Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.2001, Page 19
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JANÚAR 2001 19
Þ
RÍR gítarkvintettar verða á
efnisskrá tónleika sem haldnir
verða í Hafnarborg sunnudag-
inn 7. Janúar. Það er gítarleik-
arinn Arnaldur Arnarson sem
leikur kvintettana ásamt Sif
Tulinius fiðluleikara, Júlíönu
Elínu Kjartansdóttur fiðluleik-
ara, Margréti Theodóru Hjaltested lágfiðlu-
leikara og Ásdísi Arnardóttur sellóleikara.
Verkin sem leikin verða á tónleikunum eru
Kvintett í e-moll, G.451 eftir Luigi Boccher-
ini (1743–1805), Gran Quitetto op. 65 eftir
Mauro Giuliani (1781–1829) og Quitette op.
143 eftir Castelnuovo-Tedesco (1895–1968).
Arnaldur Arnarson hefur búið í Barcelona
undanfarin sextán ár og er nú einn virtasti
gítarkennari á Spáni. Hann leikur einleik og
kammertónlist jöfnum höndum og er með-
limur í nútímatónlistarhópnum Ensemble
Barcelona Nova Musica. Hljómdiskur með
leik hans sem út kom árið 1999 hefur hlotið
einróma lof gagnrýnenda á Íslandi og er-
lendis. Hann hélt síðast tónleika hér á landi
á Myrkum músíkdögum í janúar 1999 og var
þá eingöngu með íslenska dagskrá. Auk þess
kom Arnaldur fram á tóleikum í Mývatns-
sveit í júlí síðastliðnum – fyrir tilviljun, eins
og hann segir. „Ég ætlaði ekkert að spila
hér heima í sumar, en svo var hringt í mig
og ég beðinn um að hlaupa í skarðið fyrir
annan hljóðfæraleikara eftir viku. Þetta var
að vísu nokkuð skammur fyrirvari en mér
leist vel á að gera þetta. Að vísu var brúð-
kaup hjá frænku minni þennan sama dag,
svo skipulagið þurfti að ganga upp. En ég
náði að komast í brúðkaupið, snarast síðan
út á flugvöll til að fljúga norður og náði á
staðinn rétt áður en tónleikarnir hófust.“
Ólík tónskáld
Hvað geturðu sagt okkur um tónskáldin
og verkin sem þú ætlar að leika á tónleik-
unum í Hafnarborg á sunnudaginn?
„Elsta verkið er eftir ítalska tónskáldið og
sellósnillinginn Luigi Boccherini og er frá
því seint á 18. öldinni. Boccherini var uppi á
svipuðum tíma og Mozart og var árið 1770
ráðinn að hirðinni í Madrid sem virtuoso di
camera e compositor di musica. Þar samdi
hann m.a. mikinn fjölda kammerverka, þar á
meðal strengjakvintetta fyrstur manna. Al-
gengust hljóðfæraskipan var fyrir hinn hefð-
bundna strengjakvartett, tvær fiðlur, lág-
fiðlu og selló með annað selló sem fimmta
hljóðfæri. Stundum var það þó önnur lág-
fiðla, píanó, flauta, óbó, bassi eða gítar. Trú-
lega samdi Boccerini tíu gítarkvintetta en
tveir þeirra eru glataðir. Boccherini var uppi
á svipuðum tíma og Mozart og kvintettinn
sem ég leik á sunnudaginn er glaðlegur, leik-
andi og léttur. Í honum er einn hægur kafli
en þó ekki tregafullur. Þetta er mjög ljóð-
ræn og fáguð tónlist.
Mauro Giuliani var afburðagítarleikari og
afkastamikið tónskáld. Hann samdi fjölda
einleiksverka fyrir gítar, þrjá konserta auk
samleiksverka.
Gran Quintetto op. 65 hefst með inngangi
fyrir strengina. Þá eru tilbrigði um Nel cuor
piú non mi sento úr óperunni La Molinara
eftir Paisiello og verkinu lýkur á glæsilegum
Polonaiseþætti með gítarinn í aðalhlutverki.
Þetta er mjög glæsilegt verk og krefjandi
fyrir gítarinn.
Ítalinn Mario Castelnuovo-Tedesco fædd-
ist í Flórens. Hann var af ættum gyðinga af
spænskum uppruna og flúði til Bandaríkj-
anna árið 1939 með konu sinni og tveimur
ungum sonum. Hann settist að í Hollywood
og samdi tónlist við fjölda kvikmynda auk
annarra verka, þ.á m. sjö óperur og yfir
þrjúhundruð verk fyrir gítar. Kvikmynda-
tónlistina kallaði hann matjurtirnar sínar en
aðra tónlist blómin sín. Meðal aðdáenda
Castelnuovo-Tedesco voru Gieseking, Hei-
fetz, Toscanini og Segovia sem fluttu og
stjórnuðu verkum hans reglulega. Hann var
afkastamikið tónskáld, mikill fagurkeri og
mjög ljóðrænn Að mínum dómi er kvintett-
inn sem við leikum eftir hann mjög glæsilegt
kammerverk. Þar eru miklar kröfur gerðar
til strengjakvartettsins sem hefur mikið
hlutverk. Það eru miklar tilfinningalegar
andstæður í þessu verki, bæði eldlegar
ástríður og djúpur tregi, en líka geislandi
léttleiki.
Það er svo merkilegt að það er alltaf ein-
hver tregi í tónlist gyðinga.
Kannski vegna þess að þeir virðast hvergi
eiga heima, þótt þeir eigi heima alls staðar.
Eftir stríðið vannst til dæmis Castelnuovo-
Tedesco hann alltaf vera gestur þegar hann
kom til Ítalíu en í Bandaríkjunum fannst
honum hann vera Ítali.“
Aftur tekinn til við tónleikaferðir
Það hefur verið nóg að gera hjá Arnaldi
síðustu mánuðina. Auk þess að æfa fyrir tón-
leikana í Hafnarborg, er hann að æfa fyrir
tónleika hjá Kammersveit Reykjavíkur sem
verða haldnir seinna í janúar. Hann er með-
limur í Ensemble Barcelona Nova Musica
sem hann segir vera svipaðan Caput-hópn-
um hér á landi. „Þetta er lítill tónlistarhópur
sem sérhæfir sig í nútímatónlist. Ég hef ver-
ið töluvert á tónleikaferðalögum með þeim,
bæði á Spáni og erlendis,“ segir Arnaldur og
þegar hann er spurður hvort hann geri mikið
af því að halda tónleika erlendis, segist hann
vera byrjaður á því aftur. „Ég á dóttur sem
er að verða fimm ára og þegar hún fæddist,
ákvað ég að taka mér frí frá ferðalögum og
það er ekki fyrr en núna í haust sem ég
byrjaði aftur að fara í tónleikaferðir.“
Auk þessa hefur Arnaldur átt sæti í fjöl-
mörgum dómnefndum í alþjóðlegum gítar-
keppnum en hann er sem fyrr segir einn
virtasti gítarkennari Spánar. Í vetur hefur
hann tíu nemendur, þar af tvo íslenska en
hinir eru frá Danmörku, Kólumbíu, Portúgal
og Spáni og eru þeir allir annað hvort á há-
skólastigi eða í framhaldsnámi eftir háskóla-
próf. Arnaldur segir þó skólann vera með öll
námsstig, allt frá börnum á forskólastigi.
Nú eru Spánverjar ein af mestu gítarþjóð-
um heims. Er ekkert sérkennilegt að Íslend-
ingur sé að kenna þeim á gítar?
„Það finnst Spánverjum ekki. Þeim finnst
það ekkert skrítnara en ef ég væri að kenna
þeim á eitthvert annað hljóðfæri eða söng.
Menn yrðu kannski undrandi ef ég væri að
kenna þeim flamingo gítarhefð. Það væri
eins og að fá Spánverja til að kenna okkur
rímur. Annars eru til mjög góðir kennarar í
flamingo gítarhefðinni sem ekki koma frá
Spáni.“
Hefur lengi langað til að leika kamm-
ertónlist hér á landi
Hvað réð verkefnavalinu hjá ykkur á tón-
leikunum næstkomandi sunnudag?
„Gítarkvintettar hafa aldrei verið leiknir
hér á landi áður. Það hefur að vísu ekki veð
mikið um starfandi strengjakvartetta á Ís-
landi og því ekki hlaupið að því að æfa upp
svona efnisskrá. Tónleikarnir á sunnudaginn
eru einfaldlega framtak hjá mér og stöllum
mínum. Mig hefur lengi langað til þess að
leika kammertónlist hér á landi og þessir
kvintettar eru mjög falleg og skemmtileg
tónlist.“
Hver eru tengsl þín við strengjakvartett-
inn?
„Sellóleikarinn, Ásdís, er systir mín og við
höfum spilað saman áður. Við höfum lengi
gengið með þá hugmynd að setja saman
kammerhóp, hvort heldur til að flytja þessa
tónlist, eða bara einhverja aðra og núna lét-
um við það verða að veruleika.“ Sif Tulinius
lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1991 og var síðan við nám í
Bandaríkjunum. Hún hefur komið þar fram
á mörgum tónlistarhátíðum og starfað við
flutning kammer- og nútímatónlistar austan
hafs og vestan. Hún tók við starfi annars
konsertmeistara við Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í nóvember síðastliðnum.
Júlíana Elín Kjartansdóttir hefur verið
fastráðin í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá
árinu 1981. Þá hafði hún nýlokið framhalds-
námi í Ósló og London hjá Leif Jörgensen,
Bela Katona og Manough Parikian. Auk
starfa í Sinfóníuhljómsveitinni hefur Júlíana
tekið þátt í fjölda kammertónleika, meðal
annars á vegum Kammersveitar Reykjavík-
ur og verið konsertmeistari í Kammersveit
Langholtskirkju.
Margrét Theodóra Hjaltested stundaði
nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, The
Juilliard School og The Mannes College of
Music í New York. Hún hefur komið fram
með ýmsum hljómsveitum og kammerhóp-
um, þar á meðal The Gotham City Baroque
Orchestra, The New Jersey Symphony og
The Opera Orchestra of New York. Margrét
kennir við tónlistardeild Queens College í
New York.
Ásdís Arnardóttir lauk mastersgráðu í
sellóleik frá Boston University árið 1995.
Hún hefur haldið tónleika á Íslandi, í Banda-
ríkjunum og á Spáni.
Ásdís starfar sem sellókennari við Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Hún hefur einnig starfað hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og leikur í dúói með Jóni
Sigurðssyni píanóleikara.
ELDLEGAR ÁSTRÍÐUR
OG DJÚPUR TREGI
Arnaldur Arnarson gít-
arleikari leikur þrjá gít-
arkvintetta á tónleikum í
Hafnarborg á sunnudag-
inn. Það er í fyrsta sinn
sem gítarkvintettar eru
leiknir hér á landi og
spjallaði SÚSANNA
SVAVARSDÓTTIR við
Arnald um kvintettana og
líf hans og störf á Spáni
þar sem hann er búsettur.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Arnaldur Arnarson gítarleikari ásamt strengjakvartettinum sem leikur með honum í Hafnarborg á sunnudag.