Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Page 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JANÚAR 2001 A ÐDRAGANDINN að þessu samtali okkar Arnars er orðinn nokkuð langur. Við hittumst seint í sumar þar sem hann lét fara vel um sig í sumarhúsi fjölskyld- unnar austur í Biskups- tungum og sátum þar lengi dags og ræddum feril Arnars vítt og breitt. Niðurstaðan úr því samtali var að hittast aftur þegar leikárið væri komið á fullt skrið en Arnar var þá á förum á heimssýninguna í Hannover þar sem sýning Þjóðleikhússins á Sjálfstæðu fólki var framlag Íslands til menningardag- skrár sýningarinnar. Arnar var sem kunnugt er í hlutverki Bjarts í seinni sýningunni er nefndist Ásta Sóllilja. Í kjölfar þess voru tekn- ar upp sýningar að nýju á Sjálfstæðu fólki í Þjóðleikhúsinu og síðan hófust æfingar á jóla- verkefninu Antigónu þar sem Arnar fer með annað aðalhlutverkanna, Kreon konung í Þebu. Er það einróma álit þeirra er séð hafa að Arnar staðfesti þar enn einu sinni styrk sinn sem skapgerðarleikari. Alinn upp í leikhúsinu Arnar Jónsson birtist fyrst á sviði í atvinnu- leikhúsi haustið 1963 í hlutverki Leslie Willi- ams í leikritinu Gísl eftir Brendan Behan í Þjóðleikhúsinu. Arnar var þá 21 árs gamall nemi í leiklistarskóla Þjóðleikhússins og út- skrifaðist þaðan vorið 1964. Hann vakti strax óskipta athygli og varð á skömmum tíma ein helsta vonarstjarna íslensks leikhúss og lék fjölda hlutverka bæði hjá Leikfélagi Reykja- víkur og Þjóðleikhúsinu uns hann flutti sig á æskuslóðirnar að nýju með eiginkonu sinni Þórhildi Þorleifsdóttur og starfaði með Leik- félagi Akureyrar um nokkurra ára skeið. Arnar á reyndar ekki langt að sækja leik- húsáhugann og steig á fjalir Leikfélags Ak- ureyrar barnungur. Faðir hans Jón Kristins- son var potturinn og pannan í starfsemi Leikfélags Akureyrar um áratugaskeið og seg- ir Arnar að hann og systir hans Helga (leik- kona og leikstjóri) hafi nánast verið alin upp í gamla samkomuhúsinu á Akureyri. Arnar hef- ur einnig við mörg tækifæri stigið á fjalir síns gamla leikhúss nú síðast fyrir fáum árum í sýn- ingunni Undir berum himni sem leikin var í Ketilhúsinu, húsnæði sem Leikfélagið hafði af- not af um skeið. Upp úr dvöl Arnars og Þórhildar á Akureyri 1970–75 varð Alþýðuleikhúsið til (1975) og tvær sýningar þess á Krummagulli og Skolla- leik eftir Böðvar Guðmundsson fleyttu ís- lensku leikhúsi áfram um nokkrar þingmanna- leiðir í listrænum skilningi. Eftir það starfaði Arnar með Alþýðuleikhúsinu Sunnandeild (1978–82) en réðst jafnframt á samning hjá Þjóðleikhúsinu (1978) þar sem hann hefur leik- ið mörg sín stærstu og merkustu hlutverk á seinni árum. Á sjöunda áratugnum starfaði Arnar einnig með leikhópnum Grímu og síðar Leik- smiðjunni, sjálfstæðir leikhópar þeirra tíma sem lögðu grunninn að mörgu því sem löngu er talið sjálfsagt og eðlilegt í vinnubrögðum og framsetningarmáta í hinu íslenska nútímaleik- húsi. Launamál í brennidepli Arnar hefur í haust verið upptekinn við samningamál fyrir hönd leikara Þjóðleikhúss- ins. Hann er ómyrkur í máli þegar hann ræðir launakjör leikara. „Það er ekki hægt að bjóða fólki byrjunarlaun upp á rétt um 100 þúsund krónur. Það er bara svo einfalt. En þetta eru engu að síður þær tölur sem við höfum fyrir framan okkur. Ungir leikarar í dag sem hafa lokið 4 ára námi á háskólastigi fá innan við 100 þúsund í byrjunarlaun, þ.e. um 600 krónur á tímann.“ Það kemur kannski einhverjum á óvart að leikari, sem náð hefur um 40 ára starfsaldri líkt og Arnar Jónsson, skuli vera með um 140 þúsund krónur í grunnlaun. „Það er ekki ýkja skemmtilegt að ræða launamál en þetta er grundvallaratriði þar sem allir komast á eftirlaun einhvern tíma og standa þá frammi fyrir því að lífeyrir hrekkur ekki fyrir nauð- þurftum – þetta gengur bara ekki upp.“ Leikarar við Þjóðleikhúsið hafa um nokk- urra ára skeið haft samningamál sín í eigin höndum undir heitinu Leikarafélag Íslands og er nokkurs konar deild úr heildarsamtökum leikara FÍL, Félagi íslenskra leikara. Á sama hátt semja fastráðnir leikarar Borgarleikhúss- ins við sinn vinnuveitanda. Arnar Jónsson og Randver Þorláksson hafa séð um samningamál fyrir hönd Þjóðleikhúsleikara við stjórn leik- hússins. „Í bili gengur hvorki né rekur en vonandi kemst skriður á þau mál fljótlega.“ Endurreisa virðingu fyrir starfinu Núverandi launakerfi er þannig byggt upp að annars vegar eru grunnlaunin og hins vegar sýningarlaun. Sýningarlaun eru greiðsla til leikarans fyrir hverja sýningu, nánast hugsuð eins og yfirvinnulaun ofan á dagvinnu. Arnar bendir á að með þessu fyrirkomulagi séu leik- arar á grunnlaunum sínum eingöngu allt að 5 mánuði á ári þar sem sýningar liggja niðri yfir sumartímann. „Ef hægt væri að breyta þessum samningum þannig að kjörin yrðu mannsæmandi þá gætu leikarar hætt að vera eins og útspýtt hund- skinn um allar jarðir við að afla sér aukatekna. Þetta kemur verulega niður á starfinu hér í húsinu þar sem það ástand er fremur regla en undantekning að ekki er hægt að æfa sýningar með fulla áhöfn þar sem einhverjir eru alltaf uppteknir í aukavinnu úti í bæ. Þessi launabar- átta núna snýst um að endurreisa sjálfsvirð- ingu leikara og virðingu almennt fyrir starfinu. Listamenn eru í orði hafnir til skýjanna en á borði eru þeir flestir með lúsarlaun ef þeir fá þá yfirleitt borgað fyrir sína vinnu. Við höfum ekki borið gæfu til að sinna listinni nema með hálfum huga og það er slæmt því í okkur býr mikill sköpunarkraftur sem hefur fengið merkilega mikla útrás þrátt fyrir slæm skil- yrði.“ Með reynslunni eykst þolinmæðin Leikarar hafa löngum farið undan í flæmingi þegar spurt er hvernig þeir skapi persónur sín- ar. Hvernig þeir finni leiðina til túlkunar leik- persónunnar. Arnar er engin undantekning hér á þótt hann geri heiðarlega tilraun til að út- skýra hvernig þetta gengur fyrir sig með lík- ingamáli. „Þetta er eins og veiðiskapur. Ef beð- ið er nógu lengi þá bítur eitthvað á. Mér líkar vel að vinna þannig að prófa ýmislegt á æfinga- tímanum og gefa mér góðan tíma. Með árunum hefur mér lærst að vera þolinmóður, heimta ekki fullskapaða persónu af sjálfum mér of fljótt heldur treysta því að hún birtist um síð. Maður prófar ýmislegt og er iðulega orðinn margfróður um persónuna, bakgrunn hennar og umhverfi áður en lýkur,“ segir hann og bæt- ir við í hjartans einlægni. „Annars hef ég ekki hugmynd um hvernig ég fer að þessu.“ Ég spyr hann um Kreon, konung Þebu, goð- sögulega persónu í 2500 ára gömlu leikriti. Kreon er gott dæmi um harmræna leikper- sónu. Hann telur sig í upphafi hafa heiminn í greip sinni en gjörðir hans verða til þess að í leikslok stendur hann yfir líkum sonar síns og eiginkonu, auk Antígónu, væntanlegrar tengdadóttur sinnar. Hvernig fer Arnar að því að nálgast slíka persónu sem sprottin er úr allt öðrum jarðvegi en við þekkjum í dag. „Í fyrsta lagi verður maður að ýta frá sér öllu sem sagt hefur verið og skrifað um persónuna. Maður verður að nálgast hana alveg ósnerta. Leyfa sjálfum sér að upplifa hana í fyrsta sinn. Hann hefur vissulega goðsögulega stærð en manninn Kreon get ég og aðrir nútímamenn vel skilið. Hann er fjölskyldumaður, hann tek- ur afdrifaríka ákvörðun í krafti valds síns og af- leiðingarnar eru skelfilegar fyrir hann per- sónulega. Þetta er hægt að máta sig við. Texti verksins er auðvitað frábrugðinn texta nútíma- leikrita. Hann lyftir verkinu upp á annað plan og í mínum huga verður það tærara og allar lín- ur þess skarpari fyrir vikið. Textinn er eins og höggvinn í marmara, meitlaður og fágaður.“ Ætlar þessu aldrei að linna? Á undanförnum misserum höfum við séð Arnar takast á við hvert stórhlutverkið á fætur öðru. Abel Snorko í samnefndu leikriti, Þeiseif konung í Fedru eftir Racine og Bjart í Sum- arhúsum í Sjálfstæðu fólki einnig í leikgerð Kjartans Ragnarssonar. Mörg fleiri minnis- stæð hlutverk mætti nefna enda skipta þau orðið hundruðum hlutverkin sem Arnar hefur leikið fyrir leikhús, kvikmyndir, sjónvarp og útvarp. Hann segir um samstarf þeirra Kjart- ans Ragnarssonar sem nú hefur skilað mark- verðum árangri í tvígang: „Okkur Kjartani fellur vel að vinna saman. Á milli okkar er þráður og það þarf ekki alltaf mörg orð. Mér leiðist þegar öllu er drekkt í málæði og útskýringum. Ef traust ríkir á milli leikara og leikstjóra nægir oft að maður finni að leikstjórinn viti hvað maður er að reyna til að geta haldið áfram.“ Arnar segist að öðru leyti ekki setja traust sitt svo mjög á leikstjóra. „Ég treysti meira á sjálfan mig. Mér hefur ekki alltaf fundist ég fá innblástur frá þeim leik- stjórum sem ég vinn með. Fremur frá meðleik- urum og þeim anda sem leikritið og hlutverkið blæs mér í brjóst.“ Hann staldrar við þegar ég spyr hvort hann líti svo á að einhvers konar kreppa eða skortur á leikstjórum hái íslensku leikhúsi. „Að vissu leyti já. Það hefur skort markvisst uppeldi, samfellu og samhengi í vinnu þeirra, enda er leikstjórn kannski ekki fýsilegt starf þegar unglingadýrkunin gengur út í þær öfgar að slá fólk af um fertugt.. Ég hef ekkert á móti þeim sem eru að byrja. En þetta þarf að haldast hönd í hönd. Sjálfur get ég kennt þeim sem eru byrja í leikstjórn meira en þeir geta kennt mér. Það er eðlilegt og þannig hefur það alltaf verið. En reyndur leikari þarf líka sína glímu og hana getur óreyndur byrjandi varla gengið í með honum. Og það er sláandi dæmi um rangt upp- eldi þegar ungir og óreyndir drengir fá að æfa sig á uppsetningu stórra og viðamikilla sýn- inga, þar á meðal á sígildum leikbókmenntum og síðan er hverju klúðrinu af öðru hampað af óöruggum gagnrýnendum sem ekki vilja láta það spyrjast um sig að þeir séu ekki í „inn lið- inu“. Og maður spyr, „Ætlar þessu aldrei að linna?“ Hann dregur djúpt andann og lækkar róm- LEGGUR SJÁLFAN SIG SÍFELLT AÐ VEÐI Einn af okkar þekktustu og virtustu leikurum er án efa Arnar Jónsson. Hann stendur nú á hátindi ferils síns, hefur leikið hvert stórhlutverkið af öðru og nú síðast Kreon í Antígónu sem frumsýnt var á jólum í Þjóðleik- húsinu. HÁVAR SIGURJÓNSSON átti samtal við Arnar um hinar ýmsu hliðar lífs leikhúslistamannsins. Arnar sem Þorleifur Kortsson í Skollaleik Alþýðuleikhússins 1976.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.