Vísir - 07.10.1981, Side 16

Vísir - 07.10.1981, Side 16
Bilatorg sf. ilasala ilaleiga orgartúni 24 Dodge Aspen SE station árg. ’79 ekinn 41 þús. km. Glæsi- legur bni, innan sem utan. Cortina 1600 árg. ’77 ekinn 54 þús. kin. Blár. Willys árg. ’74, ekinn 98 þús. km. Gulur, 6 cyl, skipti. Mazda 626 2000 árg. ’80, ek- inn 27 þús. km. Teinafelgur, silsalistar. Skipti á ódýrari. Range Rover árg. '75 Gulur Upptekin vél og kassi. Lada Sport árg. '79. Litur grænn, ekinn 46 þús. km. Mercury Montego árg. ’74, ekinn 110 þús. km. Litur blár 8 cyl. 302 cub. vökvastýri, sjálfskiptur, Skipti. Plymouth Volare station árg. ’76, ekinn 47 þús. km. 6 cyl, sjáifskiptur. BMW 320 árg. ’80, ekinn 12. þús. km. Brúnn, út- varp/kassettutæki. 22 manna Benz 390, rúta árg. '72, blá aO lit, ekin 80, þús. km. Gott verö, greiOsluskil- málar. Opið ki. 9-19 alla daga nema sunnu- daga. Simar: 13630—19514 VÍSIR MiOvikudagur 7. október 1981 FAIIM vm EKKI VALD MAR? Morgunhani hringdi: Ég er farinn að sakna þeirra ágætu félaga, Valdimars örnólfssonar og Magnúsar Péturssonar með leikfimiþætti sina i morguniitvarpinu. Ég hitti Valdimar á götu nýlega og hann sagði mér það að ekkert værifarið að ræða við sigum þessa þætti af útvarp6ins hálfu. Ég vil þvi gera fyrirspum til forráðamanna þar á bæ, hvort þaö sé meiningin að fella þessa þætti nú út af dagskránni i vetur. Ég efast ekki um að fleiri en ég sakna morgunleikfiminnar, enda veitir ekki af að hafa eitt- hvað liflegt i útvarpinu þegar allur þungi vetrarveðráttu og myrkurs leggst yfir landslýð. Hann kemur, svarar dagskrárstjðri Hjörtur Pálsson. dag- skrárstjóri svarar. Lesendasiðan leitaði upp- lýsinga um málið hjá útvarpinu og Hjörtur Pálsson dagsláár- stjóri varð fyrir svörum. Honum sagðist svo frá að hann hefði verið aö ræöa viö Valdimar i fyrradag og hann væri til viðtals um að halda þáttunum úti i vetur, sem þá yrði sá 25. i röðinni, sem Valdimar stjórnaði morgun- æfingum landsmanna gegnúm útvarp. 1 gær átti útvarpsráðs- fundur svo að taka afstöðu til málsins og Hjörtur sagði það vera trú sina að þættirnir mundu verða á dagskránni i vetur. Spurningin væri frekast um hvenær þeir byrjuðu og hvenær dags þeir verði fluttir. Hjörtur taldi sennilegast að morgunleikfimin hefjist um veturnætur. Þá upplýsti Hjörtur að Valdimar þætti sjálfum óþarflega mikið af þvi góða að tvitaka þættina og hann hefði gertað tillögu sinni að þeirverði aðeins fluttir einu sinni. Helst kem ur þá til álita að liðka þá ár- risulu annan daginn, einhvern- tima fljótlega eftir klukkan sjö, og hina sem þykir gott að lúra lengur, hinn daginn, kannski á svipuðum tima og seinni flutn- ingurinn var áður. Valdimar örnólfsson hefur stjórnaö heimaleikfimi lands- manna um öldur Ijósvakans i 24 vetur og enginn bilbugur er á honum enn. ■ 1 videókerfum landsmanna eru helst sýndar þriöja flokks glæpa- myndir aö áliti önnu S. Ruslmyndir í vídeókerfunum Anna S. hringdi: „Maður opnar ekki orðið blað án þess að sjá fréttir um videó- væðinguna. Heilu bæjarfélögin eru að koma sér upp kerfi sem nær til allra bæjarbúa að þvi manni skilst og allir vita hver þróunin hefur oröið hér i Reykjavik. Á minu heimili hef- ur verið spjallað fram og til baka um kaup á myndsegul- bandi en ekkert orðið úr fram- kvæmdum. Ástæðan til þess að við höfum ekki keypt myndsegulband er einfaldlega sú að við búumst ekki við að nota það mikið. Það er fátt i islenska sjónvarpinu sem okkur finnst ástæða til að geyma áspólu og hvað er það þá sem þessar videóleigur bjóða uppá? Eftir þeim bæklingum sem ég hefi séð frá þessum leig- um eru þær eingöngu með bió- myndirá boðstólum, örfáar sem eru fyrsta flokks en að lang- mestu leyti er um að ræða rusl, þriðja flokks glæpamyndir. En er það virkilega þetta sem fólk er að sækjast eftir, að geta setið fram á nótt á hverju kvöldiog horft á þriðja flokks krimma? Auk þess er það svo i blokkunum, að þar eru ein- hverjir menn út i bæ sem velja myndimar sem fólkið horfir á. Mér finnst þetta ógeðfelld möt- un áódýru efni og i raun og veru misnotkun á þeim möguleikum sem myndsegulböndin bjóða upp á. Og hvernig haldið þið að heimilislifið sé hjá þeim sem eru orðnir videósjúklingar og sitja stjarfir öll kvöld og horfa á biómyndir? Hérvantar alla almenna um- ræðu um videóbyltinguna og hvaða áhrif hún hefur. Það ér ekki nóg að tengja þúsundir ibúða við eitthvert myndbanda- kerfi, skrúfa frá flóði af rusl- myndum og segja gjörið þið svo vel. Það er lágmarkskrafa að hægt verði að velja um fleiri tegundir efnis”. Donalegir slððumæiaverOir Bíleigandi skrifar: Alveg blöskrar mér fram- koma þeirra manna sem i dag- legu tali kallast stöðumæla- verðir. Að visu skal það strax tekið fram,að vonandi eru þetta aðeins fáir menn af mörgum sem hegða sér eins og að neðan verður greint. En þeir setja slæmt orö á allan fjöldann, eins og venjulega gerist. Ég lagS bilnum minum á stæðið hjá Landsbankanum fyrir skömmu. Þar sem ég þurfti aðeins að skjótast i næsta hús i hálfa minútu, sat konan min i bilnum á meðan. Mælirinn var ekki á rauðu, þegar ég lagði bilnum. En meðan ég var i burtu, bar þar að stöðumælavörð. Hann horfði á timann renna út og vék sér þvi næst að konu minni og skipaði henni að borga. Hún hafði enga mynt i mælinn en i sömu svifum bar mig þar að. Skipti engum togum, að vörðurinn vék sér að mér með skömmum og skætingi og bjóst til að skrifa sektar- miða. Ég flýtti mér i burtu og veit ekki hvort af skriftunum varð en alla vega þótti mér viss- ara að forða mér, vegna at- gangs mannsins. Þetta er ekkert einsdæmi og ég veit meir að segja um fólk, sem hefur átt fótum fjör að launa, þar sem stöðumæla- verðir hafa beinlinis ætlað að ganga i skrokk á þvi. Vafalaust er ekki til nein ein skýring á þessum ólátum mann- anna. Kannski er það of- metnaður,þegarþeir eru komn- ir með einkennishúfur á kollinn. Kannski er þetta af þvi að nær eingöngu gamalmenni virðast vera ráðin til að gæta stöðumæl- anna. Og þá geðstirð eins og gerist og gengur. Kannski eiga báðar þessar skýringar við þessa menn. En ég vil eindregið benda þeim á að sýna meiri kurteisi i samskiptum við ökumenn svo þeirverði ekkiverr liðnir meðal almennings en þeireru nú þegai; ' lÁTlÐ MVNTIK*IRAUHH* SNÚID KAKDMNOINU ETtlS HVflU* MTNT TIUUEONI EINS LANOT OO D*D KCM8T refsS***?** ©ip - ■M' ' Kilafcs . * I '<. zj. x'XhHhBhV 1 Y H , • \ Hýl i. ■■•:;:» Stöðumælar eru sjálfsagt ágætis tæki, til sins brúks, en bréfritari telur að stöðumælaverðir séu ekki allir jafn ágætir. SAMSTAÐA UM EININGU? Reykvikingur hringdi: Það er kannski óþarflega smásálarlegt að vera að rifast út af þessu, en geta fjölmiðla- mem ekki verið svo vænir að koma sér saman um nafnið á samtökum óháðu verkalýðs- félaganna i Póllandi? Visir og útvarpið kalla sam- tökin aldrei annaðenEiningu en Mogginn og sjónvarpið þver- taka fyrir að taka sér það orð i munn, en nota þess i stað orðið Samstaða. Nú veit ég ekki hvor þýðingin er réttari en einhvern veginn hljómar Eining betur. Vilja nú ekki fréttaskýrendur erlendra frétta á fjölmiðlunum sýna þá samstöðuað nota orðið Eining, eða þá að ákveða i sam einiugu að kalla samtökin Samstöðu?

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.