Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.2002, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.2002, Side 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. SEPTEMBER 2002 N ÝLEGA kom út í enskri þýðingu rit Torfa Tul- iniusar, The Matter of the North. The Rise of Literary Fiction in Thirteenth-Century Iceland, en frumútgáfa hennar kom út á frönsku árið 1995. Í bókinni setur Torfi, sem er prófessor í frönsku og miðaldabókmennt- um við Háskóla Íslands, meðal annars fram æði forvitnilegar hugmyndir um túlkun Egils sögu í ljósi iðrunarguðfræði og yfirbótar- hugsunar á ritunartíma hennar. Hann telur hugsanlegt að Egla kunni að hafa verið eins konar leyndarskrift höfundar síns, Snorra Sturlusonar, og rituð sem yfirbót fyrir syndir hans. Torfi heldur fyrirlestur á sagnaráðstefn- unni Sögur og samfélög sem fram fer í Borg- arnesi um helgina en þar mun hann tala um félagslegar rætur sagnaritunar út frá kenn- ingum félagsfræðingsins Pierre Bourdieu. Blaðamaður ræddi við Torfa um bók hans og aðrar rannsóknir hans á fornsögunum. Leikmenn sem sækja menntun og menningu til kirkjunnar Torfi segir að tveir meginstraumar hafi verið í rannsóknum á fornbókmenntum síð- ustu áratugi. „Það hefur annars vegar verið lögð áhersla á að íslenskir sagnaritarar voru hluti af lærðri menningu miðalda. Þetta má sjá í rit- um fræðimanna á borð við Hermann Pálsson, Lars Lönnroth og Regis Boyer, sem ég lærði hjá í Sorbonne-háskóla í París. Og hins vegar var á sjöunda og áttunda áratugnum farið að leggja áherslu á rætur sagnanna í samfélagi þjóðveldisins og má þar nefna menn eins og Theodore M. Andersson og Preben Meulen- gracht-Sörensen. Hermann og Lönnroth lögðu sérstaka áherslu á kirkjuleg áhrif á sagnaritunina eða hinn klerklega hugsunar- hátt. En Andersson og Preben líta á fornsög- urnar sem bókmenntir leikmanna og hafa þá frekar tilhneigingu til að horfa fram hjá hin- um kirkjulegu áhrifum. Í rannsóknum mínum hef ég reynt að sam- eina þessi sjónarhorn vegna þess að mér þykir það sagnfræðilega rökrétt. Þeir sem settu saman sögur á borð við Fornaldarsög- ur, Íslendingasögur og samtíðarsögur Sturl- ungu voru að öllum líkindum leikmenn, en sóttu þó verulegan hluta af menntun sinni og menningu til kirkjunnar. Þótt þeir væru að túlka eigin samfélagslegu stöðu og hlutverk og heimssýn í skrifum sínum er ekki annað hægt en að gera ráð fyrir því að þeir hafi ver- ið trúaðir og mótaðir af kaþólskri trú og kaþ- ólskum hugarheimi. Ég held að lykillinn að skilningi á sögunum sé að skoða þær í ljósi þess að þetta voru kaþólskir leikmenn. Sem leikmenn voru þeir uppteknir af félagslegum samskiptum, einkum deilum um völd og virð- ingu, en sem kristnir menn tóku þeir mið af mannskilningi miðaldakirkjunnar í túlkun sinni á sjálfum sér og fortíð sinni. Að þessu leyti voru þeir ekki ólíkir leikmönnum sunn- ar í evrópu, en greina má margar hliðstæður milli upphafs sagnaritunar hér á landi og til- komu bókmennta á þjóðtungum í Frakklandi og Englandi um svipað leyti. Hvorttveggja tengist því að höfðingjastéttirnar eru að smíða sér sjálfsmynd sem greinir þær frá kirkjunni. Þó nota höfðingjarnir menning- arleg tæki hennar til að skapa þessa sjálfs- mynd, m.a. með ritun sagna um fortíðina.“ Fornaldarsögur Norðurlanda samtímaheimildir Bók Torfa skiptist í þrjá hluta. Í fyrsta hlutanum er sögunum sem fengist er við lýst en þær eru sex fornaldarsögur Norðurlanda, Jómsvíkingasaga og Egilssaga. Þar lýsir Torfi einnig aðferðafræði sinni en hann greinir sögurnar sem heimildir um hugarfar og gildismat samtíma síns. Ennfremur er í fyrsta hluta sett fram tilgáta um það hvernig fornaldarsagnaritun hefst. Í öðrum hluta eru sex fornaldarsögur lesn- ar og greindar og finnur Torfi í þeim hvort- tveggja í senn, annars vegar mikil merki um kaþólskt hugarfar, hins vegar sérstök hugð- arefni leikmanna úr stétt höfðingja og ríkari bænda. Hann bendir til dæmis á hvernig sögumynstur syndafalls og syndaaflausnar býr undir Hervarar sögu og Heiðreks þótt hún virðist einnig vera að fást við breytingar á erfðarétti meðal leikmanna. Í Völsunga sögu sé guðfræði einnig áberandi en þar eru það hugmyndir um ásetning og iðrun en þær hafi verið mjög til umræðu á tólftu og þrett- ándu öld. Heimildir Völsunga sögu eru hetju- ljóð sem varðveist hafa í Konungsbók eddu- kvæða en Torfi telur höfundinn hafa fléttað inn í söguna þeim kristna boðskap að það sé munur á því hvort synd sé drýgð með ásetn- ingi eða ekki. Með þessu móti segir Torfi að fornaldar- sögur Norðurlanda hafi endurspeglað sam- tíma sinn eins og hann blasti við kristnum leikmönnum í efri lögum samfélagsins. „Aðferð mín byggist á að greina sögurnar nákvæmlega frásagnarfræðilega en ég studdist að mestu við kenningar tveggja fræðimanna á því sviði, Claude Lévi-Strauss sem er mannfræðingur og A. J. Greimas sem var táknfræðingur. Síðan reyni ég að tengja lestur minn við hugarfar samtímans og þar studdist ég við verk sagnfræðinga franska annálaskólans sem hafa átt drjúgan þátt í að endurnýja skilning okkar á miðaldamannin- um. Að endingu las ég þetta saman við Sturl- unga sögu sem er samtíðarsaga frá þrett- ándu öld og veitir innsýn í hvað menn voru að fást við í því samfélagi sem ól sögurnar af sér. Ég tel að þessi aðferð geri mér kleift að halda því fram að sögur eins og fornaldarsög- ur Norðurlanda, sem gerast í fjarlægri fortíð og eru mjög ævintýralegar og lítt raunsæjar, séu ekki síðri heimild um íslenskt miðalda- samfélag en t.d. samtíðarsögur. Allt fer þetta eftir þeirri túlkunaraðferð sem beitt er.“ Dulin saga Eglu Í þriðja hluta bókarinnar er fjallað um Jómsvíkinga sögu og leitast við að lýsa ís- lensku skáldskaparmáli á þrettándu öld. Ennfremur er fjallað um Egils sögu. „Bókin átti upphaflega ekki að fjalla um Egils sögu en hún er byggð á doktorsritgerð um fornaldarsögur Norðurlanda. En Egils saga tók að leita á þegar leið á rannsóknina og virtist liggja mjög vel við þeirri aðferða- fræði sem ég beitti.“ Torfi heldur því fram að Egils saga sé mun heilsteyptari en menn hafa hingað til álitið. „Ég tel að seinni hluti sögunnar sem fjallar um Egil sé ekki samsuða úr mörgum sögum sem varðveist höfðu í munnlegri geymd held- ur byggð á ákveðinni grunnhugsun sem geri söguna að einni heild. Egill ryðst inn í sög- una til þess að keppa við Þórólf bróður sinn. Þessi keppni verður mjög hatrömm en henni er haldið undir yfirborðinu í sögunni. Að mínu mati gerir höfundurinn það meðvitað að segja sögu en fela hana um leið. Og þessi saga sem liggur undir niðri er sú að Egill hafi í rauninni viljað eignast konu bróður síns, hann hafi síðan óbeint orðið valdur að dauða bróðurins og notið þess með því að geta eign- ast konu hans. Það sem gerist í sögunni eftir að Egill hefur eignast konu bróður síns er af- leiðing þess og þá sérstaklega þegar hann missir son sinn Böðvar. Til að útskýra þetta þurfti ég að skírskota til tveggja hluta sem menn tengja ekki endi- lega saman. Annars vegar Biblíunnar og sér- stakrar túlkunarhefðar hennar og hins vegar hefðar dróttkvæða. Túlkun Biblíunnar eins og hún var stunduð í samtíma Egluhöfundar gengur út frá því að atburður í Gamla testa- mentinu sé forboði annars atburðar í Nýja testamentinu en það er hlutverk guðfræð- ingsins eða ritskýrandans að tengja þessa at- burði saman og útskýra merkingu atburða Gamla testamentisins út frá Nýja testament- inu og nota hana síðan til að útskýra samtím- ann og varpa ljósi á líf einstaklingsins. Þegar barn er skírt er þannig verið að endurtaka skírn Jesú í Nýja testamentinu en hún er jafnframt vísun í það þegar Móse leiðir út- völdu þjóðina í gegnum Dauðahafið í Gamla testamentinu. Á sama hátt er forboða mey- fæðingarinnar að finna í fjórðu Mósebók Gamla testamentisins þar sem ættbogar Ísr- aelsþjóðar í eyðimörkinni eru að karpa um það hver eigi að hafa æðstaprestinn og drott- inn segir við Móse að hann skuli láta útbúa teinung fyrir hverja ætt og bera hann inn í tjaldið þar sem sáttmálsörkin er geymd. Þegar teinungarnir eru bornir út á ný hefur einn þeirra laufgast og borið ávöxt og af þeim ættboga eru allir prestar. Þetta kraftaverk er forboði eða forspeglun meyfæðingarinnar, þar sem heilagur andi frjóvgar lífveru sem ber ávöxt. Jólasálmurinn alkunni „Það aldin út er sprungið“ vísar til þessa. Ég skoða Eglu út frá þessu sjónarhorni. Og ég taldi mig geta sýnt fram á að sagan gæfi í skyn að undir yfirborðinu byggi önnur saga en væri sögð berum orðum. Og þessa merkingu væri hægt að lesa í söguna með guðfræðilegum skýringum annars vegar og hins vegar með sömu aðferð og merking er lesin úr drótt- kvæðum.“ Egill og Davíð konungur Torfi segir að niðurstaðan hafi verið sú að sál Egils væri að einhverju leyti viðfangsefni sögunnar, hún væri syndug en þess verð að vera bjargað. „Ég skoðaði til dæmis sonamissi Egils og Sonatorrek. Samsvarandi saga í Biblíunni er um Davíð konung sem er refsað fyrir syndir sínar með sonarmissi. Davíð er einnig refsað fyrir að hafa girnst eiginkonu annars manns, hans Úrie, sem deyr einmitt á sama hátt og Þórólfur. Egill kemur því þannig fyrir að þeir Þórólfur þurfa að fara til Englands og Davíð kemur því þannig fyrir að Úrie er sendur í hernað og skipar síðan mönnum Úrie að hörfa þar sem þeir berjast í fremstu víglínu. Egill gerir þetta ekki en Þórólfur deyr er hann hleypur á undan mönnum sín- um í orrustu og er drepinn. Fleiri atriði tengja Egil og Davíð. Báðir eru skáld frá for- kristnum tíma. Þeir eiga báðir óvináttu kon- ungs en eiga líka báðir góðan vin við hirðina sem verndar þá fyrir reiði konungs, Eirík blóðöx og Arinbjörn í tilfelli Egils og Sál kon- ung og Jónatan í tilfelli Davíðs. Fleira mætti telja. Mér þótti ljóst að höfundur Eglu hefði markvist notað sögu Davíðs, ekki sem fyr- irmynd heldur nokkurs konar fortexta eða tengdatexta, eins og það hefur verið kallað, en saga hans var mjög þekkt á miðöldum og til dæmis sögð í Konungsskuggsjá sem er frá svipuðum tíma og Egla. Líklega ætlaðist höf- undur hennar til þess af lesendum sínum að þeir skildu sögu Egils út frá viðteknum skiln- ingi á sögu Davíðs.“ Sonatorrek kristinn kveðskapur? Torfi segir að einnig megi velta því fyrir sér hvaða tilgangi Sonatorrek gegni í þessu samhengi. „Davíð er skáld en yrkir ekki eftir son sinn sem er tekinn af honum. Guðfræðingurinn og heimspekingurinn Abelardus yrkir hins veg- ar fræg harmljóð í orðastað hans á tólftu öld, bæði um syni hans og annað um vin hans Jónatan. Þar er því komin hliðstæða við bæði Sonatorrek og Arinbjarnarkviðu: ort er í orðastað frægs skálds frá forkristnum tíma. Ég fór að velta því fyrir mér hvort Sonator- rek væri hluti af sögunni um Egil sem synd- ara og þá ekki ort af honum heldur síðari tíma manni. Halldór Laxness benti á það í grein um Sonatorrek að síðustu orð þess væru vísun í Lúkasarguðspjallið. Í kvæðinu er talað um „góðan vilja“ en í guðspjallinu eins og það var lesið á kaþólskri tíð var gert ráð fyrir að náð drottins næði til „allra manna sem hefðu góðan vilja“ en í lútersku er sagt: „til allra manna sem guð hefur vel- þóknun á“. Náðarkenning kaþólskunnar er ólík náðarkenningu lúterskunnar að þessu leyti. Í kaþólskum sið skiptir það máli að mennirnir vilji vel en Lúter leit svo á að frelsi mannsins skipti minna máli en náð guðs. Halldór bendir því á að lúterskan hafi blind- að okkur við lestur á Sonatorreki sem geymi vísun í guðspjallið eins og það var í kaþólskri tíð. Ég leitaði að frekari sönnunum fyrir því að Sonatorrek væri kristinn kveðskapur og fann eina kenningu í fjórðu vísu kvæðisins þar EGILS SAGA YFIRBÓT FYRIR SYNDIR SNORRA „En þótt Egils saga kunni að hafa verið samin sem yf- irbót fyrir syndir höfundarins og sé jafnvel leynd skrift hans þýðir það ekki að höfundurinn sé að beygja sig að öllu leyti undir vald kristninnar. Það sem er áhuga- vert við söguna er að í henni má einnig greina við- nám gegn þessari valdbeitingu,“ segir Torfi Tulinius, prófessor í frönsku og miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands, í viðtali við ÞRÖST HELGASON en Torfi er einn af fyrirlesurum á fornsagnaþinginu Sög- ur og samfélög sem fram fer í Borgarnesi um helgina.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.