Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2002, Page 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 9. FEBRÚAR 2002
F
ARANDSÝNINGIN Carnegie
Art Award er sýnd í fjórða sinn
í öllum höfuðborgum Norður-
landa og í Lundúnum. Verðlaun-
unum var komið á fót árið 1998
á vegum norræna fjárfestinga-
bankans Carnegie, til að styðja
framúrskarandi listamenn á
Norðurlöndum, kynna og efla norræna sam-
tímamálaralist. Viðburðurinn er árlegur og
felur í sér farandsýningu valinna listaverka,
skráningu sýningarinnar í bókarformi og af-
hendingu Carnegie Art-verðlaunanna sem
veitt eru þremur listamönnum er eiga verk á
sýningunni ásamt styrk til yngri listamanns.
Sú spegilmynd sem leitast er við að gefa af
norrænni samtímalist með Carnegie Art Aw-
ard er fengin með tilnefningu þrjátíu sérfræð-
inga á sviði norrænnar samtímalistar á allt að
því fimm listamönnum sem að þeirra áliti
skara fram úr í norrænu listalífi. Sérfræðing-
arnir eru fulltrúar listasafna og listaskóla, en
einnig listgagnrýnendur og aðrir kunnáttu-
menn um list á Norðurlöndum. Tilnefndum
listamönnum er í kjölfarið boðið að taka þátt í
úrvali fyrir Carnegie Art Award-sýninguna
með allt að fimm verkum, sem unnin hafa
verið á síðustu tveimur árum. Í kjölfarið velur
dómnefnd þann hóp listamanna sem taka þátt
í hinni árlegu sýningu og við opnun hennar
eru Carnegie Art-verðlaunin afhent.
Endurspeglun á norrænni
samtímamálaralist
Á Carnegie Art Award-sýningunni árið
2001, sem sett hefur verið upp í Listasafni
Kópavogs – Gerðarsafni, er sýnt 51 verk eftir
22 norræna listamenn. Þeirra á meðal eru
handhafar Carnegie Art-verðlaunanna, Svíinn
Jan Håfström sem hlaut fyrstu verðlaun,
Finninn Carolus Enckell sem hlaut önnur
verðlaun og Johan Scott frá Álandseyjum er
hlaut þriðju verðlaun. Ungur sænskur lista-
maður, Jens Fänge, hlaut Carnegie-styrkinn
til upprennandi listamanns. Verðlaunin voru
afhent hinn 4. nóvember síðastliðinn í ARK-
EN-nútímalistasafninu í nágrenni Kaup-
mannahafnar, en þar var Carnegie Art-sýn-
ingin árið 2001 upphaflega opnuð. Síðan hefur
hún verið sýnd í Kunsternes Hus í Osló og
Victoria Miro Gallery í Lundúnum og að lok-
inni sýningunni í Listasafni Kópavogs liggur
leiðin til Konstakademien í Stokkhólmi og
Konsthallen í Helsinki.
Ulrika Levén, sem annast hefur sýning-
arstjórn Carnegie-sýninganna frá upphafi, er
meðal þeirra sem komu hingað til lands til að
setja upp sýninguna í Gerðarsafni. Hún segir
Carnegie-sýninguna forvitnilega að því leyti
að þar sé ekki um að ræða úrval tiltekins sýn-
ingarstjóra, heldur nokkurs konar samsafn
sem ætlað er að endurspegla það besta og
áhugaverðasta sem eigi sér stað í norrænni
samtímamálaralist. „Undanfarin ár hefur
staða málverksins verið í deiglunni, enda hef-
ur listsköpun 20. aldar gengið í gegnum mikl-
ar hræringar sem sprengt hafa listina út í
fjölmarga ólíka miðla. Það hefur venjulega
einhver dauðadómur gagnvart málverkinu
legið yfir þeirri umræðu, en á sýningunni sem
við stöndum frammi fyrir hér kemur hið
gagnstæða í ljós. Málverkið sem hér birtist
okkur er sterkt og býr yfir óþrjótandi end-
urnýjunarmætti sem nýtur góðs af allri þeirri
endurskoðun sem átt hefur sér stað á lista-
hugatakinu,“ segir Ulrika. „Þannig er sá
skilningur sem lagður er í hugtakið málverk á
þessari sýningu mjög breiður, og ber vitni um
þá gagngeru athugun á hvers kyns mörkum
sem listin hefur látið sig varða undanfarna
áratugi. Kristján Guðmundsson, fulltrúi ís-
lenskrar samtímalistar á sýningunni, er t.d.
með verk sem ekki allir myndu skilgreina
sem málverk við fyrstu sýn, enda hefur Krist-
ján á sínum listferli unnið mjög með hug-
myndalist. Verkin „Red Painting with Clear
View“ og „Black Painting with Clear View“,
eru engu að síður „máluð“, þótt bakgrunn-
urinn sé þrefalt gler í umgjörð. Sama á við
listakonuna Hedevig Anker sem sýnir ljós-
myndir frá innviðum íbúðar. Hún var upp-
haflega málari, en notar nú ljósmyndavélina
til að kalla fram viðfangsefni mynda sinna,
sem hverfast um átök forgrunns og bak-
grunns og afstrakt úrvinnslu forma. Hún
vann áður með málverk í sams konar sam-
hengi og þótt hún hafi skipt um miðil er hún
enn að takast á við „málverksleg“ eða „mal-
erísk“ úrlausnarefni. Flestir listamannanna
sem eiga verk á þessari sýningu vinna jöfnum
höndum í ólíkum miðlum. Það sem einkennir
hins vegar ekki síst hina ungu kynslóð lista-
manna, sem margir hverjir eru að fást við
málverk, er mikil meðvitund um hefðina og
metnaðarfull tilraun til að bæta einhverju þar
við,“ segir Ulrike.
Endurtekin stef í
margleitri flóru
Hún bendir á að á sýningunni sé bæði að
finna verk eftir þekkta listamenn á Norð-
urlöndum og minna þekkta listamenn sem
eru að hasla sér völl. Jan Håfström, handhafi
fyrstu verðlaunanna, er vel þekktur norrænn
listamaður og er hann í myndþrennu sinni um
myndasöguhetjuna Skugga að vinna með
þætti er endurspegla og gera á vissan hátt
upp viðfangsefni síns listferils. „Håfström er
einn þeirra listamanna á sýningunni sem unn-
ið hafa með viðfangsefni popplistarinnar, með
allri þeirri upplausn hefðbundins listskilnings
sem henni fylgir. Þessi þemu er einnig að
finna í verkum listamanna á borð við Lars
Arrhenius og Katrine Giæver. Ef litið er á
sýninguna í heild mætti líklegast segja að þar
sé um margleitan heim að ræða, þar sem
listamennirnir vinna með málverkið á mjög
ólíkum forsendum um leið og sjá má úr-
vinnslu á ýmsum spurningum, t.d. er varða
sköpunarferli verksins, þátt handverksins,
minni hefðarinnar og malerísk form, í ólíkum
verkum og samsetningum,“ segir Ulrike að
lokum.
Aðrir listamenn sem valdir hafa verið til
þátttöku í Carnegie Art Award-sýningunni
árið 2001 og ekki hafa verið nefndir eru
Håkan Bengtsson, Juhana Blomstedt, Kaspar
Bonnén, Peter Carlsen, Dag Erik Elgin, Har-
ald Fenn, Linn Fernström, Matti Kujasalo,
Sami Lukkarinen, Rita Lundqvist, Kehnet
Nielsen, Janne Räisänen, Christian Schmidt-
Rasmussen og Kjell Torriset. Sýningunni
fylgir u.þ.b. 200 síðna bók þar sem listamenn
Carnegie Art Award-sýningarinnar eru
kynntir ásamt litprentunum af öllum verkum
sýningarinnar.
ÓLÍK ÚR-
LAUSNAREFNI
MÁLVERKSINS
Jan Håfström hlaut Carnegie-verðlaunin árið 2001 fyrir myndröð sína um „Skugga“. Dómnefnd-
in telur verkið fela í sér bergmál ótal frásagna sem spretta ekki síst úr áratuga listsköpun Håf-
ströms sjálfs. Hér má sjá fyrsta hluta myndþrennunnar, „The Informer“.
Kaspar Bonnén. Olía á striga, 190 x 240 cm, 2001.
Sýningin Carnegie Art Award var opnuð af Valgerði
Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í Lista-
safni Kópavogs í gær. Um er að ræða árlegan við-
burð sem ætlað er að kynna nýjustu og áhugaverð-
ustu hræringar í samtímamálaralist á Norðurlöndum.
HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR kynnti sér sýninguna
sem verður opnuð almenningi í dag.
„Án titils, 5/2001“. Hedevig Anker tekst á við malerísk úrlausnarefni í ljósmyndaröð sinni.
heida@mbl.is