Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2002, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2002, Qupperneq 10
Arfurinn frá Locke og Kant Undir lok 17. aldar urðu þáttaskil í enskri heimspeki þegar John Locke (1632–1704) skrifaði Ritgerð um mannlegan skilning. Hliðstæð þáttaskil urðu í þýskri heimspeki þegar Gagnrýni hreinnar skynsemi eftir Immanuel Kant (1724 – 1804) kom út árið 1781. Í þessum tveim bókum birtust ný við- horf til heimspekilegra fræða sem hafa mót- að flest það besta sem unnið hefur verið á þeim vettvangi síðan. Fyrir daga Locke og Kants litu flestir menntamenn svo á að heimspekin væri þess umkomin að skýra fyrir mönnum hvernig heimurinn er og hvers vegna hann er svona en ekki einhvern veginn öðru vísi. Með vísindabyltingunni á 17. og 18. öld varð fleirum og fleirum ljóst að menn gætu ekki aflað þekkingar á nátt- úrunni öðru vísi en með reynslu og rann- sóknum, úr heimspekilegum rökum einum saman væri í besta falli hægt að byggja skýjaborgir og loftkastala. Locke og Kant þekktu báðir vel til í heimi vísindanna. Kant vann fyrir sér með kennslu við háskólann í Königsberg og meðal náms- greina sem hann kenndi voru stærðfræði og eðlisfræði. Locke var samverkamaður Newt- ons og Boyle og þótt hann hafi sjálfur ekki verið neinn stærðfræðingur gerði hann sér grein fyrir því að auk reynslu og rannsókna studdust hin nýju vísindi einkum við stærð- fræðileg rök fremur en heimspekileg. Það er ekki vanalegt að stilla þeim Locke og Kant upp hlið við hlið, enda voru þeir ólíkir um margt. En hugmyndir þeirra um hlutverk heimspekinnar eru þó nauðalíkar og þessar hugmyndir hafa heimspekingar nútímans tekið í arf. Þeir höfnuðu því báðir að heimspekin sé uppspretta þekkingar á náttúrunni og mannlífinu. Slíkrar þekkingar töldu þeir að menn yrðu að afla með aðferð- um reynsluvísinda. En þessi vísindi styðjast við hugtök, þankagang og rökvísi sem eru engan veginn hafin yfir gagnrýni og leiða menn raunar stundum á villigötur. Að áliti Locke og Kants er hlutverk heimspekinnar einkum að rannsaka, gagnrýna og leiðrétta hugsunarhátt manna og hugtök. Einstakar greinar vísinda og fræða skoða aðeins af- markaða þætti veruleikans og nota oft hug- tök sem vart eru skiljanleg öðrum en inn- vígðum. Hér kemur líka til kasta heimspekinnar að gera þankagang einnar fræðigreinar skiljanlegan öðrum og tengja saman þekkingu úr ólíkum áttum. Með orða- lagi, sem ég held að sé ættað frá Páli Skúla- syni háskólarektor, má segja að það sé hlut- verk vísindamanna að pæla í veruleikanum en heimspekingar pæli í pælingunni. Nánar tiltekið fást þeir við að: Tengja þekkingu, sem tiltæk er, saman í heildarmynd af veröldinni og bera boð milli óskyldra umræðuheima. Leita uppi og benda á mótsagnir í skoð- unum manna, viðhorfum, hugmyndum eða kenningum. Til að gera þetta þarf oft að greina hugtök og rannsaka rökleg tengsl milli þeirra. Lagfæra hugtök, fága þau eða tálga til. Þetta er stundum gert til að sneiða hjá mótsögnum, stundum til að koma í veg fyrir margræðni og misskiln- ing. Andæfa hugsunarleysi, klisjum og innantómu orðagjálfri og vefengja ýmislegt sem er haft fyrir satt vegna þess eins hvað það lætur vel í eyrum. Viðfangsefni af þessu tagi hafa verið snar þáttur í allri heimspeki frá því á dögum Sókratesar og síðan Locke og Kant rituðu áðurnefnd tímamótaverk hefur þeirri skoðun vaxið fylgi að hún eigi ekki að fást við neitt annað. Svona gagnrýni er ekki og hefur aldr- ei verið bundin við eitt viðfangsefni öðrum fremur. Hennar er alls staðar þörf þar sem rökræður manna og pælingar lenda í ógöng- um vegna þess að hugmyndir þeirra eru mótsagnakenndar, hugtök ófullkomin, ein- hver djúpstæður misskilningur á ferðinni eða menn eru farnir að japla á innantómum klisjum í stað þess að rökræða í alvöru. En þótt heimspeki nútímans sé ekki bundin til- teknum viðfangsefnum hefur hún mest látið að sér kveða þar sem eru átök milli and- stæðra hugmynda sem varða kjarnann í heimsmynd manna eða gildismati. Sé reynt að segja sögu heimspekinnar án þess að tengja hana öðrum hræringum í andlegu lífi þá virðist hún ósköp marklaus. Við áttum okkur ekki á því lykilhlutverki sem hún gegnir í allri vitsmunalegri framþróun, hvort sem það er í vísindum, stjórnmálum, siðferði eða almennum lífsvið- horfum, nema við skoðum hana sem tilraunir manna til að átta sig á mótsögnum í hug- myndaheimi samtímans, skilja og greina hugmyndafræðilegan ágreining, bera boð milli ólíkra umræðuheima og krefja menn svara um hvað þeir meina þegar málflutn- ingur þeirra virðist kominn út í klisjur, stagl eða rugl. Annarlegar tungur Á sautjándu og átjándu öld skipuðu evr- ópskir lærdómsmenn sér í nokkrar meg- infylkingar og mikilvægustu átökin voru á milli talsmanna skólaspekinnar og þeirra sem fylgdu Galíleó og öðrum frumkvöðlum hinna nýja vísinda. Einnig tókust málsvarar jafnréttis og einstaklingshyggju á við þá sem vildu halda í samfélagsskipan frá miðöldum. Þessar meginátakalínur í hugmyndaheimi menntamanna fyrir tvö til fjögur hundruð árum voru ekki ljósar þá á sama hátt og þær eru núna. Hugmyndasagan er sögð eftir á. Á nítjándu öld urðu átakalínurnar fleiri og margbrotnari. Þá breikkaði bilið milli raun- vísinda og húmanískra greina og þrætur ólíkra stjórnmálahugmynda urðu flóknari og fylkingarnar fleiri þegar rómantísk þjóðern- isstefna og sósíalismi tóku að láta að sér kveða. Átök veraldarhyggju og trúarlegra sjónarmiða öðluðust líka nýja vídd með þró- unarkenningu Darwins. Þessi flókni hug- myndaheimur 19. aldar ól af sér margbreyti- lega og sundurleita heimspeki og það er miklu erfiðara að skipa höfuðspekingum 19. aldar í flokka heldur en frumkvöðlunum í heimspeki 17. og 18. aldar. Þegar kemur að 20. öldinni verður þetta ennþá flóknara. Ég get mér þess til að í framtíðinni þyki mönn- um að það merkasta í heimspeki 20. aldar hafi annars vegar tengst átökum milli jafn- aðarstefnu og frjálshyggju og hins vegar til- raunum kristinna heimspekinga til að verja leifar trúarlegrar heimsmyndar gegn ásókn veraldarhyggju og vísindalegrar hugsunar. En þetta eru ágiskanir einar því ég get ekki horft á hugsun samtímans úr þeirri fjarlægð að ég sjái skóginn fyrir trjánum og þá stærri drætti í landslaginu sem nauðsynlegir eru til að ná áttum. Hverri kynslóð þykir erfitt að átta sig á heimspeki samtímans vegna þess að á hverjum tíma lætur heimspekin helst að sér kveða þar sem menn eru hvað áttavillt- astir. Hugmyndir nútímamanna eru í vaxandi mæli hugmyndir allra þjóða og allra tíma rétt eins og tónlist okkar er í senn tónlist margra alda og heimsins alls. Í bókahillum standa Hávamál og Bókin um veginn kannski hlið við hlið eða Kóraninn og bækur um kvenréttindi. Menningarheimur nú- tímans, hugarheimur okkar, er fjölmenning- arlegri og um leið gróskumeiri og „dýnam- ískari“ en hugarheimur fyrri alda. Hug- myndir, kenningar og heilar fræðigreinar spretta fram hraðar en fyrr og í ríki andans verða nýjar átakalínur til nánast á hverjum degi. Það er því eðlilegt að viðfangsefni nútímaheimspeki séu fjölbreytt og sundur- leit. Ég gat þess að á 19. öld hefði bilið milli raunvísinda og húmanískra greina breikkað. Fyrir fræðimenn úr öðrum hópnum var mál hinna eins og á annarlegri tungu. Nú eru þessi ólíku „mál“ orðin miklu fleiri. Það má orða þetta svo að verkaskipting í heimi vísinda og fræða hafi aukist. Fyrir 150 árum skildu flestir raunvís- indamenn og stærðfræðingar hver annan og svipaða sögu má segja um sagnfræðinga og þá sem fengust við mannvísindi. En eftir því sem þekkingin hefur aukist kemst minna brot hennar fyrir í einu mannshöfði. Því er vaxandi þörf fyrir menn sem geta borið boð milli óskyldra umræðuheima og raðað þekk- ingu úr ólíkum áttum saman í heildarmynd. Slíkir menn þurfa að hafa þjálfun í heim- spekilegri hugsun, þ.e. rannsókn á hugtökum og gagnrýninni skoðun á hugmyndaheimi og þankagangi samtímans. Þeir þurfa líka að hafa meira en bara yfirborðsþekkingu á þeim annarlegu tungum sem túlkaðar skulu. Meintur klofningur heimspekinnar Sumir sem fjalla um sögu heimspekinnar á 20. öld gera greinarmun á meginlandsheim- speki og rökgreiningarheimspeki. Sú fyrr- nefnda kvað eiga sín sterkustu vígi í Þýska- landi og Frakklandi en sú síðarnefnda einkum vera runnin undan rifjum Breta og Bandaríkjamanna. Þessi flokkun er ekki al- veg úr lausu lofti gripin því Georg Hegel (1770-1831) og heimspekingar sem andmæltu Hegel, eins og t.d. Daninn Søren Kierkegård (1813 – 1855), hafa lengst af verið mun áhrifameiri í þýsku- og frönskumælandi löndum en meðal þeirra sem rita á ensku. Enskumælandi heimspekingar hafa hins vegar verið undir meiri áhrifum frá raun- hyggjumönnunum John Locke og David Hume (1711 – 1776) og stærðfræðilegri rök- fræði sem mótuð var af Gottlob Frege (1848 – 1925) og Bertrand Russell (1872 – 1970) fyrir um það bil 100 árum. Einnig hefur dæmigerð meginlandsheimspeki jafnan haft heldur meiri tengsl við húmanískar greinar og guðfræði heldur en rökgreiningarheim- spekin sem hefur verið undir meiri áhrifum frá hugsunarhætti raunvísinda. Þótt víst sé fótur fyrir því að hægt sé að skipta verulegum hluta af heimspeki tutt- ugustu aldar í meginlands- og rökgreining- arheimspeki er samt mikil einföldun að halda að hægt sé að setja alla breska og bandaríska heimspeki undir einn hatt og HEIMSPEKI NÚTÍMANS E F T I R AT L A H A R Ð A R S O N „Ef heimspeki nútímans er ruglingsleg þá er það líklega vegna þess að nútíminn þarf á heimspeki að halda. Sé hún pirrandi er trú- legasta skýringin sú að heimspekingarnir standi sig þokkalega í stykkinu. Falli hún hins vegar flestum í geð þá finnst mér að minnsta kosti vert að spyrja hvort hún sé nokkuð annað en hugsunarlaus kliður og vaðall í mönnum sem njóta þess að þykjast gáfaðir með því að bergmála ruglið hver úr öðrum.“ HEIMSPEKI , T IL HVERS? 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. FEBRÚAR 2002

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.