Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2001, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. JÚNÍ 2001 3
Veldu þorsk í veislurétt,
verði gestum boðið.
Fyrst af öllu fínt og nett
fláðu af honum roðið,
því að seinna þegar á
þorskinn fram að bera
hvergi má á honum sjá,
heilt skal roðið vera.
S
VONA hef ég lauslega þýtt
byrjun á uppskrift úr danskri
kokkabók frá Önnu Magda-
lenu Steinbach, konu Árna
Thorlaciusar í Stykkishólmi.
Uppskriftin var af gam-
ansemi sungin við hátíðlegt
ættjarðarlag eftir Weyse,
Danagrund með grænan baðm, en ekki fer
ég nánar út í hvernig fiskdeigið var búið til
og saumað innan í roðið með áföstum hinum
sanna og svipmikla þorskhaus. Svona gerðu
menn sér glaðan dag í Stykkishólmi á
nítjándu öld og átu falskan þorsk.
En síðan hefur öll tuttugasta öldin liðið.
Og síðustu fjörutíu ár hennar höfum við Ís-
lendingar haldið mikla þorskveislu, gert
okkur margan glaðan dag. Saga hennar er
hér birt samþjöppuð í einni töflu yfir fimm
ára meðaltöl. Auðvitað er þetta þorskatal
ekki jafnnákvæmt og manntal, en betri
heimildum er ekki völ á. Þær eru fengnar
frá Hafrannsóknastofnun. Í þessari töflu tel
ég mega greina tvær þýðingarmiklar reglur.
Þá fyrri setti ég reyndar fram í grein í
Morgunblaðinu 3. nóvember 1993. Þar
komst ég að þeirri niðurstöðu að virki
hrygningarstofninn væri aðeins 9 ára þorsk-
ur og eldri, og hrygningarstofninn sem Haf-
rannsóknastofnun tilgreinir og nú er átta
sinnum stærri væri að mestum hluta óvirkur
í hrygningunni og því gífurlega villandi sem
slíkur. Um það leyti var reyndar byrjuð
rannsókn á þessu máli á Hafrannsókna-
stofnun, og ég veit ekki betur en að hún hafi
smám saman staðfest nokkuð vel mína
reglu. En hana hefði þurft að taka til greina
miklu fyrr. Á tiltölulega köldu loftslags-
skeiði, frá því að hafísárin byrjuðu 1965, hef-
ur það svo að segja verið lögmál að nýliðun
þorsksins, talin í milljónum einstaklinga við
þriggja ára aldur, hafi verið 200–250 millj-
ónir, nema þegar 9–14 ára hrygningarstofn-
inn hefur verið minni en 100 þúsund tonn.
En síðustu 15 ár þegar þessi hrygning-
arstofn hefur verið svo sem 35 þúsund tonn
hefur nýliðunin verið um 140 milljónir. Ný-
liðunin snarminnkar sem sagt þegar virki
hrygningarstofninn lækkar úr 100 þúsund
tonnum. Varla þarf frekari vitna við um ná-
kvæma fylgni milli þessa hrygningarstofns
og samtímis nýliðunar þegar til lengdar læt-
ur, til dæmis í fimm ára meðaltölum.
Annað lögmál sem ég þykist greina er það
að út frá nýliðuninni á tilteknu fimm ára
skeiði má svo reikna á svala loftslagsskeið-
inu frá byrjun hafísáranna hver veiðistofn-
inn í þúsundum tonna verði á næsta fimm
ára tímabili á eftir. Það má gera með því að
margfalda nýliðunina talda í milljónum með
(110-A) og deila svo með 15. Hér er A
hundraðshluti aflans af veiðistofni á þessu
síðara fimm ára tímabili, en aflinn verður
auðvitað til að minnka veiðistofninn því
meira sem er veitt. Ég læt lesandanum eftir
að prófa þessa ágætu reglu á tímabilinu eftir
1965. En hún sannar að fiskurinn geymist
furðu vel í sjónum allt frá þriggja ára aldri,
og grisjun á honum á unga aldri dregur
óhjákvæmilega úr veiði síðar. Kenning um
hið gagnstæða á því engan rétt á sér.
Í ljósi þessara lögmála er fjörutíu ára
þorskveisla okkar nokkuð dapurleg. Það
hefur ekki verið gengið jafnt á alla árganga
þorsksins; þeir elstu eru ekki orðnir nema
1–2% af því sem þeir voru fyrir 1960. En
menn streittust eins lengi og kostur var að
veiða jafnmikið á hverju ári, 350–400 þúsund
tonn. Aflinn sem hlutfall af veiðistofni var
bara aukinn úr rúmum 20% í 40%. Þetta gat
gengið fram yfir 1980. En þá var svo komið
að hrygningarstofninn var ekki lengur nóg-
ur til að sjá fyrir nema svo sem 60% af nauð-
synlegri viðkomu, og að fimm árum liðnum
hrapaði veiðin eðilega um 40% þrátt fyrir að
aflanum var haldið í 40% af veiðistofni.
Veislan mikla var á enda. Uppskriftirnar að
veiðunum sem höfðu verið sungnar við ynd-
isleg ættjarðarlög hljómuðu nú ekki lengur
eins glaðlega og forðum.
Það er svo sem ekki til að hrósa sér af að
vera vitur eftir á. En það er þó stórum
skárra en að vera óvitur eftir á. Framundan
verður að vera löng og erfið barátta við að
nýta fengna reynslu og bæta úr miklum
vanda. Það var ekkert vit í að veiða 35–40%
af veiðistofni undanfarin tuttugu ár. En það
er ekki nóg að lækka það hlutfall án frekari
aðgæslu. Ég held að það hafi verið rétt sem
ég hélt fram í Morgunblaðinu 1993 að það
þyrfti að hlífa eldri árgöngum þorsksins
meira en þeim yngri. Hygginn fjárbóndi
slátrar ekki flestum ánum sínum um leið og
þær fara að skila lömbum. Með því að tak-
marka netaveiðar má draga svo mikið úr
veiðum á svo sem 7 ára þorski og eldri, að 9–
14 ára stofninn komist með tímanum upp í
minnst 100 þúsund tonn, og á þessu þarf að
byrja strax þó að hægt muni ganga og
mörgum muni sárna; annað hefnir sín.
Stækkun möskva í 25 sentímetra hefur verið
vanhugsuð. Önnur mistök eru þau að láta
líðast mikið brottkast á fiski. Það mætti til
dæmis afnema með því að taka upp sókn-
armark eins og Færeyingar hafa gert með
góðum árangri.
Þetta er ekki gleðilegur boðskapur. Veisl-
an mikla er búin að vera. En kannski er nú
framundan hlýrra loftslagsskeið þegar
þorskseiði frá Íslandi ná að þroskast upp í
stóra stofna við Grænland og synda svo
hingað í miklum göngum eins og fyrir 1960.
Þá væri bara gott að taka því; en forðumst í
guðanna bænum að endurtaka veisluna með
tilheyrandi fallega sungnum uppskriftum að
fölskum þorski.
UPPSKRIFT AÐ
FÖLSKUM ÞORSKI
PÁ L L B E R G Þ Ó R S S O N
RABB
STEFÁN HÖRÐUR GRÍMSSON
AÐ FARGA
MINNINGU
Sá sem kemur aftur
er aldrei sá sami
og fór
Sú sem heilsar
er aldrei sú sama
og kvaddi
Ævintýri
eru eldfim
bæði lífs og liðin
Sagnir um öskufall
við endurfundi
hefur margur sannreynt
Ljóðið birtist í ljóðabókinni Tengslum sem Stefán Hörður sendi frá sér árið 1987.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
2 4 . T Ö L U B L A Ð – 7 6 . Á R G A N G U R
EFNI
Errósafnið
verður opnað í Hafnarhúsinu í kvöld með
sýningu á ríflega tvö hundruð verkum úr
gjöf listamannsins til Listasafns Reykjavík-
ur. Fríða Björk Ingvarsdóttir ræddi við
listamanninn og Heiða Jóhannsdóttir rifjar
upp söguna á bak við gjöf Errós sem hann
afhenti Listasafninu árið 1989.
Svava Jakobsdóttir
segir Helgu Kress bókmenntafræðing mis-
skilja nafnið Volga Fress á persónu í skáld-
sögu Jökuls Jakobssonar, bróður síns, Feil-
nótu í fimmtu sinfóníunni, og andmælir
harðlega grein Þóreyjar Friðbjörnsdóttur
um kvennabókmenntir í grein sem hún
nefnir „Sá hlær best ...“ Svava spyr: „Er allt
leyfilegt í nafni kvennabókmenntafræða?“
Íslenskir organistar
hafa með sér félag sem varð fimmtíu ára
17. júní. Bergþóra Jónsdóttir ræddi við
Kjartan Sigurjónsson, formann félagsins,
og fræddist um sögu þess og störf organist-
ans í dag.
Tíundi áratugurinn
í íslenskum bókmenntum og menningu var
viðburðaríkur, að mati Hermanns Stef-
ánssonar. Í fyrstu grein af þremur veltir
hann meðal annars upp spurningum um
einsleitni og fjölbreytni, viðgang eða fall
hugmyndakerfa og bókmenntastefna og um
miðjuna og jaðarinn.
FORSÍÐUMYNDIN
er eftir Erró, Kona listamannsins frá 1997.
Aldur 1956 1961 1966 1971 1976 1981 1986 1991 1996 *)
–60 -65 -70 -75 -80 -85 -90 - 95 -00
3 221 209 244 211 219 157 199 130 127 57
4 166 141 195 145 186 125 157 93 95 57
5 105 92 117 95 113 98 104 57 67 64
6 85 62 84 45 64 55 62 32 38 45
7 67 41 47 28 38 28 21 18 21 31
8 40 27 24 18 11 20 6 8 8 20
9 25 16 9 11 3,68 8,23 2,23 2,57 2,80 11
10 16 7,20 3,71 5,90 1,24 2,86 0,98 0,93 0,96 6
11 12 6,60 1,24 1,65 0,44 0,97 0,50 0,95 0,32 3
12 6,40 3,20 0,43 0,35 0,18 0,44 0,22 0,14 0,11 2
13 3,00 1,20 0,21 0,08 0,08 0,16 0,12 0,04 0,06 2
14 2,60 0,60 0,01 0,03 0,03 0,08 0,06 0,02 0,02 1
Nýliðun 192 265 212 227 180 213 128 139 151 79
Hrygn.stofn
Hafró 1028 639 572 439 405 271 265 256 301 29
Hrygn.stofn
9-14 ára 633 325 133 169 50 103 35 33 38 6
Veiðistofn 2116 1427 1510 1142 1230 892 960 592 681 32
Afli 472 400 392 396 364 353 366 235 222 47
Afli, % 22 28 26 35 30 40 38 40 33
*) Hlutfall í % milli 1996-2000 og 1956-1960
Þ o r s k u r . F j ö l d i í á r g ö n g u m o g n ý l i ð u n ( v i ð 3 j a á r a a l d u r ) í m i l l j -
ó n u m . H r y g n i n g a r s t o f n o g v e i ð i s t o f n í þ ú s u n d u m t o n n a . A f l i í
þ ú s u n d u m t o n n a o g % a f v e i ð i s t o f n i . 5 á r a m e ð a l t ö l .