann i dagfari sinu væri undar-
lega samsettur persónuleiki,
samsetningur úr bæði austri og
vestri. Hið vestræna birtist i
vali hans á fatnaöi og ýmsum
þægindum, sem hin vestræna
tækni hefur alið af sér, auk svo
þvi hvernig hann hallaðist æ
meir á sveif með Bandarikjun-
um, bæði i leit að efnahagslegri
og tæknilegri aðstoð til handa
þjóð sinni og i heimsmálapóli-
tikinni, eftir að hann vi'saði úr
landi tugþúsundum sovéskra
ráðgjafa, sem tilheyrðu arfin-
um frá stjómartið Nassers. Hið
austræna birtist i trúarhita hans
á orð Múham meðs spámanns og
fjölmörgu fleiru.
Ensúhin lýðræðislega imynd,
sem vesturlandabúar höföu gert
sér um Sadat og stjórn hans,
skekktist þó fyrir nokkrum vik-
um, þegar hann lét handtaka
nær 1.600 pólitiska andstæðinga,
trúarleiðtoga og blaðamenn,
sem haldið höfðu uppi gagnrýni
á hendur honum. Vesturlanda-
búanum hættir til þess að skoða
og meta aðstæður i hinum fjar-
lægustu og honum ókunnugum
heimshlutum útfrá eigin bæjar-
dyrum, sem visaaðallt öðrum
kringumstæðum upplýsts al-
mennings i lýðræðislegu réttar-
riki. Að dæma „hreinsanir”
Sadats út frá slikum sjónarhóli
eru hugarórar idraumsýn skoð-
aðir. Abyrgö þeirra dómenda er
ekki litíl, þegar skoðaöur er
hlutur heimsálitsins I aö vekja
samúð með til dæmis fórnar-
lömbum leynilögreglu keisara-
Sadat og Begin, áöur erkifjendur, en siðan samherjar og deildu
friöarverðlaunum Nóbels.
Sadat þótti ástrikur heimilisfaðir og sést hér ásamt
tveim barna sinna, Nönu og Gamal (sem heitir eftir
Nasseri.Nanaogsystirhennareruuppkomnar og giftar
áhrifamönnum i Egyptalandi.
I ráðslagi meö varaforsetanum, Hosny Mubarak, sem
verður arftaki Sadats. Mubarak hefur áður axlaö
skyidur forsetaembættisins I tiðum utanferðum Sadats.
I viðræöum við transkeisara, sem Sadat taldi Egypta-
land standa I svo mikilli þakkarskuid við, að hann bauö
keisaranum og fjölskyldu hans griöastað, þegar fokið
virtist i öll önnur skjól, en með þvi safnaði Sadat enn
meiri glóöum að höfði sér.