Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.2001, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.2001, Blaðsíða 6
myndunum og hefur þau með sér til heimalands síns, hvort sem það er í Japan, Kóreu eða Banda- ríkjunum. Umfjöllunarefni Hjartar eru látlaus og hversdagsleg, þó að myndirnar séu langt frá því að vera hversdagslegar. Með því að virða fyrir sér sitt nánasta um- hverfi, fólkið í kringum sig, heima hjá sér, í líkamsræktinni, í sundi, í vinnunni o.s.frv. tekst honum að sjá fegurðina í öllu allt í kringum sig og kemur því síðan á blað með blýanti og litum. „Þetta er hálfgerð dagbók sem ég er að halda og efniviðurinn er fólkið í kringum mig. Ástæðan fyrir því að fólk alls staðar að úr heiminum kaupir verkin er sú að fólk í venju- legu umhverfi, eins og birtist í myndum mín- um, er alþjóðlegt fyrirbæri. Það er ekkert sér- íslenskt við þetta, þetta er landamæralaust. Ég er heldur ekkert að reyna að upphefja eitt eða neitt í þessum myndum mínum, í mesta lagi kemur fram einhver huglæg fullyrðing í titli myndarinnar eins og t.d. Besti tími dagsins, eða eitthvað slíkt. Ég reyni bara að draga fram það skemmti- legasta úr því sem ég upplifi dags daglega og svo tekur auðvitað einhvers konar tjáning völd- in þegar kemur að teikniborðinu sem gerir verkin að því sem þau eru.“ Ertu þá nokkurs konar expressionisti? „Ég reyni alltaf að vera sannur í því sem ég er að gera. Teikning er líka þannig. Maður verður að vera sannur í teikningu til að hún smelli. Hún verður til í einni atrennu, það er ekkert hægt að laga eða mála yfir. Það sem fer á blaðið verður þar og ef það virkar ekki verður maður að henda myndinni. Ég teikna oft mjög expressionískt og ég er alveg óhræddur við að segja að ég er ekkert endilega mjög lengi með myndina, enda er það engin ávísun á gæði myndar, þ.e. lengdin sem fór í að gera hana. Ég held að manni þætti þriggja klukkkustunda langt lag með Madonnu ekkert betra en hið hefðbundna 3 mínútna lag, eða hvað?! Þegar allt smellur tekur það mig oft kannski bara um 10-20 mínútur að vinna teikningarnar.“ Hvers ætlastu til af myndlist? Á hún að vera fjárfesting sem endist að eilífu eða er hún stundargaman? „Þegar ég kaupi myndlist sjálfur kaupi ég myndlist sem ég held að geti komið mér á óvart á hverjum degi, segi mér eitthvað nýtt, spyrji sífellt nýrra spurninga eða alltaf sömu spurn- ingarinnar sem ég þarf alltaf að reyna að svara upp á nýtt. En hún þarf ekkert endilega að end- ast að eilífu. Ég hef passað mig á að eiga akk- úrat svona myndlist og ég vona að mínar mynd- ir hafi þessi áhrif á fólkið sem hefur þær í kringum sig.“ Við Hjörtur ræðum þetta aðeins áfram og veltum fyrir okkur neysluþjóðfélaginu sem við lifum í og skynjunin kemur aftur til umræðu. Hjörtur segir að fólk í dag sé svo miklir neyt- endur að það þurfi að staldra við og njóta ein- stakra hluta en ekki alltaf gleypa án þess að bragða á, hætta að skjóta fyrst en spyrja svo. „Ef að fólk er opið fyrir myndlist þá opnar hún sig fyrir því,“ segir Hjörtur. Leið vel á Spáni Hjörtur er menntaður í myndlist bæði á Ís- landi og á Spáni. Það er síður en svo algengt að ungir myndlistarmenn sæki framhaldsmennt- un til Spánar en Hjörtur fór sínar eigin leiðir eins og svo oft áður. Hann fór til Spánar, eins og hann segir mér sjálfur frá, m.a. af því að enginn sagði honum að fara þangað. „Fólk sagði mér að Spánn væri dauður, og því ákvað ég að fara þangað og ég sótti um í skóla í Gra- nada og fékk þar inni. Þar leið mér mjög vel. Ég innritaði mig í teiknideild, einkum af því að Spánverjar eru svo frábærir teiknarar og mjög færir að tjá sig í gegnum teikningu. Picasso hefur til að mynda alltaf haft mikil áhrif á mig og t.d. þegar ég var strákur og félagarnir héldu ekki vatni yfir Bronco-jeppum og hasarmynda- hetjum horfði ég heillaður á Guernicu Picassos. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. MARS 2001 Þ EGAR ég tók hús á Hirti um miðjan febrúar var hann byrjað- ur að koma nýju teikningunum sínum í ferðafötin en fyrir lá ferð til Ósló þar sem önnur einkasýn- ing hans þar í borg átti að hefjast um miðjan mars. Það tekur 15 daga að ferja verkin yfir sjóinn til Noregs og vel þarf að ganga frá öllu svo verkin verði ekki fyrir hnjaski. Hjörtur segir að opnun nýrrar sýningar sé alltaf stór stund og því er eftirvænting í loftinu. Við setjumst niður við stofuborðið og Hjörtur byrjar að segja mér frá sýningunni. „Mér finnst það stór stund þegar maður loksins setur verkin sín fram fyrir áhorfendur, sleppir af þeim hendinni eftir að hafa verið með þau í kringum sig í langan tíma. Eftir að hafa setið með blýant, kol og liti og unnið á papp- írinn í langan tíma hefst hinn kaflinn í tilvist listaverksins og listamannsins, samskiptin við fólkið. Sýningarhald er stundin þar sem mynd- listarmaðurinn stígur fram með eitthvað full- mótað og nú er það áhorfandans að skynja og njóta.“ Hjörtur talar um samband áhorfandans og listaverksins af miklu næmi og útskýrir fyr- ir mér hvað það er mikilvægt að áhorfandinn átti sig á því hvernig hægt er að koma að hlut- unum á mismunandi hátt. „Þegar ég var í námi í MHÍ bjó ég til svona skynfærabók sem átti að hjálpa fólki að átta sig á umhverfinu, átta sig á eigin skilningarvitum. Fólk átti t.d. að finna lykt í gegnum gat á blað- síðu í bókinni, stinga fingrunum í gegnum göt í bókinni til að þreifa á hlutum o.s.frv. Og þetta virkaði. Fólk var sammála um að skynjunin var ekki sú sama með eða án bókarinnar. Með sýn- ingu á verkum sínum er myndlistarmaðurinn að birta sína skynjun á umhverfinu. Svona skynja ég umhverfi mitt, eru skilaboðin sem ég hef fram að færa þegar ég opna sýninguna. Svo vona ég að fólk taki við boltanum og verkin verði gefandi hluti af skynjun áhorfandans.“ En hvað er þetta með listamenn, af hverju halda þeir að fólk hafi áhuga á skynjun þeirra og upplifunum. Er hún eitthvað merkilegri en annarra? Hjörtur er með svör við því. „Þetta er eins með myndlistina og allt annað. Sumir kunna kannski að flauta lítið stef úr níundu sin- fóníu Bethovens en þeir vilja frekar hlusta á at- vinnumenn túlka hana í heild sinni. Flestir hafa eitthvað teiknað og litað á ævinni en sumir fara þá leið að helga líf sitt listinni og með því að gera það verður til fólk sem þróar jafnframt skynfæri sín á hverjum degi og nær að sjá um- hverfi sitt og allra annarra í sífellt nýju ljósi og birtir það í myndum sínum. Það er þetta sem fólk sækist eftir í myndlist atvinnumanna, að sjá þróaða sýn á umhverfið og hið daglega líf.“ En er myndlistin almennt eitthvað að þróast, Teikning eftir Hjört Hjartarson. SANNUR Í TEIKN- INGUNNI Hjörtur Hjartarson myndlistarmaður sýnir verk sín í Ískúnst í Ósló þessa dagana. ÞÓRODDUR BJARNA- SON hitti hann að máli fyrir utanlandsferðina. er eitthvað að deyja og annað að lifna við? „Ég held að það sé ekki hægt að taka neitt út úr myndlist- inni. Alveg eins og það er ekki hægt að taka plús og mínus út úr stærð- fræðinni. Listin þróast auðvitað, miðlar bætast við og aðferðir en hinar sem fyrir voru hætta ekki að vera til.“ Sýningin í Ískúnst í Noregi er sú önnur á stuttum tíma. Hvernig komst þetta samstarf á með þér og þessu galleríi? „Þetta hófst eiginlega hér heima hjá mér,“ segir Hjörtur og hlær. Teikningarnar mínar voru farnar að hlaðast upp á kostnað plássins í íbúðinni og konan sagði við mig, af hverju reynirðu ekki að koma þeim í gallerí og selja þær? Ég velti því aðeins fyrir mér og ákvað síðan að tala við hana Ásu sem þá var með lítið gallerí niðri á Skólavörðustíg í Reykjavík. Það gekk svona skratti vel. Ein- hvern veginn þá höfðuðu verkin til fólks og það vildi taka þau með sér heim og hengja þau þar upp. Ása flutti síðan út til Noregs og vildi halda samstarfinu áfram og síðan hefur það gengið mjög vel.“ Hjörtur segir að myndir sínar hafi selst út um allan heim. Fólk á ferðalagi stingur nefinu inn í galleríin sem selja verkin hans, heillast af Hjörtur Hjartarson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.