Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Page 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001
MYNDLIST
Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur.
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýn-
ing opin þri.–fös. kl. 14–16 til 15. maí.
Borgarbókasafnið, Grófarhúsinu,
Tryggvagötu 15.: Handrit og bækur
Tómasar Guðmundssonar og fleiri
Reykjavíkurbækur og útprentuð borg-
arljóð. Til 27. jan.
Galleri@hlemmur.is: Hekla Dögg. Til
7. jan.
Gallerí Geysir, Hinu húsinu, Ingólfs-
torgi: Jólasýning. Til 6. jan.
Gallerí Sævars Karls: Helgi Þorgils
Friðjónsson. Til 25. jan.
Gallerí Tapas: Haukur Dór. Til 10. jan.
Gerðarsafn: Samsýning sex málara.
Birgir Snæbjörn Birgisson, Ed Hodg-
kinson, Jóhann Ludwig
Torfason, Peter Lamb, Sigríður Ólafs-
dóttir og Þorri Hringsson. Til 21. jan.
Hafnarborg: Jólakortasýning grunn-
skólabarna. Sýning 6–10 ára barna úr
Litla myndlistarskólanum í Hafnarfirði.
Til 7. jan.
Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugs-
dóttir. Til 19. feb.
Ingvar Helgason hf.: Ljóðmyndasýn-
ing. Ólafur Oddsson ljósmyndari og Sig-
mundur Ernir Rúnarsson skáld. Til 10.
jan.
Listasafn Íslands: Úr safnaeign. Til 15.
jan.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar-
safn: Verk í eigu safnsins.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Samsýning. Undir bárujárnsboga. Til 7.
jan.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstað-
ir: Austursalur: Jóhannes S. Kjarval.
AREA 2000. Samsýning á samtímalist
frá Suður Afríku. Til 7. jan.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Sigríð-
ur Ólafsdóttir. Til 16. jan.
MAN-sýningarsalur, Skólavörðustíg
14: Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Guðrún
Kristjánsdóttir og Kristín Jónsdóttr frá
Munkaþverá. Til 15. jan.
Skaftfell, Seyðisfirði: Jón Óskar. Til 15.
jan.
Skálholtskirkja: Teikningar Katrínar
Briem. Til 1. feb.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Laugardalshöll: Vínartónleikar. Kl. 17.
Sunnudagur
Hafnarborg: Arnaldur Arnarson, gítar,
Sif Tulinius, fiðla, Júliana Elín Kjart-
ansdóttir, fiðla, Margrét Hjaltested, lág-
fiðla og Ásdís Arnarsdóttir, selló. Kl. 17.
Salurinn, Kópavogi: Við slaghörpuna.
Jónas Ingimundarson Hulda Björk
Garðarsdóttir sópran og Sesselja Krist-
jánsdóttir mezzósópran, Garðar Thór
Cortes tenór og Ágúst Ólafsson baritón.
Kl. 22.
Þriðjudagur
Salurinn, Kópavogi: Eva Mjöll Ingólfs-
dóttir, fiðla og Svetlana Gorokhovich, pí-
anó. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Horfðu reiður um öxl,
lau. 6., sun. 7., fös. 12. jan.
Borgarleikhúsið: Abigail heldur partí,
lau. 6. jan.
Skáldanótt, lau. 6. j an.
Móglí, sun. 7. jan.
Öndvegiskonur, fim. 11. jan.
Loftkastalinn: Á sama tíma síðar, fim.
11. jan.
Iðnó: Sýnd veiði, lau. 6., fös. 12. jan.
Trúðleikur, sun. 7., fim. 11. jan.
Kaffileikhúsið: Missa Solemnis, lau. 6.
jan.
Eva, þrið. 9. jan., fös. 12. jan.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysingarn-
ir, fös. 12. jan.
Leikfélag Akureyrar: Gleðigjafarnir,
lau. 6. jan.
Tveir misjafnlega vitlausir, lau. 6. jan.
Möguleikhúsið: Lóma...., þrið. 9. jan.
Völuspá, þrið.
Snuðra og tuðra, fim. 11. jan.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í tölvu-
pósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum merkt-
ar: Morgunblaðið, menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
MENNING/
LISTIR
N Æ S T U V I K U
ÞESSA skemmtilegu veggmynd af konu að
dusta brauðmylsnu úr dúk má sjá utan á
byggingu í bænum Clermont l’Herault í
Frakklandi.
Bærinn er í Languedoc-héraðinu, norður
af Miðjarðarhafshafnarbænum Sete, en þar
má oft á tíðum sjá svipaðar veggmyndir af
fólki í fullri stærð utan á veggjum húsa.
AP
Hússtörf unnin á húsvegg
BREKKUKOTSANNÁLL Halldórs Laxness
var nýlega tekinn til umfjöllunar í Times Liter-
ary Supplement (TLS), bókahluta breska dag-
blaðsins Times. Verkið sem út kom á ensku í
þýðingu Magnúsar Magnússonar undir heitinu
„The Fish Can Sing“ hlýtur ágætis dóma hjá
gagnrýnanda blaðsins sem segir bókina ekki
síður fjalla um tengsl Íslendinga við umheim-
inn á miðri 20. öldina en á þeirri 19. sem er
sögusvið verksins.
„Halldór Laxness gerir sér efnivið úr ein-
angrun Reykjavíkur á 19. öldinni. Íslendingar
eru gamaldags, bráðlyndir og skortir tilfinn-
ingasemi. Þeir bera virðingu fyrir gömlum
gildum en gera sér á sama tíma grein fyrir að
heimurinn er að breytast,“ segir í umfjöllun
blaðsins. Þýðing Magnúsar er að mati gagn-
rýnandans góð og telur hann enska heiti
Brekkukotsannáls, Fiskarnir geta sungið, þá
vera lýsandi fyrir þær breytingar sem eigi sér
stað í íslensku þjóðfélagi á þessum tíma.
„Áherslan er á þróun Íslands frá fiskveiðiþjóð
yfir í menningarþjóð og er alþjóðlegt orðspor
einnar sögupersónunnar, Garðars Hólms, lýs-
andi fyrir þetta.“
Brekkukotsannáll einkennist þá að mati
Times af þeirri íróníu og gamansemi sem
gjarnan einkenni verk Laxness. Höfundurinn
skemmti sér gjarnan á kostnað þeirra sem
klífa upp metorðastigann og leitast við að vera
í náðinni hjá Dönum.
„Þessi litli heimur sem hann skapar er minni
en smábærinn Reykjavík og er staður þar sem
ótrúlegir atburðir eiga sér stað – þar sem fisk-
arnir geta í raun og veru lært að syngja. Þessir
atburðir virðast þó með öllu trúverðugir og er
það að hluta til vegna frásagnarstíls aðalsögu-
persónunnar Álfgríms og sökum þeirrar elsku
sem einkennir frásagnir af ýmsum sérvitring-
um sem söguna skreyta,“ segir gagnrýnandi
Times og lýkur dómi sínum á orðunum „fisk-
arnir verða að læra að syngja því allar framfar-
ir kosta sitt.“
BREKKUKOTSANNÁLL TIL UMFJÖLLUNAR HJÁ TIMES Í BRETLANDI
LÍTILL HEIMUR
ÓTRÚLEGRA ATBURÐA
Halldór Laxness Magnús Magnússon
NATHALIE Jacqueminet hefur
verið ráðin sérfræðingur lista-
verka- og sýningadeildar Lista-
safns Íslands frá 1. janúar,
2001.
Nathalie er fædd í Frakk-
landi, en er íslenskur ríkisborg-
ari og hefur búið hér og starfað
í rúman áratug.
Hún hefur meðal annars
starfað sem forvörður við Lista-
safn Íslands og kennt varð-
veislu listaverka við Listahá-
skóla Íslands. Einnig hefur hún
kennt listasögu við Alliance
Francaise í Reykjavík.
Nathalie hefur B.A. próf í
listasögu, auk masters-gráðu í
forvörslu, með málverk sem sér-
grein, frá Sorbonne-háskólanum
í París.
Einnig hefur hún lokið Dipl-
ome d’etudes superieurs de
l’Ecole du Louvre í Paris, með
listasögu 19. og 20. aldar og
safnfræði sem sérgrein.
SÉRFRÆÐINGUR LISTA-
VERKA RÁÐINN TIL LÍ
Nathalie
Jacqueminet
ZADIE Smith, höfundi skáldsögunnar White
Teeth, eða Hvítar tennur, voru nú í vikunni
veitt Whitbread- verðlaunin fyrir bestu frum-
raun rithöfundar. Bók Smith, sem ekki er
nema 25 ára gömul, hefur vakið umtalsverða
athygli og var hún m.a. einnig tilnefnd til
Booker verðlaunanna.
„White Teeth“ þykir veita góða mynd af lífi
sögupersónanna – tveggja fjölskyldna sem
flust hafa til London frá Indlandi og Jamaica.
Að mati dómara Whitbread verðlaunanna
skaraði „White Teeth“ fram úr og sögðu þeir
bókina, „ef til vill þá bestu er skrifuð hefur ver-
ið um London í lok 20. aldar.“
Auk Smith hlaut Matthew Kneale, sem einn-
ig hafði verið tilnefndur til Booker verð-
launanna, viðurkenningu fyrir skáldsögu árs-
ins „English Passengers“ – sögu um leit að
aldingarðinum Eden á 19. öld. Þá var John
Burnside verðlaunaður fyrir Ljóðabók ársins
„The Asylum Dance“ og Lorna Sage hlaut ævi-
söguverðlaunin fyrir æviminningar sínar.
Verk höfundanna fjögurra koma nú öll til
greina sem Whitbread-bók ársins og verða þau
verðlaun veitt 23. janúar n.k, en sl. fjögur ár
hafa verðlaunin verið veitt fyrir ljóðabækur.
Zadie Smith
hampað
Whitbread-verðlaunin
London. Daily Telegraph.
LÖGREGLAN í Svíþjóð handtók nú í vikunni
fimm menn er grunaðir eru um að eiga aðild að
þjófnaði á þremur málverkum er stolið var úr
listasafni í Stokkhólmi 22. desember sl.
Fjórir mannanna voru handteknir á mið-
vikudag, en sá fimmti seint á fimmtudags-
kvöldið og að sögn sænsku lögreglunnar er
eins manns enn leitað í tengslum við ránið.
Verkin sem eru eftir franska listamanninn
Auguste Renoir og hinn hollenska Rembrandt
eru metin á hundruð milljóna króna. Þau eru
þó enn ófundin þótt sænska lögreglan kveðist
þess fullviss að verkin séu enn í Svíþjóð.
Málverkaþjóf-
arnir fundnir?
♦ ♦ ♦