Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 24

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.2001, Blaðsíða 24
24 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 22. DESEMBER 2001 „HANN bendir í vestur. Risavax- inn fingurinn. Með hvítan jökul í stað naglar. Bendir ákveðinn í vestur. Ef litið er upp frá amstri daganna nema augun þessa mynd. Fólk sofnar og vaknar við þessa áskorun: Haltu í vestur! Og karlar og konur verða friðlaus. Vakna upp um miðjar nætur og rýna í myndir svefnsins. Þar sem fingur vísaði veginn. Út á hafið. Og karl- ar og konur taka sig upp og sigla. Sigla í vestur. Sigla inn á spjöld sögunnar. Brattahlíð, Eystri- byggð, Helluland, Markland og Vínland! Var þetta seiðmagn hvíts Jökuls fyrir um tíu öldum?“ Með þessum orðum Harðar Daníelssonar hefst ferðin inn í myndheim Snæfellsness sem hann hefur fangað á breiðlinsu sína og birtir í bók er ber heitið Snæfellsnes og er eitt binda í röð er hann nefnir Seiður Íslands. Önnur bók í sömu röð sem einnig er komin út ber heitið Þingvellir. Þessar tvær bækur láta kannski ekki mikið yfir sér þar sem brot þeirra er látlaust en sér- stakt. Raunar svo sérstakt að vekur fyrstu spurninguna til þeirra hjóna Harðar Daníels- sonar og Kristínar Þorkelsdóttur, myndlistar- manns og hönnuðar, sem á veg og vanda af útliti bókanna og frágangi þeirra. „Þetta brot hentar myndunum mjög vel og bækurnar fara einnig mjög vel í hendi, gott að fletta þeim. Þetta er þó einstakt form og olli því að stilla þurfti bókbandsvélar prentsmiðjunnar Odda sérstaklega. Það varð svo aftur til þess að bækurnar töfðust í framleiðslu. Við erum hins vegar sannfærð um að það hafi verið þess virði,“ segir Kristín. Af samtali við þau hjón kemur í ljós hversu gífurlega mikla áherslu þau hafa lagt á vandaða vinnslu bókanna. „Hver einasta mynd hefur fengið þá meðhöndlun að hún njóti sín fullkom- lega í bókinni, hvað lit og myndgæði varðar. Ég lít þannig á að galli í myndvinnslu jafnist á við prentvillu í texta. Hvort tveggja á að leiðrétta af sömu vand- virkni,“ segir Kristín. Þau Hörður hafa unnið að bókagerðinni samfleytt í rúmt ár en greinilegt er af myndun- um að þær ná yfir lengra tíma- bil, umhverfi Þingvalla og Snæ- fellsjökuls birtist í öllum hugsanlegum búningum, birta og skýjafar, árstíðir og veðra- brigði njóta sín til fullnustu og hefur vafalaust reynt á þolin- mæðina að bíða rétta augna- bliksins. „Komdu til Þingvalla – í ljós árstíðanna: Sjáðu ljós haustsins sem þrátt fyrir þrá okkar eftir eilífu sumri er boðið velkomið. Sjáðu logalitskrúð himinblárra haustdaga. Og eldlauf falla til jarðar. Eftir verða laufléttar dökkar greinar sem anda léttara. Haustvindar eiga greiða leið um svört loftnet þeirra. Sjáðu haust kólna: Hrollköld slydda sveipar hæðir og fjöll grárri slæðu. Hlémegin er köld jörð. Dökk og rök. En snjógráminn hverfur næsta sólar- dag. Langir skuggar hraunkletta teygja úr sér á dökkum söndum. Lengjast með degi hverjum.“ Hver árstíð á sér sitt aðdráttarafl, ein er ekki tekin fram yfir aðra, heldur gengið að henni með opnum hug og hjarta. Þingvallabókinni er skipt í kafla sem eru tileinkaðir árstíðunum og er und- irtitill bókarinnar Í ljósi árstíðanna. Önnur leið er farin að myndheimi Snæfells- jökuls og er undirtitill bókarinnar Í ljósi hafs og jökuls. Síðan skiptast kaflarnir eftir heitunum: Sefur eldkeila, Vakir hraunmóðir, Skartar jök- ull strönd, Við flóa Faxa, Við breiðan fjörð. Kaflaheitin gefa vísbendingu um viðfangsefni myndanna og hvaðan myndhöfundurinn hefur valið sér sjónarhorn. Framleiðandi Seiðs Íslands er Nýjar víddir fyrir útgefandann Eddu/Iceland Review. Bæk- urnar eru gefnar út á þremur tungumálum auk íslensku, ensku, frönsku og þýsku en allar út- gáfurnar eru einnig með íslenskum texta. Þingvellir: Hvíld undir hvítri voð. ÞRÁ AUGANS Snæfellsjökull úr suðri. Hörður Daníelsson ljósmyndari hefur gefið út tvær ljósmyndabækur, aðra um Snæfellsjökul og umhverfi hans og hina um Þingvelli. Hörður Daníelsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.