Vísir - 05.11.1981, Page 12

Vísir - 05.11.1981, Page 12
12, \j4S ^W" t>Vt> V>f TÖSKUHUSIO Laugavegi 73 Sími15755 ■ ■ ■ ■ I Vandervell vélalegur Ford 4-6-8 tlrokka benzin og diesel vélar Austln Mini Bedford B.M.W. Bulck Chevrolet 4-6-8 strokka Chrysler Citroen Datsun benzin og diesel Dodge — Plymouth Flat Lada — Moskvitch Landrover benzm og diesel Mazda Mercedes Benz benzm óg diesel Opel Peugout Ponllac Rambler Range Rover Renault Saab Scania Vabis Scout Slmca Sunbeam Tékkneskar bifreiðar Toyota Vauxhall Volga Volkswagen Volvo benzin og diesel ÞJÓNSSON&CO Skeifan 17 s 84515 — 84516 JON FB. EINARSSON Byggingaþjónustan Bolungarvík Símar: 7351 - 7353 - 7350 Almenn bygginga- þjónusta Verktakar Byggingavöruverslun Plastverksmiöja Vinnuvélar Huröaverksmiðja Trésmiöja Málningarþjónusta Rafdeild Trausti Gestsson skipstjóri og Ásdís ólafsdóttir kona hans. Fimmtudagur 5. nóvember 1981 Vísismynd: EÞS „Hskimenn bera ekkert trausttilembættismanna" Visir ræðir við Trausla Gestsson skipstlóra hlá FAO um próunarhjálp Isiendlnga Trausti Gestsson er einn þeirra islendinga sem hafa gert víðreist hin síðari ár, á vegum alþjóða stofnana. Hann hefur síðustu tólf ár starfað hjá FAO, Matvæla og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, sem skipstjóri. Hann er ættaður og uppfóstraður i Olafs- f irði og á sitt hús og heimili á Akureyri, en ferðast um heiminn ýmissa erinda fyrir FAO. Hann var skipstjóri á fiskibátum á árum áður og að eigin sögn, lagði hann sitt lóð á vogaskálarnar við að eyða síldarstofninum. Að því loknu fór hann til FAO. Viða farið Hann byrjaöi þar I desember 1969 og hans fyrsta verkefni var i Miö-Ameriku viö leit aö fiski- stofnum, Kyrrahafsmegin. Þaöan fór hann til Filippseyja og vann þar svipuö störf undir stjórn Einars Kvaran i tvö ár. Þaöan til Vestur-Afriku i fjögur ár og frá Ghana til Persaflóa i tvö ár og svo til Kenya og er ný- kominn þaöan eftir tveggja og hálfs árs störf. Og þegar þetta er lesiö er hann kominn til Burma, en bjóst ekki viö aö veröa þar lengi, kannski ekki nema um tvo til þrjá mánuöi. Síöustu fimm ár hefur starf hans veriö fólgiö i skipstjórn á rannsóknarskipum, sem eru fyrst og fremst i leit aö nýtan- legum fiskistofnum fyrir viö- komandi þjóöir. Oft er þaö svo aö þjóöirnar biöja um aöstoö Sameinuöu þjóöanna eöa Alþjóöabankans viö uppbyggingu atvinnuvega t.d. fiskveiöa. Þá er sá háttur haföur á, nú oröiö aö senda fyrst sérfræðingaliö til aö kanna hvort möguleiki er á slíkum at- vinnuvegi. Þannig var þaö i Kenya aö leitaö var aö nytjafiskistofnum til aö byggja atvinnuveg á. Trausti sagöi aö allt benti til aö sú leit hafi ekki boriö árangur og enda þótt opinber skýrsla um verkefnið væri enn ekki komin út, taldi hann ósennilegt aö ráöist yröi i aöstoö viö upp- byggingu fiskiönaöar i Kenya. Skemmtilegasta verkefniö sem Trausti hefur fengist viö á þessum vettvangi var á Filips- eyjum. Þar var hann við aö kenna heimamönnum notkun á snurpinót og þróun veiðitækni þar sem ljós eru notuö til aö laöa fiskinn ofar i sjóinn, áöur en kastað er á hann. Blaöamaöur VIsis hitti Trausta daginn áöur en hann hélt til Burma og þá gaf hann þessar upplýsingar i skemmti- legu rabbi. Siðan snerum viö talinu aö nytsemi og árangri þessa starfs. Fiskimenn úr lægstu þrepum ,,Þaö er ekki um þaö aö deila aö markmiöiö er göfugt”, sagöi Trausti. „En aöal vandamáliö er oft á tiöum stjórnir viökom- andi rikja. t öllum þessum lönd- um er fiskimaöurinn af lægsta þrepi samfélagsins. Fiskimenn- irnir komast aldrei upp í sam- félaginu, til neinna áhrifa, en þar af leiðir aö áhrifamennirnir, þeir sem maöur þarf aö vinna meö hafa enga hugmynd um neitt sem aö sjómennskunni lýtur. Fiskimennirnir bera ekkert traust til embættismannanna og lita á þá sem óvini sina frekar en hitt. Þess vegna getur verið býsna erfið leiö aö brjótast niöur til þeirra og komast i sam- band viö þá”. — Kemur þaö sem þið leggiö af mörkum þá þessum mönnum til góöa? „Það er voöalega misjafnt. Stundum gerum viö mistök og þaö er ekki nokkur vafi á aö Sameinuöu þjóöirnar hafa gert mörg mistök. Nýlega sá ég grein i riti sem gefið er út innan stofnunarinnar og starfsmenn geta látiö álit sitt i ljós, aö greinarhöfundur telur aö átta af hverjum tíu fram- kvæmdum, sem svona eru kostaðar af Alþjóöabankanum hafi frekar oröiö til skaöa, heldur en hitt. Þaö átti viö um fiskveiöar sérstaklega. Hann rökstuddi þetta meö þvi að oft er þjóöum att út i djúpsjávarfisk- veiöar sem þá drepi niöur smá- útgeröina sem þeir hafa lifaö á um aldir. Þaö er ekki nægilega mikil áhersla lögö á aö bæta smábátaútveginn sem þeir hafa yfir aö ráða og kunna skil á. Ég held nú aö þetta sé þó mik- iö aö skána. Nú er ekki langl i stuöning af þessu tagi, nema aö undangengnum miklum rann- sóknum og þaö er þaö, sem við erum aö gera núna”. — Hvert er þitt mat á aöstoð okkar tslendinga við þróunar- þjóöir, aö þvi er varöar fisk- veiðar? „Ég óttast aö viö dettum aftur i sömu gröfina og viö geröum á fyrstu árum slikrar aöstoöar. Þaö sem byrjaö var á voru al- gjör mistök. Til Kenya var sendur maöur og hann á aö taka þar bát og reyna aö gera hann út. Kenya var siöasta landiö sem viö áttum aö fara til til að hjálpa viöfiskveiöar. Viö gátum hjálpað þeim viö jaröhitarann- sóknir en viö gátum haft upp- lýsingar um aö þaö væri enginn grundvöllur fyrir uppbyggingu fiskveiöa þar. Þaö er ekki eingöngu þessi is- lenska hjálp sem, ég gagnrýni, heldur lika aö þaö virðist ekki vera nein stjórnun héöan aö heiman á þessari aöstoö. Hvert gefa þeir menn sem viö sendum þessara erinda, sinar skýrslur? Hvert senda strákarnir i Grænahöföaeyjum sinar skýrsl- ur? Er eitthvert eftirlit meö þeim? Hvaö eru þeir aö gera? Hafa þeir einhverja aöstoö héöan aö heiman, t.d. tæknilega aðstoö? Stjórnina vantar Er einhver maöur hér heima, sem fylgist meö því sem þeir eru aö gera og fer t.d. á sex mánaöa fresti til aö lita eftir meö þeim? Þetta er mjög mikilvægt. Skipstjóri þarna á staönum get- ur átt mjög erfitt meö aö ná til ráðamanna sem stjórnskipaöur fulltrúi aö heiman sem kemur ööru hvoru, getur átt greiöan aögang aö og á því léttara með að ýta viö þeim. Og ekki aöeins þaö. Ef maöur á staönum hefur einhver fjárráö getur veriö svo erfitt fyrir hann aö neita ráöamönnum á staön- um, ef þeir vita aö hann er maðurinn sem tekur ákvaröanirnar um hvort peningar veröi látnir í tiltekiö verkefni eöa ekki. Honum væri mikill styrkur i aö geta sagt: Nei, ég tek ekki ákvöröun, ég verö aö skrifa heim til aö fá úr þvi skoriö. Annaö er þaö að ég hef ekki oröiö þess var að neinir menn meö reynslu af þess háttar hjálparstörfum hafi verið kaliaöir til hjálpar. Ég skal ekki fullyröa um þaö þótt ég haldi aö mér sé þaö óhætt, aö engir fiski- fræöingar hafi verið kallaöir til. Fiskifræöingur gæti fariö á staöinn og leitað upplýsinga. Þaö þýöir litiö aö senda skip- stjóra og stýrimann á staðinn og segja þeim að fara að veiöa. Svo kemur á daginn, eins og nú hefur gerst, að fiskurinn sem þeir áttu aö fiska er ekki til og skipið passar ekki i þetta og þeir eru aö koma heim meö þaö aft- ur. Og nú er veriö aö tala um að fara aö smiöa nýtt skip fyrir þá. Ég fullyrði að ákvöröun um þessa aðstoö hafi verið tekin á rangri forsendu. Það hafi ekki verið nógu miklar upplýsingar til staöar fyrir mennina, sem tóku ákvörðunina. Fiaug um í fimm daga og vissi svo allt um fisk Ef á aö fara út i svona stórt , verk, eins og þarna á Græn- höföaeyjum, á að senda þangaö menn til aö rannsaka aöstæöur sem koma meö góöar skýrslur um þær. A þeim eru svo áætlan- ir um framkvæmd og fjár- veitingar byggðar en ekki aö gera eins og ég veit að var gert þarna. Maöur var sendur þangað og hann var þar í fimm daga aö fljúga á milli höföanna þarna. Svo kemur hann heim og veit allt og á hans upplýsingum er þessi framkvæmd byggö. Auk þess eru til allar upp- lýsingar um þetta hjá FAO og það er ekki annaö en aö bera sig eftir þeim. Og við eigum fullt af mönn- um, sem þekkja til þessara mála en þaö er bara ekki leitaö til þeirra. Menn eins og t.d. Ein- ar Kvaran sem var meöal hæst skrifuöu manna hjá FAO um árabil en er nú hættur vegna þess aö hann er orðinn sextug- ur”. Svolítil sýndarmennska — Hvaö vakir fyrir stjórnum viökomandi rikja, vita þær ekki nokkuö fyrir,hvers er aö vænta af svona starfi og hvaöa auöæfi eru i hafinu kringum þá? „Þær vita þaö ekki nægilega vel og svo þykir þeim allt i lagi aö fá þessa menn inn i landiö, þeir fá aðstoöina ókeypis og fólkiö eyöir peningum i landinu. Svo blandast i þaö svolitil sýndarmennska, þeir vilja gjarnan láta lita út fyrir aö eitt- hvaö sé veriö aö gera”, sagöi Trausti Gestsson. —SV

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.