Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.2001, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.2001, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. NÓVEMBER 2001 15 MYNDLIST Árnastofnun: Handritasýning opin þri.- fös 14-16. Til 15.5. Galleri@hlemmur.is: Ilmur Stefáns- dóttir. Til 2. des. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Elín G. Jóhannsdóttir. Til 18. nóv. Gallerí Reykjavík: Guðmundur Björgvinsson. Til 21. nóv. Gallerí Skuggi: Sara Björnsdóttir. Til 25. nóv. Gerðarsafn: Fjórir listamenn. Til 2. des. Gerðuberg: Þórunn Sveinsdóttir. Til 16.12. Hafnarborg: „Air conditio“ Fjórir listamenn. Kaffistofa: Hlíf Ásgríms- dóttir. Til 3. des. Hönnunarsafn Ísl., Garðatorgi: Gjöf Eriks Magnussen. Til 2. des. i8: Roni Horn. Til 12.1. Íslensk grafík: Sigrún Ögmundsdótt- ir. Til 3. des. Listasafn Akureyrar: Óli G. Jóhanns- son og Kristján Davíðsson. Til 16. des. Listasafn ASÍ: Margrét Jónsdóttir. Til 25. nóv. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga, nema mánudaga, kl. 14-17. Listasafn Íslands: Gunnlaugur Schev- ing. Til 9. des. Listasafn Rvíkur - Ásmundarsafn: Svipir lands og sagna. Til 10.2. Listasafn Rvíkur - Hafnarhús: Einar Már Guðvarðarson og Bjarne Lönnro- os. Til 25. nóv. Erró. Til 1.1. Listasafn Rvíkur - Kjarvalsstaðir: Jó- hannes S. Kjarval. Til 31.5. Tékknesk glerlist. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Vetr- arsýning. Listasalurinn Man: Kjuregej Alex- andra og Ingibjörg Hjartardóttir. Til 4. des. Listhús Ófeigs: Þrjár skólasysutr. Til 21. nóv. Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Sams. 17 ljósmyndara. Til 13. des. Norræna húsið: Ævintýrasýning. Til 9. des. Myndir úr sænskum barnabók- um. Til 2. des. Nýlistasafnið: Omdúrman: Margmiðl- aður Megas. Til 30. nóv. Straumur, Hafnarfirði: Birgir Sig- urðsson. Til 25. nóv. Stöðlakot: Dominique Ambroise. Til 18. nóv. Þjóðarbókhlaða: Ævi og störf Bjarg- ar C. Þorláksson. Til 1.1. Harpa Björnsdóttir. Til 7. des. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Langholtskirkja: Lúðrasveit verka- lýðsins. Kl. 14. Norræna húsið: Norræni vísna- kvartettinn Nordenom. Kl. 16. Sunnudagur Bústaðakirkja: Cuvillés-kvartettinn. Kl. 20. Grensáskirkja: Kirkjukór Grensás- kirkju. Kl. 20. Hjallakirkja, Kópavogi: Haukur Guð- laugsson organisti. Kl. 17. Landakotskirkja: Styrktartónleikar Caritas. Kl. 16. Seltjarnarneskirkja: Kaldalónssöngv- ar. Kl. 17. Þriðjudagur Salurinn: Áshildur Haraldsdóttir, Anna Guðný Guðmundsd. Kl. 20. Fimmtudagur Háskólabíó: SÍ. Einleikari: Philippe Bianconi. Kl. 19:30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Syngjandi í rigning- unni, 23. nóv. Laufin í Toscana, 17. nóv. Blái hnötturinn, 18. nóv. Vatn lífsins, 18., 22. nóv. Hver er hræddur við Virginíu Woolf?, 17., 18., 22. nóv. Karíus/Baktus, 17. nóv. Borgarleikhúsið: Fjandm. fólksins, 17., 22. nóv. Blíðfinnur, 17., 18. nóv. Kristnihlad u. Jökli, 18. nov. Með vífið í lúkunum, 23. nóv. Beðið eftir Godot, 18. nóv. Píkus., 23. nóv. Íslenski dansflokkurinn: Da, Milli heima, Plan B, 17. nóv. Íslenska óperan: Töfrafalutan, 17., 23. nóv. Hafnarfjarðarleikhúsið: Englabörn, 23. nóv. Möguleikhúsið: Skuggaleikur, 18. nóv. Lóma, 20. nóv. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U L ANDSBÓKASAFNI Íslands barst nýverið að gjöf handrit og fleiri gögn úr fórum Jóns Óskars rithöf- undar, en hann hefði orðið áttræð- ur á þessu ári. Gefendurnir eru ekkja Jóns, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, og dóttir þeirra, Una Margrét Jónsdóttir. Þá gaf Kristín safninu myndlistarverk sem hún hefur búið til sérstaklega til minningar um eiginmann sinn og nefnist Blik, blek og litblýantur á pappír. Af sama tilefni var opnuð sýning á annarri hæð Þjóðarbókhlöðunnar á gögnum skáldsins og það er Una Margrét dóttir Jóns, sem leiðir okkur um hana. „Okkur datt í hug að gera eitthvað í tilefni af því að pabbi hefði orðið átt- ræður í ár. Mamma kom með þá hugmynd að við skyldum gefa stóran hluta af handritum hans til safnsins, og biðja um leið um það að af því tilefni yrði haldin sýning á verkum hans. Forstöðumenn safnsins urðu strax mjög ánægðir með þessa uppástungu og tóku henni vel, og einnig því að mamma bauðst til að gefa þeim listaverk í minningu föður míns.“ Una Margrét segir að faðir hennar hafi haldið handritum sínum vel til haga og að það hafi ekki þurft að hafa mikið fyrir því að taka þau saman. „Hins vegar er vinna fólgin í því að flokka þetta, og við reynum að skrá hjá okkur allt sem við gefum, en það eru ýmis persónu- legri handrit og bréf sem við höldum eftir. Í gjöfinni eru handrit að ljóðum, óbirtum þýð- ingum og endurminningabókunum hans, teikningar, fyrsta ritvél Jóns og bréf frá ýms- um rithöfundum og listafólki til hans. Það er heilmikið safn. Hann handskrifaði verk sín alltaf fyrst, en vélritaði svo, en í vélrituðu handritunum flestum er mikið af skrifuðum breytingum, þannig að þar má rekja hverju hann vildi breyta, og það er ekki síst í því sem gildi handritanna liggur.“ „Ég er að stríða honum svolítið“ Á sýningunni kennir margra grasa. Fyrst ber fyrir augu ljóðahandrit. „Þetta eru ljóðin úr fyrstu ljóðabók hans, Skrifað í vindinn. Þú sérð þarna rifið handrit að ljóðinu Þetta bjarta hús. Ég kom einu sinni að honum í vinnuherberginu þar sem hann hélt á þessu handriti. Ég sagði við hann: Þú ert með gam- alt handrit þarna. Hann sagði: Já, en svo var eins og hann hugsaði sig aðeins um þar til hann reif það í sundur. Ég spurði hvað hann væri að gera, og þreif þetta af honum. Ég skildi ekkert í þessu, því þetta var ekki líkt honum, og hann hneykslaðist oft á því að menn geymdu ekki handritin sín. En þá hafði honum fundist þetta eitthvað ómerkilegt, og vildi fá þetta aftur. Ég lét það auðvitað ekkert eftir honum og stríddi honum með því að ég myndi selja það fyrir of fjár seinna. Ef það er til líf eftir dauðann og dánir vita eitthvað um það sem hér gerist, þá hugsa ég að hann viti að ég er að stríða honum svolítið með því að hafa þetta hérna á sýningunni. En þetta er mjög fallegt handrit.“ Jón Óskar teiknaði tals- vert sjálfur og Una Margrét segir að hann hafi jafnvel verið að velta því fyrir sér á ung- lingsárum að verða myndlistarmaður. Teikn- ingar hans frá æskudögum bera sannararlega vitni hæfileikum hans á því sviði. „Það er ekkert varið í skáldskap“ Meðal teikninga á sýningunni er andlits- mynd af Hannesi Sigfússyni. „Pabbi bjó í her- bergi með Hannesi um tíma og þeir voru góðir vinir. En hér sérðu merkilegt samkomulag sem þeir gerðu með sér í febrúar 1944, þegar þeir virðast hafa verið orðnir eitthvað þreyttir hvor á öðrum. Þar heita þeir því að ræðast ekki við framar nema í rituðu máli. Eins og nærri má geta reyndist ekki mikið hald í þess- um samningi. Hér sérðu líka annað skemmti- legt handrit frá samskiptum þeirra Hannesar. Þannig var á þessum árum að Hannesi fannst að pabba gengi allt svo vel, en sér sjálfum svo illa. Hannes sagði þá einhvern tíma: „Nú sest ég hérna og skrifa, og þú lest mér fyrir sögu jafn óðum.“ Þeir gerðu þetta og saga pabba byrjar svoleiðis: „Hér verður sagt frá manni nokkrum, óíslenskulegum á svip …“ og hélt svo áfram og sagan rann uppúr honum eins og þú sérð hérna, þrjár uppskrifaðar síður. Þá sagði Hannes: „Jæja, nú skrifar þú og ég les þér fyrir.“ Og pabbi settist niður með blýant- inn og skrifaði þetta eftir Hannesi: „Það er ekkert varið í skáldskap, mér er óglatt, eigum við ekki að koma út. Ritari minn húkti á lágum sessi með blýant og pappír hvítan og auðan og beið þess að ég læsi honum fyrir. Fölt andlit hans skein við mér í spurn. Æ, æ, æ, sagði ég. Eigum við ekki að fara út. Mér er illt í mag- anum. Mér er illt í höfðinu. Ég vil fara út. Þá stóð ritari minn á fætur, lagði frá sér blýant- inn og pappírinn. Æ, æ, æ, sagði skáldið. Slut.“ Þetta fannst Hannesi vera enn ein sönnun þess hvað skáldskapurinn rynni út úr pabba, en ekkert gengi hjá honum sjálfum. Það átti nú eftir að breytast síðar meir.“ París heillaði Á einum vegg sýningarinnar hanga opinber plögg stíluð á Jón Óskar. „Pabba langaði mik- ið til Parísar. En á þessum árum þurfti að fá sérstakt leyfi fyrir gjaldeyri. Það var ekki nóg að hafa efni á utanferðinni, – sem pabbi hafði svosem varla, – og hér sérðu nokkrar af þeim tilkynningum sem hann fékk frá gjaldeyrisyf- irvöldum: Hér með tilkynnist yður að umsókn yðar um gjaldeyrisleyfi hefur verið synjað. Svo er hér tilkynning frá 1960 þar sem hann fær leyfi fyrir gjaldeyri, en þá var hann reyndar búinn að fara til Parísar. Hann fór þangað fyrst þrítugur. Og hér sérðu ljósmynd sem götuljósmyndari tók af honum, þar sem hann er á leiðinni yfir eina af brúnum á Signu. Pabbi vissi ekki af þessari myndatöku, en myndin er alveg sérlega góð.“ Jón Óskar orti flest ljóðin í ljóðabók sína Nóttin á herðum okkar, í París árið 1954. Og á sýningunni eru einstök handrit af nokkrum þessara ljóða. Bókin kom út árið 1958, en Kristján Dav- íðsson teiknaði í hana myndir og sá um alla hönnun hennar. Á sýningunni eru ennfremur nokkrar teikningar Kristjáns af Jóni Óskari. „Þegar við komum að briggunni í Borkarnesi“ Stílabækur frá barnsárum eru líka forvitni- legar, en fyrir ofan þær hangir mynd af Jóni á leið í sveit í fyrsta sinn, þar sem hann hafði þann starfa að gæta barns. Sú dvöl var kveikj- an að smásögunni Ég, barnið, hundurinn. Þarna er líka bréf hans úr sveitinni til mömmu sinnar. „Ég varð nú alveg orðlaus þegar ég sá þetta bréf, því stafsetningin er svo vitlaus: „Elsku mamma mín, ég ætla að skrifa þér nokkrar línur. Ég ætla að birja á ferðinni. Þegar við komum að briggunni í Borkarnesi, þá druslaðist ég með pokann minn upp á briggu, og var að sgignast um eftir þeim sem áttu að líta eftir mér …“ Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði alltaf ímyndað mér að staf- setning pabba hefði alltaf verið fullkomin. En þetta lagaðist nú á unglingsárunum.“ Handrit að sögunni Leikjum í fjörunni er á sýning- unni. Það vekur athygli að það er skrifað á næfurþunnan pappír á baksíðu bréfsefnis frá einhverju fyrirtæki. Þarna eru líka sýnishorn úr Endurminningabókum Jóns Óskars sem urðu alls sex og komu út á árunum 1969 til 79. Í þeim segir Jón frá lífi skálda og listamanna í Reykjavík frá því hann byrjaði sjálfur að fást við skáldskap í lok fjórða áratugarins og fram undir 1960. Plötuklúbburinn Fimmundin Tónlist kemur talsvert við sögu á sýning- unni, enda var Jón Óskar ágætur tónlistar- maður, nam píanóleik hjá dr. Victori Urbancic í Tónlistarskólanum í Reykjavík, lék vel á pí- anó; – spilaði lengst með hljómsveit Karls Jónatanssonar í Vetrargarðinumog samdi einnig lög. Una Margrét segir að faðir hennar hafi leikið á píanóið sitt á hverjum degi. Jón var einnig meðlimur í félagsskap sem kallaði sig Fimmundina, sem mynd er af á sýning- unni. „Þetta voru fimm menn, sem allir voru skáld eða myndlistarmenn; pabbi, Jón Dan, Kristinn Guðsteinsson, Kristján Davíðsson og Hannes Sigfússon. Þeir keyptu klassískar plötur í sameiningu, – fólk var ekki eins efnað í þá daga og nú, og svo hlustuðu þeir hjá þeim sem átti grammófón.“ Jón Óskar var líka í þeim félagsskap listamanna sem gaf út bók- menntatímaritið Birting á árunum 1955–68. Ljóðaþýðingar Jóns Óskars eiga sinn stað á sýningunni í Þjóðarbókhlöðinni, en hann var afkastamikill ljóðaþýðandi og gaf út þrjár bækur með ljóðum franskra skálda. Jón Ósk- ar þýddi einnig úr ítölsku, meðal annars verk eftir Ungaretti. Eftir ferð til Sovétríkjanna, Frakklands og Ítalíu samdi Jón bók sína Páf- inn situr enn í Róm, sem hann kallaði ferða- þanka, þar sem er að finna hugleiðingar hans um þessi lönd og heiminn. „Þarna birtist með- al annars gagnrýni hans á Sovétríkin sem féll ekki kramið hjá ýmsum kunningjum hans.“ Síðasta verk Jóns Óskars áður en hann lést árið 1998 var að búa til útgáfu Frakklands- sögu sem Sölvi Helgason hafði skrifað, en Jón Óskar skrifaði ævisögu Sölva sem kom út árið 1984. Jón Óskar lifði það að sjá próförk af kápu bókarinnar, með fallegum teikningum Sölva, en lést skömmu áður en bókin kom út. Sýning á handritum og öðrum gögnum Jóns Óskars í Þjóðarbókhlöðunni stendur út nóv- embermánuð og er opin á opnunartíma húss- ins. ÚR FÓRUM JÓNS ÓSKARS Morgunblaðið/Golli Una Margrét Jónsdóttir við verk föður síns, Jóns Óskars. Sýning á handritum og gögnum Jóns Óskars rithöfundar stendur nú yfir í Þjóð- arbókhlöðunni. Dóttir skáldsins, Una Margrét Jónsdóttir, leiddi BERGÞÓRU JÓNSDÓTTUR um sýninguna og sagði sögur af skáldinu og samferðamönnum. begga@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.