Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.2001, Síða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JANÚAR 2001 15 ekki ástarsamband. Jafnframt má eflaust gera sér í hugarlund að Ólöf hafi ekkert haft á móti slíku, en það var ekki gagnkvæmt. Að halda því fram að hún hafi elskað Þorstein alla ævi stenst aftur á móti alls ekki, hvorki ef litið er til bréfa hennar til hans né ef leitað er í öðrum ummæl- um höfðum eftir henni. Ólöf og Stefán kennari á Möðruvöllum Ef höfundar hinna nýútkomnu bóka um bréfaskipti Ólafar og Þorsteins hefðu horft bet- ur í kringum sig, í stað þess að einblína á hugs- anlegt „ástarsamband“ skáldanna, þá hefðu þeir rekið augun í innihald skrifa þeirra árið 1907. Þar er Ólöf að skrifa Þorsteini vegna hug- mynda hennar um að gefa út nýja ljóðabók og virðist hafa áhyggjur af því að kvæðin muni hneyksla fólk. Þorsteinn segir henni að hafa engar áhyggjur því allt hjá henni sé svo „milt, hógvært og ertnislaust“, en það sé spurning um það sem sé á persónulegum nótum. Um það tel- ur Þorsteinn sig ekki geta dæmt, þar sem hann þekki hennar „menn allt of lítið“. Hún játar sem sé í ljóðum sínum að hafa elskað aðra menn en bónda sinn en tekur það þó fram að hún hafi ekki verið manni sínum ótrú. Þá spyr hún Þor- stein hvort hægt sé að ráða af kvæðunum hver „vinur“ hennar sé. Þorsteinn svarar því til að það hafi hann, og Guðrún kona sín, ráðið þegar fyrir fimm árum af einni vísu, „Allt hans lag“. Hún geti varla átt við nema einn mann á land- inu, „svo nákvæmlega er hún hnitmiðuð á hann“. Segir Þorsteinn að aðeins ein lína sé nóg: „Allt hans lag, hvernig hann sér hagar“. Verður að álíta sem svo að Þorsteinn (og Guðrún) hafi þekkt manninn mjög vel. Getur varla verið um annan að ræða en Stef- án Stefánsson nágranna Ólafar, lengi kennara við Gagnfræðaskólann á Möðruvöllum í Hörg- árdal og síðar skólameistara Gagnfræðaskólans á Akureyri, höfund fyrsta íslenska grasafræði- ritsins Flóru Íslands. Enda segir Þorsteinn „nú bætir „Flóra“ dálitlu við“, kvæði sem Ólöf orti. Ætti þá að vera ljóst við hvern er átt. 13 Þorsteinn og Stefán voru samtíma í Kaup- mannahöfn og léku m. a. saman í leiksýningu ytra. Segir Stefán, í bréfi skrifuðu á gamlársdag 1884 til unnustu sinnar Steinunnar Frímanns- dóttur, frá vinnu við uppsetningu þessa leikrits á vegum Íslendingafélagsins í Höfn. Hann hef- ur þetta að segja um leikarana: „Yfirhöfuð lík- aði mér ekki vel við neinn, nema Þorstein Er- lingsson.“ 14 Þorsteinn nefnir einnig þessa „komidíu“ í bréfi til Ólafar og segir hana hafa verið góða skemmtun og „leikið allvel.“ Gagn- rýnendur sögðu að Stefán „léki vel, ég þolan- lega, hitt væri undir „al kritik“ og stykkið líka.“ 15 Kvæðið, þar sem línuna „Allt hans lag“ er að finna, nefnist „Aðdáun“: „Allt hans lag, hvernig hann sér hagar, / hefur lag, eins og söngur fag- ur, / er sem haglega samin saga, / sólarlag, eða gleðidagur. Hvað þá! Má ég ei horfa á hann, / háskinn tog- ar í þær, sem voga, / ég, sem þrái að sjá hann, sjá hann, / sólarlogann, við ennisboga! Háskinn ginnir, þar eið að inni ég, / að okkur svona er háttað, konum. / Sjái ég inn í hans augu, finn ég, / að allar vonirnar líktust honum.“ 16 Þorsteinn nefnir í ofannefndu bréfi sínu til Ólafar (sjá „Orð af eldi“, s. 124) einnig hendingu í öðru kvæði sem hann tilgreinir svona; „Þér lætur svo vel að látast, að látinn verðurðu grát- inn.“ Hann segir þessa hendingu fullna mynd- ina af vininum og kallar það „meistaramálverk“. Vísurnar eru tvær: „Af kæti þú hlærð ekki kát- ast, / svo kátlegur er þinn mátinn. / Þér lætur svo vel að látast, / að látinn verður þú grátinn. Skyldi hann látast líka þá / ef leiðinu þínu hann stæði hjá, / og fara bara í frakkann svarta, / en finna ekki vitund til í hjarta?“ (Ritsafn, s. 96). Í kvæði sínu, „Til „Flóru““, er Ólöf að yrkja um þá staðreynd að eftir að Stefán skrifaði Flóru Íslands hætti hann að mestu að sinna gróðurrannsóknum: „Þó komir þú, „Flóra“, með yndið þitt allt / og æskunnar leiftrið um brána. / Þú vermir ei allt, sem nú orðið er kalt, / og ekki þú vekur hið dána. Þó frjósemdarnáttúran fari þér vel / og fögur þú gjörð værir s‡num, / þín fegurð er máttvana, frýs kannski í hel / hjá fornvini, unnusta þínum. Þó færir þú honum þín fegurstu blóm, / af fögnuði skín ekki bráin, / hann sér þig nú ekki né heyrir þinn hljóm, / því hann er nú – þér er hann dáinn. Hann elskaði listir, hann elskaði þig, / og ung- an þú kysst hefur – kysst hann. / Þú varst sú hin fyrsta, er hann fastnaði sig, / en, Flóra, þú misst hefur – misst hann! – En vefð ann og skartaðu í öllu, er hann ann, / með yndinu bjartasta þínu, / og dreifðu því svartasta: dimmunni um hann, / með dauðann í hjartanu sínu!“ (s. 98–99). Um svipað leyti og Ólöf yrkir hvað mest um „vin“ sinn segir Valtýr Stefánsson, frá Möðru- völlum sonur áðurnefnds Stefáns en Valtýr var lengi ritstjóri Morgunblaðins, að Ólöf hafi játað fyrir sér fermingardrengnum, að hún elskaði föður hans og hafi gert það í mörg ár. 17 Þessu til stuðnings má benda á að Ólöf orti eitt sinn ljóð sem hún kallaði „Uppi hjá fossi“ og fjallaði það um foss í Staðará í hlíðinni ofan við Möðruvelli. Ljóðið gæti bent til þess að eitthvað hafi gerst milli hennar og Stefáns við fossinn, eitthvað sem ekki mátti komast í hámæli. Þó þarf það auðvitað ekki að vera, en sýnir samt að Ólöfu var oft hugsað yfir að Möðruvöllum. Ljóð- ið sendi hún Huldu Á. Stefánsdóttur, dóttur Stefáns, og lætur fylgja því ummæli á þá lund að hún eigi „hálfgert“ nokkuð „þarna fyrir handan“ eins og fjölskylda Huldu, og að hún hafi verið þar svo „handgengin og hafði svo mik- ið af sumu þar að segja“. Svo virðist sem Ólöf hafi haft mikla þörf fyrir að segja börnum Stef- áns frá ást sinni á honum. Í ljóði þessu yrkir Ólöf fyrst um Ólaf Davíðsson, svo þetta um Stefán: „Fleiri, að sönnu, finn ég sporin, / fanga- mörk þó séu ei skorin; / hér er „Flóra“ fædd og borin; / – fæddist, eins og lömb, á vorin! – Hér var geisli’ og gleði-stundir / – gott, ef ekki kærleiks-fundir! – / Hlátrar byrgðu hjart- ans undir; / hló við foss, og drundi undir.“ 18 Margir hafa orðið til þess að nefna ástarþrá Ólafar og útgeislun hennar allt fram á gamals ár. Um þessa þrá bera mörg ljóð hennar vitni. Nefnir Silja Aðalsteinsdóttir nokkur dæmi þar um í grein sinni í bókmenntasögunni. Að þessu öllu samanlögðu er ekki óeðlilegt að draga þá ályktun að Ólöf hafi verið mjög ásthneigð kona, enda geð ríkt og tilfinningar heitar. Þessi ef svo mætti segja allt að því sjúklega ástarþörf henn- ar beinist að gáfuðum og glæsilegum mönnum með listræna hæfileika. Kvæði hennar til Stephans G. er gott dæmi um þessa ástarþörf á listamönnum en ekki er vitað til þess að þau hafi hist nema einu sinni (árið 1918). Þá lýsir Steph- an henni sem „skorpinni og íboginni“, líkri „átt- ræðri kerlingu“ en „í sinni og svari“ yngri en „kvennaskólastúdent“. 19 Hún orti þetta kvæði að hafa fengið Andvökur Stephans í hendur: „Á jólum einum átti ég þig / um alla nótt og daginn, / og eftir það þú eltir mig um endilangan bæinn. / Ég brenndi graut, svo brá hann lit / og bunu hellti í eldinn, / sem húsfrú missti ég hálft mitt vit, / en hlakkaði til á kveldin.“ 20 Þá orti hún einnig þetta um Stephan: „Steph- an G. minn Stephansson / stendur bak við tjöld- in. / Alla daga er hans von / inn til mín á kvöldin. Strengjalag þess staka manns / sterkt og fag- urt lætur. / Fangin ligg í fangi hans / fram um miðjar nætur.“ 21 Reyndar er þessi skemmtilega tvíræðni ein- kennandi fyrir Ólöfu og þarf hún ekki karlkyns skáld að yrkja svona til, heldur nægir henni náttúrufarið til þess: „Því að sól á svona kveldi / sest á rúmstokkinn, / háttar ekki, heldur vakir, hugsar um ástvin sinn. / Veit, hann kemur bráð- um, bráðum, / bjarti morguninn. Grípur hana snöggvast, snöggvast, / snöggt í faðminn sinn, / lyftir henni ofar, ofar, / upp á himininn.“ Því hefur verið haldið fram að sjaldan beind- ist ásthneigð hennar að eiginmanninum. Haft er eftir Huldu Stefánsdóttur að Ólöf hafi oft gleymt að hún ætti „Halldór sinn heima í kotinu“. Það væri eins og henni fyndist hann sér ekki samboðinn. 22 Reyndar segir Steindór Steindórsson annað í grein um Ólöfu, en þar heldur hann fram að samband þeirra hafi verið innilegt og að samlíf þeirri hafi einkennst af samræmi. 23 Dæmi um sjálfstæðisþrá Ólafar, sem kölluð hefur verið „nánast þráhyggja“ (Dagný Krist- jánsdóttir), má nefna að allir hlutir voru að- skildir í eigu þeirra. Ólöf átti sínar eigin kindur, heyjaði sjálf handa þeim og hirti af þeim arðinn, enda var allur fjárhagur þeirra hjóna aðskilinn. Þau höfðu sameiginlegt eldhús en sváfu í sitt hvorri stofunni. 24 Sem dæmi um þessa sjálf- stæðisþörf í ljóðum hennar má sjá í kvæðinu „Ég uni illa böndum“: „Ég uni illa böndum / og illa í nokkurs hönd- um, / er flýgur fjötrum þöndum / mín frelsisþrá- in heit. 25 Þó þótti Halldór eiginmaður hennar merk- ismaður. Hann fékkst við skáldskap á sínum yngri árum og við smásagnagerð fram eftir aldri. Birtust tvær smásögur eftir hann á prenti en allmargt er til eftir hann í handritum. Stein- dór Steindórsson segir að þessar sögur standi „fyllilega jafnfætis“, ýmsu því sem þá var ritað og gefið út. En Halldór var maður hlédrægur og gagnrýninn á sjálfan sig og hélt því skáldskap sínum lítt á lofti. Hann lærði trésmíði og þótti smiður góður. Hann vann við kennslu öðru hverju og var rómaður barnakennari, auk þess sem hann þýdi sögur úr dönsku. 26 Því er óhætt að fullyrða að Halldór hafi verið vel virtur af öll- um, enda traustur og ábyggilegur maður og Ólöfu fyllilega samboðinn þó að hún sæi það nú ekki alltaf. Hann mun og hafa haft mjög góð áhrif á Ólöfu eins og reyndar kemur fram í bréf- um hennar til Þorsteins. Fyrirgafst henni margt vegna þess hve „fóstri“ hennar var vel liðinn. Hann veitti henni einnig mjög mikið frjálsræði, svo hún gat verið laus við heimilið og farið allra ferða sinna þegar henni sýndist. Reyndar má benda á, til að sýna hve karl- menn reyndust Ólöfu vel alla tíð en stallsystur hennar síður, að þegar Ólöf fékk verðlaun fyrir smásögu sína, „Móðir snillingsins“, urðu deilur í blöðum um söguna. Skrifuðu þrjár konur blaða- grein í Norðurlandi gegn henni, en viku seinna birtist svargrein þriggja karlmanna þar sem þeir vörðu hugmyndir höfundar um sálarlíf kvenna.27 Sögu þessa er að finna í ritsafni Ólafar og einnig í Sögum íslenskra kvenna sem Soffía Auður Birgisdóttir valdi. 28 Lokaorð Því miður verður að segjast eins og er, að um- sjónarmenn þessara tveggja ofangreindu bóka um bréfasamband Ólafar á Hlöðum og Þor- steins Erlingssonar, gefa villandi mynd af sambandi þeirra. Þá er ástæða til að kvarta yfir því að það ekki skuli vera skýringar við bréfin í bók Ernu og af skornum skammti hjá Þórönnu. Það hefði verið mun hjálplegra fyrir lesandann ef fylgt hefðu með góðar skýringar til að hjálpa þeim að setja sig inn í efni bréfanna. Með því hefði verið hægt að skýra út fyrir lesendum hvað verið væri að fjalla um, þegar umfjöllunin er staðbundin, og um hvaða einstaklinga þegar nöfn eru nefnd. Þetta hefur yfirleitt verið gert við útgáfu bréfasafna og er miður að svo var ekki gert nú. Þá má benda á að fyrir rúmum þremur árum birtist grein eftir Silju Aðalsteinsdóttur um Ólöfu á Hlöðum, í 3. bindi Íslenskrar bók- menntasögu, þar sem vitnað er í umfjöllun Þór- önnu um bréfasamband Ólafar og Þorsteins. Grein Silju um Ólöfu byggist að stórum hluta á vinnu Þórönnu. Furðulegt er því til þess að vita að aðstandendur bókarinnar „Orð af eldi“ segj- ast í formála bókar sinnar (s. 8) ekki hafa vitað um skrif Þórannar fyrr en rétt áður en bók þeirra kom út. Annaðhvort segja þeir ósatt eða eru ótrúlega illa að sér í bókmenntasögu þjóð- arinnar, af bókelskum mönnum að vera. Þá segjast þeir hafa haldið að enginn hafi séð bréf- in í rösk 30 ár, en Silja vitnar beint í þessi sömu bréf í áðurnefndri grein sinni og vísar þar í rit- smíðar Þórannar. En hvað sem þessu öllu líður þá eru bréfin sjálf skemmtileg aflestrar og standa fyllilega fyrir sínu ein og sér. Þó að útgefendum þeirra farnist óhönduglega í túlkun þeirra og fram- setningu þá er full ástæða til þess að almenn- ingur taki þeim ekki aðeins mildum höndum heldur og einnig fagnandi. Því ber að fagna út- gáfu þeirra og þakka það fyrst og fremst að ekki var farið að vilja bréfritaranna sjálfra, Ólafar og Þorsteins, um að birta bréfin ekki opinberlega. Aftanmálsgreinar: 1) Matthías Johannessen. M. Samtöl V. Af Ólöfu á Hlöð- um. Hulda Stefánsdóttir, bls. 154–161 (154). Reykjavík 1985. Viðtal þetta birtist upphaflega í Lesbók Morgun- blaðsins 14. júlí 1957 og nefndist þá: Matthías Johann- essen ræðir við Huldu Á. Stefánsdóttur um Ólöfu á Hlöð- um og andstæðurnar í lífi hennar. 2) Bréfaástir. Bréfaskipti Ólafar á Hlöðum og Þorsteins Erlingssonar. Þóranna Tómasdóttir Gröndal bjó til prentunar. Reykjavík 2000, bls. 16 3) Jón Auðuns. Ólöf frá Hlöðum. Ritsafn 1945, bls. 11. 4) Orð af eldi. Bréfasamband Ólafar Sigurðardóttur á Hlöðum og Þorsteins Erlingssonar á árunum 1883–1914. Erna Sverrisdóttir tók saman. Reykjavík 2000. 5) Jón Auðuns. Ólöf frá Hlöðum. Ritsafn. Reykjavík 1945, bls. 22 6) Orð af eldi, bls. 38 7) Bréfaástir, bls. 23–24 8) Ólöf frá Hlöðum. Ritsafn 1945, bls. 35 9) Orð af eldi bls. 59 (bréf frá í ágúst 1884). 10) Bréfaástir, bls. 215, Íslensk bókmenntasaga III, bls. 695. Kvæðið birtist í Nokkur smákvæði 1888, bls. 44, en er ekki í ritsafni Ólafar. 11) Bréfaástir, bls. 26. 12) Orð af eldi, bls. 61. 13) Bréfaástir, bls. 134. Í Orð af eldi (bls. 124) er hornklofi („[ ]“) þar sem Bréfaástir hafa „Flóra“. 14) Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur. Bernska. Reykja- vík 1985, bls. 72. 15) Orð af eldi, bls. 65. 16) Ólöf frá Hlöðum. Ritsafn. Reykjavík 1945, bls. 93. 17) Valtýr Stefánsson. Með Valtý Stefánssyni. Matthías Johannessen: Með Valtý Stefánssyni á Möðruvöllum, bls. 11–61. Reykjavík 1962, bls. 40. Sjá einnig Ólöf frá Hlöðum. Ritsafn 1945, bls. 18–19 18) Matthías Johannessen. Af Ólöfu á Hlöðum. Hulda Stefánsdóttir, bls. 154–161 (158–9) í M. Samtöl V. Reykjavík 1985. Kvæðið er eki alveg eins í ritsafni Ólafar og ber annað heiti, „Uppi hjá fossum í Möðruvallafjalli“ (Ólöf frá Hlöðum. Ritsafn 1945, bls. 74–75) 19) Silja Aðalsteinsdóttir 1996, bls. 697. Hún vísar því miður ekki í heimild sína en segir hana koma fram í bréfi árið 1918. 20) Ólöf frá Hlöðum. Ritsafn 1945, bls. 140. 21) Silja Aðalsteinsdóttir 1996, bls. 697. 22) Matthías Johannessen 1985 (Hulda Stefánsdóttir), bls. 159. 23) Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Ólöf Sigurðar- dóttir á Hlöðum 1857–9. apríl – 1957. Eimreiðin (1957) LXIII. 2. hefti, bls. 88. 24) Silja Aðalsteinsdóttir 1996, bls. 696 (sjá einnig Stein- dór Steindórsson). 25) Ólöf á Hlöðum. Ritsafn 1945, bls. 56. 26) Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Eimreiðin (1957), bls. 87. 27) Norðurland 18. og 25. febrúar 1911, sjá Björgu Ein- arsdóttur Úr ævi og starfi íslenskra kvenna, I. Reykjavík 1984 bls. 300–323 (314). 28) Sögur íslenskra kvenna. Soffía Auður Birgisdóttir valdi og skrifaði eftirmála. Reykjavík 1987, bls. 79–102. Upphaf bréfs frá Ólöfu til Þorsteins sem dagsett er í Reykjavík 20. mars 1885. Upphaf bréfs frá Þorsteini til Ólafar skrifað í Kaupmannahöfn 14. janúar 1887. Höfundurinn er prestur og er að skrifa sögu Möðruvalla í Hörgárdal.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.