Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.2001, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.2001, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. ÁGÚST 2001 9 Hægt koma blómin í heimsókn hægt eins og þú komir langa leið eftir hallandi heiði hvarflir auga til sólar haldir svo áfram engi sem anga af vori og grösum, hægt koma blómin af heiði og horfa með þér yfir ána þangað sem fjöllin fylla fangbreiðan himin af ilmi og hverfa til sumars og sólar með sandgráa fjöru í spori, hægt koma blómin í heimsókn með heiðar og vötn og lyngið fyllir augu þín ennþá ógnlausri stundu sem kemur með blænum í heimsókn og ber þér brennandi þrá til lífsins, þér sem átt aðeins eftir að eignast þá jörð að vini sem bíður með bros af sóley og blikandi dögg á gulum fífli sem fylgir þér, kveður og fer svo með öðrum blómum. (Dagur af degi, 1988.) Miðleitin kallast ljóð sem hverfast um einn efniskjarna, eina hugmynd, í knöppuformi, í hnitmiðuðu máli. Útleitin ljóð eru aftur á móti þannig að ein myndkviknar af annarri og svo koll af kolli: „Þær hrannast upp og leita skipulags í öðrum og opnari byggingarmáta en hið knappa ljóð hefur“ (Óskar Halldórsson). Því er freistandi að kalla þetta ljóð Matthíasar útleitið, en ljóð fylgja ekki alltaf skilgrein- ingum bókmenntafræðinga. Hin markvissa endurtekning „hægt koma blómin í heim- sókn (af heiði)“, og reyndar einnig á orðinu heimsókn, kallar hug lesandans aftur til upphafsins og tengir efnisþætti ljóðsins fastar saman en oftast er í útleitnu ljóði. Ljóðið er þulukennt og mælskuþrungið án málalenginga, og þau áhrif verða sterkari af því að málsgreinar eru ekki aðgreindar með punktum og upphafsstöfum, heldur einungis með fjórum kommum, – líkt og ein samfelld lota. Stuðlasetning er hefð- bundin og hrynjandi næsta regluleg, þrír bragliðir í vísuorði (auk forliða sums stað- ar), þríliður fyrst og tvíliður í lokin, en á milli ýmist þrí- eða tvíliður, – rím ekkert. Mælandi ljóðsins gerir ekki vart við sig, en ávarpar lesandann þráfaldlega í annarri persónu, laðar hann til fylgdar við sig og lætur hann sjá og skynja sýn sína, og þannig verður „þú“ eins konar „ég“. Þetta er svona bragð til að gera lesandann að fyrstu per- sónu ljóðsins. Reyndar getur „þú“ ljóðsins allt eins verið þjóðin, íslensk þjóð sem fagnar hinni hverfulu heimsókn gróðurs og sumars. Ljóðið sýnir einstaklega næma náttúruskynjun skáldsins (sem við þekkjum reyndar úr mörgum öðrum ljóðum Matthíasar) – og um leið lífsfögnuð, eins og lögð er áhersla á með heiti þess. Lykilhugtök virðast mér vera hverfulleiki og ferð sem birtist í heim- sókn en það orð undirstrikar einmitt hverfulleikann. Heimsókn er ekki varanleg. Birting blómanna er eins og hæg ferð sem tengist vegferð mannsins. Maður og gróð- ur ferðast saman, blómin horfa með manninum „yfir ána“. Streymandi vatn er lífs- tákn um fram allt og því líta maður og blóm saman það líf sem þau eru hluti af. En það eru ekki einungis maðurinn og blómin sem hreyfast í þessu ljóði, heldur allt. Jafnvel fjöllin. Unaðslega falleg er myndhverfingin af fjöllunum sem „fylla / fang- breiðan himin af ilmi / og hverfa til sumars og sólar / með sandgráa fjöru í spori“. Og rétt þykir mér að taka sérstaklega eftir sögninni hverfa, því að allt er hér hverfult um leið og það „ber þér / brennandi þrá til lífsins“. Við vitum mæta vel að allt er hverfult, líka hin íslensku blóm sóley og fífill, sem ung- lingar Reykjavíkur keppast nú við að slátra sem óðast með drynjandi vélorfum. Von- andi eiga þeir þó eitthvað enn af lífsþránni brennandi, sem skáldið telur að berist okk- ur eðlilega í „ógnlausri stundu sem kemur / með blænum í heimsókn“. Og kemur þá að aðvörun mælandans mitt í lífsfögnuðinum sjálfum: þrátt fyrir dýrmæta heimsókn gróðursins átt þú (ég, við, þjóðin) „eftir / að eignast þá jörð að vini/ sem bíður með bros af sóley“. Og hér er ekki úr vegi að gefa sérstakan gaum að sögninni bíður. Með jarðvináttu má gera hverfulleikann að varanleika, – með því að tryggja sífellda end- urtekningu hinnar dýrmætu heimsóknar. Og loks breytist fögnuður þessa næma ljóðs í fögnuð yfir þessu næma ljóði. MATTHÍAS JOHANNESSEN FÖGNUÐUR LJÓÐRÝNI N J Ö R Ð U R P . N J A R Ð V Í K m r - g r - ð m . r , - m k é n a ð l í a g r y ð , m l - - i - - a r - ð - ð - l n - n r m n - l n - r k u m i n ð ð ð - u - ð á , Normannarnir, sem hann gerði ásamt Poul Gernes. Árið 1976 tók hann þátt í sérsýningu Tvíæringsins í Feneyjum með verkinu Tegel- stensmur – Múrsteinsveggur – sem vakti ómælda athygli vegna póstmódernískrar form- gerðar sinnar, þar sem málverk voru felld inn í skrautlega hlaðinn múrsteinsvegg. Árið 1978 varð hann gestaprófessor við Akademíuna í Karlsruhe, Þýskalandi, og 1980 festi hann kaup á húsi á eynni Læsø, í Kattegat. Þar hefur síðan verið annað heimili hans. Árið 1982 tók hann þátt í Documenta 7, í Kassel, og Zeitgeist í Berl- ín. Sama ár voru haldnar yfirlitssýningar á verkum hans í Róm, New York og Sydney. Árið 1992 var hann einn af máttarstólpum Docu- menta 9, í Kassel. Af þessari hráu upptalningu má ljóst vera að Per Kirkeby hefur komist eins langt og nokkur myndlistarmaður getur náð í virktum og við- urkenningu, án þess að það hafi í nokkru breytt alþýðlegu upplagi hans. Segja má að framinn hafi í engu breytt innhverfri afstöðu hans til lífsins og tilverunnar. Hann hóf feril sinn undir formerkjum popplistarinnar undir miðjan sjö- unda áratuginn og þá þegar toguðust á tvær ólíkar leiðir í list hans. Annars vegar voru það klassískir myndbyggingarstuðlar sem mæltu fyrir um yfirvegun, skýra skiptingu flata og hreint litaval í samræmi við formteikninguna. En þó svo að mjög ákveðin formteikning gæfi til kynna skuggamyndir persóna, bílhluta eða hvers kyns mynstur höfðu litirnir tilhneigingu til að yfirstíga allar teiknaðar hindranir og dreifast frjálst út um allan flötinn. Á þessum árum, og reyndar allt til loka átt- unda áratugarins var masonít eftirlætisefnivið- ur Kirkeby sem undirstaða. Harður flötur gaf honum tækifæri til að teikna ofan í, og skafa málningarlagið með ákafari hætti en ef hann hefði unnið verk sín á striga. Af fjölmörgum risastórum verkum sem hann málaði á masonít um miðjan sjöunda áratuginn hefur hann sjálfur dregið athygli okkar að Dómi Parísar – Das Ur- teil des Paris – frá 1966. Í ritgerðasafninu Nat- urens blyant, frá 1978, segir hann að verkið hafi verið stærsta og metnaðarfyllsta verk sitt á þessum árum, þó svo að verkið Rómantísk mynd – Romantisk billede – frá 1965, sé reynd- ar helmingi stærra. Kirkeby segir í ritgerðinni „Til arkivet“ – Til skjalaskápsins – í áðurnefndu ritgerðasafni að hin gríska goðsögn um dóm Parísar hafi reynd- ar ekkert að gera með inntak verksins. Heitið var einungis sprottið af sérstæðu myndefninu sem sýnir húsbyggingu, sem túlka má sem framhlið á klassísku hofi. Byggingin tekur yfir allan myndflötinn, en hann er settur saman úr níu masonítplötum, sem hver er 1,22 metri á kant. Þannig myndaði verkið stóran ferning sem ásamt hofmyndinni gerði megnið af mynd- inni mjög naumhugula í ströngum og gráleitum einfaldleik sínum. En það lýsir vel skapandi afstöðu listamanns- ins að neðstu plöturnar í verkinu voru málaðar með tilklipptum landslagsglefsum af laufskógi. Í staðinn fyrir að leysa myndbygginguna með heilsteyptum og einföldum hætti kaus Kirkeby að spenna upp myndina með því að búa til sér- kennilega togstreitu milli hreinna línanna, sem tákna eiga súlur hofsins, og smáatriðanna í landslaginu í bakgrunninum. Þannig sýndi lista- maðurinn að hann var reiðubúinn að fara sína eigin leið í trássi við myndræn lögmál og rök- rænt eðli verksins. Eftir þetta hefur hann oft látið þess getið að flest verk sín á sjöunda ára- tugnum hafi fjallað um átök milli heildar og smátriða. En hví ættum við að dvelja við gömul verk eftir Kirkeby þegar á Listasafninu á Akureyri er að finna úrval af verkum málarans frá liðnum áratug? Því er til að svara að málverkin sem nú eru til sýnis í Listasafninu á Akureyri eru öll unnin á masonít, í mælieiningunni 1,22 x 1,22 metrar, nákvæmlega eins og flest verk lista- mannsins frá upphafi vega og allt til loka átt- unda áratugarins. Það var einungis á níunda áratugnum sem strigi í margvíslegum stærðum leysti masonítplötuna af hólmi. Afturhvarf til upphafsins segir töluvert um Kirkeby og rómantískt atferli hans. Hann hefur í raun aldrei sagt skilið við mótífin frá fyrstu ár- unum. Þau hafa einungis horfið undir lag af nýrri málningu og þar með orðið að palimsesti, undirlagi undir nýju lagi sem síðan verður und- irlag þegar nýtt lag kemur ofan á það. Og víst er að málarinn hefur fyrir löngu skynjað sam- svörunina milli aðferða sinna og aðferða náttúr- unnar við að móta yfirborð jarðar. Að því leyti er Kirkeby mun meiri impress- jónisti en expressjónisti. Líkt og Monet reynir hann að höndla flötinn með aðferðum sjálfrar náttúrunnar. Svo enn sé vitnað í ritgerðasafnið Bravura, segir listamaðurinn að sér finnist sem að öll list sín fjalli og hafi ætíð fjallað um holur eða hella. Annaðhvort finnst honum sem hann sé staddur í helli og horfi út um opið mót ljósinu eða stari inn í dimman hellismunnann. Höggmyndirnar undanskilur hann heldur ekki þessum ákvæðum. Vítishlið Rodin hefur alla tíð verið honum hugleikið enda hefur hann sjálfur mótað nokkur verk sem hann kallar Hlið. Milli höggmynda Kirkeby og málverka er náinn skyldleiki. Í báðum tilvikum gengur hann út frá tóminu, holunni eða hellinum. Munurinn er sá að í málverkunum er líkast því að hann gægist út til að nema ljósið sem kemur langt og mjótt inn í myrkrið til hans, en í höggmynd- unum er áttunum snúið við. Listamaðurinn stendur í ljósinu og horfir inn í dimman og drungalegan hellinn. Slík óbein tilvísun í forngríska goðafræði og heimspeki – dauflega heima hinna framliðnu sem og dæmisögu Platóns um hellisbúana – ger- ir list Kirkeby óvenju þroskaða og yfirvegaða þrátt fyrir frjálslegt, leikandi og oft losaralegt handbragð. Þetta sambland grafísks flæðis, drungalegra lita og klassískra tilvísana kallaði bandaríski listfræðingurinn Peter Schjeldahl „Kirkeby effektinn“ og undraðist mjög að hann skyldi vera eini núlifandi listamaðurinn sem mundi eftir sem höfðaði til þroska áhorfandans. Frammi fyrir myndum Kirkeby spurði Schjel- dahl eilítið ráðvilltur: „Hversu margir lista- menn samtímans skapa verk fyrir fullorðna?“ Sýningin er styrkt af Menningarborgarsjóði. Þess má einnig geta að hinn 18. ágúst verður opnuð sýning á 5 steinþrykksverkum eftir Kirkeby í sal Félags íslenskra grafíklistamanna í Tryggvagötu í Reykjavík. Nyt Laeso-hoved. 1984. Brons-skúlptúr. 115 x 47 x 61 cm. kni á masonít-plötu, 122 x 122 cm.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.