Vísir - 05.11.1981, Blaðsíða 9

Vísir - 05.11.1981, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 5. nóvember 1981 9 VISLR Margir muna eflaust eftir Helga Hannessyni, hinum unga guðfræðinema, frá þvi i sumar, er hann varð hlutskarpastur i almennri spurninga- keppni um efni Bibliunnar. Siðan fór Helgi utan til Israel, til úrslitakeppninnar. Ekki varð hann þó sigurvegarinn i þeirri keppni. Aftur á móti vænti blaðamaður þess að svo Bibliufróður og guðrækinn maður hlyti að hafa sérstaka innsýn i hina trúarlegu afstöðu ísraelsmanna, sem lifs- barátta þeirra mótast af. Hann tók Hannes þvi tali. Helgi Hannesson guðfræðinemi. „Eg væri tllbúinn að ganga I herinn” - segir Helgi Hannesson. guðíræðineminn. sem varð hlutskarpastur í spurningakeppninni um Bibiíuna Lokakeppnin i ísrael. — Hvernig fór keppnin fram? „Þessi alþjóölega spurninga- keppni tir efni Bibliunnar haföi veriö sett á laggirnar af Israel. Flestir keppendurnir reyndust vera frá E vrópu og Ameríku. Af einhverjum ástæöum voru engir frá Arabarikjum. Engir Lútherstniarmenn voru þar heldur. Sigurvegari keppninnar reyndist vera ísraelsmaöur Fyrir keppnina haföi okkur veriö boðiö heim til biístaðar Begins, og hann hélt þá tölu um Bibliuna. Siðan stóö hann fyrir svörum i hinni almennu um- ræðu sem fylgdi á eftir. Keppnin stóö i tvö kvöld i röð. Henni var allri Utvarpað beint af Rikissjónvarpi Israels. Fyrri daginn fóru undanúr- slitin fram. Þar stóðust 12 af hinum 31 keppendum, og varég þar á meðal. Lokaspurning keppninnar var samin af Begin forsætisráöherra. Hermenn, og reiðir strangtrúarmenn Eftir keppnina dvaldist ég á- fram i' ísrael. Ferðin tdk 3 vikur alls, og var ég lengst af i Tel Aviv, höfuöborginni. Einnig fór ég i nokkurra daga reisu til N.- ísraels, og til Dauðahafsins. Margt framandi bar fyrir sjónir. Til dæmis voru vigbúnir hermenn viða: Þeir stóðu vörð við opinberar byggingar og helgistaöi.Einnigsá maðurþá á ferð i strætisvögnum eða á gangstéttum. Oftast fóru þeir minnst tveir saman. Eitt sinn, þegar ég var á ferðalagi nálægt Libanon, tók ég eftir að strætisvagnaskýlið sem ég beið f var alsett skotgötum. Ég hafði reyndar verið undir það búinn heima á Islandi að ég gæti lent flifsháska i Israel. En ég treysti þvi að Guðs vilji mundi verða, og hans vilji væri bestur. Það var áberandi að strætis- vagnar gengu ekki á hvildar- deginum, laugardegi. Mér virð- ist að meirihluti manna væri óánægðurmeð þetta fyrirkomu- lag, og að það hefði verið neytt upp á þá af strangtrúarmönn- um, sem eru iminnihluta i Isra- el, en i oddaaðstöðu i rikis- stjórnum. Sambúðin virðist brösótt milli trúarhópa í Israel. Ég frétti t.d. að heitttrúaðir Gyðingar hefðu tekið Bibliur af hótelherbergj- um og brennt þær, en sett Gamla Testamentið i stað þeirra. Einnig heyrði maður aö þeir heföu kveikt i kristnum guð- fræðiskóla og kristinni bókabúö. Strangtrúaðir Gyðingar hafa einnig kastað grjdti að tx'lum sem hafa keyrt inn i borgar- hluta þeirra á hvildardag, þar eð akstur bifreiða telst til vinnu, og þvi til helgibrots. A hitt er að lita, að guðshús hinna ýmsu safnaða virðast fá að vera óáreitt, svosem mú- hameðstrúarmanna, gri'sk- kaþólskra, sýrlensk-kaþólskra, armenisk-kaþólskra og róm- versk-kaþólskra. Einnig eru þar nokkur klaustur. Hernaðurinn: Of- stækislitil sjálfs- vamarsjónarmið — Hvað vilt þú segja um ó- friðarástandið i Israel, frá sjónarmiði kristins manns? „Mér virðist að meirihluti Israela liti á hernaöarástand Israels sem illa nauðsyn. Þeir sjá það sem baráttu fyrir þvi að halda áfram að búa þar sem þeir hafa flestir alist upp, við þau kjör sem þeir hafa vanist. F'lestir Israelar eru jú aldir upp i tsrael, eða hafa búið þar ára- tugumsaman. Þaðerþvi þeirra heimaland. Við Islendingar eig- um ekki að áfellast Israela að þvi leyti. Það sem okkur Islendingum þykir hins vegar verra er að mannslifum skuli vera fórnað i baráttunni fyrir þessu. Senni- lega er það vegna þess að við þekkjum ekki af eigin raun á- stand þar sem fjölda manns er ógnað af herjum og hermdar- verkasveitum. Hvernig mund- um við svara spurningunni: Hversu margra mannslifa, er sjálfstæði íslands, virði? Égsegi fyrir sjálfan mig aö ég var upprunalega friðarsinni, en ég er nú kominn á þá skoðun að varnarherir eru ill nauðsyn. Ef Island væri i svipaðri aðstöðu og Israel, og hefði her, þá væri ég tilbúinn að ganga i herinn og stofna lifi minu i hættu. Aðrir þættir sem við gagnrýn- um i toernaði Israelsmanna eru t.d. gróðabrask og grimmdar- verk. En slikt er alltaf fylgifisk- ur striða. Menningarhlutverk Ritninganna Of mikið er einnig gert úr þjóðerniskennd Israelsmanna. Þeir eru ekki flestir ofsatrúar- menn eöa bókstafstrúarmenn á trúarrit heldur er Gyðing.dóm- urinn fyrir þeim sem helgidaga- trú likt og Lútherskan er fyrir flesta okkar. Til dæmis telja margir Gyðingar að þeir séu likamlegir niðjar Abrahams og annarra leiðtoga i forneskju, sem Guð hafði velþóknun á. En slikt í sjálfu sér skapar ekki trúar- eða þjóðernisofstæki. Heldur má likja viðhorfum þeirra til ritninganna við viðhorf okkar Islendinga til fornsagna okkar:NiðjataIið treystir bönd okkar við fortiðina og landið. Jafnframt eru fornritin leið til að tengja þjóðareinkennin við nútimalegar visindakenningar, svo sem bókmenntafræði, sagn- fræði og fornleifafræði. Um leiö lærum við aö átta okkur á sér- kennum okkar hugarfars, og kostum þess og göllum, á nýja timanum. Þannig má nefna kennslu Gamla testamennsins i i'sra- elska skólakerfinu, sem dæmi um sagnfræðilegar, trúfræði- legar og bókmenntalegar heim- ildir. Er það likt og með Islendingasögurnar i okkar skólum. Þó skal það viðurkennt að hjá þeim er lögö talsvert meiri áhersla á kennslu sinna fomrita, og er það eflaust ná- tengt virkari trúarlegum og stjórnmálalegum sjónarmiðum i anda fornbókmenntanna hjá þeim en okkur. Þegar ég var i Israel var á- kaft deilt um fornleifagröft sem fór þar fram. Hópur strang- trúaðra hélt þvi fram aö staður- inn væri gamall kirkjugarður, og ætti þvi að vera friðhelgur gegn greftri. Visindamenn sögðu hins vegar að engar sann- anir væru til um að þar hefði verið kirkjugarður. Stjórnin lét að lokum dreifa hópi strang- trúaðra mótmælenda með lög- regluvaldi, svo gröfturinn gæti haldið áfram. Þó veigraði hún sér viö þvi, þar eð fulltrúar strangtrúaðra hafa nokkur ráð- herraembætti, og mynda odda- stöðu i ríkisstjórnarmyndunum. Þetta atvik sýnir glöggt samspil visinda, trúar og stjórnmála i Israel nútimans. Sameiginlegur áhugi deiluað- ila hefur bó einnig verið sögu- legur, með hliðsjón af sann- leiksgildi trúarrita um stað- háttu. Þetta minnir óneitanlega á samspilið milli islenskrar fornleifafræðiog sannleiksgildis Islendingasagna. Hatur milli öfgasinna —F'rést hefur að algengt sé meðal herklerka i Israel að predika herskáa afstöðu gagn- vart óvinum Gyðinga, innan og utan Israels, og vitna þeir þá i herskáa þætti i Gamla Testa- mentinu, þar sem jafnvel er sagt frá útrýmingu heilla byggða, og réttlætingu þess. Þeir jafna stundum Palestinu- aröbum nútimans viö Amalekit- ana, sem Guð skipaði Israelum „að slátra, bæði manni og konu, barni og brjóstmylkingi, uxa og sauði, kameldýri og asna.” (Samúel 15:3). „,Það eru tilhópar innan Isra- els sem réttlæta landvinninga- stefnu á grundvelli fornra landamæra, og er það bæði af þjóðernislegum og trúarlegum ástæðum. En slikir öfgasinnar eru ekki dæmigerðir. Ef tekið er tillit til hve lengi Gyðingar hafa orðið að lifa við Gyðingahatur, án þess þó að tapa meira af sinu umburðar- lyndi en raun ber vitni, þá geng- ur það furðu næst. Saga Gyðingahaturs nær að minnsta kosti 27 00 ár aftur i timann, til þess er segir frá i Esterarbók að stjórnandi einn i Persaveldi ráðgerði að útrýma öllum Gyðingum sem væru innanlandamæra Persaveldis. I meir en þúsund ár hafa Gyðingar mætt andstöðu i Evrópu, og er skemmst að minnast Hitlerstimans, þegar Nasistar vildu alla Gyöinga feiga. Nú eru ófáir Arabar og Múhameðstrúarmenn sem vilja útrýma Israel og Israelum, og er það keimlíkt hefðbundnu evrópsku Gyðingahatri. Hinn venjulegi ísraelsmaður nú- timans gengur um með þá vit- und að ísraelar gætu verið þurrkaðir út.” — Er það ekki i ætt við fas- isma að lita á sig sem Guðs út- völdu þjóð? „Það að vera útvöld þjóð táknaði ekki að Gyðingar ættu að vera öðrum fremri i verald- legum skilningi, heldur í trúar- legum og siðferðilegum skilningi. Gyðingar hafa ekki alltaf borið þennan kross með gleði, siður en svo. Fáir trúar- hópar hafa oröið að gjalda eins mikils. Þjóðernishyggja Evrópu- þjóða varð að mestu til á 19. öld, og sótti mikið til hugmnda Gamla Testamentsins um eina útvalda þjóð sem væri öðrum æðri. Þessar hugmyndir hafa verið miklu meira misnotaðar af Evrópuþjóðum heldur en af Israelum nútfmans. Gyðingar, elsta þjóð nútimans, hafa sjálfir sýnt mikinn þjóðernisþroska.” — Hvað vilt þú segja mér af trúarferli þínum? ,,Ég hóf fyrst háskólanám I liffræði, við H.I., 1972. Árið eftir var trúaráhugi minn orðinn svo sterkur að ég ákvað að læra guðf ræði. Ég lærði siðan i fjögur ár við óháðan bibliuskóla i Oregon i Bandarikjunum. Nú er ég aftur kominn til Háskóla Islands, og er i guðfræðinni. Ég hef þó ekki lokið neinum gráðum i faginu. Ég er vist það sem kallaö er eilifðarstúdent. Ég hef búið meirihluta ævi minnar iBandarikjunum.eða 18 ár af 28. Faöir minn, verk- fræðingur, flutti út með fjöl- skylduna þegar ég var 4 ára. Þar hef ég síðan verið f lest min skólaár. Ég sæki samkomur i Elim, á Grettisgötu 62, ásamt öðru kristnu fólki. Við myndum nokkurs konaróformlegan söfn- uð. Slikir söfnuðir eru kallaðir bræðrasöfnuðir af sumum. Við trúum þvi að allir sem hafa endurfæðst inn i fjölskyldu Guðs fyrir trúna á Jesúm Krist séu bræður og systur I Kristi.” Að siðustu kvaddi blaða- maður þennan einarðlega og opinskáa reglumann, og var svarað með hlýlegu brosi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.