Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2002, Side 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. FEBRÚAR 2002
H
VERSU langt má ríkið
ganga án þess að brjóta
réttindi einstaklinga? Ekki
mjög langt, var svar banda-
ríska heimspekingsins Ro-
berts Nozicks í bókinni An-
archy, State and Utopia
(Stjórnleysi, ríki og stað-
leysa), sem kom út fyrir tæpum þrjátíu árum,
og er enn þá eitt helsta ritið í stjórnmálaheim-
speki á Vesturlöndum. Bókin hefur verið túlk-
uð sem eindregið varnarrit frjálshyggju (lib-
ertarianisma) og einstaklingsfrelsis. Nozick
lést 23. janúar síðastliðinn, 63 ára gamall.
Anarchy, State and Utopia var fyrsta bókin
sem Nozick gaf út, en síðan hefur hann birt
nokkrar í viðbót. En engin þeirra hefur vakið
viðlíka athygli og fengið önnur eins viðbrögð
og Anarchy, State and Utopia og má ætla að
engin þeirra hafi heldur haft jafn gríðarleg
áhrif, bæði innan heimspekinnar og líka í
stjórnmálum og vestrænum hugmyndaheimi
yfirleitt. Í minningargrein um Nozick á vefsíðu
bandaríska tímaritsins National Review sagði
Richard A. Epstein að Nozick teldist, ásamt
Friedrich Hayek „annar tveggja mikilvægustu
talsmanna einstaklingsfrelsis, eignarréttar og
takmarkaðs ríkisvalds á tuttugustu öldinni.“
Hvers vegna vakti Anarchy, State and Ut-
opia þá gífurlegu athygli sem raun bar vitni, og
hvers vegna er hún enn þá talin mikilvæg lesn-
ing fyrir þá sem leggja stund á stjórnmála-
heimspeki – og skyldar greinar? Kannski má
helst nefna tvennt. Í fyrsta lagi það umhverfi
sem bókin kom inn í, og í öðru lagi hversu gríp-
andi bókin sjálf er. Bent hefur verið á, að til
þess að maður átti sig á mikilvægi bókarinnar
sé nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, að
hugmyndir um sameignarstefnu hafi haft af-
gerandi stöðu í heimspekideildum háskólanna
á þeim árum er hún kom út, og þar hafi eig-
inlega verið gengið út frá slíkum hugmyndum
sem gefnum staðreyndum. Þessar hugmyndir
hafi yfirgnæft allt tal um einstaklingshyggju
og frjálsræði. Þær hugmyndir sem er að finna í
bók Nozicks teljast ekki nýlunda nú á dögum,
en kannski er það einmitt til marks um þau
áhrif sem bókin hafði.
Annað sem hefur ráðið miklu um áhrif bók-
arinnar – og ræður áreiðanlega enn – er
hversu hnitmiðuð hún er og meginhugmyndin í
henni skýr. Það er eiginlega nóg að lesa tvær
fyrstu málsgreinarnar í formálanum til að fá
ljósa hugmynd um hvað höfundurinn er að
fara. Svona skerpa í framsetningu hugmynda
er sjaldgæf í fræðibókum. Og um hvað er þá
þessi fræga bók? Hún byrjar svona:
„Einstaklingar hafa réttindi, og til eru þeir
hlutir sem enginn maður eða hópur má gera
þeim (nema brjóta þar með réttindi þeirra).
Þessi réttindi eru svo afgerandi og víðtæk, að
þau vekja þá spurningu hvað, ef nokkuð, ríkið
og fulltrúar þess megi gera. Hversu mikið
rými skilja réttindi einstaklinga eftir handa
ríkinu?“ Og strax í næstu málsgrein segir Noz-
ick: „Helstu niðurstöður okkar um ríkið eru
þær, að lágmarksríki, sem hefur þann tak-
markaða tilgang að vernda gegn valdbeitingu,
þjófnaði, svikum, sjá um að staðið sé við samn-
inga og svo framvegis, sé réttlætanlegt; að um-
svifameira ríki muni brjóta þann rétt einstak-
linga að vera ekki neyddir til að gera tiltekna
hluti, og sé óréttlætanlegt; og að lágmarks-
ríkið sé hrífandi og einnig hið rétta.“ Nozick
nefnir strax tvennt sem hann segir af þessu
muni leiða. Ríkið megi ekki beita þvingunar-
tækjum sínum til þess að fá suma borgara til
þess að veita öðrum aðstoð, og megi ekki
meina einstaklingum um að gera hluti sem í
rauninni eru slæmir fyrir þá. (Nozick, bls. ix).
En hvaðan koma einstaklingum þessi rétt-
indi, og hvers vegna – og hvernig – brýtur allt
ríkisfyrirkomulag, víðtækara en lágmarksrík-
ið, á þessum réttindum fólks? Það er ef til vill
einn af veikleikunum í kenningu Nozicks að
hann svarar þessari spurningu hvergi á afger-
andi hátt. En svo virðist sem hann hafi gengið í
smiðju breska heimspekingsins Johns Lockes
(1632–1704) og fengið þaðan þá hugmynd, að í
„náttúrulegri stöðu“ sinni sé manneskjan full-
komlega frjáls, og allt sem er umfram lág-
marksríkið gangi á – takmarki – þetta full-
komna frelsi. Það er að segja, einstaklingar
fæðast með réttindi sem eru þeim náttúrulega
ásköpuð. Þessi náttúrulegu réttindi eru djúp-
stæðari og óvéfengjanlegri en þau réttindi sem
einstaklingum eru veitt með lögum.
En hinni náttúrulegu stöðu mannsins fylgja
ýmis óþægindi, og þess vegna sprettur ríkið
eiginlega óhjákvæmlega upp til þess að vernda
einstaklingana fyrir hver öðrum. (Nozick
kemst að þeirri niðurstöðu að einkarekin
verndarsamtök dugi ekki til). Ríkið er því,
samkvæmt kenningu Nozicks, af hinu góða,
svo lengi sem það takmarkast við það sem
hann hefur skilgreint sem lágmarksríki – eða
ríkið í hlutverki næturvarðarins sem gætir
þess að engin myrkraverk séu unnin. Það er að
segja, ríkisvaldið ber að takmarka eins og
kostur er, til þess að sem allra minnst sé geng-
ið á hin náttúrulegu réttindi einstaklinga.
Nozick skrifaði Anarchy, State and Utopia í
og með sem svar við bókinni A Theory of Just-
ice (Kenning um réttlæti), eftir bandaríska
stjórnmálaheimspekinginn John Rawls, er
komið hafði út þrem árum fyr (1971). Rawls
hafði þar leitast við að færa rök fyrir velferð-
arríkishugmyndinni, það er að segja, að það
væri hlutverk ríkisins að sjá um jöfnun dreif-
ingar gæða. Að mörgu leyti voru Nozick og
Rawls sammála um grundvallaratriði, til dæm-
is um fullveldi einstaklingsins, en helsti mun-
urinn á kenningum þeirra lá í skilgreiningu
þeirra á réttlætinu. Samkvæmt kenningu
Rawls er sanngirni og sem mest jöfnun lífs-
gæða grundvallarþáttur réttlætisins, en sam-
kvæmt kenningu Nozicks er eignarhald
grundvöllur réttlætisins.
Það sem Nozick vildi forðast, var að rétt-
lætið væri fólgið í fyrirfram gefnu mynstri, á
borð við sanngirni, sem væri teiknað af ein-
hvers konar allsherjaryfirvaldi. Þess í stað
reyndi hann að skilgreina réttlætið þannig, að
það væri fólgið í samskiptum og gjörðum ein-
staklinga, óháð yfirvaldi. Í staðinn fyrir að
réttlátur skammtur hvers einstaklings sé sá
skammtur sem honum er úthlutað í einhvers-
konar miðstýrðri dreifingu gæða (sem þarf til
að ná sem mestri jöfnun) reyndi Nozick að
finna leið til að skilgreina réttlátan skammt
sem þann skammt sem einstaklingurinn út-
vegar sér sjálfur. Markmiðið er augljóslega að
gera einstaklinginn sem frjálsastan, í þeirri
merkingu að hann sé eins óháður yfirvaldi og
kostur er.
Grundvallaratriði réttlætisins samkvæmt
kenningu Nozicks, er því það, að maður hefur
eignarhald á því sem maður aflar. Annað
grundvallaratriði réttlætisins í þessum skiln-
ingi er að maður hefur eignarhald á því sem
maður fær í skiptum við aðra. Jöfn skipting
gæða er því ekki markmiðið með þessari kenn-
ingu, og jöfnuður þannig ekki forsenda þess,
að réttlætinu – í þessum skilningi – sé full-
nægt. Þótt ekki séu nein takmörk fyrir því
hversu mikils eignarhalds maður aflar þá er
ekki sama hvernig maður aflar eignarhalds.
Frumöflun eignarhalds – það er, á hlutum
(gæðum) sem enginn hefur þegar eignarhald á
– er skilyrðum háð. Breski heimspekingurinn
Jonathan Wolff bendir á að þetta sé svolítið
óljóst hjá Nozick, en að hann virðist enn ganga
í smiðju Lockes, og setja þau takmörk við
frumöflun eignarhalds að maður megi ekki
leggja eignarhald á meira en svo, að maður
skilji eftir jafn mikið og eins gott handa næsta
manni. Öflun eignarhalds með skiptum við
aðra – viðskiptum – eru líka takmörk sett, en
það eru með sama hætti formleg takmörk, en
ekki takmörk á því magni sem maður getur
með réttu átt.
Annar hugsanlegur veikleiki í kenningu
Nozicks liggur í atriði sem hann á sameiginlegt
með Rawls (enda hafa báðir verið gagnrýndir
fyrir þetta atriði), það er að segja, að þeir virð-
ast líta á sem sjálfgefið að hægt sé að skilja og
skilgreina einstaklinga óháð samfélagi. For-
senda þess að einstaklingar hafi réttindi sem
ríkið (samfélagið) getur ekki skert, eins og
Nozick fullyrðir, er að einstaklingarnir séu til
óháð samfélaginu, það er, að einstaklingarnir
séu „atóm“; grunneiningar sem hægt er að
skilja að. – Það má vel vera að svo sé í rauninni,
en það er veikleiki í kenningu Nozicks að hann
skuli ganga út frá þessu sem gefnu. Þetta at-
riði er kjarninn í gagnrýni svonefndra sam-
félagssinna (communitarians), eins og til dæm-
is bandaríska heimspekingsins Michaels
Sandels, á kenningar frjálslyndishyggjusinna
(liberals).
Samfélagssinnar skírskota til þeirra gömlu
sanninda, sem Aristóteles benti á, að maðurinn
sé í eðli sínu félagsvera, og að ríkið sé ekki ann-
að en formlegt skipulag samfélags manna sem
skilgreini sig á sömu forsendum. Sjálfsskiln-
ingur (ídentítet) einstaklingsins sé því óhjá-
kvæmilega tengdur – ef ekki beinlínis sprott-
inn úr – því samfélagi sem einstaklingurinn búi
í (til dæmis því vestræna), hefðum þess og for-
dómum, og þaðan komi manni í raun grund-
vallarþættir skilnings manns á hverjueina –
líka frelsi og réttlæti. Einn frumherja frjáls-
lyndisstefnunnar, Bretinn L.T. Hobhouse
(1864–1929), benti á, að ef hægt væri að skilja
einstaklinginn frá samfélaginu myndi líf hans
vera allt annað en það er. „Stór hluti [einstak-
lingsins] myndi alls ekki vera til.“ (Hobhouse,
bls. 67). Enda hafa flestir frjálslyndishyggju-
menn gengist inn á þessa skoðun núorðið.
Kannski er hugmyndin um einstaklinginn
sem alveg sérstaka einingu sem er aðskiljan-
leg frá öllu stærra samhengi svolítið sérbanda-
rísk. Landi Nozicks, heimspekingurinn Rich-
ard Rorty, hefur sagt, að frelsishugtakið sé
grundvöllur bandarísks samfélags, og þar ríki
rómantískar hugmyndir um að „við höfum
engar hefðir, við getum búið til manneskjur
eins og þær eiga að vera.“ (Borradori, bls. 109).
Það mætti jafnvel velta því fyrir sér hvort hug-
myndin um einstaklinginn sem atóm sé ekki í
sjálfu sér hugmynd sprottin úr langri hefð –
sem þeir Nozick og Rawls væru þá glæsilegir
fulltrúar fyrir.
En hvort heldur maður sannfærist um að
Nozick hafi haft rétt fyrir sér í Anarchy, State
and Utopia, eða kemst að þeirri niðurstöðu að
hann hafi ekki fært sannfærandi rök fyrir máli
sínu, þá er eins víst að Nozick sjálfum hefði
verið nokk sama. „Ég hef aldrei haft áhuga á
að þvinga fólk til að trúa einhverju, ég hef
áhuga á að hjálpa því við að skilja hlutina bet-
ur,“ sagði Nozick í viðtali fyrir um tíu árum
(Borradori, bls. 75). Hann sagði hugmyndir
sínar um eðli og hlutverk heimspekinnar hafa
tekið breytingum frá því hann hafi skrifað An-
archy, State and Utopia. Hann kvaðst ekki
sérlega hrifinn af því markmiði heimspeki-
legra röksemdafærslna, sem honum sýndist
einkum einkenna svonefnda rökgreiningar-
heimspeki, að „þvinga“ fólk til að telja ein-
hverja tiltekna skoðun rétta og snúa því frá
öðrum skoðunum. Fremur ætti markmiðið
með heimspeki að vera að útskýra. Enda heitir
ein af síðari bókum Nozicks Heimspekilegar
útskýringar (Philosophical Explanations,
1981).
„Ef maður ber saman útskýringu og rök-
semdafærslu þá er augljóst að mun minni líkur
eru á þvingun í fyrra tilvikinu en því síðara,“
sagði Nozick. (Borradori, bls. 84). Í stað þess
að markmiðið með heimspeki sé að telja fólk á
hina einu réttu skoðun – þá skoðun sem rök-
semdafærslan leiðir til – sagðist Nozick
hlynntur heimspekilegri fjölhyggju sem hafi
pláss fyrir margar mismunandi skoðanir.
Heimildir:
Giovanna Borradori: The American Philosopher. Con-
versations við Quine, Davidson, Putnam, Nozick, Danto,
Rorty, Cavell, MacIntyre, and Kuhn. (The University of
Chicago Press, Chicago, 1994).
Richard A. Epstein o.fl.: „Life of Liberty. Robert Noz-
ick, R.I.P.“
(www.nationalreview.com)
L.T. Hobhouse: Liberalism. (Oxford University Press,
New York, 1964. Kom fyrst út 1911).
Robert Nozick: Anarchy, State, and Utopia. (Basic
Books, 1974).
Jonathan Wolff: „Robert Nozick, Libertarianism, And
Utopia.“
(world.std.com/~mhuben/wolff_2.html)
NOZICK
OG LÁG-
MARKSRÍKIÐ
Bandaríski heimspekingurinn Robert Nozick lést 23. janúar
síðastliðinn. Áhrif hans á vestræna heimspekihefð og vestræna
hugsun yfirleitt voru meiri en flestra annarra fagbræðra hans,
segir KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON. Þau áhrif má að mestu
rekja til fyrstu bókarinnar sem Nozick sendi frá sér, og hann er
af mörgum talinn hafa verið einn mikilvægasti talsmaður ein-
staklingsfrelsis og takmörkunar ríkisvalds.
„Ég hef aldrei haft
áhuga á að þvinga fólk
til að trúa einhverju,
ég hef áhuga á að
hjálpa því við að skilja
hlutina betur.“