Vísir - 05.11.1981, Blaðsíða 8

Vísir - 05.11.1981, Blaðsíða 8
8 vism Fimmtudagur 5. nóvember 1981 Fréttastjóri: Sæmundur Guövinsson. Aöstoðarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson. Auglýsingastjóri: Pail Stetansson. 1 Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammen- Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson drup, Arni Sigfússon, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Ritstjórn: Síðumúli 14, sími 86611, 7 línur. Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdi- Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8, símar86611 og 82260. marsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaöur á Akureyri: Gisli Afgrpiðsla: Stakkholti 2 4, simi 86611. Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmynd- Askrif targ jald kr. 8^5 0 mánuði innanlands ir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. __ - og verð i lausasöluð krónureintakið. Otgefandi: Reykjaprent h.f. utlitsteiknun: AAagnús Ölaf sson, Þröstur Haraldsson. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Safnvörður: Eirikur Jónsson. Visir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14. Niöur fyrir núlliö /,Vandamál atvinnulífsins í landinu og þá alveg sérstaklega sjávarútvegs og fiskiðnaðar eru nú orðin það hrikaleg, að ég hefði ekki trúað því fyrir aðeins fáum dögum. Nú hlaðast að upplýsing- ar, sem vitna um það að atvinnu- lífið er komið í botnlaust fen, rekstargrundvöllur helstu at- vinnuveganna er ekki til og hrað- inn er svo mikill niður á við í tap- rekstri og óskaplegum fjár- magnskostnaði að við erum að snarsökkva". Þetta voru ummæli Sverris Hermannssonar alþingismanns í Vísi í gær. Hann ætti að vita hvað hann syngur maðurinn sá, fram- kvæmdastjóri í Framkvæmda- stofnun, alþingisforseti með meiru. Sverrir endurtók fullyrðingar sínar í ræðustól alþingis í gær síðdegis og dró hvergi undan. „Nú liggur fyrir skýrsla um stöðu togaraútgerðar", sagði Sverrir og „sú skýrsla er geig- vænleg hrollvekja." Hann krafðist þess, að stjórn- völd léttu af þeim trúnaði sem hann og Framkvæmdastofnunin er bundin til að skýra almenningi frá niðurstöðu skýrslunnar og reyndarstöðu atvinnurekstursins yfirleitt. „Allt í kringum landið eru fyrirtækin að stöðvast", sagði Sverrir. Hann krafðist þess að alþingi gripi í taumana og rík- isstjórnin legði staðreyndirnar á borðið. Vitnaði hann til meistara Þórbergs, þegar hann hafði étið sig út á Guð og gaddinn og reyndi að gera sig ósýnilegan í Bergs- húsi. Þetta getur ekki gengið svona lengur, sagði húsbóndi Þórbergs, og Sverrir tók undir. Ríkisstjórnin getur ekki gert vandann ósýnilegan, það þýðir ekki lengur að halda því f ram að allt sé blúndulagt. Hvorki var trúnaðinum né leyndinni létt af þeirri skýrslu, sem Sverrir vitnaði til, en sjávar- útvegsráðherra viðurkenndi ó- beinum orðum að vandinn væri gífurlegur. í svarræðu sinni gerði ráðherrann grein fyrir ýmsum tillögum sem hann hefði sett fram, til lausnar á rekstrarerf ið- leikum útgerðar og fiskvinnslu. Ekki voru þó markmiðin háleit. „Við þurfum að stefna að því", sagði ráðherrann, „að koma rekstrargrundvellinum upp fyrir núllið um næstu áramót". Þetta á að gerast með lækkun ýmissa gjalda, sem ráðherrann taldi jaðra við okur, og með gengis- uppfærslu. „Fast gengi er ekki sáluhjálp- aratriði", sagði Steingrímur og hefur þá sjálfsagt verið að ía að þeim hugleiðingum, sem bærast nú með framsóknarmönnum. Þeir sátu á fundi í fyrrakvöld langtfram á nótt, og hafa ef laust rætt þar f ram og aftur hvað þeim gæti orðið til sáluhjálpar. Niður- talning í núllið hefur bjargað sál- arheill þeirra f ramsóknarmanna f ram að þessu, en nú er það hald- reipi einnig að bresta. Það sýna leyniskýrslurnar, sem þeir hafa undir höndum. í sjálf u sér þarf engum trúnaði að létta af til að það blasi við, að efnahagsástand, sem miðar allt við núllið, getur ekki staðist til lengdar. Það þarf engar leyni- skýrslur til að leiða það í Ijós, að atvinnurekstur, sem situr uppi með 30-40% kostnaðarhækkanir í rekstrlgetur ekki borið sig, með- an þeim kostnaðarhækkunum er ekki mætt nema að takmörkuðu leyti. Glannafengin lýsing Sverris Hermannssonar verður ef til vill afgreidd af stjórnarsinnum sem hvert annað svartagallsraus. Þeir halda ef til vill áfram að verja stefnu sína í lif og blóð. Það er þeim ef til vill til sálu- hjálpar að gera sjálfa sig og vandann ósýnilegan, en hitt er víst, að „þetta getur ekki gengið svona lengur". JÆJfl. GOLlflT....? Þá er honum lokið, fundinum mikla, sem allir landsmenn bibu spenntir eftir. Líklega hafa fjöl- miðlar af öllu tagi aldrei fyrr sýnt pólitlskri samkundu ann- arri en alþingi sjálfu jafn mik- inn áhuga eins og þeir sýndu ný- afstöönum landsfundi Sjálf- stæðisflokksins. t alþjóöaraug- sýn flugu neistar og hrævareld- ar um ótal púðurtunnur og hvenær sem var mátti búast við sprengingu, sem myndi berg- mála um allt þjóðfélagið Þegar allt kom til alls sprakk ekki neitt. Þetta varð bara „mikill reykur en enginn eldur” eins og þeir sögöu fyrir vestan. t raun og veru er almenningur alls ekki viss um hvort eitthvað hafi gerst. Kannski veit enginn það, en það á eftir að koma 1 Ijós. Llklega er Sjálfstæðis- flokkurinn þó nær þvl ab lafa saman en hann var fyrir lands- fundir. Vfir því anda margir léttar . Ekki bara sjálfstæðis- menn, heldur einnig forystu- menn að minnsta kosti tveggja annarra stjórnmálaflokka, Alþýðuflokks og Framsóknar- flokks, sem ekki máttu til þess hugsa að hægri sinnaður, frjáls- lyndur flokkur sprytti upp við hlið fhaldsflokks á rústum Sjálf- stæðisflokksins. Raunar mættu forystumenn Alþýöubandalags gera slíkt hið sama, þvi slfk flokksstofnun myndi siöur en svo vera þeim flokki óviökom- andi. Flokksmaðurinn sigurvegari? Hinir striðandi foringjar Sjálfstæöisflokksins, formaöur- inn og forsætisráöherrann, deildu hart á fundinum. Þaö þurfti engum aö koma á óvart. Formaöurinn flutti óvægna ræöu viö setningu og neyddi for- sætisráöherrann til andsvara i neöanmáls Magnús Bjarnfreðsson skrifar um landsfund Sjálfstæðisflokkins og segirað þegar allt kom til alls hafi hann verið „mikill reykur en enginn eldur". Magnús segir að staðan hafi Iftið breyst, vandamálin séu enn óleyst, en f jallar að öðru leyti um kosningar for- manns og varaformanns. vörn. Þessi skörpu skil geröu þaö aö verkum aö formaöurinn styrktist i formannskjörinu. Frambjóöandi forsætisráöherr- ans, Pálmi Jónsson, fékk ein- ungis st'ripaö fylgi rlkisstjórn- arinnar, og liklega tæplega þaö. Snjallasti áróöursmaöur ís- lenskra stjórnmála, forsætisráö- herrann, lenti þarna i þeirri erfiöu aöstööu aö vera í vörn og ráöa ekki feröinni eins og hann er vanur. Afleiöingin varö sú aö hinir óákveönu fundarmenn snerust gegn honum og meö for- manninum, þegar til kastanna kom. Þveröfugt varö uppi á ten- ingnum, þegar varaformaöur var kjörinn. Þar voru tveir vel hæfir frambjóöendur f kjöri. Ragnhildur Helgadóttur fyrrum alþingismaöur, sem lengi hefur veriö I forystusveit Sjálfstæöis- flokksins og náö einna mestum frama fslenskra kvenna i stjórnmálum ásamt Auöi Auö- uns, var almennt álitin fulltrúi harölinumanna i flokknum. Vit- aö var aö þeir sem haröast studdu formanninn studdu hana yfirleitt lika. Hinn almenni flokksmaöur áleit þvi aö kjör hennar til varaformanns myndi ekki auövelda sættir I flokknum. Á þaö skal enginn dómur lagöur hér, enda Ragnhildur þaul- reyndur stjórnmálamaöur og mannkostamanneskja, en engu aö siöur galt hún þessa. Friörik Sófusson, sem kjörinn var, haföi lýst yfir þvi aö hann myndi ekki vilja standa aö brottrekstri neinna úr flokknum, hann var þvi talinn fulltrúi sátta. Þegar aö þvi kom aö kjósa milli þeirra Ragnhildar og Friö- riks völdu fulltrúarnir Friörik. Llklega fékk Ragnhildur þar nokkurn veginn fylgi þeirra landsfulltrúa, sem eru i raun ánægöir meö formennsku Geirs Hallgrimssonar. Hinir kusu Friörik, jafnt þeir sem fylgja forsætisráöherranum og ríkis- stjórninni aö málum og þeir, sem honum eru andvlgir en eru óánægöir meö þróun málanna I flokknum. í raun má liklega segja aö hinn almenni flokks- maöur hafi oröiö sigurvegari I þessum þýöingarmestu kosn- ingum á landsfundinum, en bæöi formaöurinn og forsætis- ráöherrann fengiö sinar lexfur. Óbreytt staða? En hefur þá Sjálfstæöisflokk- urinn eitthvaö breyst viö þenn- an landsfund? Er staöa hans skýrari en áöur? Svariö held ég aö sé nei. Vandamálin eru óleyst, en þaö þýöir ekki aö þau kunni ekki aö leysast. Stjórn- málaályktunin er öllu almenn- ari en áöur, leiftursókninni er hafnaö i bili aö minnsta kosti, flokkurinn hefur sveigt I frjáls- lyndisátt. En menn mega ekki gleyma þvi aö stefnuskrá lands- funda flokka er eitt, fram- kvæmd hennar hjá þingmönn- um og forystuliöi er annaö. Þaö sanna mýmörg dæmi úr islensk- um stjórnmálum. Engum er ljósar en áöur hvernig staöa rikisstjórnarinn- ar er innan Sjálfstæöisflokksins. Forsætisráöherrann og hans menn héldu þvi fram aö flokka- apparatiö heföi ráöiö óeölileg miklu við val landsfundarfúll- trúa. Allir, sem haft hafa af- skipti af stjórnmálum, vita að það er rétt. Það gerist i öllum stjórnmálaflokkum, þegar uppi eru deilur í lfkingu við það sem átt hefur sér stað i Sjálfstæðis- flokknum,pg reglur hans bjóða þessu sérstaklega heim. Þótt baðir aðilar segist ánægðir með úrslit mála þá held ég að mála sannast sé að hvorugur þeirra citi neitt meira um hug hins al- menna flokksmanns en fyrir landsfund. Hinn mikli fundur hefur þvi fá svör veitt. Varaformaðurinn nýi. Hins unga varaformanns biöa erfiö verkefni. Hann lendir I ljónagryfju, þar sem marga þyrstir I plnulitiö pólitiskt blóö. Eg held aö hann muni standa sig vel. Hann er þeim kostum gæddur aö vera hleypidómalaus og geta rætt mál viö hvern sem er, samherja jafnt sem and- stæöinga, verkamenn jafnt sem forstjóra, og það er mikill kost- ur á stjórnmálamanni. Hann hefur lika sýnt þaö á stuttum þingmannsferli, aö hann er vinnuþjarkur, sem setur sig vel inn i mál og flanar ekki aö hlut- um. Til hans munu hinir al- mennu flokksmenn nú lita I von um aö hann muni geta borið klæði á vopnin. Hvort honum tekst þaö á þann hátt aö flokkur- inn gangi óklofinn til næstu kosninga skal ósagt látiö, en takist þaö hlýtur forystuliö Sjálfstæöisflokksins aö teljast I röö kraftaverkamanna f Is- lenskri pólitfk.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.