Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.2001, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.2001, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. NÓVEMBER 2001 3 E INHVERNTÍMA var gert grín að því að reiknað hefði verið barn í konu. Nú er búið að reikna járnbraut á Reykjanes- ið og ég veit satt að segja ekki hvort er meira grín. Íslendingar hafa alltaf verið veikir fyrir járnbrautum. Mest vegna þess að slík farartæki hafa aldrei verið til á Íslandi, ef undan er skilin brautin sem flutti grjótið úr Öskjuhlíð í hafnargarðana á sínum tíma. Hafnargerðin í Reykjavík var líklega meiri framkvæmd á kvarða síns tíma en þær stórvirkjanir sem nú eru til umræðu. Hugsjónamenn dreymdi um járnbraut austur yfir fjall og reiknuðu sjálfsagt með því að meðfram brautinni döfnuðu hvarvetna þorp og blómleg býli, rétt eins og í Amerík- unni þegar járnbrautarkerfið teygði sig vest- ur á bóginn og gerði nýja landshluta byggi- legri en áður. Þegar dr. Valtýr Guðmundsson stofnaði tímarit sem átti að vera boðberi nýrra tíma gaf hann því nafnið Eimreiðin. Tímaritið átti að knýja þjóðina inn í nýja öld framfara og velmegunar. Við nám vestanhafs fyrir góðum fjórum áratugum bjó undirritaður skammt frá braut- arteinum þar sem fóru vöruflutningalestir með tilheyrandi skrölti. Það var seinna sem það rann upp fyrir honum að þeir hvítu blönku bjuggu næst brautarteinunum mín megin og þeir svörtu bjuggu hinum megin. Sumar drógu lestirnar upp undir hundrað vagna. Þá voru líka dísilknúnar eimreiðar fleiri en ein. Fyrstu næturnar hrökk maður upp með andfælum, þegar gamla timburhúsið lék á reiðiskjálfi er lestirnar fóru hjá. Á dag- inn var það dægradvöl að líta upp úr náms- bókunum, horfa á þetta nýnæmi rétt utan við gluggann og telja vagnana. Einn daginn upp- götvaði ég mér til mikillar undrunar að í hug- anum var ég farinn að telja á ensku. Það var fyrsta skrefið til hugsunar á annarri tungu. Svo hætti maður að heyra í lestunum. Lesta- skröltið varð hluti af umhverfishljóðunum sem röskuðu ekki rónni, hvað þá að það stæði manni fyrir svefni. En Íslendingar urðu að láta sér nægja mjó- ar malarbrautir og troðninga. Kölluðu brýr þar sem gert var hestfært yfir keldur og kíla. Þegar Íslendingar komu til Vesturheims þekktu þeir ekki hugtakið að fara yfir götu, – menn fóru eftir eða um götur, oft fjárgötur. Á Íslandi voru ekki til neinar götur til að fara yfir. Kannski var það þess vegna sem Vestur- Íslendingar töluðu um „að krossa strítuna“, þegar þeir fóru yfir götu. Þeir þekktu ekki hugtakið að fara yfir götu. Draumarnir um járnbrautir rættust eigi, enda þótt málið kæmist á þann rekspöl að mælt var fyrir járnbraut austur yfir fjall. Gott ef brautarstöð var ekki teiknuð og átti að rísa þar sem nú mætast Flókagata og Rauðarárstígur, eða þar í grennd. Þá hefði verið gaman að búa á Skeggjagötunni, eða hitt þó heldur. Á nýrri öld eru járnbrautardraumar enn á ferli. Nú á að huga að því að leggja járnbraut úr Breiðholti að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ekki verður annað séð en ráðamenn Reykja- víkurborgar séu í fúlustu alvöru að gæla við þá hugmynd að milljarðatugum úr sameig- inlegum sjóðum landsmanna verði varið til að kosta járnbraut þar sem „tekjurnar gætu staðið undir kostnaði af rekstri lestarinnar á komandi árum, ef spár um fjölgun ferða- manna ganga eftir, en ekki fjárfestingunni“, svo vitnað sé til orða borgarstjórans í Reykja- vík í Fréttablaðinu 18. október síðastliðinn. Höfundur þessara lína er ekki mikill reiknimeistari, enda stúdent úr máladeild MR og stoltur af. Hann þykist þó sjá í hendi sér að ekki er nokkur grundvöllur fyrir rekstri járnbrautar milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Alveg sama hvernig reiknað er. Áætlað er að stofnkostnaður geti numið 29 milljörðum króna. Slíkar áætlanir hafa oftar en ekki tilhneigingu til að vera of lágar. Farþegaumferð um Keflavíkurflugvöll er nær eingöngu kvölds og morgna ef undan er skilinn háannatíminn yfir sumarið. Farþega- straumurinn um völlinn er því aðeins milli klukkan hálfsex og átta á morgnana og þrjú og fimm síðdegis. Þannig er það lungann úr árinu. Talað er um að ferðatími til Keflavíkur verði 30 mínútur og lestarstöð verði í Mjódd. Meðalferðatími úr Reykjavík til Keflavíkur í bíl er 45–50 mínútur. Úr vesturhluta borg- arinnar, af Seltjarnarnesi og úr Mosfellsbæ, tekur 10–20 mínútur að koma sér í Mjóddina. Þeir ferðamenn spara ekki tíma. Margir munu eftir sem áður kjósa að koma á eigin bíl til Keflavíkur. Nota það frelsi sem fylgir því að aka að flugstöðinni. Þetta mun líka aukast eftir að byggt hefur verið bílageymsluhús við flugstöðina. En ef menn trúa því að hagkvæmt sé að reka járnbraut milli Reykjavíkur og Kefla- víkur skulu þeir skoða rekstur járnbrautanna til Arlanda frá miðborg Stokkhólms og frá Osló til Gardemoen. Báðar eiga í erfiðleikum. Samt er íbúafjöldi á markaðssvæðum þeirra margfaldur á við Reykjanes og Reykjavík og það sem ekki síður skiptir máli er að þessar tvær brautir eru hluti af gamalgrónu og víð- feðmu lestaneti þessara tveggja landa. Hér á landi er engu slíku fyrir að fara. Enn bætist við að flug frá Arlanda og Gardemoen er ekki aðeins meira en frá Keflavík heldur er dreif- ingin jafnari yfir daginn. Nú hafa verið gerð göng undir Hvalfjörð. Umferð um þau hefur farið fram úr öllum spám, eins og ritari þessa Rabbs raunar sagði fyrir margt löngu á Alþingi að gerast mundi. Fjárhagslega standa göngin fyrir sínu. Þeir sem um þau fara borga ekki bara rekstr- arkostnað. Þeir greiða líka það sem kostaði að gera göngin. Hvers vegna eiga þeir sem ferðast með fyrirhugaðri járnbraut til Kefla- víkur ekki að greiða kostnaðinn við gerð brautarinnar? Auðvitað eiga þeir að gera það. En þá gengur dæmið heldur ekki upp. Það er nefnilega vitlaust reiknað. Ef einhverjir fjárfestingaraðilar eða sjóðir eru reiðubúnir að fjármagna járnbraut milli Keflavíkur og Reykjavíkur og eiga brautina og reka þar til þeir hafa endurheimt fjárfest- inguna, þá gjöri þeir svo vel. Það mætti hafa nákvæmlega sama háttinn á og um Hval- fjarðargöngin. Nýtt fyrirtæki um járnbraut til Keflavíkur gæti kannski heitið Mölur en ekki Spölur svona í minningu gamla mal- arvegarins milli Reykjavíkur og Keflavíkur. Svo hefur Mölur líka aðra merkingu, en það er önnur saga. Hér á árum áður, þegar ný og stærri Akra- borg hóf siglingar milli Akraness og Reykja- víkur og var mikil samgöngubót, var frammá- maður á Akranesi spurður hvernig reksturinn gengi: Alveg ljómandi vel, svaraði hann – allt nema fjárhagshliðin. Ætli það verði ekki eitthvað svipað með járnbraut- ardrauminn á Reykjanesi. REIKNAÐU JÁRNBRAUT! RABB E I Ð U R G U Ð N A S O N e i d u r @ h o m e . c o m JÓNAS HALLGRÍMSSON ÍSLAND Ísland! farsældafrón og hagsælda hrímhvíta móðir! Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best? Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama lýsir sem leiftur um nótt, langt fram á horfinni öld. Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart. Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit. Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti; ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt. Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð. Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði. Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll. Þá riðu hetjur um héröð og skrautbúin skip fyrir landi flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim. Það er svo bágt að standa’ í stað, og mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið. Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur? Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart. En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut. Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á lögbergi helga blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik. Ó, þér unglingafjöld og Íslands fullorðnu synir! Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá! Jónas Hallgrímsson (1807–1845) var helsta skáld rómantísku stefnunnar á Ís- landi. Í Íslensku alfræðiorðabókinni segir að ættjarðarkvæði Jónasar, meðal annars Ísland og Gunnarshólmi, hafi verið mikilvægt framlag til þjóðfrelsisbar- áttu Íslendinga og þau hafi stuðlað að þjóðernisvitund þeirra æ síðan. Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur ár hvert á afmælisdegi Jónasar, 16. nóvember.FORSÍÐUMYNDIN er af verki eftir Birgi Andrésson myndlistarmann: Fáni. Íslensk ull. 2000. Prjónari: Steinunn Svavarsdóttir. Ljósmynd: Ásdís Ásgeirsdóttir. Bókmenntagagnrýni verður mikið milli tannanna á fólki næstu vikurnar ef að líkum lætur. Hermann Stef- ánsson skýrir og skilgreinir sjö hugtök bók- menntagagnrýni og -umræðu í tveimur greinum undir yfirskriftinni: Úr orðabók ríkjandi viðhorfa. Seinni greinin birtist í næstu Lesbók. Ísland – Útland er yfirskrift greinaflokks sem hefur göngu sína í Lesbók í dag um þjóðernishyggju og þjóðarímynd Íslendinga á aldamótum. Í fyrstu greininni fjallar Sigríður Matth- íasdóttir um hvað er líkt með þjóðarímynd Íslendinga og Tékka og kemst að þeirri nið- urstöðu að þjóðernisstefna þeirra tengi þær saman frekar en að greina þær í sundur. Philip Roth er bandarískur rithöfundur sem hefur átt fáheyrðri velgengni að fagna í bókmennta- heiminum vestanhafs. Fjögur helstu bók- menntaverðlaun Bandaríkjanna hafa fallið honum í skaut á síðustu árum. Björn Þór Vilhjálmsson fjallar um bækur Roths. Jón Óskar rithöfundur hefði orðið áttræður á árinu. Af því tilefni stendur yfir sýning á hand- ritum og gögnum hans í Þjóðarbókhlöð- unni. Dóttir skáldsins, Una Margrét Jóns- dóttir, leiddi Bergþóru Jónsdóttur um sýninguna og sagði sögur af skáldinu og samferðamönnum. LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 4 5 . T Ö L U B L A Ð - 7 6 . Á R G A N G U R EFNI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.