Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.2001, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.2001, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. MARS 2001 9 E FTIR viku geta borgarar í Reykjavík greitt atkvæði. At- kvæðagreiðslan er ákveðið skref í framvindu máls sem hefur undið upp á sig jafnt og þétt síðustu marga mánuðina. Sem arkitekt get ég glaðst yfir þessari miklu vitundar- vakningu hins almenna borgara gagnvart manngerðu umhverfi okkar allra, sjaldan hefur verið talað og skrifað jafnmikið hér á Íslandi um mögulegar afleiðingar skipulags daglegs ramma um líf Reykvíkinga. En í hita og þunga leiksins er eins og kjarni málsins hafi gleymst eða lotið í lægra haldi fyrir einstaka minni og þrengri hags- munaatriðum. Umræðan hefur þannig að mestu snúist um sjálfan flugvöllinn í Vatnsmýrinni – hvernig megi hugsanlega forma hann eða flytja, eða að sýna fram á gróðamöguleika stórfellds byggingarmassa og tilheyrandi umferðarmannvirkja. Vissulega er þetta landsvæði staðsett þannig að meta má til stórra verðmæta, en það má þó ekki gleyma því að þau verðmæti eru ekki eingöngu fólgin í mælanlegum stærðum, byggingarframkvæmdum og streymi fjármagns til skamms tíma að telja, heldur býr Vatnsmýrin og umhverfi hennar yfir eiginleikum, sem gera svæðið einstakt, og það ber að hafa að leiðarljósi þegar metið er verðmæti þess og framtíðarhlutverk. Lestur landslags Við frumnám lands veljast gjarnan staðir sem frá náttúrunnar hendi svara þörfinni fyrir land; til búsetu, beitar eða annarra hluta. Af þessu samspili landkosta og notkunar mannsins þróast smám saman mælikvarði á fegurð og notagildi, sem myndar grunninn að sjálfsmynd ábúendanna og í víðari skiln- ingi menningu heilla þjóða. Íslendingar í út- löndum þrá bláma fjallanna og víðáttur, dönsk tunga þykir flöt eins og endalausir akrar, japönsk rósemi samræmist logni og regnúða. Þegar sérkenni landslagsins fá að njóta sín í manngerðu umhverfi styrkir það hvort tveggja, eitt virðist vaxa með öðru og skýr tilfinning fæst fyrir staðnum sem slíkum: Laugardalurinn les sig þannig með sund- laugina í grænum farvegi íþrótta og útivist- ar, vesturbærinn sem þéttriðið net smárra húsa yfir vindblásna mela, hvítir olíutankar Skeljungs á Gróttu kallast á við Esjuna yfir sundið. En þegar notagildi bygginga og mann- virkja er hafið gagnrýnilaust yfir gefið sam- hengi veikir það yfirleitt skilning á staðnum, rýmið verður ómarkvisst og karakterlaust og fæstir vilja dveljast þar að nauðsynja- lausu. Þróun borga Borgir hafa þannig þróast úr náttúrulegu landslagi, en ekki síður með heimsmynd þjóða hvers tíma. Grikkir byggðu hof sín og staðsettu frjáls- lega í landslaginu – gjarnan efst á hæðir – í samræmi við hugmyndir þeirra um lýðræði með einstaklingum, og súlnagöng umhverfis sjálft húsið milda sambýli byggingarinnar og náttúrunnar. Götur Rómar voru skipulagðar þráðbeinar undir aga einveldis keisarans, byggingarnar eru tiltölulega massífar og gluggasnauðar og vísa á launráðabrugg og svallveislur innan- dyra. Á tímabili endurreisnar fengu hugmyndir um yfirburði mannsins yfir náttúrunni sterka útbreiðslu, ýmsar uppgötvanir mön- uðu til jarðar hjátrú og hindurvitni miðalda, en slitu líka í sundur þá sterku sannfæringu miðaldarmanna um heiminn sem eina heild skapaða af Guði. Tími svokallaðs módern- isma um miðbik síðustu aldar studdi svo enn framgang einstaklingsins á kostnað heilda og klassísks samræmis, farið var að skipu- leggja ný hverfi sem stakar byggingar á grænum flötum í stað samhangandi húsa við þröngar götur. Lögð var mest áhersla á samtímann, núið skipti meira máli en fortíð og framtíð. Þótt ýmislegt hafi verið vel gert og beri enn með sér ferska vinda bjartsýni og ung- æðis, eru líka mörg dæmi skipulagsslysa frá þessum tíma, mælikvarði hins byggða fjar- lægist æ meir hinn mannlega, og fyrirferð og hraði nútímafararskjóta verður allsráð- andi í umhverfinu. Í dag standa flestar vestrænar borgir frammi fyrir afleiðingum hagsældarinnar, og það er víðar en í Reykjavík að farið er að staldra við og reyna að hugsa upp á nýtt samhengi lands og manns, notkunar og verðmæta. Reykjavík framtíðar, sérstök borg á sérstökum stað Margir bölva upphátt eða í hljóði um- hleypingunum í veðrinu; rokinu sem kemur úr öllum áttum, rigningunni sem virðist eiga erfitt með að ákveða sig í hvaða mynd hún birtist – allt tilfinnanlegur hluti af því að búa í borginni Reykjavík. Sérstaða Reykjavíkur og að mörgu leyti aðalkostur er þó þetta návígi hennar við náttúruna: alls staðar er stutt í sjó og fjöru, stórbrotna fjallasýn, villuráfandi fífla og grjót. Elsti hluti borgarinnar er byggður í kringum höfn og vöruskipti, þar sem lækur rennur í sjó, landið rís sitt hvorum megin og myndar hlýlega kvos. Þetta er auðlesin ímynd bæjarstæðis. En borgir stækka og þenjast út. Í Reykja- vík hefur byggðin dreifst svo mjög að varla er hægt að tala um borg í evrópskum skiln- ingi nema rétt í gamla miðbænum, og allar nauðsynjar verður að sækja á bílum, jafnvel þó ekkert ami að veðri. Vaxandi óþægindi m.a. vegna mengunar hljóðs og lofts, samfara skorti á bygging- arlandi innan borgarinnar fæða nú af sér hugmyndir um hugsanlega þéttingu byggð- arinnar sem fyrir er. Flestir eru sammála um nauðsyn þessa, en þétting byggðar er eitt og sér ekkert galdraorð sem leysir allan vanda. Hversu þétt er td. þétt byggð? Það verður að sjálf- sögðu að taka tillit til þess samhengis sem fyrir er, þess skala sem einkennir hin mis- munandi hverfi borgarinnar, áður en skipu- lögð eru háhýsi og stórhýsi, tekin hrátt upp úr allt öðru samhengi eyðimerkursvæða Mið-Ameríku eða iðnaðarsvæða Mið-Evr- ópu. En þéttari byggð og betri nýting þess lands sem þegar er til staðar, er hluti af borg Reykvíkinga framtíðarinnar. Vatnsmýri Reykjavíkur Vatnsmýrin er stórt svæði eins og sjá má á meðfylgjandi loftmynd. Til glöggvunar á stærð landsins, sem í dag er helgað notkun vegna flugvallarins, hef ég klippt út þann hluta Reykjavíkur, sem af- markast af Laugavegi, Snorrabraut, Hring- braut og Lækjargötu – hverfi sem flestir hafa tilfinningu fyrir – og lagt niður í heilu lagi með kirkju, skólum, verslanagötum og íbúðabyggð. Skikann má setja niður tvisvar sinnum og er þó ekki fullnýttur reiturinn sem til ráðstöfunar er. Þessi leikur er aðeins til viðmiðunar, og flesta getur væntanlega rennt grun í hvaða ótrúlegu möguleikar opnast á að fá svæðið undir það eðlilega framhald byggðar gamla miðbæjarins, Þingholtanna og Háskólans sem aldrei varð vegna legu flugvallarins. Aðflugslínur vélanna hindra þar að auki notkun á þeim grænu úti- vistarperlum sem liggja að svæðinu; Öskjuhlíð og Hljómskálagarði með Tjörninni. Hávaðinn er slíkur við flugtök og lendingar að ekki er hægt að halda uppi sam- ræðum á þessum stöðum. Vatnsmýrin einkennist helst af óvenju miklu flatlendi, sem spennt er út á milli gróinnar Öskju- hlíðar í austri, stæðilegra bygginga Háskóla Ís- lands í vestri, iðandi byggðar Þingholts í norðri og bláma Skerja- fjarðar í suðri. Útsýni er mikið yfir svæðið því það liggur töluvert lægra en aðliggj- andi svæði, og vegna flat- lendisins virðist birta og skýjafar himinhvolfsins leggjast yfir það með sérstakri rósemd. Hluti svæðisins er vot- lendi sem tengist Tjörn- inni og myndast þar sjón- rænt belti sérstakrar náttúru og fuglalífs alveg inn til sögulegrar miðju Reykjavíkur; Alþingis og Ráðhúss. Suðurströnd landsins, sem tengir Nauthólsvík við Ægisíðu, er göngufær alla daga. Á köldum morgnum má greina gufuslæður úr mýrinni, og á sólríkum dögum blandast silfrað endurkast frá sjónum ilmi trjánna úr Öskjuhlíð- inni. Heildaryfirbragð svæðisins er þannig milt og þægilegt viðmóts, ólíkt töffaraskap norður- strandar Seltjarnarness eða efniskenndra klappa Grafarholts. Aðkoma að svæðinu takmarkast af fyrr- greindum náttúrufyrirbærum, gróðri og vatni. Mikilvægt er að þessir íbúandi eiginleikar Vatnsmýrarsvæðisins fái að njóta sín í sam- spili við vaxandi byggð. Svæðið getur alls ekki borið einhliða þyngd mikils byggingarmassa, hvorki sjón- rænt né umferðarlega séð. Sá þéttleiki sem einkennir umlykjandi byggð vesturbæjarins, Þingholtanna og gamla miðbæjarins er að mínu mati eðlilegri skali, og á auðvelt með að aðlagast þeim grænu geirum sem yrðu sparaðir, svo nýtast mætti sem flestum. Með þessu á ég ekki við að byggðar verði eftirlík- ingar af bárujárnsklæddum timburhúsum eða hvítmáluðum byggingum í klassískum stíl, heldur á svæðið að eiga sitt sérstaka tungumál nútímaforms og efnisnotkunar, meðvitað framhald á íslenskri húsagerðar- list eins og hún gerist best. Halda á opnar samkeppnir svo tryggja megi aðkomu sem flestra hugmynda, hvetja td. til framhalds á þeim góðu skipulagshugmyndum sem voru þróaðar í upphafi síðustu aldar með tilliti til íslenskrar veðráttu og vilja um rými á for- sendum borgarmyndar, þótt á hófstilltum mælikvarða væri. Rök fyrir áframhaldandi starfsemi svæð- isins undir flugumferð væru í dag hverfandi miðað við þau óþægindi sem af henni stafa, ef ekki kæmu til hagsmunir fólks sem búsett er utan Reykjavíkur og kemur hingað með innanlandsflugi. En þröngir hagsmunir fá- menns hóps, sem telur það til mannréttinda að geta flogið upp að dyrum erinda sinna, geta ekki verið ráðandi fyrir framtíð svæð- isins. Það er ekkert eðlilegra í dag en að skilja að þungar og áhættusamar atvinnugreinar og daglegt líf mannfólks, hvar sem það ger- ist. Þeir tímar þar sem flug- og bílaumferð tengdist nýfengnu frelsi mannsins eru liðnir, sú rómantík er á hröðu undanhaldi nýrra kynslóða. Er annað hægt en að greiða at- kvæði með borginni okkar, og losa svæði Vatnsmýrinnar undan oki flugvallar? AÐ META LAND Hér hefur sá hluti Reykjavíkur, sem afmarkast af Laugavegi, Snorrabraut, Hringbraut og Lækjargötu verið klipptur burt og lagður niður í heilu lagi með kirkju, skólum, verslanagötum og íbúðabyggð í Vatnsmýrina. Skikann má setja niður tvisvar sinnum og er þó ekki fullnýttur reiturinn sem til ráðstöfunar er. „Vatnsmýrin getur alls ekki borið einhliða þyngd mikils byggingarmassa, hvorki sjónrænt né um- ferðarlega séð. Sá þétt- leiki sem einkennir um- lykjandi byggð vesturbæjarins, Þingholt- anna og gamla miðbæj- arins er að mínu mati eðlilegri skali.“ E F T I R G U J U D Ö G G H A U K S D Ó T T U R Höfundur er arkitekt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.