Vísir - 07.10.1981, Síða 28
wfimm
Miðvikudagur 7. október 1981
síminnerðóóll
veðurspá
dagsíns
982 mb. lægö skammt austur
af Hjaltlandi hreyfist norð-
austur, 1038 mb. heldur
minnkandi hæö yfir Græn-
landi. Hiti verður nálægt
frostmarki á landinu.
Suðurland:
Norðan eða norðaustan
kaldi, skýjað meö köflum.
Faxaflói og Breiöafjörður:
Norðaustan kaldi viðast
hvar, en á stöku stað all-
hvasst, skýjaö meö köflum en
úrkomulaust að kalla.
Vestfirðir:
Norðaustan átta, sums
staðar allhvöss en viðast hæg-
ari. Viða bjart veður á suður-
fjörðunum, en annars él.
Straudirog Norðurlaud vestra
til Austf jarða:
Norðaustan kaldi eða stinn-
ingskaldi, sums staðar all-
hvasst í kvöld. Éljagangur
Suð-Austurlaud:
Norðan eða norðaustan
kaldi eða stinningskaldi. Viða
litiLsháttar él á miðum en ann-
ars léttskýjað.
veðrið
hér
og ðar
Kl. (• i morgun:
Akureyri snjókoma -h2,
Bcrgen rigning 9, Kaup-
mannahöfn rigning 14, Osló
þokumóða 10, Reykjavikskýj-
að 1, Stokkhól inur rigning 11,
Þórshöfn skúr á siðustu
klukkustund 4.
Kl. 18 i gær:
Aþena heiðskirt 24, Bcrliual-
skýjað 19, C'hicago skýjað 17,
Feneyjar þokumóöa 30,
Frankfurt léttskýjað 17, Nuuk
léttskýjað 2, l.oudon rigning
13, I.uxeinburg léttskýjað 17,
Las Palmas skýjað 21,
Mallorka skýjað 28, Montreal
rigning 12, New Yorkskúr 18,
Parisléttskýjað 16, Róm létt-
skýjað 22, Malaga létLskýjað
22, Vln léttskýjað 18, Wiunipeg
léttskýjaö 12.
LOkl
segir
Er það rétt aö borgin hafi
gefist upp á hlaupunum eftir
Lifshlaupinu?
„Arnarflugsvélin er
ekki samkennnishæf”
segir Kristinn Finnbogason
„Mér þykir óneitanlega
kúnstugt aö sjá Arnarflugsmenn
tala um, að við höfum leyfin en
þeir vélarnar til Evrópuflugs”,
sagði Kristinn Finnbogason,
framkvæmdastjóri íscargó, i
samtali við Visi.
„Ég man ekki betur en að
þegar Arnarflug fékk leyfi til
innanlandsflugs hér á sinum
tima, þá hafi þá vantaö vélakost
til verkefnanna og við þurft að
lána þeim vél til flugsins. 720 B
vélinþeirra er engan veginn sam-
keppnisfær i Evrópuflugið því aö
hún tekur enga frakt”.
En hvers vegna var þá leitaö
tilboöa hjá Arnarflugi i upphafi,
ef þeir eru ekki samkeppnisfær-
ir?
„Við vildum einungis fá
samanburö á flugkostnaði, miöaö
viö þaö, sem viö greiöum Trans-
avia fyrir Amsterdamflugiö”,
sagði Kristinn.
Hann sagði ennfremur, að Is-
cargó væri nú mjög nálægt þvi aö
kaupa Boeing 727-100 vél frá
Bandarikjunum, en þaö er sams
konar vél og Flugleiðir hafa boöið
þeimtilleigu i Amsterdamflugið.
Kristinn taldi góöa möguleika á
samkomulagi um þá leigu, „en
einungis i skamman tima, þvi að
ég á von á, að okkar vél veröi
komin hingað mjög fljótlega,
jafnvel innan eins mánaöar”.
„Annars erum við fyrst og
fremst að reyna aö selja Elektr-
una okkar núna og eru menn
væntanlegir hingað til lands frá
Perú i næstu viku, til aö ræöa
hugsanleg kaup á henni”, sagði
Kristinn að lokum. —JB
Hörður Skarphéðinssori/ starfsmaður Hvals h/f, yfirfer byssustæði eins hval-
bátsins í Reykjavíkurhöfn að lokinrti vertíð. MyndrEÞS
Deilan um Tryggvabraut á Akureyri:
BÆJARSTJÚRNIN SETUR
ÞRÆTUEPUÐ í GEYMSLU
Þrætuepli húseigenda, sunan
Tryggvabrautar, og bæjaryfir-
valda, sem Visir sagði frá fyrir
helgina, var sett i geymslu á
fundi bæjarstjórnar i gær.
Samþykkt var á fundinum að
hlutverk og gerð Tryggvabrautar
veröi tekiö til sérstakrar athug-
unar við endurskoöun aðalskipu-
lags, sem nú stendur yfir. Þetta
var samþykkt meö tiu atkvæðum
ibæjarstjórninni, en Siguröur J.
Sigurðsson sat hjá.
Guðmundur Axelsson og starfs-
menn hans hafa unniö við að taka
Lifshlaup Kjarvals niður í gær og
morgun og pakka þvi til geymslu.
Guðmundur litur nú svo á að öll-
um viöræðum milli sin og borgar-
yfirvalda sé lokið, og verður það
nú sett til geymslu „annaöhvort
hér eöa erlendis”, eins og Halldór
B. Runólfsson i Klausturhólum
komst aö orði viö Visi i morgun.
Þá var samþykkt með fimm
atkvæðum gegn einu að opna inn-
keyrsluna frá Tryggbabraut aö
bensinstöð Esso, en lokun
þessarar innkeyrslu útilokaði
áframhaldandi rekstur stöðvar-
innar, aö mati eigandans.
Við fyrstu atkvæðagreiðslu
fékk þessi tillaga aðeins stuðning
fimm bæjarfulltrúa: Sigurðar Óla
Bry njólfssonar, Siguröar
Jóhannessonar, Sigurðar Hann-
aiis évlst um sölu
Að sögn Halldórs er það óbil-
girni borgarinnar, sem varð þess
valdandi, að viðræðum var hætt,
„þau vilja lita svo á að Guö-
mundur hafi bara veriö i vinnu
hjá þeim.meðan hann hefur staðið
i að bjarga Lifshlaupinu frá glöt-
un, vilja borga útlagðan kóstnað
og 400.000 aö auki, sem riki og bær
hirða svo meira en helming af,
eða um 256.000. Það er ekkert vit i
þessu”, sagði Halldór og benti á
essonar, Gunnars Ragnars og
Guöjóns Jónssonar.
Aðrir sátu hjá, og þar með var
tillagan fallin, þar sem minni
hluti bæjarfulltrúa tók þátt i at-
kvæðagreiðslunni. Þá ákvaö Þor-
valdur Jónsson að vera á móti til-
lögunni. Þar meö tók meiri hluti
bæjarstjórnar þátt i atkvæða-
greiðslunni og flaut tillagan i
gegn á þessu eina mótatkvæöi.
— GS. Akureyri
að lokum, að opinberir aðilar
heföu hvorki spurt um kaupverð
né opinber gjöld, þegar Kjarvals-
staðir keyptu litla rauökritar-
mynd eftir Kjarval sem var i eigu
Onundar Asgeirssonar. En
kaupverð þeirrar myndar mun
hafa verið litiö eitt lægra en sú
umbun.er borgarmenn ætla Guð-
mundi fyrir starf hans við Lifs-
hlaupið.
—jsj
Ekki flogið til
Akureyrar i dag:
Tæp fjögur
hundruð
bíða flugs
Hátt i fjögur hundruð manns
biða nú eftir fiugi milli Reykja-
vikur og Akureyrar og sifellt bæt-
ist viö enda ekkert útlit fyrir flug
þangað i dag, samkvæmt upp-
lýsingum, sem Visir aflaði sér i
morgun.
Það er flugvöllurinn á Akureyri;
sem er gjörsamlega ófær vegna
snjóa og hefur ekkert verið flogið
þangað siðan á sunnudag. Fært
hefur verið á flesta flugvelli i ná-
grenninu.
Flug til lsafjarðar tepptist
einnig um helgina, en þaö leystist
i gær og voru góðar horfur á flugi
þangað i dag. jb
Fer Guðmundur i
Tungu i Garðinn?:
Enn ekki ■ i
ákveðið
um kaupin
Enn er ekki að fullu séö hvort
oröiö getur af kaupum Isstöövar-
innar hf. i Garði á togaranum
Guömundi i Tungu frá Skildi hf. á
Patreksfiröi.
Þórarinn Guðbergsson. hjá Is-
stöðinni, sagöi Visi, að kaup-
samningur heföi veriö gerður, en
hann væri háður þvi skilyrði, aö
samkomulag næðist við þá sem
eiga skuldir hvilandi á skipinu.
Þeir skuldaeigendur eru fyrst og
fremst opinberir sjóðir, Fisk-
veiðasjóður, Rikisábyrgöasjóður
og Byggðasjóður. Þórarinn sagði
að nokkuð erfitt væri að sam-
ræma sjónarmið skuldaeigenda
og Isstöðvarinnar, en endanleg
svör eru þó ekki komin frá þeim
og þvi ekki enn vitað, hvort af
kaupunum veröur. —SV
Vinningur á
Lukkumiða
Dregið hefur verið i Lukku-
miðahappdrætti sölu- og
dreifingaleiks Visis. Upp kom
númer 6528 og er eigandi þess
miða beðinn að gefa sig fram við
afgreiðsluna. Vinningurinn er 10
gira reiöhjól.
Lflshlaupið fcp í geymslu