Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001 7 En seinast, þegar eyðublöðin entust mér ei lengur, hvað átti ég þá framar við skrifstofu að gera? Með kærri þökk fyrir viðskiptin ég kunngerði eins og gengur, að cand. jur. Tómas Guðmundsson væri hættur að praktisera. Í gamankvæðunum hendir Tómas einna helst gaman að sjálfum sér og lítur þá gjarnan til baka og gerir góðlátlegt grín að ungæð- ishætti sjálfs sín og vina sinna, ekki síst í ást- armálum og háleitum skáldadraumum. Í Stjörnum vorsins er einnig að finna ljóð sem jafnvel má flokka sem pólitísk ádeilu- kvæði, þótt Tómas hafi yfirleitt verið frábrugð- inn því að gera ljóðlistina að vettvangi dæg- urþrassins og stjórnmálanna. Hér má nefna kvæðið „Jerúsalemsdóttir“ þar sem ráðist er að kynþáttahyggju nazismans. Gegn sömu mannhatursstefnu snerist hann víða í óbundnu máli. Áður hefur verið minnst á ljóðabókina Fljót- ið helga (1950) en í þeirri bók kveður við dekkri tón en áður í ljóðum Tómasar og mun það hafa orsakast öðrum þræði af þeirri trú hans að bókin yrði hans síðasta, enda hafði heilsa hans verið í hættu á þeim tíma sem hann vann að bókinni. Feigðargrunurinn er áleitinn í mörg- um ljóðanna, sem sum hver eru máttug og djúphugul íhugun um tímann og eilífðina sem eru tákngerð í hinni yfirskipuðu mynd bók- arinnar: Fljótinu sem vísað er til í titlinum. Þá er enn ónefnd gullfallegur ljóðabálkur Tómasar sem hann orti út frá Mjallhvítaræv- intýrinu og gaf hann sögunni almenna skír- skotun í ljóðum bálksins sem er snilldarlega ortur í alla staði. Það fór þó ekki svo að Fljótið helga yrði síð- asta ljóðabók Tómasar. Hann fékkst þó að- allega við skrif í óbundu máli næstu tvo áratug- ina og birti ótal sögulega þætti og ritgerðir um skáld og listamenn, skrifaði ævisögu Ásgríms Jónssonar málara og fékkst við þýðingar. Árið 1977 kom síðan út síðasta ljóðabók hans, Heim til þín, Ísland. Bókin hefur meðal annars að geyma fjölda hátíðarljóða, svo og ættjarðar- ljóða og er það mat manna að í þeim ljóðum Tómasar hafi íslenska ættjarðarljóðið gengið í endurnýjun lífdaga. Titilljóð bókarinnar er ort í tilefni af þjóðhátíðarárinu 1974 og flutti skáldið ljóðið á þjóðhátíðinni á Þingvöllum í júlí 1974. „Fegurðardýrkandi án samnínga“ Þeir sem ritað hafa um ljóðlist Tómasar Guðmundssonar hafa flestir lagt áherslu á þá miklu endurnýjun ljóðmálsins sem skáldskap- ur hans býr yfir og þarf enginn að velkjast í vafa um réttmæti þeirrar áherslu. Einnig hef- ur verið bent á sterkt innra samhengi höfund- arverks hans sem lesendur geta sannreynt með því að lesa heildarsafn ljóða hans frá upp- hafi til enda. En þótt samhengið sé sannarlega fyrir hendi vekur ekki síður eftirtekt sú mikla fjölbreytni sem ljóðasafnið í heild býr yfir og ég vænti að hafi komið fram í þessari sam- antekt. Tómas Guðmundsson ræktaði íslenskt mál á nýskapandi hátt og náði í þeirri viðleitni sinni einstökum árangri. Matthías Johannessen (og aðrir) hafa líkt honum við Jónas Hallgrímsson því báðum tókst þessum skáldum að laga skáldmál sitt að málfari síns tíma með ein- stökum árangri. Matthías segir: „Og báðir lað- ast að nýjum viðfangsefnum, slá nýja tóna á gamla hörpu. Uppruni þeirra, viðhorf og menntun er af sama toga. Og þá ekki sízt virð- ingin fyrir vönduðum vinnubrögðum. Mestar kröfur gera þeir báðir til sjálfs sín. Milli þess- ara ljóðskálda liggur silfurþráður tveggja alda: fegurðin ofar hverri kröfu, listræn vinnubrögð, nýsköpun. Halldór Laxness setur fram svip- aðar skoðanir á ljóðagerð Tómasar í dómi sín- um um Fögru veröld: „Hann er fegurðardýrk- andi án samnínga, form hans er inntak hans, heimur hans alt það sem samrýmist kröfum ljóðsins, og það eitt, – jafnvel svo að skynjunin nálgast dulhygli. Mál hans er yfirleitt vandað og hreint, stundum svo dýrt að undrum sætir.“ Á aldarafmæli skáldsins hvet ég lesendur til að endurnýja kynni sín af ljóðum Tómasar eða láta verða af því að kynnast þeim í fyrsta sinn; af þeim kynnum ættu flestir að hafa mikla ánægju. Morgunblaðið/Ólafur K. MagnússonBorgarskáldið í hjarta borgar sinnar, við gatnamót Lækjargötu, Austurstrætis og Bankastrætis. Höfundur er bókmenntafræðingur og gagnrýnandi á Morgunblaðinu. „Það sem Tómas hefir fyrst og fremst gert til endurnýjunar íslenzku skáldamáli er að skapa töluðu máli, eins og það er borgarleg- ast, persónulegan skáldskaparstíl og í ann- an stað að gæða rómantískt, hefðbundið skáldamál mýkt, hrynjandi og nálægum tón talaðs máls. Hvort tveggja er ómetanlega mikils virði, en þó er hið fyrra enn nýstár- legri uppgötvun í íslenzkum skáldskap. Borgarbúar tala öðruvísi en sveitafólk og jafnvel smábæjafólk. Því valda augljóslega ólíkir lifnaðarhættir, náin samvinna mikils fjölda manna, fjölbreytt líf og einkum meira samkvæmislíf. Sú sérstaka siðmenning, sem skapast í borgum, átti ekki fyrr sjálfstæða rödd í íslenzkri ljóðagerð, nema sem berg- mál frá erlendum stórborgum, þar sem ís- lenzk skáld höfðust við. (Kristján Karlsson, „Um ljóðagerð Tóm- asar Guðmundssonar 1961“.) Nálægur tónn talaðs máls „Við, sem höfum lært að líta á Fögru veröld Tómasar Guðmundssonar og önnur ljóð hans sem þátt í listrænu uppeldi okkar, allt frá því að við vorum í barnaskóla, eigum kannski erfitt með að átta okkur á, hve ný- breytni hennar var í raun og sannleika mik- il, þeim hlýja blæ, sem hún bar með sér inn í íslenzkt menningarlíf. Þess vegna verðum við líka að gera okkur ljóst, að það þurfti hugrekki til að yrkja eins og Tómas gerði á fjórða tug aldarinnar og síðar. Þau skáld eiga, þegar á allt er litið, mestan heiður skil- inn, sem ekki gleyma listrænu hlutverki sínu, hvernig sem vindarnir láta; hve fljótt fyrnist ekki eða brennur í eigin eldi það, sem háværast er og trúast þjóðfélagslegum kröf- um um þjónustu ljóðsins við stundarkenn- ingar stjórnmálanna.“ (Jóhann Hjálmarsson, Íslenzk nútíma- ljóðlist 1971.) Hugrekki „Í stað þess að yrkja um sögu Reykjavík- ur og afsaka nútíð hennar, yrkir Tómas bæði fagnandi lofsöngva og ástúðlega gagnrýni um borgina eins og hún er. Og hann yrkir ekki einungis um þá nýju ís- lenzku fegurð, sem stræti hennar, höfn, malbik og garðar hafa að geyma, heldur einnig um athafnalíf hennar, örlög og hætti bæjarbúa. Segja má, að tími hafi verið til kominn og að Tómas hafi komið á réttum tíma. Reykjavík var um það bil orðin borg og þurfti að mynda sér hug- myndir um sjálfa sig. Eins og hjá ung- lingi á gelgjuskeiði voru hugmyndir henn- ar um útlit sitt dálítið óvissar. Hvað var þá meira virði en uppgötva hreina nýja fegurð í því sem helzt þótti ábótavant í nýrri stórborg? (Kristján Karlsson, „Um ljóðagerð Tómasar Guðmundssonar 1961“.) Tómas kom á réttum tíma

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.