Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.2001, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.2001, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. NÓVEMBER 2001 U NG bergði hún á brunninum – og fær aldrei nóg. Æsku- heimili Guðrúnar Jóhönnu Jónsdóttur var baðað tón- um. Og sönglagið? Það var í öndvegi. Hvers vegna að sækja vatnið yfir lækinn, þegar faðir manns heitir Jón Ásgeirsson? Út er sem sagt komin geislaplata, Svartálfa- dans, þar sem Guðrún syngur ein- göngu lög eftir föður sinn. Með henni leikur William Hancox á pí- anó. Jón Ásgeirsson hefur átt ótal lög á plötum en Svartálfadans er sú fyrsta sem alfarið er helguð lögum hans. Útgefandi er The Classical Recording Company í Englandi. „Kveikjan að þessari plötu voru fyrstu einsöngstónleikar mínir heima á Íslandi haustið 1998. Það var þá sem þeir kynntust, pabbi og William Hancox. Pabbi hafði oft talað um að ég tæki upp eitt- hvað af lögunum hans en eftir að hann heyrði í Will færðist hann allur í aukana. Ekki að undra, Will er alveg frábær píanisti,“ segir Guðrún um til- urðina. Völdu minna þekkt lög Í kjölfar tónleikanna sendi tónskáldið Guð- rúnu og Will fjöldann allan af nótum út til Bret- lands, sem þau lögðust yfir. „Það var úr vöndu að ráða enda á pabbi gríðarlegt magn af söng- lögum. Sum hver eru mjög þekkt. Við tókum hins vegar þá ákvörðun að einbeita okkur frek- ar að minna þekktum lögum. Ég var strax ákveðin í að taka upp lagaflokkinn Svartálfa- dans, sem saminn er við samnefndan ljóðaflokk eftir Stefán Hörð Grímsson, en ég söng einmitt nokkur lög úr honum á tónleikunum um árið. Ég hef líka lengi verið hrifin af þremur lögum sem pabbi samdi við ljóð eftir Matthías Johann- essen í tilefni af sextugsafmæli hans, sérstak- lega laginu Litli þröstur. Pabbi hafði líka samið lag sem hann gaf mömmu í afmælisgjöf, Júlí- kvöld við Skerjafjörð, líka við kvæði eftir Matthías, og það var auðvitað ómissandi.“ Faðir þinn og móðir hafa þegar verið nefnd. Koma fleiri ættmenni við sögu? „Já, móðurbróðir minn, Þorgeir Þorgeirson, á eitt kvæði á plötunni, Tileinkun. Þessi lög standa mér því nærri. Þá má ekki gleyma því að grafísk hönnun plötunnar var í höndum elsta bróður míns, Þor- geirs Jónssonar.“ Hafa sum af þessum lögum aldrei verið flutt opinberlega? „Já, sum lögin hafa aldrei verið flutt, þar á meðal hluti Svartálfa- dans. Önnur hafa sjaldan heyrst. Það má eiginlega segja að þetta sé hlið á pabba sem færri þekkja. Hann er þekktari fyrir léttari lög eins og Maístjörnuna og ýmis leikhúslög. Þetta er alvarlegri hlið á honum en samt stór hluti af hans starfi sem tónskáld. Það er því gaman að geta gert þessu skil.“ Þú kveðst strax hafa verið stað- ráðin í að taka upp Svartálfadans. Hvað er svona heillandi við hann? „Tónlistin, textinn. Allt. Ég hef heyrt þessi lög gegnum árin og fylgst með pabba semja þau og ganga frá þeim. Þetta er yndislegur ljóða- flokkur. Fyrstu fjögur lögin voru samin fyrir nokkuð mörgum árum, tekin upp og flutt gríð- arlega vel í útvarpi af Jóni Þorsteinssyni ten- órsöngvara. Ég held einmitt að pabbi hafi haft Jón í huga þegar hann byrjaði að semja Svart- álfadans. Síðan lagði hann verkefnið frá sér um tíma og lauk ekki við það fyrr en fyrir svona fimm til sex árum. Lögin hafa því lifað með mér og ég gengið lengi með það í maganum að taka þau upp. Það má heldur ekki gleyma því að þetta er alveg frábær texti hjá Stefáni Herði.“ Stóð alltaf til að hljóðrita plötuna ytra? „Ekkert frekar. Það kom vel til greina að taka hana upp heima. Will hafði hins vegar unn- ið með The Classical Recording Company áður og mælti með því. Ég hafði því samband við þá og leist strax vel á það sem þeir höfðu verið að gera. Þetta er lítið fyrirtæki en hefur unnið með mörgum mjög fínum listamönnum. Ég ákvað því að slá til. Ég sé ekki eftir því, maður fann undir eins að þarna er fagfólk á ferðinni. Upp- tökustjórinn, Simon Weir, er alveg frábær.“ Upptökur fóru fram í St. Silas-kirkju í Kent- ish Town í Lundúnum. Hvers vegna varð hún fyrir valinu? „Aðallega vegna skemmtilegs hljómburðar. Þessi kirkja er mikið notuð til upptöku. Við höfðum hana í þrjá daga en leist ekkert á blik- una í upphafi – það sveimaði þyrla stöðugt yfir þakinu allan fyrsta morguninn. Lítið varð því úr verki og við vorum aðeins farin að naga negl- urnar. Síðan fór hún um hádegisbil og við vor- um ekki trufluð meira.“ Hvernig er svo að handleika plötuna? „Það er voða gaman,“ segir Guðrún en skellir svo uppúr: „Helst myndi ég samt vilja taka þetta allt upp aftur.“ Nú? „Það er alltaf þannig. Þetta er tónlist sem þroskast og breytist með manni og ef ég væri að syngja hana á tónleikum í dag myndi ég gera ýmislegt öðruvísi. En svona er þetta. Allt partur af hringnum. Ég get því ekki annað en verið ánægð með útkomuna. Ég er stolt af þessari plötu.“ Kannski á leið heim Hvað er annars af þér að frétta? Þú ert alltaf búsett í Englandi? „Já, ég bý í litlum bæ, Woking, sem er suður af Lundúnum. Ég var raunar á leiðinni heim fyrir tveimur árum þegar ég kynntist kærast- anum mínum. Hann er Dani, Stig Rasmussen, og er verkfræðingur. Það varð því lítið úr heim- komunni það árið. Nú erum við hins vegar al- varlega að íhuga að flytja heim á næsta ári. Sjáum hvað setur.“ Ertu að syngja mikið um þessar mundir? „Nei, frekar lítið. Ég er aðallega að kenna. Ég var reyndar að æfa tónlist eftir konur með tríói hérna úti og höfðu verið samin verk fyrir okkur sérstaklega. Þegar píanistinn okkar veiktist í sumar var því hins vegar slegið á frest og ég veit ekki hvenær við tökum upp þráðinn. Ég hef því einbeitt mér að kennslunni. Er með 38 nemendur í Woking og Lundúnum, aðallega unga krakka. Það er mjög gefandi og skemmti- leg vinna sem ég hef haft yndi af að prófa. En ég er ekki hætt að syngja. Því fer fjarri.“ ÚR FÖÐURGARÐI Svartálfadans nefnist ný geislaplata, þar sem Guðrún Jóhanna Jónsdóttir sópransöngkona syngur lög eftir föður sinn, Jón Ásgeirsson tónskáld. ORRI PÁLL ORMARSSON hringdi í söngkonuna, sem búsett er í bænum Woking í Suður-Englandi, en þetta er í fyrsta sinn sem gefin er út heil plata með lögum eftir Jón. Morgunblaðið/Þorkell Guðrún Jóhanna Jónsdóttir sópransöngkona og William Hancox píanóleikari. orri@mbl.is Jón Ásgeirsson LJÓS heimsins, ný kvikmynd um Vigdísi Finnbogadóttur eftir Ragnar Halldórsson, verður frumsýnd 15. desem- ber í Smárabíói. Að sögn Ragnars hefur vinna við myndina staðið í nær þrjú ár en Vigdísi var fylgt á ferðum hennar um fimm lönd og á heimili henn- ar í Kaupmannahöfn og á Ís- landi. „Þetta er listræn heimild- armynd, þar sem áhorfand- inn upplifir raunveruleikann þar sem aðalpersónunni, Vigdísi, er fylgt um allt. Myndin fylgir ekki handriti, heldur upplifir áhorfandinn hina raunverulegu sögu eins og um leikna kvikmynd væri að ræða. Nýlegt dæmi um mynd sem unnin var á þennan hátt er myndin um Lalla Johns,“ segir Ragnar. „Við erum að skoða líf konunnar sem í sex- tán ár var sameiningartákn íslensku þjóð- arinnar; hún hafði allt til alls, bílstjóra, ráðs- konur og aðstoðarfólk en síðan allt í einu var hún orðin ein og þurfti sjálf að takast á við alla hluti en hélt jafnframt áfram starfi sínu af hugsjón fyrir þjóðina og segist sjálf vera að bjarga heiminum. Þetta erum við að skoða og sýna. Þessa sterku konu. Dugn- aðarforkinn, Íslendinginn sem læt- ur ekkert stoppa sig og gerir hlut- ina sjálf þótt hún hafi ekki lengur aðstoðina eða forréttindin.“ Nú er unnið að frágangi mynd- arinnar en að sögn Ragnars lágu fyrir um sjötíu klukkustundir af efni. Endanleg lengd myndarinnar verður um sjötíu mínútur. „Með þessari aðferð nást ómetanleg augnablik í lífi aðalpersónunnar þótt eftirvinnslan sé tímafrekari.“ Sigvaldi Kárason klippir mynd- ina, Hilmar Örn Hilmarsson semur tónlist, Sigurður Hrellir og Pétur Einarsson sjá um hljóðvinnslu og Ragnar Halldórsson annaðist kvik- myndatöku. Ljósmyndari Vigdísar á vegg- spjaldi, sem fylgir fréttinni, er Ari Magg. Íslenska kvikmyndastofan framleiðir og fékkst styrkur frá Kvikmyndasjóði til að ljúka gerð hennar en að sögn Ragnars fékkst lítið fjármagn til framleiðslunnar hér á landi á fyrri stigum. „Ljós heimsins er afrakstur mikillar vinnu og þrautseigju þrátt fyrir erf- ið framleiðsluskilyrði. Þannig er kvikmynda- gerðin. Maður gefst aldrei upp. Með óbilandi trú á verkefnið tekst að keyra það áfram allt til loka,“ segir Ragnar Halldórsson höfundar kvikmyndarinnar um Vigdísi Finnbogadótt- ur. KVIKMYND UM VIGDÍSI FINNBOGADÓTTUR Í JANÚAR árið 2003 verður opnuð samsýning íslenskra hönnuða í sýningarsölum samnor- ræna hússins í Berlín. Þátttakendur þurfa að hafa starfað sem hönnuðir eða að hafa verið í hönnunarnámi. Þeir sem hófu nám í hönnun á haustmisseri 2001 geta einnig sótt um þátttöku. „Markmiðið með þátttökunni er að kynna ís- lenska hönnuði á erlendum vettvangi og halda því starfi gangandi sem unnið hefur verið síð- ustu misseri, t.a.m. með sýningunni Mót á Kjarvalsstöðum,“ segir Hrafnkell Birgisson hönnuður. Hann hefur umsjón hefur með sýn- ingunni ásamt Sólveigu Sveinbjörnsdóttur í samstarfi við Form Ísland. „Sérstaða íslenskra hönnuða felst m.a. í hinum alþjóðlega bak- grunni, fjölbreytni námslanda og starfsvett- vangi bæði hérlendis og erlendis. Valdir verða úr hópi umsækjenda reyndir hönnuðir sem náð hafa góðum árangri, hver á sínu sviði, svo og úr- val upprennandi hönnuða með góðar, framsýn- ar hugmyndir. Ætlunin er að koma á beinum tengslum milli þátttakenda með því að úthluta sameiginlegu þema en jafnframt að veita inn- sýn í dagleg viðfangsefni ólíkra hönnuða. Að loknum sýningartímanum í Berlín er stefnt að uppsetningu sýningarinnar í fleiri Evrópuborg- um. Það kemur til greina, ef tími leyfir, að halda nokkurs konar forsýningu hér á landi haustið 2002 áður en sýningin verður send utan,“ segir Hrafnkell. Umsóknir sendist: –Kynjahlutir – Form Ísland. Pósthólf 1548, Reykjavík Þær skulu innihalda upplýsingar um um- sækjanda, ljósmyndir eða útprentanir af nýleg- um verkum, hámarksstærð A4. LEITAÐ ÞÁTTTAKENDA Á HÖNNUNARSÝNINGU BÓKIN Draumar á jörðu eftir Einar Má Guðmundsson fær lofsamlega dóma í Weekendavisen en hún kom út í Dan- mörku fyrir skemmstu í þýðingu Eriks Skyum-Nielsen. Liselotte Wiemer, sem skrifar í Weekendavisen, segir Einar Má kunna að stinga niður penna í rýmið milli veraldarinnar og skáldskaparins, þar sem tilgangur lífsins ýmist hverfi í sárs- auka eða sé sveipaður ljósi. Raunveru- leikinn og skáldskapurinn renni saman. Til þess að ná valdi á þessum svífandi stíl og djúpu innsæi sæki hann hvorki í sósíal- realisma né sagnfræði heldur þurfi að fara aftur í verk Halldórs Laxness og Heinesens til þess að finna hliðstæðu. DRAUMUM Á JÖRÐU HÆLT

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.