Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2001, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.2001, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 23. JÚNÍ 2001 9 hlaupið um með gullstóla í leit að arftökum. Ýmsar ástæður eru fyrir því að Halldór Lax- ness verður ekki leystur af hólmi. Hugmyndir um höfund, höfundargildi og höfundarrétt hafa verið að breytast um allan hinn vestræna heim. Hugmynd póststrúktúralískra fræðimanna um dauða höfundarins beindist gegn þeirri þrálátu hugmynd að hina einu og sönnu túlkun bók- menntaverks væri að finna hjá höfundinum, gegn þeirri hugmynd að höfundurinn sé miðja verka sinna, haldi öllum þráðum í hendi sér og geti aðstoðað villuráfandi lesendur í þeirri krossgátu sem bókmenntir verða samkvæmt þessari kenningu. Hún beindist gegn því að at- riði í ævi höfundarins gætu verið endanlegt svar við spurningum verka hans. Póststrúkt- úralistar vildu frjóa spurn við lestur bók- mennta, efa, skrif, texta, ekki fullvissu, svör, boðskap, verk, Höfund. Þegar upp rísa deilur um höfundarrétt (oftast gerist það í tengslum við dægurtónlist, en mikið af vinsælli tónlist gengur beinlínis útá að nota lykkjur úr eldri lögum) verður áberandi hvernig hugmyndir á vesturlöndum eru að breytast. Og þær virðast tvíátta eftir hnattstöðu. Það er kannski einföldun, en í Bandaríkjunum verður höfundarréttur og hagsmunagæsla tengd hon- um stöðugt sterkari; í kvikmyndaheiminum er hægt að tala um eignarrétt á hugmyndum og þarmeð stuld. Þessu er ekki alveg svona háttað í evrópskri hefð. Höfundar víla stundum ekki fyrir sér að nota að vild það efni sem þeim sýn- ist, hvort sem þeir hirða það úr samræðum eða taka heilu efnisgreinarnar beint uppúr bókum, auk þess sem það er dæmt til að gerast marg- ítrekað að einn þeirra rambi á svipaðar slóðir og annar. Spænski rithöfundurinn Álvaro Cun- queiro hafði fyrir sið að taka til handargagns sögur sem hann heyrði á skotspónum, endur- sagnir á frönskum skáldskap eða öðru, vinna úr þeim blaðagrein, svo smásögu uppúr blaða- greininni og leikrit eða skáldsögu uppúr henni, milli þess sem hann laug upp blaðafregnum af velgengni sinni í útlöndum. Engum datt í hug algjör höfundarréttur eða fullkomin nýjung. Gallaða eintakið mitt af Íslenska drauminum eftir Guðmund Andra Thorsson var draumur allra póstmódernista. Mikið ekkisens fífl var ég að skipta því. En öll eintök allra bóka eru gölluð og blönduð öðrum bókum, það er kosturinn við þau. Ég læt mér detta í hug hvernig það væri ef prentsmiðjurnar blönduðu einfaldlega saman öllum handritum sem þeim bærust, það yrði happa og glappa hvernig verk maður fengi. Væri það ekki alveg draumur? Það yrðu textar í stað meistaraverka! Á leiðinni norður hafði ég velt fyrir mérþessari setningu bókmenntafræðings-ins Derrida: Miðjan er annarsstaðar.Og þegar ég settist við skriftir dúkkaði þetta upp aftur, að miðja íslenskrar kanónu væri alltaf annarsstaðar. Gyrðir Elías- son er til dæmis ein helsta þungamiðja hennar en samt blandast engum hugur um að Gyrðir hefur sem höfundur leitað sífellt fjær alfaraleið, hann þræðir afkima íslensks sagnaskáldskapar og notast við bókmenntaform sem eru úrleiðis í einveldi skáldsögunnar. Af nýlegu greinasafni hans má merkja samsömun við höfunda sem hvergi koma við sögu í þulunni um miðjuna en eru þeim mun nátengdari jaðrinum. Ranghverf- an á þessari stöðu er Ólafur Jóhann Ólafsson. Lesendur hans eru aðrir og sennilega fleiri en lesendur Gyrðis, hann virðist miðleitinn höf- undur, skrifar skáldsögur sem eru vinsælar, en samt er hann utanaðkomandi, býr lengst af í Bandaríkjunum og hefur átt misjöfnu fylgi að fagna meðal gagnrýnenda. Í báðum tilfellum er einsog miðjan sé annarsstaðar… Einhversstaðar las ég eða heyrði að Akureyri hefði sterkari miðju en Reykjavík, miðbæjar- kjarninn væri þéttari og á vísum stað. Ef til vill var leitast við á tíunda áratugnum að þétta kjarna íslenskrar bókmenntakanónu. Saga ís- lensku bókmenntaverðlaunanna gæti bent til þessa. Fyrst í stað voru fjölmargir andsnúnir þeim sem fyrirbæri. Fólk hugsaði sem svo að þau mundu búa til einskonar bókmenntalegan aðal, draga upp kategoríur þar sem engar slíkar væri að finna né heldur væri þörf á þeim. Þess- ar raddir dóu út. Fólk sættist á að bókaforlögin stæðu að verðlaununum og gæfu þeim form- legan blæ forsetaembættisins til þess að vekja athygli á bókmenntum. Ekki var meiri ástæða til að vera á móti þeim en auglýsingum. Síðan upphófst gagnrýni af öðru tagi, semsé á glám- skyggni úthlutunarnefnda, hvaða verk væru valin og hver ekki. Þetta var gagnrýni á sam- setningu kanónunnar fremur en fyrirbærið sjálft. Á síðasta ári var svo nefndinni fækkað niður í einn einvald og var hugmyndin sú að nú léki ekki lengur vafi á að huglægt mat einnar manneskju réði úrslitum, ekki vísindalegar rannsóknir eða málamiðlanir nefndarmeðlima. Bókmenntaverðlaunum og ýmsum viðurkenn- ingum fór fjölgandi. Þau hafa ólíkar áherslur og benda til þess að á tíunda áratugnum sé að verða til hér alvöru bókmenntakerfi í stað þess villilands sem Halldór Laxness náði að blómstra uppúr. Í þannig bókmenntakerfi er pláss fyrir fjölda gjörólíkra höfunda, andstæðar skoðanir, það eru margar miðjur, gróska, fjöl- breytni. Tíundi áratugurinn er liðinn. Ég las fáeinarbækur. Svo var ég beðinn um að skrifanokkrar greinar um tíunda áratuginn svoég dældi bílinn minn fullan af bensíni og brunaði norður á Akureyri. Ég sneri til baka með fjórar greinar um tíunda áratuginn, harla ánægður með sjálfan mig. Sú fyrsta fjallaði um fagurfræði og hugmyndaheim á víðum grunni og ég var bara nokkuð kátur með hana. Nið- urstaðan var sú að tíundi áratugurinn væri fjöl- breyttur og gróskumikill í íslenskum bók- menntum. Þó fannst mér líkt og að í síðasta kafla og niðurlagi greinarinnar hefði einhver ægilega kjöftug rödd tekið af mér völdin og ruðst inn með offorsi, líkt og eintak greinarinn- ar væri gallað af hálfu prentsmiðju… Fjölbreytni, ha? Hugsum okkur rithöfund sem sjálfseyðingarhvötin sendir á hraðferð í hundana. Á leiðinni hyggst hann beisla óskiljan- leikann og ríða um koll helgimyndir og heilög orð. Segjum að andófshöfundinum sé laus hönd- in, kjaftfor og hirði ekki um að vanda spor sín. Akademískur ferill liggur ekki fyrir honum; hann er ekki húsum hæfum, hrækir á gólfið og slefar, ekki í listrænum tilgangi. Okkar manni verður ekki skotaskuld úr því að ausa forráða- menn þriggja dagblaða persónulegum svívirð- ingum og girða fyrir aðgang sinn að þeim vett- vangi. Glanstímaritin hafa ekki áhuga á honum, hann er bæði forljótur, gamall fyrir aldur fram og skrif hans eru tímaskekkja. Þegar kemur að bókaútgáfu ætti ekki að vera nema hálft dags- verk að lumbra á þessum fáeinu bókaútgef- endum svo að á sjái og með þeim afleiðingum að ekki verður gefið út. Þar með er okkar maður búinn að vera í menningarheiminum Ísland (eða hvað? Annaðhvort búinn að vera eða dæmdur til að skjótast beint uppá stjörnuhimininn!) Fólk fer ekki að skrifa vel fyrr en það fær ráðrúm og tækifæri til að æfa sig og andófsmanninum okk- ar er hvarvetna vísað á dyr af stakri kurteisi. Ýmislegt vegur þó upp á móti einhverri al- gjörri þöggun. Fólk sem vinnur við menningu er víðsýnt og almenning þyrstir í hneyksli sem aldrei fyrr. En sé höfundur ekki markaðshæfur sem skandall liggur fyrir að fábreyttari vett- vangur er fyrir hendi en áður og færra er um beinlínis andstæða póla. Kjöraðstæður hafa skapast fyrir fáskrúðugt bókmenntalíf. Bóka- forlög hafa runnið saman, fjölmiðlum sem halda uppi menningarrýni farið fækkandi. Hætta er á að sjálfkrafa taki að ríkja samþykki, bók- menntaleg þjóðarsátt þar sem andófsmenning er ekki fyrir hendi. Í þannig ástandi tekur hver inn sinn skammt af siðferðislegu hugmynda– glundri broddborgarans, soðnu saman úr vær- ingum aldarinnar, útvötnuðum kommúnisma, mærðarlegum húmanisma, sauðtryggum líb- eralisma, örlitlu af innlimuðum femínisma, milduðum póstmódernískum rétttrúnaði, góð- borgaralegri aumingjagæsku, skorinortum belgingi um innihald, þjónkun við hégómadýrð rithöfunda, banni við að gagnrýna kjaftavaðal bókmenntafræðinga og yfirborðslegt fjas gagn- rýnenda, innantómum ögrunum, sjálfvirku tauti um hreinleika náttúrunnar, dísætu dulbúnu mannhatri, vasasálfræði, smjaðri fyrir valdhöf- um, ótta við að misstíga sig á brautinni beinu. Sá sem ekki gengst inná samþykkið á engra kosta völ í þrengslunum og getur étið það sem úti frýs. Þrátt fyrir allt tal um fjölbreytni virðist þrengra um vik í íslensku bókmenntalífi í lok tí- unda áratugarins en við upphaf hans. Það er ekki lengur fínt að snúast gegn þróun sam- félagsins og yfirvaldi þess. Þrátt fyrir allt er kannski ekki svo fráleit hugmynd að einmitt núna séu að skapast kjöraðstæður fyrir meiri fábreytni en áður hefur þekkst, skilvirkara úti- lokunarkerfi og ósvífnari innlimun. Í einu orði sagt: einsleitni. Andófshöfundurinn getur hlammað sér niður á fásetinn bekk þar sem rík- ir meira frelsi en annarsstaðar; lítið er um félagsskap því það er næstum enginn úti í kuld- anum í dag. Hlutskipti hans er næstum öfunds- vert. Þegar ég var kominn aftur suður þvoði ég bílinn minn vel og vandlega og hugsaði um úr hvaða grein þessi reiða rödd væri og hvernig ég gæti fengið þetta hrossalega líkingamál um Nóaörk- ina Ísland og tíunda áratuginn sem safnþró til að ganga upp. Auðvitað kom ekkert flóð á end- anum. Aldamótaspennan líktist þeirri tegund af brandara sem ég held að sé kínversk að upp- runa og gengur út á að vera langorður og svíkja svo hlustandann um rúsínuna í pylsuendanum. Ég komst að þeirri niðurstöðu að ég yrði að skrifa þessar greinar uppá nýtt. Eða þá einfald- lega að skrifa grein um greinarnar. Teikning/Brian Pilkington r. Svo var ég beðinn um að skrifa nokkrar greinar um tíunda áratuginn svo ég dældi bílinn minn fullan af bensíni og brunaði norður á Akureyri. Ég sneri til baka með fjórar greinar um tíunda áratuginn, harla ánægður með sjálfan mig.“ Höfundur er bókmenntafræðingur. MENNTUM OG MENNINGU –1. HLUTI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.