Vísir - 05.11.1981, Side 5

Vísir - 05.11.1981, Side 5
Fimmtudagur S. nóvember 1981 vtsm 5 wmm ..m y ' ■'■■ ■;'■■:■ ■...■■ ' ■■;;■' ' WMiMB, ' , * ' ■ ■'■■■ :. ■ ■ •;..;. ; ■ ■**<?' L- Sovéski kafbáturinn „U-137” sem er af svonefndri „viski-tegund” en myndin var tekin meðan hann sat enn strandaður i ieirnum. Niósnaði kafbát- urinn um leyni- tilraunir svia? Sviar hafa nú með semingi látið uppi, að þeir unnu að leynilegum tilraunum með tundurskeyti, sem ætluð eru gegn kafbátum, einmitt á þeim slóöum, þar sem sovéski kafbáturinn var að sniglast, þegar hann strandaði i sænskri landhelgi i siöustu viku. Fóru þessar tilraunir fram tiu kilómetrum frá strandstaðnum. Við tilraunirnar höfðu Sviar nokkra kafbáta og flotaþyrlur daginn, sem kafbáturinn strand- aði (27. okt.). Æðsti yfirmaður herafla Svia, Lennart Ljung hershöfðingi, hefur stjórnað rannsókninni á kafbátsstrandinu og yfirheyrsl- unum yfir kafbátsforingjanum. Hann hefur skiiað rikisstjórninni skýrslu sinni af rannsókninni og verður hún til umræðu á rikis- stjórnarfundi I dag. — Efni henn- ar hefur ekki verið gert opinbert. Yfirheyrslunum var haldið á- fram i gær. Sænskur sjóliösfor- ingi fór þrívegis um borö i kafbát- inn i gær. Kafbátaforinginn neitar að yfirgefa kafbátinn að fyrir- mælum yfirboðara sinna. 1 stað- inn neita Sviar sovéskum dipló- mötum um leyfi til þess að fara um borð. Sovétmenn hafa nú fjölgað her- skipum sinum, sem hringsóla fyrir utan sænsku landhelgina beint út af strandstaðnum. Þar eru nú stödd sex herskip og fjögur sovésk björgunarskip. — Kafbát- urinn situr ekki lengur fastur i leirnum, þvi að Sviar kipptu hon- um á flot á mánudaginn, þegar hvessa tók og eftir að kafbátsá- höfnin haföi sent út neyðarskeyti og skotið á loftneyðarblysi, þvi aö kafbáturinn var farinn að hallast iskyggilega i veðrinu. Hann ligg- ur nú i vari. Sendiherra Sovétrikjanna i Stokkhólmi átti i gær viðtal viö fulltrúa sænska utanrikisráðu- neytisins, en hann hefur sakað Svia um að draga á langinn að láta kafbátinn lausan. — Sviar hafa borið þaö af sér, en þeir gruna kafbátinn um að hafa verið i njósnaleiðangri, þegar hann strandaði. Upplýst var i gær, að um borö i sovéska kafbátnum hefði verið og væri enn sovéskur sjóliðsfor- ingi hærra settur en kafbátsfor- inginn, og væri sá einn af yfir- mönnum kafbátsdeildarinnar, sem báturinn tilheyrir. Tass-fréttastofan sovéska át upp eftir kafbátsforingjanum þá skýringu hans á ferðum bátsins i sænskri landhelgi, að hann hefði vilist i þokunni, þegar siglinga- tæki kafbátsins heföu bilaö. — Þykir ekki öllum sú skýring jafn trúleg, svokrókótt sigling, sem er á milli eyja og skerja til þess aö komast að strandstaðnum. Læknip Pres- leys sýknaður Læknir Elvis Presleys var i gær sýknaður af ákærum um að hafa brotið lög við lyfseðlaútgáfu á lyf handa rokksöngvaranum og fleiri stjörnum úr skemmtiiönaöinum. Hann haföi verið kæröur fyrir ótæpilega útgáfu lyfseðla á amphetamin, barbiturtöflur og ýmsar verkjatöflur handa Presley, Jerry Lee Lewis og sex öðrum, auk svo sjálfum sér. Var þvi haldiö fram, að honum hefði verið kunnugt um þaö að Presley og Lewis heföu verið ávananeyt- endur, en ekki gert tilraun til þess að lækna þá af fikninni og haldið áfram aö útvega þeim lyfseðla. Læknirinn, George Nichopou- los, bar þvi við aö hann hefði ætlaö sér að vinna traust Presleys og siðan stýra honum frá of- notkun lyfjanna. — Eitt vitnanna fyrir réttinum bar það aö þaö dygði sjaldnast aö taka fikniefnin fyrirvaralaust af neytendum. Presley andaðist 16. ágúst 1977, aðeins 42 ára gamall. Dánaror- sökin var hjartaslag, en margra hald var það, að hin mikla neysla söngvarans á örvandi og róandi lyfjum á vixl eba saman hefði átt einhverja sök á dauba hans. Ferð skutiunnar frestað um viku Oöru geimflugi skutlunnar, Kólombiu, hefur verið frestað um viku. Var hætt við aö skjóta henni á loft i gær, þegar ekki var nema 31 sekúnda eftir af niöur- talningunni. Astæðan var sú, að á siðustu stundu rifjaöist upp fyrir mönn- um, að gleymst hefur að skipta um oliu á skutlunni og oliusiur frá þvi úr siðustu geimferö, þegar Kólombia flaug um milljón mllur. Tilkynnt hefur verið, aö það taki um eina viku að gera Kólom- biu til reiðu fyrir næsta flugtak. Neyðarástand Aö minnsta kosti 26 þúsund manns hafa verið drepin og fleiri þúsundir særst I E1 Salvador siðan borgarastriðið hófst fyrir tveim árum. 1 valnum liggja i meirihluta smábændur og vinstrisinna skæruliðar. Atökin hafa einnig tekið sinn toll af efnahagslifi landsins og fælt fjárfestingaraðila frá, auk þess sem allmargar verksmiðjur hafa orðiö að hætta rekstri en af þeim sökum eru um 100 þúsund manns atvinnulausir I höfuöborg- inni. Um' 300 þúsund smábændur hafa ennfremur fiosnað upp af jarðarskikum sinum og flúið þvi þeim hefur verið búinn bráöur lifsháski vegna ofstopa öfgahópa sem andvigir eru nýjum land- setalögum herforingjastjórnar- innar. — Rikir mikil neyð meöal bændalýðsins og hefur Rauöi krossinn beðiö alþjóða stofnanir að leggja til matföng og lyf til að likna þessu fólki. Beila enn neitunar- valdl gegn waldheim Enn fóru fram atkvæða- greiðslur I öryggisráöi Samein- uðu þjóðanna i gær um næsta framkvæmdastjóra samtakanna og enn sem fyrr fengust ekki úr- slit. Þó örlar hvergi á nýjum frambjóðanda til embættisins. 1 siðustu viku fóru fram sex at- kvæðagreiðslur um Kurt Wald- heim og Salim Ahmed Salim og i öll skiptin utan einu sinni er Waldheim sagöur hafa hlotiö fleiri atkvæöi en Salim en Kina hafi þá beitt neitunarvaldi sinu svo að ráðið getur ekki lagt til viö allsherjarþingið aö kjósa Wald- heim. Bandarikin eru sögö hafa beitt neitunarvaldi sinu gegn Salim. Tvivegis fóru fram atkvæöa- greiðslur i gær og hefur kvisast út af lokuðum fundi ráðsins aö Waldheim hafi fengiö tiu atkvæði gegn fjórum, meðan einn sat hjá. Heyrst hefur að menn séu reiöubúnir til aö bjóða sig fram en tregðist við meðan þeir Waldheim og Salim eru i framboöi. Hvorug- ur hefur látið að þvi liggja aö hann hyggist draga sig I hlé. Byggingavörur • Hreinlætistæki • Blöndunartæki • Gólfdúkar • Málningarvörur • Verkfæri • Baðteppi • Baðhengi og mottur narovidur • Spónn • Spónaplötur • Viðarþiljur • Einangrun • Þakjárn • Saumur • Fittings Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar allt niður í 20% útborgun og eftirstöðvar allt að niu mánuðum Við höfum flutt okkur um set, að Hringbraut 119, aðkeyrsla frá Framnesvegi eða inngangur úr Fatadeild JL-hússins tfL • Opiö fimmtudaga til kl. 20, föstudaga til kl. 22 og laugardaga kl. 9 til 12 ATH.: Vid opnum kl. 8 á morgnana — nema laugardaga kl. 9 — byggingavörur_______________ Hringbraut 119 - Símar: 10600 og 28600

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.