Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Qupperneq 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JANÚAR 2001
É
G, nútímamanneskjan (hver sem
hún nú er), ferðast um heiminn
með minn rómantíska farangur. Í
þessum farangri er að finna hug-
myndir um borgir og náttúru,
hugmyndir sem lýsa náttúrunni
sem lifandi, frjósamri og síbreyti-
legri, öfugt við óhreyfanlega og
harða borgina sem steinsteypt og stálslegin er líf-
laus óbyrja. Þessi farangur veldur mér miklu
angri – og er því í raun far angur – því ég er borg-
arbarn með steinsteypuhjarta og ofnæmi fyrir
frjósemi náttúrunnar. Lífríki náttúrunnar er mér
því ekki aðeins óskiljanlegt heldur einnig líkam-
lega óþolandi og oft hafa mér fundist allar bjargir
bannaðar og óttast að líkt og í ljóði Einars Más
myndi ég hvorki finna líf á þessari plánetu né öðr-
um.
Hægt og hægt hef ég lyft af mér fargi róm-
antíkurinnar og barist við að upplifa borgir eins
og mér er í raun eðlislægt (sbr. steinsteypuhjart-
að), sem lifandi, frjóar og síbreytilegar. Ég hef
flogið borg úr borg, setið í lestum sem smjúga
neðanjarðar um rætur borga og gengið borgir
upp að hnjám. Borgir með sögu, borgir fæddar á
teikniborði, borgir sem eru umskapaðar í skáld-
sögu, ósýnilegar borgir, horfnar borgir, friðaðar
borgir, stórborgir. Allar voru þessar borgir lif-
andi og síbreytilegar en engin þó eins og spila-
borgin Hong Kong, borg borganna; borg með
sögu, tilbúin borg, skrifuð og endurskrifuð, ósýni-
leg, horfin og stór.
Sögustund: Það var árið 1841, í einu af ópíum-
stríðum Englendinga og Kínverja, að kafteinn
Charles Elliott eignaði stoltur eyjuna HongKong
(hina ilmandi höfn) drottningu sinni. Sem varð
ekki par hrifin, kallaði eyjuna örfoka klett og illa
staðsetta í þokkabót; þingið hafði óskað henni (og
breska ríkinu) eyjar utan við Sjanghæ. En þrátt
fyrir að kafteinn Elliott hafi klikkað dálítið á
landakortinu voru Englendingar ekkert að fúlsa
við landvinningum og stofnuðu fríhöfn á eyjunni
og eignuðu sér líka eyjaklasa í kring, færðu sig
svo upp á land, yfir á Kowloon-skaga sem nefnd-
ur er eftir níu drekum. Árið 1898 tóku Englar svo
á 99 ára leigu heilmikið landsvæði ofan við Kowlo-
on sem þeir nefndu New Territories. Sú leiga var
síðan útvíkkuð yfir allt svæðið í gagnkvæmum
samningum sem gerðir voru árið 1984 og skyldi
öllu gillinu skilað aftur til Kína 1997.
Þegar Kínverjar tóku við lofuðu þeir að halda
fríhafnareiginleikum borgarinnar að nokkru leyti
og því er enn sérstakur gjaldmiðill í HongKong
og borgin heldur ákveðnu sjálfstæði gagnvart
Kína.
Þannig er Hong Kong borg endalausra and-
stæðna: hún er kapítalísk nýlendueyja í komm-
únísku ríki, vestrænt svæði í austurlöndum og
hún er borgríki upp á gamla móðinn, slegin
skjaldborgum skýjakljúfa í stað borgarmúra.
Jafnframt því að vera afmörkuð eyja er hún einn-
ig opin höfn, þaðan eru allir vegir færir og allar
leiðir liggja til hinnar ilmandi hafnar. Á síðari ár-
um segulbylgja hefur hún einnig orðið að sæborg
að því leyti sem um skýjakljúfana streyma raf-
ræn viðskipti, fjármagn sem aldrei er annað en
númer: upphæðir, prósentur og vísitölur sigla
þarna milli speglaglerjaðra háhýsa og skjóta sér
þaðan gegnum gervihnetti um allan heim.
Hong Kong er fræg fyrir arkitektúr og skýja-
kljúfarnir eru hver öðrum brjálæðislegri, einn er
með gluggum eins og kýraugu, annar með glugga
eins og sjónvörp, einn bungar út á ótrúlegustu
stöðum og einn mjókkar upp eins og hálfhruninn Hong Kong, l
OG SKÝJAKLJÚFAR
„... ósýnileg að því leyti sem gegnsæi glerkljúfanna
gerir þá óraunverulega, eins konar hillingar sem end-
urspeglast í endalausu speglagleri glugganna og
skapa tilfinningu fyrir speglasal þar sem ekkert fyr-
irfinnst annað en spéspeglanir annarra spegla...“
STEINSTEYPUHJARTAÐ
SLÆR Í HONG KONG
„... flagnaðir íbúðakljúfar, rykugir og kaótískir ...“ „... borg bo„Allar voru þessar borgir lifandi og síbreytilegar, en engin þó eins og spilaborgin Hong Kong ...“
E F T I R Ú L F H I L D I D A G S D Ó T T U R
L J Ó S M Y N D I R : Þ O R K E L L Þ O R K E L S S O N