Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Side 20
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. DESEMBER 2001
1.
„Ég skrifa bækur ekki eftir formúlu; maður
sem teiknar, hann ljósritar ekki aðkeyptar
myndir,“ segir Valgarður Egilsson krabba-
meinslæknir sem var að senda frá sér skáld-
söguna Waiting for the South Wind. Þetta er
veraldarsaga drengs. Sögusviðið er yst við
Eyjafjörð og sagan gerist upp úr seinna stríði.
„Þetta er skáldsaga en fylgir 97% raunveru-
leikanum – eða 93%, ég man ekki hvort.“
En hvers vegna er sagan skrifuð á ensku?
„Ég lít á það eins og fasaskipti; eins og ef
myndlistarmaður sem hefur unnið í gifs fer yf-
ir í járn.“
2.
„Það sem rak mig til að skrifa söguna var
það hve hrifinn ég var af þeirri veröld sem ég
fæddist inn í. Ég held við höfum verið heppn-
astir allra kynslóða: fengum nóg að éta, góða
upplýsingu og rosalega góða alhliða líkams-
þjálfun. Maður var á hlaupum fjóra tíma á dag.
Utanhússtegund. Og veröldin var þá ennþá
stabíl.“
3.
Á bókarkápu er mynd af Jóhanni Bessasyni,
langafa Valgarðs, þekktum manni á sinni tíð.
Hann var sagður líkastur þálifandi manna Agli
Skallagrímssyni. „Það var mér mikill styrkur í
æsku að vita af þessum trausta manni þótt
hann væri löngu dauður. Það fór orð af verks-
viti hans. Verksvit er fallegasta vit sem ég
þekki.“
4.
Faðir drengsins kenndi honum; hann fór að-
eins nokkrar vikur í skóla 12 ára og kveðst þá
hafa lært tvennt: að tvö l væru í Halldór og að
Saskatchewan-fylki væri í Kanada. „Ég held
ég sé síðasti strákurinn í Evrópu sem fór ekki í
skóla fyrir utan einhverja sem fundust í dal í
Albaníu. Það ætti náttúrlega að stoppa mann
upp.“
5.
„Elsta minning mín úr bernsku tengist
breskum hermönnum á götunni á Grenivík,
þar sem ég er fæddur. Einn sími var í þorpinu,
heima hjá okkur; það var símstöð sem móðir
mín annaðist og foringi Bretanna kom daglega
til að hringja, hann þurfti að fylgjast með víg-
stöðunni í veröldinni.“
6.
„Faðir minn sigldi á móti straumnum; við
fluttum úr þorpinu út í sveit þegar straum-
urinn lá í þéttbýlið. Strákar sem alast upp ut-
anhúss, þeir persónugera alla náttúruna.
Vindurinn hafði 33 nöfn og snjórinn 22. Samt
voru þetta dálítið harðneskjuleg lífsskilyrði.
Það er eiginlega tilraun um þanþol mannsins
sem ég er að segja frá í bókinni – í nyrstu
byggðum við Atlantshaf.“
7.
„Ég hélt fram eftir öllu – fram á tánings-
aldur – að það yrði mitt hlutskipti að verða
teiknari. Þegar kom í menntaskóla fór maður
að velta fyrir sér alls kyns heimspeki. En til að
eitthvert vit yrði í heimspekinni fannst mér ég
verða að þekkja manninn sem efnislegt dýr.
Fór þess vegna í læknisfræði. Ég er þeirrar
skoðunar að listamenn okkar ættu að fara á
kúrsus í líffræði.“
8.
„Þó þetta sé veraldarsaga stráksins þá er
hann samt í fylgd fullorðins manns og manns
sem hrærst hefur í læknisfræði og líffræði. Sá
maður veit að grænn litur á grasi jarðar er
erfður frá móðurinni einungis, ekki frá föðurn-
um og sama er að segja um líkamsvarma jarð-
ardýra, hvatberarnir eru erfðir frá móður; vís-
indamaðurinn hefur áhuga á rythma lifandi
vera og á erfðum og hefur áhyggjur af 3% lög-
máli eyðileggingarinnar, en strákurinn
áhyggjur af haus hanans, hvað hann hugsi af-
höggvinn.“
9.
„Eftir að orðið samkeppni var fundið upp,
þá eru allir að flýta sér. En þú veist að sá sem
flýtir sér, hann tapar tíma, hann upplifir lítið á
meðan. Við ljóðagerð er til dæmis ekki ráðlegt
að flýta sér, það bitnar á kvalitetinu. Sam-
keppninni í þessu þjóðfélagi nútímans, flýt-
inum, fylgir einhver heimspekileg markleysa,
fólkið ætlar ekki að njóta neins. Íslendingar
eru ekki lífslistarmenn. Lífsmáti og uppeldi
eru í klemmu, lífsnautnin er að verða úti. Það
vantar yfirlitsmenn að segja þetta upphátt,
sérfræðingar geta það ekki. En bókin er
semsé um lífsaðdáun stráksins. Hann var ekki
að flýta sér.“
Heppnastir allra kynslóða
Morgunblaðið/Ásdís
VALGARÐUR EGILSSON læknir og rithöfundur.
Eftir Skapta Hallgrímsson
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem nýtt
guðpjall lítur dagsins ljós. Það gerðist
fyrir miðja síðustu öld er mjög merkir
handritafundir áttu sér stað í Nag
Hammadi í Suður-Egyptalandi 1945 og
í hellum við Dauðhafið árið 1947. Þá
fannst meðal annars Tómasarguðspjall
sem kennt er við Tómas postula en
hann er talinn hafa stofnað Tómasar-
kirkjuna á Indlandi sem enn lifir góðu.
Nú hefur það verið þýtt á íslensku úr
koptísku af Jóni Ma. Ásgeirssyni, pró-
fessor við guðfræðideild Háskóla Ís-
lands, en það er talið hafa verið ritað
upphaflega á grísku. Hann ritar einnig
formála að guðspjallinu og skýringar
aftan við það.
Í inngangi er gerð nokkur grein fyrir
apókrýfum ritum Nýja testamentinsins
almennt, þ.e. ritum sem ekki voru tekin
inn í Nýja testamentið þegar ákveðið
var hvaða rit skyldu vera þar. Tóm-
asarguðspjall er í flokki þeirra. Að mati
höfundar var því vikið til hliðar með til-
komu guðspjalla Nýja testamentisins
og síðar af kennimönnum kirkjunnar
sem líkaði ekki að hópar sem voru í
andstöðu við stjórnir rómversk-kaþ-
ólsku og grísk-kaþólsku kirknanna
skyldu halda upp á það. Vitnað er í guð-
spjallið í ritum nokkurra kirkjufeðra og
öðrum fornum bókum, en síðan týndist
það. Bókmenntastíll guðspjallsins er
mjög ólíkur bókmenntaformi guðspjalla
Nýja testamentisins en mikið af efni
þess er líkt efni hinna svo kölluðu sam-
stofnaguðspjalla (Matteusar-, Markús-
ar- og Lúkasarguðspjalls) þó að textinn
í heild sé miklu styttri.
Ummæli Jesú og dæmisögur eru
mest áberandi í Tómasarguðspjalli sem
hafa á sér svipmót viskuhefðarinnar
eins og hana er til dæmis að finna í
Orðskviðum Salómons í Gamla testa-
mentinu og Síraksbók sem tilheyrir
apókrýfum ritum Gamla testamentis-
ins. Höfundur inngangs telur að sú út-
gáfa dæmisagna Jesú sem bæði er að
finna í Tómasarguðspjalli og guðspjöll-
um Nýja testamentisins séu uppruna-
legri í riti Tómasar og því sé það með
elstu þekktu heimildum um líf og kenn-
ingu Jesú. Hann telur að Tómasarguð-
spjall sé jafnvel í sumum tilfellum
heimild guðspjallanna þó að sá mögu-
leiki sé vissulega fyrir hendi, að hans
mati, að áhrifa Nýja testamentisins geti
hafa gætt í þýðingu guðspjallsins úr
grísku á koptísku. Hvorki er sagt frá
pínu og dauða Jesú né er þar túlkun að
finna á lífi hans til dæmis í ljósi fyr-
irheita Gamla testamentisins eins og í
guðspjöllum Nýja testamentisins. Jón
endar umfjöllun sína um guðspjallið á
þeirri fullyrðingu að fundur þess sé
upphaf umfangsmestu leitar „að rótum
kristindómsins sem ekki eru lengur
taldar liggja í kirkjulegu valdi eða post-
ullegri helgisögn“ (s. 47). Hin postul-
lega helgisögn er að hans mati túlkun
guðspjallanna á lífi Jesú.
Margir eru án efa ósammála skoð-
unum Jóns Ma. um mikilvægi Tómas-
arguðspjalls, sérstaklega þeirri fullyrð-
ingu hans að túlkun guðspjalla á lífi
Jesú sé postulleg helgisögn. Undirrit-
aður hélt að guðfræðingar væru flestir
búnir að leggja það túlkunarstig að
baki fyrir löngu. Eigi að síður er mikill
fengur að því að fá Tómasarguðspjall á
íslensku og það varpar vissulega ljósi á
líf frumkristninnar. Öll vinna við bókina
er vönduð og málið hnökralaust.
Nýtt
guð-
spjall
Kjartan Jónsson
BÆKUR
Trúmál
Höfundur: Tómas postuli. Þýðandi: Jón Ma. Ás-
geirsson. 224 bls. Hið íslenska bókmennta-
félag 2001
TÓMASARGUÐSPJALL
HEIMSPEKI er sérstök fræðigrein aðskilin
frá öðrum. En hún er sérstök líka í þeim skiln-
ingi að samband hennar við aðrar greinar er
ólíkt tengslum annarra greina innbyrðis og
venzl hennar við sjálfa sig eru einnig sérstök.
Það er mikil lenzka að kljúfa heimspeki nú-
tímans í meginlandsheimspeki og engilsax-
neska heimspeki eða rökgreiningarheimspeki.
Vitið í þessum greinarmun er það að nokkur
munur var á þróun heimspeki á meginlandi
Evrópu á tuttugustu öld og á Bretlandi. Upp-
götvun hinnar nýju rökfræði í lok nítjándu aldar
og upphafi þeirrar tuttugustu hafði meiri áhrif á
brezka heimspekinga en þá sem störfuðu í
Þýzkalandi eða Frakklandi svo að dæmi séu
nefnd. Þó var einn mikilvægasti höfundur hinn-
ar nýju rökfræði Þjóðverjinn Frege en hans
háttur á að iðka heimspeki breiddist ekki út
meðal landa hans heldur hafði meiri áhrif í Bret-
landi í gegnum skrif heimspekingsins Bertr-
ands Russells sem var helsti áhrifamaður í þess-
ari grein fræða á fyrrihluta tuttugustu aldar.
Austurríkismaðurinn Ludwig Wittgenstein
dvaldi nánast allan aldur sinn eftir að hann
komst á fullorðinsár á Bretlandseyjum og var
mikill örlagavaldur í engilsaxneskri heimspeki.
Frege hafði mikil áhrif á Wittgenstein. Russell
og Wittgenstein mótuðu rökgreiningarheim-
speki á síðustu öld umfram alla aðra heimspek-
inga.
Á meginlandi Evrópu varð þróunin önnur.
Sums staðar iðkuðu menn rökfræði af miklu
kappi, til dæmis í Póllandi og sums staðar í
Þýzkalandi, en það nána samband rökfræði við
aðrar greinar heimspeki sem einkennir rök-
greiningarheimspeki varð hvergi eins áberandi
á meginlandinu og á Bretlandi. Á meginlandinu
varð meira áberandi svonefnd fyrirbærafræði
sem kennd er við þýzka heimspekinginn Ed-
mund Husserl. Eitt einkenni hennar er að beina
athyglinni að hversdagslegri reynslu fólks og
reyna lýsa henni. Svo má ekki gleyma því að
marxismi var áhrifamikill í heimspeki lengi
fram eftir tuttugustu öld, sérstaklega á meg-
inlandi Evrópu. Þá er ekki verið að vísa til þess
marxisma sem iðkaður var í Austur-Evrópu en
hann var nánast undantekningalaust fræðilega
gagnslaus heldur í Vestur-Evrópu þar sem
menn gátu óhræddir mótað skoðanir sínar á
samfélaginu og þróun þess. Sá marxismi var
áhrifamikill lengi fram eftir öldinni en er að
miklu leyti jafn fræðilega gangslaus og sá sem
mótaðist í Austur-Evrópu. Þó eru ákveðnir
þættir hans sem vert er að hyggja að og halda til
haga. Það má nefna tvennt. Annars vegar er það
hugmyndin um hlutlæga hagsmuni og hins veg-
ar um falska vitund eða það hvernig samfélags-
öfl geta mótað hugmyndir manna um stöðu
þeirra sjálfra og umhverfi sitt. Þess ber að geta
að þessar hugmyndir eru ekki nein séreign
marxista en túlkun þeirra á þeim er eftirtekt-
arverð.
Í þessari bók er greinarmunurinn á megin-
landsheimspeki og rökgreiningarheimspeki
stundum skilinn landfræðilegum skilningi. Í
bókina er safnað saman verkum karlmanna, það
er engin grein eftir konu í bókinni, sem iðkuðu
heimspeki á síðustu öld og ólu aldur sinn á meg-
inlandi Evrópu með einni undantekningu. Það
er misskilningur að greinarmunurinn sé land-
fræðilegur, hann er fyrst og fremst munur á af-
stöðu til greinarinnar sjálfrar og þess arfs sem
hún byggist á. Það er réttilega bent á í inngangi
bókarinnar að meginlandsspekin sem boðið er
upp á er öll byggð á afstöðu til þýzku hughyggj-
unnar sem átti blómatíma sinn á nítjándu öld-
inni. En það er þó ekki einfalt mál að greina
þennan arf í þeim greinum sem hér eru þýddar
á íslenzku.
Staða þessara greina verður enn óljósari þeg-
ar hugað er að því að margar þeirra ber nokkuð
glögg merki áhrifa frá rökgreiningarheimspeki
Heimspeki um
heimspeki, hvað
er nú það?
BÆKUR
Fræðirit
Tíu greinar frá tuttugustu öld. Róbert Jack og Ár-
mann Halldórsson (ritstj.). 252 bls.
Hugvísindastofnun Háskóla Íslands 2001
HVAÐ ER HEIMSPEKI?
Reuters
Þýski heimspekingurinn Juergen Habermas (t.h.) við hlið Johannesar Rau forseta Þýskalands er
Habermas tók við Friðarverðlaunum þýskra bókaútgefenda í Frankfurt 14. október sl.