Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001 3 H VERNIG skiljum við hlut- ina og hvernig verður merking orða til? Þetta var eitt af höfuðviðfangs- efnum fortíðarinnar, ekki síst tuttugustu ald- arinnar. Menn gerðu sér yfirleitt grein fyrir því að merking gat orðið til með ýmsu móti. Merk- ing þarf að skapast og gerjast þar til ein- hver almenn, viðurkennd niðurstaða fæst. Menn gerðu sér grein fyrir því að mörg ólík skáld sem horfðu á sömu dögun eða sama sólarlag sköpuðu úr skynjun sinni og hug- leiðingu mismunandi heimsmyndir og gáfu hlutunum mjög mismunandi merkingu, jafnvel þótt allir væru að horfa á sama hlut- inn. Umræður manna um merkingu urðu oft því merkingarlausari sem mælskan og sundurgreiningin varð meiri. Tuttugasta öldin leið áður en þessir menn gerðu sér grein fyrir að þeir voru allir að tala um sama hlutinn. Og þeir gerðu sér enga grein fyrir því heldur að þeir voru alltaf að reyna að segja það sem ekki er hægt að segja. Niðurstaðan varð oft ringulreið, uppgjöf og merkingarleysa, einkum í skáldskap. Það er alltaf til heimur sem liggur handan við orð- in. Bæði í lífi okkar og list er allur veruleiki okkar á hreyfingu og breytingum háður og allar biblíur má túlka á ótal vegu. En við megum ekki gleyma því að það er aðeins túlkun á einum og sama veruleika. Vonandi kemst þriðja árþúsundið að því að það er hann sem skiptir máli. Ég á von á að þriðja árþúsundið sýni umburðarlyndi gagnvart allri þessari mælsku tuttugustu aldarinnar, ekki síst vegna þess hvað hún er merkingar- lítil. Menn eru alltaf að uppgötva nýja hluti, en venjulegur skilningur hins venjulega manns heldur velli eftir að margar heim- spekikenningar eru fallnar. Því meira sem menn eiga af heilbrigðri skynsemi, því betra. En satt að segja var hún sjaldnast í hávegum höfð á minni tíð og ekki alltaf hátt metin meðal spekinga og spámanna fortíð- arinnar. Flestir gáfumenn á minni öld álitu að heimspekin byrjaði þegar menn yxu upp úr því að notast við venjulega skynsemi og byrjuðu að nota löng, flókin og lærð orð um veröld sem þeir sáu þó aðeins í þoku. Von- andi skilja menn á þriðja árþúsundinu að það að vaxa frá fyrri sjónarmiðum er ekki það sama og að hætta að nota skynsemina, þvert á móti, hana verður að nota í auknum mæli. Á minni öld hæddust menn ekki meira að neinu orði en orðinu sannleikur. Þessir menn sögðu að enginn sannleikur væri til vegna þess að hann væri tilbúinn af ólíkum einstaklingum við ólíkar aðstæður. En auð- vitað er það ekki sama og að enginn sann- leikur sé til. Hér er aðeins um mismunandi túkun á veruleikanum að ræða. Ný dögun er veruleiki og hættir ekki að vera veruleiki þó að þúsund skáld lýsi henni á þúsund vegu. Sannleikur eða veruleiki minnkar ekki við það að stór hluti hans hlýtur alltaf að vera handan orðanna og handan mann- legra takmarkana. Regndropinn gerir meira fyrir jörðina en stórfljótið. Fljótið sem rennur í föstum far- vegi til sjávar gerir minna gagn fyrir þyrsta jörð en regnið. Hugsanir manna sem falla eins og stórfljót í þröngu gljúfri gera heim- inum ekki sama gagn og hugsun hins frjálsa skapandi manns sem er laus úr hlekkjum gamalla fordóma. Dómgirni var höf- uðeinkenni hugsunar manna í fortíð okkar. Margt bendir til þess að sköpun og lífsgildi verði leiðarstjörnur hins nýja árþúsunds. Stórfljótið í gljúfrinu okkar fæst um þessar mundir aðallega við það að bæta tölvuna með nýjum forskriftum og fullkomna Netið. En þeir eru fáir sem hafa áhuga á að leiða anda mannsins til meiri þroska. Samt eru það einmitt þeir sem eru regnið sem fellur á þyrsta jörð. Er það ekki augljóst að það ætti að vera þroski mannsins sem skiptir hann sjálfan mestu máli? Á öldinni sem leið birt- ist nær öll hugsun gáfumanna í kappræðum, sem þeir oftast nefndu rökræður, til þess að breiða yfir vanþroskað eðli þeirra. Aðal- atriðið í þessum kappræðum var ævinlega að sigra, ekki að komast að hinu sanna eða skynsamlega. Þekkingarleit er annars eðlis, þar skiptir sigur eða tap í kappræðu ekki máli. Hún er meira í ætt við gljúfrið en regnið. Þrönghyggja er aldrei líkleg til þess að leiða til andlegs vaxtar. Það er betra að hlusta en setja fram af kappi einstrengings- leg sjónarmið. Það er lífsnautn að nota öll skilningarvit og skilningsgleðin er líka lífs- nautn. Einfaldir hlutir eru lífsnautn. Að vakna á morgnana og finna lykt af kaffi og ristuðu brauði í eldhúsinu, faðma að sér elskuna sína, hlusta á morgunútvarpið, gá til veðurs og virða himininn fyrir sér, borg- ina og fjarlæg fjöll, borða morgunmatinn. Við beitum öllum skilningarvitum okkar til að njóta þessara hversdagslegu hluta. Og þau eru grundvöllur hugsunar okkar, þau skapa hugmyndir okkar um tíma og rúm og þau tengja fortíð og framtíð líðandi stund. Þegar milljónir manna fylgja vitleysu valdamanna nákvæmlega annaðhvort vegna hópsefjunar eða ótta breytist þessi fjöldi í aftökusveit sem auðvelt er að nota gegn heiðarlegum mönnum sem reyna að hugsa af einhverju viti. Allir kristnir söfnuðir for- tíðarinnar voru einhvern tímann bann- færðir af þessum sökum. Trúarleg valdboð komu oft frá illa menntuðum, jafnvel ólæs- um, biskupum og margir lærðir en valda- lausir menn vissu betur og skildu betur. Þeim var það lífsháski að segja satt og tala viturlega eða vera trúir hinum upphaflega boðskap Krists eftir því sem þeir þóttust best þekkja hann. Valdið þoldi enga and- stöðu og allir sem hlýddu ekki skilyrðislaust voru brennimerktir. Þeim var gefið ákveðið nafn. Síðan sömdu menn lög um að allir sem kallaðir voru þessu nafni með réttu eða röngu yrðu réttdræpir eða þeir niðurlægðir og hunsaðir. Menn þurfa ekki að vera fróðir í sögu til að sjá að þetta er rauði þráðurinn í svörtustu köflunum í sögu allra trúar- bragða. Þetta er líka rauði þráðurinn í svörtustu köflum í öllum stjórnmálahreyf- ingum heimsins í fortíðinni. Megum við ekki gera okkur vonir um að við förum ekki með þennan arf með okkur inn í þriðja árþús- undið eftir Krist? Megum við vona að til verði valdhafar sem taka réttum rökum í stað þess að krefjast skilyrðislausrar hlýðni og undirgefni? Menn skilja nú að valdhafar tuttugustu aldarinnar höfðu ekki áhuga á verkalýð eða almenningi til annars en að koma sjálfum sér til valda með þeirra stuðn- ingi. Þá varðaði í raun hvorki fyrir né eftir valdatökuna um hagsmuni almennings, hins vinnandi manns eins og það var kallað á öld- inni sem leið. En almenningur var látinn trúa því að hagsmunir hópsins sem barðist til valda og hagsmunir þeirra sem voru not- aðir færu saman. Það gerðist aldrei á tutt- ugustu öld. Eftir að valdamaður var búinn að hreiðra um sig og festa sig í sessi var öll gagnrýni barin niður miskunnarlaust. Það sem einkenndi pólitísk réttarhöld á tutt- ugustu öld og trúarleg réttarhöld á miðöld- um var hið sama: Sakborningurinn fékk ekki að ráða því hvaða skoðanir hann hafði. Dómararnir þóttust alltaf vita betur um hans eigin raunverulegu skoðanir. Þess vegna var margur mætur maður dæmdur og líflátinn fyrir skoðanir sem hann hafði ekki. Valdhafinn gerði honum upp skoðanir sem hann taldi refsiverðar og dæmdi hann á þeim gjörfölsuðu forsendum. Málfrelsið var ekki til í raun og réttarfarið oft flugeldasýn- ing hinna lærðustu siðleysingja. AÐ GERA MÖNNUM UPP SKOÐANIR RABB G U N N A R D A L TÓMAS GUÐMUNDSSON SIGLING Undir haustdökkvum himni er húmið þöglast á sænum, burt frá heimskunnar hlátrum held ég einn út frá bænum. Ég leysi festar og fley mitt und fullum seglum rennur beint út í nóttina. Himinn og haf í hjarnköldum loga brennur. Ljóðhreimar liðinnar ævi leiftra á bárunnar földum. Gleymdar ástir, syndir og sorg sindra í geislunum köldum. – Hvað heyri ég? Feigs manns hlátra? – Á hafinu vofur reika! Og öldurnar fallast í faðma við fleyið mánableika. Tómas Guðmundsson hefði orðið hundrað ára í dag en hann var fæddur 6. janúar árið 1901 á Efri-Brú í Grímsnesi. Ljóðið Sigling hefur ekki áður birst á prenti en í dag kemur út hjá Máli og menningu bókin Síðbúin kveðja sem inni- heldur áður óbirt efni eftir Tómas. Ljóðið er ort 17. nóvember 1919 en í at- hugasemd höfundarins við það sem dagsett er 6. júní 1924 segir: Af vangá virðist þetta kvæði til orðið.FORSÍÐUMYNDIN Tómas Guðmundsson skáld. Ljósmynd: Ólafur K. Magnússon. Gersemar Vínarborgar eru margar eins og allir vita sem til þekkja, skrifar Bragi Ásgeirsson. Hallirnar Belvedere og Schönbrunn víðfrægar fyrir reisn og fegurð. Listasöfnin mörg og róm- uð, gnægtarbrunnur fagurkera, og ekki er húsagerðarlistin síðri. Stefánsdómurinn, þó einkum hverfið umhverfis hana, segull sem dregur fjöldann til sín og aldrei sefur. Núll Er núll núll? spyr Erlendur Jónsson í svar- grein við núllrabbi Gunnars Dals hér í Les- bókinni fyrir skömmu. Sýnist Erlendi að Gunnar rugli saman fimm eða sex hlutum eða hugtökum í umfjöllun sinni. Jónas Jónsson Fyrsta för Jónasar Jónssonar frá Hriflu út í heiminn var til Ráðagerðis í Leiru á Reykja- nesi en þar dvaldist hann vetrarlangt við léttastörf. Gerður Steinþórsdóttir hefur gluggað í bréf sem Jónas skrifaði syst- kinum sínum meðan á dvölinni stóð. Tómas Guðmundsson hefði orðið hundrað ára í dag en hann var fæddur á Efri-Brú í Grímsnesi 6. janúar ár- ið 1901. Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um skáldið og verk þess. Þar segir meðal annars: „Tómas Guðmundsson er Reykja- víkurskáldið. Skáldið sem fann sér efnivið til ljóðrænnar tjáningar í borginni, þessari sódómu sem fá skáld höfðu sér látið til hug- ar koma að byggi yfir fegurð sem tjá mætti í ljóðrænum hendingum í bundnu máli.“ LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 1 . T Ö L U B L A Ð - 7 6 . Á R G A N G U R EFNI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.