Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.2001, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 04.08.2001, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 4. ÁGÚST 2001 13 F YRIR átta árum voru haldnir reykvískir menningardagar í Bonn í Þýskalandi. Bonn hefur lengi haldið árlega sumarhátíð, sem felst í því að í hvert sinn er einhverri evrópskri borg boðið að kynna þar menningu sína. Ís- landskynningin gekk vonum fram- ar og fjölmargir íslenskir listamenn í öllum list- greinum sóttu Bonn heim í júní 1993. Reykjavíkurdagarnir fengu mikla umfjöllun í fjölmiðlum ytra og gagnrýnendur voru almennt mjög ánægðir með framlag íslensku listamann- anna. Þetta var þá stærsta kynning sem haldin hafði verið á íslenskri list erlendis. Góð tengsl komust á milli íslensku þátttakendanna og að- standenda hátíðarinnar ytra, tengsl sem hafa ekki rofnað þótt árin hafi liðið. Góð reynsla grunnur að frekara samstarfi Hér á landi er nú stödd Elisabeth Weiser, menningarfulltrúi í menningardeild Bonnborg- ar, og er erindi hennar að kynna opinberum að- ilum frekari hugmyndir um menningarsamstarf í framtíðinni. „Reykjavíkurhátíðin í Bonn árið 1993 var ákaflega vel heppnuð. Um áttatíu íslenskir listamenn komu til Bonn. Hátíðin naut stuðn- ings opinberra aðila á Íslandi, bæði ríkis og borgar, en einnig Ferðamálaráðs, Flugleiða og annarra fyrirtækja og stofnana. Það er gaman að vera komin hingað núna og upplifa stórkost- legan andann hér og hitta aftur þá listamenn sem komu til Bonn. Okkur hefur alltaf langað til að halda þessum tengslum áfram og 1995 tókumst við á hendur annað verkefni með lista- mannaskiptum milli Bonn og Reykjavíkur. Nú er svo komið að við viljum halda samskiptunum enn áfram og í Bonn höfum við þróað með okk- ur nýja hugmynd að alþjóðlegu samstarfi. Við viljum koma á samskiptaneti við nokkrar borg- ir vítt og breitt um heiminn. Sex borga menningarnet Á þessari stundu eru borgirnar sem Bonn vill koma á menningarsambandi við eftirfarandi: Chengdu í Kína, La Paz í Bólivíu, Salzburg í Austurríki, Minsk í Hvíta-Rússlandi og Reykja- vík á Íslandi. Ég held að það verði mjög spenn- andi að koma á sambandi milli þessara sex borga. Fyrsta skrefið verður að koma á ein- hvers konar samskiptum listamanna þessara borga við Bonn og næsta skref yrði meiri sam- vinna milli borganna allra, þar sem listamenn frá til dæmis Reykjavík og La Paz hittust í Bonn og ynnu saman þar. Þriðja skrefið yrði þá til dæmis að íslenskir listamenn hefðu bein samskipti við listamenn frá La Paz og svo framvegis. Þannig gætu listamenn í öllum borgunum sex notið þessa samskiptanets á margvíslegan hátt og haft af því gagn. Ég held að þetta sé góð hugmynd og mjög spennandi.“ Fyrstu skrefin hafa þegar verið tekin Elisabeth Weiser segir að þetta séu hug- myndirnar sem hún sé að kynna fyrir Íslend- ingum. „Reyndar viljum við þróa þessa hug- mynd nánar í mikilli samvinnu við borgirnar fimm og í október kemur hingað sendinefnd frá Bonnborg til að þróa þessar hugmyndir í sam- vinnu við samstarfsaðila okkar hér. Við munum leita til utanríkisráðuneytisins, menntamála- ráðuneytisins og Reykjavíkurborgar, auk ann- arra stofnana og fyrirtækja. Það eru borgaryf- irvöld í Bonn sem standa fyrir þessu í samstarfi við sambandsríkið Norðurrín-Vestfalíu, menn- ingarstofnanir í einkageiranum og aðra.“ El- isabeth Weiser segir að fyrstu skrefin í þessu samstarfi hafi þegar verið tekin, með samstarfi listamanna frá Bonn við dægurlagahljómsveit í La Paz og nútímadanshóp og hljómsveit í Chengdu. Það hafi verið fyrstu samskipti þess- ara hópa við vestur-evrópska listamenn og samstarfið hafi verið mjög árangursríkt. „Við lærum margt af þessu, eins og til dæmis það, að þjóðirnar skipuleggja hlutina hver á sinn veg. Þessar þjóðir, Bólivíumenn og Kínverjar, gera hlutina til dæmis á annan veg en Íslendingar og Austurríkismenn og þetta er ekki síst ánægju- legt vegna þess hve þjóðirnar eru ólíkar.“ Langtímaverkefni Elisabeth Weiser segir verkefnið vera hugs- að til langs tíma; það muni taka tíma að koma því í gang, en eftir því sem hjólin fari að snúast muni það eflast. Hún segir fjármögnun hafa gengið vel hingað til, auk opinberra aðila hafi ýmiss konar fyrirtæki og stofnanir sýnt verk- efninu áhuga. „Við í menningardeildinni í Bonn höfum langa reynslu af að skipuleggja svona lagað og það hjálpar okkur. Við erum mjög bjartsýn á að þetta gangi vel og ég er þakklát fyrir þann áhuga sem verkefninu hefur verið sýndur hér á Íslandi.“ Sex borgir vinna saman að menningarsamskiptum Listamenn frá La Paz í Bólivíu, Reykjavík á Íslandi, Chengdu í Kína, Salzburg í Austurríki og Minsk í Hvíta-Rússlandi eiga fyrir höndum mörg stefnumót hverjir við aðra og við listamenn í Bonn, ef hugmyndir menningardeildar Bonnborgar um menningarnet borganna sex ná fram að ganga. BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR ræddi við Elisabet Weiser sem var í kynn- ingarferð hér á landi í vikunni. Morgunblaðið/Ásdís Elisabeth Weiser, menningarfulltrúi í Bonn. BRESKA leikritaskáldið William Shakespeare virðist njóta tölu- verðra vinsælda hjá Áströlum um þessar mundir og er það ekki hvað síst að þakka Bell Shake- speare leikfélaginu, sem stjórn- að er af ástralska leikaranum John Bell. Næstu sex mánuði mun leikfélagið fara með far- andsýningu á verkunum Júlíus Sesar, Antoníus og Kleópatra og Ofviðrið milli borga og bæja landsins, á meðan annar leik- hópur á vegum Bell mun sýna brot úr verkum leikritaskáldsins í yfir 100 skólum. Eitt þeirra verka Shakespeare R&J, sem hefur fengið góðar viðtökur gagnrýnenda, er nútíma út- færsla á Rómeó og Júlíu og er sviðið að þessu sinni kaþólskur drengjaskóli og leikararnir allir karlmenn. „Ég setti mér það markmið að koma á fót farand- leikhúsi sem sýndi verk Shake- speares á nútímalegan hátt þar sem áhersla væri lögð á mál- efnalega hlið verkanna,“ sagði Bell um leikfélag sitt sem notið hefur síaukinna vinsælda á þeim 10 árum sem liðin eru frá stofn- un þess. Verkin voru upphaflega sett á svið í tjöldum en uppgang- urinn hefur verið slíkur að auk leikritanna, sem ferðast einar 30.000 mílur á hverri leiktíð, sér flokkurinn nú um dagskrá fyrir skóla, námskeið og vefsíðu til að færa áhorfendur nær verkunum. Nýr framkvæmda- stjóri djassdeildar Lincoln Center BRUCE MacCombie hefur verið valinn framkvæmdastjóri djass- deildar Lincoln Center menning- armiðstöðvarinnar í New York, að því er dag- blaðið New York Times greindi frá í vikunni. MacCombie sem áður hefur starf- að sem deild- arforseti lista- deildar Boston-háskóla og sem deildarforseti hjá hinum virta Juilliard-skóla tekur þar við af Rob Gibson, sem á heið- urinn að miklum vexti djass- deildarinnar sl. áratug. Tilkynnt var um væntanlega afsögn Gib- son í desember í fyrra í kjölfar þess að framkvæmdir við nýtt tónlistarhús fóru talsvert fram úr kostnaðaráætlun. MacComb- ie, sem einnig er tónskáld, segir sitt fyrsta verk verða að ljúka byggingu tónlistarhússins, sem nú skortir um 35 milljón dollara fjárveitingu. „Vitanlega er þetta svolítið ógnvekjandi, en á hinn bóginn er þetta svo gott málefni. Djasstónlistina þarf að knýja enn frekar inn í miðju menningarlífs- ins og þetta er rétta leiðin,“ sagði MacCombie sem vonast til að auka enn á vinsældir tónlist- arstefnunnar. Hitchcock í París GEORGES Pompidou lista- miðstöðin í París hefur und- anfarið hýst sýninguna Hitch- cock og listirnar: Banvænar tilviljanir. Sýningunni er ætlað að skrásetja áhrif 19. og 20. ald- ar lista á kvikmyndir Hitchcocks og virðast áhrifavaldarnir fjöl- margir ef marka má sýninguna. Meðal muna eru um 200 19. og 20. aldar listaverk – málverk, teikningar, grafísk verk, bóka- skreytingar og skúlptúrar, sem og 300 kvikmyndamunir á borð við ljósmyndir, auglýsingaplaköt og -spjöld, leikmyndir, búninga og brot úr kvikmyndum. Shakespeare vinsæll hjá andfætlingum ERLENT Bruce McCombie Á SUMARTÓNLEIKUM í Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar þriðjudagskvöldið 7. ágúst kl. 20.30 koma fram Berglind María Tómasdóttir flautuleikari og Arne Jørgen Fæø píanóleikari. Á efnisskrá eru Le merle noir fyrir flautu og píanó eftir Olivier Messiaen, Þrjár músíkmín- útur fyrir flautu eftir Atla Heimi Sveinsson, Columbine fyrir flautu og píanó eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Tónsmíð fyrir vinstra heila- hvel – (heilafruma deyr) fyrir flautu eftir Kol- bein Einarsson, sem er frumflutningur, og Sónatína fyrir flautu og píanó eftir Henri Dut- illeux. Berglind María Tómasdóttir lauk burtfar- arprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1998. Kennarar hennar voru Bernharður Wilk- inson og Hallfríður Ólafsdóttir. Berglind stundaði framhaldsnám við Konunglega tón- listarháskólann í Kaupmannahöfn þar sem að- alkennari hennar var Toke Lund Christiansen og útskrifaðist hún þaðan sl. vor. Hluta náms- ins var hún gestanemi við Tónlistarháskólann í París undir leiðsögn Pierre-Yves Artaud. Berglind hefur haldið fjölda tónleika í Skand- inavíu, Frakklandi og á Íslandi og er félagi í tónlistarhópnum Atonal Future. Nýverið sótti Berglind kammertónlistarnámskeið á vegum franska tónlistarhópsins Ensemble Intercon- temporain sem fram fór í París, en hún hefur auk þess sótt námskeið hjá ýmsum þekktum flautuleikurum, meðal annars William Benn- ett, Emanuel Pahud og Manuelu Wiesler. Arne Jørgen Fæø lauk prófi í píanóleik frá Konunglega tónlistarháskólanum í Kaup- mannahöfn undir leiðsögn prófessors José Ribera. Hann stundar nú framhaldsnám í kammertónlist við sama skóla og mun halda lokatónleika sína í haust. Arne Jørgen hefur komið fram sem einleikari með hljómsveit Konunglega tónlistarháskólans og Sinfóníu- hljómsveitunum í Þrándheimi og Stafangri. Hann hefur sótt námskeið hjá mörgum helstu píanóleikurum heims, meðal annars Charles Rosen, Paul Badura-Skoda, Rudolf Jansen og Pnina Salzmann. Arne Jørgen Fæø er virkur flytjandi kammertónlistar og spilar reglulega með ýmsum dönskum sinfóníuhljómsveitum, meðal annars Underholdningsorkester danska ríkisútvarpsins. Tónlist fyrir vinstra heilahvel Arne Jørgen Fæø Berglind María Tómasdóttir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.